1158. tbl - 25. árg.
30. apríl 2025
Vel heppnað Lionsþing í Ólafsvík
Á þriðja hundrað manns komu saman í Snæfellsbæ síðastliðna helgi þegar lionsþing fjölumdæmis 109 var haldið. Var þetta afmælisþing lionshreyfingarinnar þar sem þetta var í 70. sinn sem slíkt þing er haldið. Lionsklúbbur Ólafsvíkur og Lionsklúbburinn Rán sáu um allt utanumhald, skipulag og framkvæmd þingsins og hlutu félagar klúbbanna mikið lof fyrir vel heppnað þing. Skólar verðandi embættismanni fóru fram í starfsstöð Grunnskóla Snæfellsbæjar í Ólafsvík á föstudegin-
um, um hádegi var skrúðganga þátttakenda á þinginu og svo var þingið formlega sett. Á föstudagskvöldið var boðið til kynningarkvölds í verðbúð Guðmundar Jenssonar þar sem hljómsveitin Parma lék fyrir dansi. Á laugardeginum var fjölumdæmisþinginu framhaldið, makar lionsfélaga fóru í skemmtiferð í kringum Snæfellsjökul með stoppi í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi og Stóra Kambi. Þinginu var svo lokað með lokahófi í félagsheimilinu Klifi á laugardagskvöldið
með borðhaldi, skemmtiatriðum og balli með hljómsveitinni Festival. Jón Kristinn Ásmundsson og Katrín Hjartardóttir ásamt sérlegu aðstoðarfólki sáu til þess að allir væru vel nærðir og sælir eftir
helgina. Lionsfélagar skiptu sér í nefndir og sáu þannig til þess að helgin færi hnökralaust fram en svo er víst að með góðu fólki verða stór verkefni auðveld. SJ
Björgin til bjargar
Letisund 3, Rifi.
Eigum enn tvö bil til sölu. Getum útvegað 100% lán.
Áhugasamir talið við Kristján Guðmundsson í Þjónustustofunni S: 896-3867 eða með tölvupóst á: vegr@vegr.is
Morguninn 22. apríl fékk björgunarskipið Björg útkall vegna fiskibáts sem misst hafði vélarafl suður af Snæfellsnesi, skammt vestur af Lanbrotavík. Kallið kom um 9:30 og fór Björgin af stað frá Rifi auk þess sem björgunarskipið Jón Gunnlaugsson lagði af stað frá Akranesi. Engin hætta var á ferð en tveir skipverjar voru um borð sem höfðu kastað út ankeri.
Tveimur og hálfri klukkustund eftir að útkallið barst var Björgin komin að bátnum og dró hún bátinn suður, til hafnar á Akranesi. Um klukkustund síðar mættust björgunarskipin Björg og Jón Gunnlaugsson þar sem Jón tók við drættinum áfram til Akraness og Björgin hélt aftur til heimahafnar. SJ