Skip to main content

baejarbladid_Jokull_1156tbl

Page 1

1156. tbl - 25. árg.

16. apríl 2025

Sameiginleg Vorhátíð kirkjuskólans Það var skemmtilegur dagur í kirkjunni í Grundarfirði sunnudaginn 13. apríl þar sem kirkjuskólakrakkarnir frá Snæfellsbæ og Grundarfirði komu saman og gerðu sér glaðan dag. Séra Laufey Brá Jónsdóttir og Ægir Örn Sveinsson sáu um kirkjuskólann líkt og hátturinn hefur verið á í vetur en þau hafa í sameiningu séð um barnastarfið í Grundarfirði og Snæfellsbæ. Börnin ásamt foreldrum sungu og dönsuðu og Fíasól og félagar úr uppsetningu 6. og 7. bekkjar í Grunnskóla Grundarfjarðar komu svo og tóku nokkur lög úr leikritinu. Eftir kirkjuskólann héldu allir yfir í íþróttahús Grundarfjarðar þar sem hoppukastalar biðu barnanna en með aðstoð fyrirtækja á svæðinu og foreldra var hægt að bjóða börnunum upp á þessa miklu skemmtun. SJ

Félagslegt sjálfsmorð í Frystiklefanum Kári Viðarsson hélt tónleikauppistandið sitt Félagslegt sjálfsmorð í Frystiklefanum á Rifi síðastliðinn laugardag, 12. apríl. Uppi-

standið samanstendur af fyndnum lögum, samsæriskenningum, sögum af rugli og eftirhermum. Sýningin hefur farið fram í kjallaran-

um á Café Rosenberg í Reykjavík á fimmtudögum í apríl og bættist svo við sýning á Rifi. Þetta uppistand er fyrsta sýning Kára í fullri lengd og fer hann alla leið með persónulegt og það sem hann kallar óþægilega

einlægt efni. Fyrir þá sem misstu af er ennþá hægt að sjá sýningu Kára, Félagslegt sjálfsmorð í Café Rosenberg fimmtudaginn 17. apríl og í Frystiklefanum á Rifi laugardaginn 26. apríl.

Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111

SJ


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
baejarbladid_Jokull_1156tbl by Steinprent - Issuu