15. október 2025
1177. tbl - 25. árg.
Bleikur október Október er oft kenndur við litinn bleikan vegna tengingu mánaðarins við vitundarvakningu um krabbamein í konum. 22. október verður Bleiki dagurinn haldinn hátíðlegur en þá klæðumst við bleiku og lýsum skammdegið upp í bleikum ljóma til að minna á að það er list að lifa með krabbameini. Þá sýna Íslendingar stuðning með öllum konum sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra. Mörg mannvirki hafa nú þegar verið lýst með bleikum ljóma og eins og sjá má á myndinni er Ólafsvíkurkirkja ein þeirra. Í Grundarfjarðarkirkju verður haldin bleik messa miðvikudaginn 15. október en þar mun Lísa Ásgeirsdóttir segja frá reynslu sinni af krabbameini. Eftir messuna mun Krabbameinsfélag Snæfellsness selja vörur til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands. Þar á meðal verður Bleika slaufan sem var hönnuð af fatahönnuðinum og listakonunni Thelmu Björk Jónsdóttur. Slaufan er rósetta, verðlaunagripur sem nældur er í hjartastað og er tileinkaður öllum þeim hetjum sem lifa með krabbameini. Thelma Björk greindist sjálf með brjóstakrabbamein með meinvörpum árið 2024 og lifir því með ólæknandi krabbameini.
Bleika slaufan er enn fáanleg í flestum verslunum og á vefsíðu Krabbameinsfélags Íslands.
Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111
JJ
Jökull Bæjarblað steinprent@simnet.is 436 1617