1174. tbl - 25. árg.
24. september 2025
Réttað á norðanverðu Snæfellsnesi Réttir fóru fram á norðanverðu Snæfellsnesi nýliðna helgi og ríkti þar líf og fjör í góðu haustveðri. Réttað var Ólafsvíkurrétt, Þæfusteinsrétt, Mýrum og Hrafnkellstaðarétt, þar sem bændur, smalar og gestir komu saman að hefðbundnum haustverkum. Veðrið lék við viðstadda, logn og hlýtt loft skapaði kjöraðstæður til smalamennsku. Mjög góð mæting var í öllum réttunum og ríkti þar bæði gleði og eftirvænting þegar féð var dregið í dilka. Að venju var boðið upp á veitingar fyrir bæði smalamenn og gesti. Kaffi, súpur og heitar kræsingar hlýjuðu mannskapnum eftir langan dag á fjalli og bættu enn við hátíðlega stemninguna sem fylgir þessum árlega viðburði. Meðfylgjandi mynd tók Aníta Rut Aðalbjargardóttir í Þæfusteinsrétt. SJ
Patryk tekur sæti í bæjarstjórn
Jökull Bæjarblað steinprent@simnet.is 436 1617
Á bæjarstjórnarfundi þann 2. September síðastliðinn tók Patryk Zolobow sæti í bæjarstjórn Snæfellsbæjar í stað Michael Gluszuk. Michael óskaði á fundinum eftir úrsögn úr bæjarstjórn og öllum öðrum nefndum bæjarins sökum búferlaflutninga. Patryk hefur verið fyrsti
varamaður J-listans ásamt því að sitja í nefndum bæjarins en hann mun nú einnig sitja í bæjarstjórn. Michael var oddviti J-listans í bæjarstjórnarkosningunum 2022 en Margrét Sif Sævarsdóttir tekur nú við sem oddviti listans. JJ