Skip to main content

BaejarbladidJokull1171tbl

Page 1

1171. tbl - 25. árg.

3. september 2025

Frelsisleið vígð í Krossavík Sunnudaginn 31. ágúst var nýtt listaverk eftir Jo Kley vígt á Hellissandi. Verkið ber nafnið Frelsisleið og er staðsett í Krossavík. Fjölmenni var viðstatt vígsluna en þar brauð Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, gesti velkomna, Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur, hélt ræðu og listamaðurinn sjálfur, Jo Kley, sagði svo frá verkinu. Kley sótti innblástur úr ævintýrasögunni Ferðin að miðju jarðar eftir Jules Verne. Verkið vann hann í malargrifjunni við Rif en það er meitlaður skúlptúr úr stein sem vegur um 60 tonn. Að vígslunni lokinni var boðið til veitinga í Þjóðgarðsmiðstöðinni. Frelsisleiðin er annað listaverk Kley sem sett er upp á Hellissandi en hann gerði einnig Frelsisvitann sem er fimm metra hátt verk sem stendur við sjávarsíðuna. SJ

Kaffihúsið Elja opnar

Elja kaffihús hefur opnað í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi. Kaffihúsið tekur við af veitingastaðnum Matarlist sem hefur haldið úti starfssemi í Þjóðgarðsmiðstöðinni síðan sumarið 2023 en samningurinn rann út nú í lok ágúst og var reksturinn því boðinn út að nýju. Fjórar umsóknir bárust en það var kaffi-

húsið Elja sem fékk að lokum starfsleyfið í húsnæðinu. Það eru þær Lilja Hrund Jóhannsdóttir og Viktoría Kr. Guðbjartsdóttir sem standa að rekstrinum og bjóða þær upp á léttar veitingar á við súpur, samlokur og kökur ásamt fleiru í notalegu umhverfi sem hægt er að njóta á staðnum eða taka með sér. SJ


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook