1179. tbl - 25. árg.
29. október 2025
Góð þátttaka í Kvennafrídeginum Kvennafrídagurinn var haldinn hátíðlegur um land allt föstudaginn 24. október síðastliðinn. Haldið hefur verið upp á kvennafrídaginn á Íslandi reglulega frá árinu 1975 en þá leggja konur og kvár niður störf til að sýna fram á mikilvægi síns starfs, bæði launaðs og ólaunaðs. Konur og kvár eru hvött til að leggja niður störf allan daginn, bæði heima fyrir og í vinnu eða að ganga út upp úr hádegi. Með þessu móti er markmiðið að sýna fram á hve mikið vægi störf kvenna hefur í samfélaginu og þennan dag lokuðu skólar og leikskólar, ýmist allan daginn eða klukkan 13, verslanir lokuðu eða keyrðu á lágmarksmönnun ásamt öðrum fyrirtækjum og stofnunum. Í Snæfellsbæ komu konur og kvár saman á Skeri í Ólafsvík þar sem Halldóra Unnarsdóttir hafði skipulagt viðburð til að halda upp á daginn. Kvennafrídagurinn er dagur til að fagna framþróun en líka til að minna á að baráttunni er ekki lokið og voru yfir 60 konur samankomnar þennan dag til þess að sýna samstöðu. Halldóra byrjaði samveruna á að ávarpa konur um mikilvægi kvennabaráttunnar og svo nutu konur sam-
Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111
verunnar og fylgdust með dagskránni frá Ingólfstorgi þar sem um 50 þúsund manns voru saman komin. Í Grundarfirði hóf öflugur hópur daginn á kröfugöngu um Grundarfjörð sem endaði svo á fjöldasöng þar sem meðal annars var tekið baráttusönginn sem var frumfluttur í Reykjavík fyrir 50 árum síðan. Um hádegi var konum og kvárum svo boðið til samveru á Kaffi 59 þar sem yfir 30 konur komu saman, sýndu samstöðu og héldu upp á daginn. SJ