Skip to main content

BaejarbladidJokull1172tbl

Page 1

10. september 2025

1172. tbl - 25. árg.

Fjölskylduferð á Saxhól Fyrsti viðburðinn í röð mánaðarlegra heilsueflandi viðburða á vegum Snæfellsbæjar fór fram sunnudaginn 7. september síðastliðinn. Markmið viðburðanna er að hvetja íbúa til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu og lífsgæði en um er að ræða samverustund utandyra fyrir alla fjölskylduna. Þátttakendur hittust hjá bílastæðinu við Saxhól og þaðan var gengið upp. Léku ungir sem aldnir sér að því að telja þrepin og nutu umhverfisins, þegar upp var komið gæddu viðstaddir sér á nesti saman. Eins og kom fram í síðasta tölublaði Jökuls eru það þær Kristfríður Rós Stefánsdóttir, íþróttaog æskulýðsfulltrúi og Anna Þóra Böðvarsdóttir sem sjá um skipulag viðburðanna. Þann 4. október verður fjallganga og lautarferð á Rauðhól sem er um 2 og hálfur kílómeter

að lengd og er við allra hæfi. Fólk er líkt og áður minnt á að klæða sig eftir veðri og koma með nesti og drykki fyrir sína fjölskyldu.

Réttir að hefjast

SJ

- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður

Réttir eru framundan víða á Snæfellsnesi með tilheyrandi hauststemmingu, jarmi, réttarkaffi og gleði. Laugardaginn 20. september munu réttir fara fram í Ólafsvíkurrétt í Ólafsvík, Þæfusteinsrétt á Hellissandi/Rifi, Mýrum og í Hrafnkelsstaðarétt. Laugardaginn 27. september verður hinsvegar réttað í Bláfeldarrétt í Staðarsveit, Graf-

arrétt í Breiðuvík, Klofningsrétt í Beruvík og Ölkeldurétt í Staðarsveit. Í Ólafsvík eins og víða annars staðar hefur skapast sú hefð að bjóða upp á kjötsúpu og veitingar, réttargestir eru boðnir velkomnir í fjárhúsið Lambfell þar sem boðið verður upp á súpu frá kl 11:30. Réttirnar hefjast svo um klukkan 12:30. JJ


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook