15. maí 2025
1160. tbl - 25. árg.
Leikskólaheimsókn í fjárhúsin
Farið er að síga á seinni hluta sauðburðar þetta árið. Sauðfjárbændur hafa staðið fæðingavaktina í fjárhúsunum síðustu vikurnar og þó að álagið sé mikið er sömuleiðis mikil gleði sem fylgir þessum tíma. Börnin á Rauðu og Gulu deildum leikskólans Krílakots í Ólafsvík gerður sér ferð í fjárhúsin hjá Herdísi Leifsdóttur þriðjudaginn 13. maí þar sem þau fengu að upplifa stemninguna sem myndast á vorin í sveitinni.
Komu þau til þess að kíkja á kindurnar og nýfæddu lömbin. Börnin á Krílakoti duttu svo sannarlega í lukkupottinn á meðan heimsókninni stóð því Dísa tók á móti lambi á meðan börnin fylgdust stóreygð með. Mikil lukka var meðal gestanna með heimsóknina en að sama skapi vöknuðu fjölmargar spurningar svo að ekki var eingöngu um skemmtiferð að ræða heldur líka fræðsluferð.
Skólakórinn á Jaðri
SJ
Skólakór Grunnskóla Snæfellsbæjar hefur undanfarið haldið tónleika víðsvegar í Snæfellsbæ en túrinn endaði á Dvalarheimilinu Jaðri síðastliðinn mánudag. Krakkarnir sungu fjölda laga sem þau hafa verið að æfa í vetur. Sumarlög voru áberandi á tónleikunum enda voru krakkarnir komn-
ir í sumarskap. Eftir tónleikana fengu nemendur djús og kex en margir krakkar tengja heimsókn á dvalarheimilið við þá hefð. Kórinn er nú kominn í sumarfrí og voru íbúar og gestir á Jaðri glaðir að fá að njóta síðustu tóna skólaársins með þeim. JJ