17. september 2025
1173. tbl - 25. árg.
Marion Anita flutti möl til Ólafsvíkur Ýmsu er landað í Ólafsvíkurhöfn en það er þó ekki oft sem landað er möl. Þann 11. september var skipið Marion Anita við höfn í Ólafsvík. Skipið kemur frá Noregi og er flutningaskip en það sigldi til Ólafsvíkurhafnar með möl til malbikunar. Malbikunarfyrirtækið Colas mun nota mölina i malbik sem verið er að leggja fyrir Vegagerðina í Stykkishólmi. Áður en það skipaði 700 tonnum af möl á land í Ólafsvík landaði áhöfnin 2.400 tonnum af möl í Hafnarfirði. Marion Anita er nokkuð stórt skip, það er 87,8 metrar að lengd og 12,8 metrar að breidd. Því kallaði norska flutningaskipið til aðstoðar og mættu sjálfboðaliðar Lífsbjargar á Björgunarskipinu Björgu til að lóðsa skipið inn í
Ólafsvíkurhöfn. Seinna sama dag sigldu meðlimir Lífsbjargar aftur í Ólafsvíkurhöfn og lóðsuðu Marion Anita aftur út úr höfninni og hélt skipið ferðalagi sínu áfram.
Nýr prestur til starfa í Grundarfirði
Nýr prestur hefur hafið störf sem sóknarprestur Setbergsprestakalls. Sr. Karen Hjartardóttir hefur verið valin í starfið en Karen er fædd árið 1993 á Akranesi og ólst upp á Snæfellsnesi. Karen lauk stúdentsprófi
frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga árið 2012 og útskrifaðist með mag. theol. próf frá Guðfræði og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands veturinn 2018. Hún vígðist þann 12. febrúar árið 2023 til Bjarnanesprestakalls. JJ
Í samtali við blaðamann sagðist Björn Arnaldsson, hafnarstjóri í Snæfellsbæ ekki muna til þess að jarðefnum hafi verið skipað á land hér áður, helst séu skip að koma með fisk, salt og olíu. Þó á útflutningur á jarðefnum sér nokkra sögu í Snæfellsbæ því
seint á síðustu öld var allnokkur útflutningur á vikri frá Rifi og Ólafsvík. Enn fyrr en það, eða um 1935, var byrjað að flytja vikur frá Arnarstapa og var því haldið fram undir 1970.
Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111
SJ