27. ágúst 2025
1170. tbl - 25. árg.
Hvalaskoðunarferðir ganga vel Láki tours standa fyrir eftir sóknarverðum hvalaskoðunar ferðum frá Ólafsvíkurhöfn en bát urinn Íris siglir úr höfn tvisvar á dag þegar veður leyfir. Gísli Ólafs son, eigandi Láka tours segir sum arið og í raun það sem er af er ári hafi verið mjög gott hjá hvala skoðunarfyrirtækinu. Siglingar frá Ólafsvík hefjast um miðjan febrú ar ár hvert og hefur verið meira og minna fullbókað í ferðirnar í ár. Mikið er um ferðamenn en það eru aðallega erlendir ferðamenn sem sækja hvalaskoðunina og seg ir Gísli að þau hafi verið heppin með veður í ár en lítið hefur ver ið um að ferðir falli niður vegna veðurs. Í ferðunum frá Ólafsvík er mest að sjá af búrhval og há hyrningum en einnig koma fyr ir sjónir hrefnur, hnúfubakar og grindhvalir ásamt fjöldanum öll um af öðrum sjávardýrum og fugl um. Nú er farið að líða á seinni hluta tímabils Láka tours í ár en
Íris siglir út september og mun svo taka sér pásu fram í miðjan febrúar 2026. SJ
Skólasetning og umferðaöryggi Skólasetning Grunnskóla Snæ fellsbæjar fór fram 22. ágúst síð astliðinn. Er þetta 22. starfsár skól ans. 215 nemendur eru skráðir í skólann á þremur starfsstöðvum. 67 nemendur sækja skólann á Hellissandi, 130 nemendur í Ólafs vík og 22 í skólanum og leikskóla seli á Lýsuhóli. Guðni Eiríkur Guð mundsson hefur hafið störf sem nýr aðstoðarskólastjóri en hann hóf störf við skólann 1. ágúst. Skólastarf er hafið samkvæmt stundatöflu og eru áhersluatriði skólaársins lestur, samskipti og líð an. Nú þegar skólar og leikskólar hafa byrjað starfsemi að nýju vill Lögreglan á Vesturlandi biðla til ökumanna að fara með sérstakri aðgát út í umferðina næstu vikurn ar. Börnin eru mörg hver gangandi eða hjólandi á leið sinni í skól ann. Lögreglan bendir foreldrum á að ræða við börn sín um umferð
arreglurnar og hvaða leið sé ör uggust á leið þeirra í og úr skóla. Samfélagslöggurnar á Vesturlandi koma til með að hitta nemendur í fyrstu bekkjum grunnskólanna í byrjun skólaárs og ræða við þau um umferðaöryggi. JJ