Skip to main content

BaejarbladidJokull1180tbl

Page 1

5. nóvember 2025

1180. tbl - 25. árg.

Grafa þilskurð í Ólafsvíkurhöfn

Um þessar myndir eru skipin Pétur mikli og Reynir við störf í Ólafsvíkurhöfn við dýpkunarframkvæmdir. Pétur mikli er dýpkunarskip og gröfuprammi en Reynir er vinnubátur. Í sameiningu vinna þeir að grunnvinnu svo hægt sé að lengja bryggjuna við Norðurgarð. Til þess þarf að reka 100 metra stálþil niður og vinna bátarnir að því að grafa þil-

skurð. Grafið er 4,5 metra niður frá hafsbotni, skipt um efni í skurðinum og svo eru stálþilin rekin niður. Nýja efnið í þilskurðinum verður malarefni frá Rifi en um 2000 m3 af möl verða notaðir í verkið. Áætlað er að unnið verði að mokstrinum út nóvembermánuð. Meðfylgjandi mynd tók fréttamaður Jökuls af skipunum við vinnu.

Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111

SJ


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokull1180tbl by Steinprent - Issuu