13. ágúst 2025
1168. tbl - 25. árg.
Stæðilegur fálki risinn á Hellissandi
Glöggir vegfarendur hafa eflaust tekið eftir stæðilegum fálka sem stendur á opna svæðinu við skógræktarsvæðið Tröð á Hellissandi. Hörður Rafnsson, smíðakennari við Grunnskóla Snæfellsbæjar, á heiðurinn af þessu verki og hlaut hann aðstoð frá Bartolomiej Janewicz, nemenda við
Grunnskóla Snæfellsbæjar, við vinnu og uppsetningu. Listaverkið er faglega unnið tréverk sem er tæpir fjórir metrar að hæð en þar má sjá stoltan fálka sem hefur fangað rjúpu í vetrarbúning. Verkið er smekkleg viðbót í þá miklu listaflóru sem Hellissandur hefur uppá að bjóða.
Meistaramót Jökuls
SJ
Meistaramót GJÓ 2025 var haldið dagana 5.-6. ágúst síðastliðinn. Gott veður var á meðan keppni stóð yfir en fresta þurfti keppni einu sinni vegna slæmrar veðurspár. Klúbbmeistarar GJÓ 2025 eru þau Rögnvaldur Ólafsson og Rebekka Heimisdóttir. Sigurvegari í 1. flokki karla er
Hjörtur Guðmundsson og sigurvegari í 2. flokki karla er Birgir Natan Hreinsson. Að lokinni keppni bauð Sjoppan kylfingum upp á pizzu og drykki. Á myndinni eru þau Rebekka og Rögnvaldur klúbbmeistarar með verðlaunaskildi sína. JJ