12. júní 2025
1164. tbl - 25. árg.
Brimbrettabrun við Rif
Veðrið leikur við fólk þessa dagana og það var raunin þegar Þröstur Albertsson ljósmyndari náði þessari mynd rétt utan við Rif á dögunum. Þarna skemmtir fólk sér á brimbrettum í sjónum en sjórinn við Snæfellsnes er frábær staður til seglbrettasiglinga
og brimbrettasiglinga með flugdreka þar sem rokið er besti vinur siglingafólks. Seglbrettin sem kallast kiteboard á ensku eru blanda af brimbrettum og flugdreka og þykir skemmtilegt sport.
Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111
SJ
Fjölbreytt dagskrá um helgina Það verður nóg um að vera í Snæfellsbæ laugardaginn 14. júní þegar aflraunakeppnin Fjallkonan og fyrsta umferð Íslandsmótsins í motocross fer fram á svæðinu. Fyrsta umferð í Íslandsmótinu í motocross hefst snemma á laugardagsmorguninn á braut Motocrossklúbbs Snæfellsbæjar en forsvarsmenn klúbbsins hafa unnið hörðum höndum að undirbúningi fyrir mótið. Brautin hefur verið endurbætt og er hún í frábæru standi fyrir bæði keppendur og áhorfendur. Áætlað er að keppt verði fram á seinnipart laugardags og þá verði verðlaunaafhending á svæðinu. Fjallkonan er kraftakeppni kvenna sem
fer fram í Snæfellsbæ og Stykkishólmi dagana 14. og 15. júní. Keppnin fer fram fyrir framan Pakkhúsið í Ólafsvík klukkan 12 á laugardeginum en þetta er í annað sinn sem keppnin er haldin og er engu til sparað. Á sunnudeginum færa kraftakonurnar sig svo yfir til Stykkishólms og etja þar kappi fyrir framan kirkjuna, við Hótel Egilsen og uppi í hólma. Þar með er það þó ekki upp talið en laugardaginn 14. júní tekur Reynir á móti Smára á Ólafsvíkurvelli. Það ættu því allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í fjölbreyttri dagskrá í Snæfellsbæ laugardaginn 14. júní. SJ