Skip to main content

BaejarbladidJokull1175tbl

Page 1

1. október 2025

1175. tbl - 25. árg.

Flóðavarnir lagaðar í Gilinu Nú standa yfir framkvæmdir í Gilinu í Ólafsvík. Verið er að gera lagfæringar og endurbætur í læknum sem felst meðal annars í því að lagfæra grjótvörnina í botni lækjarins og beggja megin við hann ásamt því að víkka út farveginn svo hann geti flutt meira vatnsmagn. Framkvæmdin felst í lagfæringu á Gilinu eftir mikið vatnaveður sem gekk yfir Ísland í febrúar 2023 og olli tjóni víða um land, þar á meðal í grjótvörninni í Gilinu. Það var þó lán í óláni að varnirnar héldu þrátt fyrir mikið álag sem er afar jákvætt þar sem það er megin tilgangur grjótvarnanna. Auk þessara lagfæringa verður einnig hreinsað efni fyrir ofan stífluna í Gilinu en þar hefur safnast töluvert af jarðvegi. Snæfellsbær er framkvæmdaraðili verkefnisins með stuðningi Ofanfljóðasjóðs og verktaki við verkið er Borgarverk frá Borgarnesi. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki í byrjun nóvember ef allt gengur samkvæmt áætlun. Þessi framkvæmd gleður einna helst

börnin á leikskólanum Krílakoti þar sem þau fá að fylgjast með gröfunni og flutningabílinum að störfum þegar þau fara til og frá leikskóla.

Akraborg gaf dróna

SJ

- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður

Á dögunum gaf Akraborg björgunarsveitinni Lífsbjörgu dróna að gjöf. Dróninn er af gerðinni DJI Mavik 3E og mun hann nýtast sveitinni við leit og björgun. Leysir hann af eldri dróna sveitarinnar sem er af gerðinni DJI Phantom og björgunarsveitin hefur notað síðustu 9 árin, frá árinu 2016. Nýr dróni mun auðvelda sjálfboðaliðum Lífsbjargar leitarstörf til

muna. Björgunarsveitin Lífsbjörg vill koma á framfæri sínum bestu þökkum til Akraborgar fyrir þessa veglegu og nytsamlegu gjöf. Á meðfylgjandi mynd afhendir Helgi Már Bjarnason drónann fyrir hönd Akraborgar og Sigurður Ingi Guðmarsson tekur við honum fyrir hönd björgunarsveitarinnar Lífsbjargar. SJ


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokull1175tbl by Steinprent - Issuu