1162. tbl - 25. árg.
28. maí 2025
Útskrift elstu barna í leikskóla Snæfellsbæjar Síðastliðinn fimmtudag, 22. maí, fór fram hátíðleg útskrift elstu barna í leikskóla Snæfellsbæjar. Athöfnin var haldin í safnaðarheimili Ólafsvíkurkirkju og að þessu sinni var sú nýbreytni tekin upp að öll börn úr báðum leikskólum bæjarins, Krílakoti og Kríubóli, voru útskrifuð saman. Nítján börn voru útskrifuð og munu í haust fara yfir á næsta skólatig og hefja nám í Grunnskóla Snæfellsbæjar. Hátíðin var einstaklega falleg og hátíðleg, börnin sungu nokkur vel valin lög af mikilli innlifun og Nanna lék undir á píanó. Að lokinni athöfn var gestum boðið upp á dýrindis skúffuköku, djús og kaffi. Framvegis mun útskrift leikskólabarna í Snæfellsbæ verða sameiginleg, og að ári mun hún fara fram í safnaðarheimili Ingjaldshólskirkju.
Við óskum þessum duglegu og glaðlegu börnum innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar á næsta skólastigi.
www.hafkaup.is - Sími: 895-5525
Kynntu þér pólska tónlist
Pólska sendiráðið og Snæfellsjökulsþjóðgarður stóðu fyrir tónleikum í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi sunnudaginn 25. maí sem bar heitið Kynntu þér pólska tónlist. Á tónleikunum spiluðu Jacek Karwan, Anna Maria Tabaczyńska og Hanna Imgront. Þessir ástríðufullu listamenn tóku tónleikagesti í ferða-
lag í gegnum hljóm, tilfinningar og sögu pólskrar menningar þegar þau fluttu allt frá klassískum þjóðlögum til nútíma tónverka. Jacek lék á hljómborð, Anna Maria lék á þverflautu og Hanna söng fyrir tónleikagesti sem nutu sín vel á fallegum tónleikum í Þjóðgarðsmiðstöðinni. SJ