1184. tbl - 25. árg.
3. desember 2025
Jólaljósin tendruð
Sunnudaginn 30. desember voru tæplega 300 manns saman komin í skógræktinni Tröð á Hellisandi. Tilefnið var fyrsti sunnudagur aðventu en líkt og undanfarin ár er tendrað á ljósum á jólatrjám sveitarfélaga á þessum degi. Eins og flestum er kunnugt
er nýr háttur er á skipulagi tendrun jólatrjáa í Snæfellsbæ. Í stað þess að hafa tvo viðburði, einn á Hellissandi og einn í Ólafsvík eins og áður hefur verið, er nú skipulagður einn stærri jóla- og aðventu viðburður fyrir samfélagið í heild sinni. Í fyrra fór við-
Við erum byrjuð taka á móti jólakveðjum í jólablað Jökuls. Vinsamlegast hafið samband
fyrir föstudag 19. desember steinprent@simnet.is og 436 1617
burðurinn fram á Sáinu í Ólafsvík en nú var gleðin færð í Tröðina á Hellissandi. Þó skína ljósin skært á þremur hefðbundnu trjám Snæfellsbæjar, við Höskuldarbraut á Hellissandi, við tjörnina á Rifi og á Sáinu í Ólafsvík. Þann fyrsta í aðventu voru ljósin á stæðilegu tré í Tröð tendruð, fjölmenni var á skógræktarsvæðinu en þó að hvassviðri hafi gengið yfir norðanvert Snæfellsnesið þennan dag var skjólsælt í Tröðinni. Anna Þóra Böðvarsdóttir og Lúðvík Smárason, hjónin á Gilbakka, seldu köldum en sælum gestum heitt súkkulaði og börn og fullorðnir léku sér í nýföllnum snjónum sem kom eins og pantaður aðfaranótt fyrsta í aðventu. Jón Haukur Hilmarsson setti tón-
inn og spilaði og söng á meðan gengið var í kringum jólatréð en það var Ægir Þór Þórsson, eigandi Topphljóð, sem sá til þess að tónlistin skilaði sér um alla skógræktina. Þegar gengið hafði verið nokkra hringi í kringum litríkt tréð mættu rauðklæddir vinir til byggða, tóku sporið með börnunum og komu sér svo fyrir með pokana sína og færðu börnum og öðrum sem höfðu sýnt sínar bestu hliðar sælgæti og mandarínur. Í veðurblíðunni og jólalegu umhverfinu voru eflaust fáir sem ekki fundu jólaandann en viðstaddir héldu heim með bros á vör, tilbúin að halda inn í nýhafna aðventu og hátíð ljóss og friðar. SJ