19. júní 2025
1165. tbl - 25. árg.
17. júní haldinn hátíðlegur á Snæfellsnesi Landsmenn héldu Þjóðhátíðardag Íslendinga hátiðlegan 17. júní og líkt og vanalega var boðið upp á fjölbreytta dagskrá á nesinu. Í Snæfellsbæ hófst dagurinn á Landsbankahlaupinu þar sem börn á öllum aldri hlupu og fengu ís að launum. Að hlaupinu loknu hélt skrúðganga af stað frá Landsbankanum og endaði í Sjómannagarðinum í Ólafsvík þar sem Auður Kjartansdóttir setti hátíðardagskránna. Halldóra Unnarsdóttir var kynnir á hátíðinni, Eirný Svana Helgadóttir var Fjallkonan í ár og las hún Draumalandið eftir Jón Trausta. Ægir Örn Sveinsson var með helgistund fyrir viðstadda og Ingibjörg Kristín Kristjánsdóttir, nýstúdent, hélt ræðu. Ingó Geirdal töframaður lék listir sínar og að lokum sungu kirkjukórar Snæfellsbæjar nokkur lög. Að hátíðarhöldunum loknum bauð hestaeigendafélagið Hringur börnum á hestbak í reiðhöllinni og Slökkvilið Snæfellsbæjar bauð í froðufjör við Gilið í Ólafsvík þar sem ungir sem aldnir skemmtu sér vel. Hótel Búðir buðu í sína árlega hátíðarveislu í tilefni dagsins og seinnipart dags byrjaði svo hátíðardagskrá Ungmennafélags Staðarsveitar á íþróttavellinum við Lýsuskóla með skrúðgöngu, söng og grilluðum pylsum. Fjallkonan þar var Rósa Erlendsdóttir og las hún Halelúja eftir Þórdísi Sigurbjörnsdóttir frá Hrísum í Flókadal og Vor eftir Þórarinn Eldjárn. Deginum lauk svo með Shoot-out móti Sjávargrillsins á Fróðárvelli þar sem 15 kylfingar spiluðu til verðlauna og Höskuldur Árnason fór með sigur úr býtum. Í Grundarfirði hófst dagurinn á árlega Grundar- og Kvernárhlaupinu með góðri þátttöku. Þá var Sundmót UMFG haldið í sundlaug Grundarfjarðar og að því loknu var uppskeruhátíð ungmennafélagsins þar sem var grillað ofaní mannskapinn og veitt verðlaun fyrir hlaup og sund morgunsins. Um miðjan dag hélt skrúðganga af stað frá miðbæjarreit bæjarins að hátíðarsvæðinu við íþróttahúsið. Þar söng skólakór Grundarfjarðar fyrir viðstadda og
Hanna María Guðnadóttir var Fjallkonan í ár. Hún las ljóðið Hver á sér fegra föðurland eftir Huldu. Nemendur Grunnskóla Grundarfjarðar sem komu að uppsetningu Fíu Sólar mættu á svæðið með skemmtiatriði og Sandy og Diana héldu svo stuðinu uppi með zumba salsakennslu. Loftboltar, hoppukastalar og andlitsmálning voru í boði á hátíðarsvæðinu og deginum var svo lokið með sundlaugapartýi fyrir nemendur á unglingastigi. SJ