23. apríl 2025
1157. tbl - 25. árg.
Páskaeggjaleit í Snæfellsbæ
Á annan í páskum bauð Snæfellsbær íbúum sínum til páskaeggjaleitar í skógræktum sveitarfélagsins. Bæjarbúar fjölmenntu í fjölskyldusamveru og páskaeggjaleit í blíðskaparviðri í Skógræktinni við Bjarnarfoss, í Tröðinni á Hellissandi og í Réttarskógi í Ólafsvík. Snæfellsbær hélt viðburðinn í samstarfi við skógræktarfélögin í Snæfellsbæ en Kristfríður Rós Stefánsdóttir, íþrótta- og æsku-
lýðsfulltrúi Snæfellsbæjar, sá um skipulag og framkvæmd. Falin voru súkkulaðiegg innan um gróðurinn og hlupu svo spenntir krakkar af stað í leit af eggjunum. Mikil kærleikur ríkti á meðal barnanna og sáu allir þátttakendur til þess að ekkert barn færi tómhent heim með samvinnu og hjálpsemi. Eftir að öll páskaeggin voru fundin naut fólk samveru og útiveru í skógræktinni. SJ
- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður
Víkingar mæta Keflavík í 16 liða úrslitum Á köldum skírdegi tóku Víkingar á móti Úlfunum í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarins. Það færðist fljótt hiti í leikinn þegar Úlfarnir skoruðu á 9. mínútu og komust 0-1 yfir. Úlfarnir héldu ekki lengi forystu því Ingvar Freyr Þorsteinsson, fyrirliði Víkings, jafnaði muninn á 12. mínútu og stuttu á eftir bættu Kristófer Áki Hlinason, Ellert Gauti Heiðarsson og Björn Darri Ásmundsson við mörkum svo á 22. mínutu var staðan orðin 4-0 fyrir heimamönnum. Þá fór leikurinn að róast og bætti Ingvar
Freyr við öðru marki á 41. mínútu. Eftir hálfleik kom Ingólfur Sigurðsson inná og færðist meiri hiti aftur í leikinn eftir 53. mínútu. Þá sett Ingólfur boltann í mark andstæðinganna á 65. og 84. mínútu svo leikurinn endaði 7-1 fyrir Víkingi sem hafa verið að gera góða hluti í Mjólkurbikarnum. Næsti leikur Víkinga í Mjólkurbikarnum er í 16liða úrslitum við Keflavík og fer leikurinn fram á HS Orku vellinum í Keflavík 14. maí.
www.hafkaup.is - Sími: 895-5525
SJ