22. maí 2025
1161. tbl - 25. árg.
Fjölmennt minningamót í skák Minningamót Ottós Árnasonar og Gunnars Gunnarssonar var haldið í félagsheimilinu Klifi síðastliðin laugardag, 17. maí. Ottó og Gunni Gunn stofnuðu Taflfélag Ólafsvíkur í janúar 1964 og lögðu mikið til skáklífs bæjarins í gegnum árin. Ottómótið var fyrst haldið í Klifi árið 2001 og var það haldið árlega fram til ársins 2008. Árið 2023 var það tekið upp aftur undir nafninu Minningarmót Ottós og þá Hrafns Jökulssonar en nú Ottós og Gunna Gunns. Minningamótið er eitt vinsælasta mót landsins og var það haldið í tíunda sinn. 97 manns tóku þátt í ár, mikil og góð stemmning skapaðist og yfir 200 mann mættu til að fylgjast með. Keppt var með Monrad fyrirkomulagi í átta flokkum. Jóhann Hjartarson bar sigur úr býtum í opnum flokki, Vignir Vatnar var í 2. sæti og Bragi Þorfinnsson var í 3. sæti. Í drengja flokki sigraði Stefán Arnar Jóhannsson og Elsa Margrét Aðalsteinsdóttir í stúlknaflokki. Í kvennaflokki sigraði Lenka Ptacnikova, Benedikt Þórisson vann flokkinn undir 2000 elostigum og Aron Ellert Þorsteinsson vann flokkinn undir 1800 elostigum. Í flokki 65+ sigraði stórmeistarinn Helgi Ólafsson og Ólafur Arngrímsson sigraði flokkinn 80+. Efstur heimamanna var Tryggvi Leifur Óttarsson og Rögnvaldur Örn Jónsson var efstur svíkinga eða brottfluttra ólsara. U16 drengja sigraði svo Birkir Hallmundarson og Emilía Embla B. Berglindardóttir fór með sigur í flokki U16 stúlkna.
Á mótinu fékk Gylfi Scheving gullmerki Taflfélags Snæfellsbæjar fyrir frábært og vel unnið starf fyrir skákina í gegnum árin. Gylfi var oftar en ekki hægri hönd Ottó heitins Árnasonar og Gunni Gunn og Gylfi Scheving unnu mikið, óeigingjarnt og gott starf fyrir skákina saman enda miklir mátar. Helstu styrktaraðilar mótsins í ár voru Hótel Varmaland, Hótel Hellisandur, Hótel Búðir og Hótel langholt, Hraðfrystihús Hellissands, Sjávariðjan, Fiskmarkaður Íslands, Fiskmarkaður snæfellbæjar, Höfnin Snæfellbæ, Egill SH, Saxhamar SH, Nesver, Snæfellbær, Grundarfjarðarbær, Ragnar og Ásgeir, G.Run, Fisk Seafood, Jóhann Steinsson, Rafn Guðlaugsson og Sjoppan. Stefnt er á að halda annað Minningarmót að tveimur árum liðnum.
www.hafkaup.is - Sími: 895-5525
Kajak námskeið
SJ
Um helgina var líf og fjör á Arnastapa þegar Sea kayak Iceland eða Sjókajakfélag Íslands stóð fyrir námskeiði í að sigla kajak og máþingi. Yfir 70 manns komu þar saman og lærðu að spreyta sig. Litríkt var um að litast og skemmti fólk sér stórvel í blíðskaparviðri. Þetta
námskeið er árlegur viðburður á Arnarstapa en í ár var fjölmennasta námskeiðið sem hefur verið haldið á staðnum og kom þar saman áhugafólk um sjókajak víðsvegar að úr heiminum. Meðfylgjandi mynd er frá Sea kayak Iceland. SJ