8. október 2025
1176. tbl - 25. árg.
Starfamessa í Fjölbrautaskóla Snæfellinga Starfamessurnar fóru fram 26. september í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi, 30. september í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði og 3. október í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Starfamessur á Vesturlandi 2025 er eitt af áhersluverkefnum Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. Slíkir viðburðir hafa verið vinsælir meðal grunn- og framhaldsskólanema sem vilja kynna sér framtíðarmöguleika betur, bæði varðandi nám og störf. Fyrirtæki og stofnanir nota messuna til að kynna starfsemi sína og krækja sér í starfsfólk framtíðarinnar. Markmið Starfamessu er að kynna fjölbreytt námstækifæri á Vesturlandið, kynna fjölbreytt atvinnutækifæri á Vesturlandi, skapa beint samtal milli
nemenda og atvinnulífsins, auka meðvitund um hvaða menntun og færni skiptir máli í framtíðarstörfum og að virkja nemendur í gegnum ratleik og aðrar gagnvirkar aðferðir. Þá er markmiðið að gefa gestum innsýn í fjölbreytt störf og starfsleiðir sem finna má innan fyrirtækja og stofnana á svæðinu með það að leiðarljósi að kveikja áhuga og varpa ljósi á möguleika framtíðarinnar. Nemendur úr 9. og 10. bekk í grunnskólum á Vesturlandi og nemendur í framhaldsskólum heimsóttu starfamessurnar að morgni og svo var opið fyrir almenning á öllum starfamessum eftir hádegi. Tugir fyrirtækja kynntu starfsemi sína og höfðu allir sem að komu gagn og gaman af viðburðinum. SJ
Undirritun samnings um farsæld Í byrjun október mánaðar undirrituðu sveitarstjórnarmenn og forsvarsmenn stofnana og félaga á Vesturlandi samning um stofnun Farsældarráðs Vesturlands. Fyrir rúmu ári undirrituðu þáverandi mennta- og barnamálaráðherra Ásmundur Ernir Daðason og Páll Snævar Brynjarsson, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi samning um svæðisbundið farsældarráð á Vesturlandi. Undirbúningur hefur síðan þá staðið yfir í landshlutanum. Bára
Daðadóttir er starfandi verkefnisstjóri farsældar hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi. Markmiðið með starfinu er að efla og samræma þjónustu við börn og fjölskyldur á Vesturlandi með samþættri, snemmtækri og heildstæðri nálgun. Farsældarráð Vesturlands mun styrkja þverfaglegt samstarf og sjá til þess að farsæld barna sé höfð að leiðarljósi í stefnumótun á þjónustu svæðisins. JJ