1178. tbl - 25. árg.
22. október 2025
Nýtt fjarskiptamastur í Ólafsvík Reist hefur verið nýtt 35 metra hátt fjarskiptamastur við Ólafs víkurhöfn. Þetta mastur kemur í stað gamla mastursins sem hafði staðið við Bæjartún 11 en var tek ið niður í nóvember 2024 eftir að Pósturinn hætti þar starfsemi. Míla hefur umsjón með fram kvæmdinni og er eigandi masturs ins en Jáverk frá Selfossi sá um að reisa mastrið með kranabíl. Mastrið er um 4,5 tonn að þyngd og er kirfilega boltað niður í þykk an stall við Norðurtanga 6A hjá Ólafsvíkurhöfn. Þegar mastrið var komið á sinn stað voru það svo bræðurnir Stefán og Páll Svans synir, starfsmenn T.S. Vélaleigu sem hífðu upp starfsmann Mílu í yfir 30 metra hæð svo hægt væri að ganga frá öllu eins og best er á kosið. Nýtt fjarskiptamastur gnæfir nú yfir höfninni og mun það bæta fjarskipti bæði sjómanna og fólks á landi. SJ
- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði
Blakmót í Ólafsvík og Grundarfirði um helgina
vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður UMFG mun um helgina halda Íslandsmót 5. deildar kvenna í blaki. Spilað verður í íþróttahús inu í Grundarfirði og Íþrótta húsi Snæfellsbæjar. Mótið byrj ar föstudaginn 24. október og stendur yfir út sunnudaginn
26. október. B-lið UMFG spilar í 5. deild og mun því keppa um helgina ásamt ellefu öðrum lið um. Það verður sjoppa á báðum stöðum og eru öll hvött til að mæta og styðja blakarana áfram. Áfram UMFG!