Skip to main content

Baejarbladid_Jokull_1153tbl

Page 1

27. mars 2025

1153. tbl - 25. árg.

Nemendur hljóta verðlaun fyrir jöklaverkefni Sameinuðu þjóðirnar hafa valið þann 21. mars ár hvert sem alþjóðadag jökla og helguðu árið 2025 jöklum á hverfanda hveli. Markmiðið er að auka áhuga fólks og þekkingu á jöklum og aðgerðum til að sporna við bráðnun þeirra sem hefur verið alvarleg á síðustu áratugum. Í tilefni af þessum fyrsta degi jökla efndi félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi til samkeppni meðal barna og ungmenna á aldrinum 10-20 ára þar sem óskað var eftir verkum sem varpa ljósi á mikilvægi og eðli jökla, fegurð þeirra og hverfulleika. Nemendur í 5. og 6. bekk Lýsudeildar Grunnskóla Snæfellsbæjar tóku þátt í samkeppninni með myndbands- og ljóðaverkefni um jökla, undir leiðsögn kennara síns Silju Sigurðardóttur, og urðu þess heiðurs aðnjótandi að verkefnið varð meðal þeirra sem valin voru til verðlauna, en það vakti sérstaka athygli dómnefndar fyrir frumleika, dýpt og sköpunargleði. Verðlaunaafhendingin fór fram föstudaginn 21. mars í Veröld, húsi Vigdísar, og það voru

Hanβ Henrik, Soffía Margrét, Guðni Th. Jóhannesson, Árelía Ósk, Berglind Bára og Þuríður Halla. Myndirnar tók Dagbjört Dúna Rúnarsdóttir.

glaðir og stoltir nemendur sem veittu þar viðtöku hrósi, gjafabréfi í jöklaferð og fróðlegum og skemmtilegum bókum um jökla. Þá sátu þeir viðburðinn allan og hlýddu á jökla- og loftslagserindi

leikra sem lærðra. Verkefnin sem fengu viðurkenningu fara á sýningu Náttúruminjasafns Íslands á 2. hæð

í Perlunni en sýningin er hluti af Barnamenningarhátíð 2025 og verður opnuð þann 6. apríl nk.

Styrkir veittir úr Lýðheilsusjóði Fimmtudaginn 27. febrúar síðastliðinn var athöfn á Hilton Reykjavík Nordica þar sem Alma D. Möller Heilbrigðisráðherra úthlutaði styrkjum úr Lýðheilsusjóði. 153 styrkjum var úthlutað til verkefna og rannsókna fyrir rúmar 98 milljónir króna. Verkefnin voru fjölbreytt og ætluð öllum aldurshópum um allt land. Grunnskóli Grundarfjarðar sótti um og fékk styrk fyrir bæjarhlaupi en skólinn hefur haldið stórglæsilegt litahlaup undan-

farin ár. Styrkurinn hljóðaði upp á 300.000 krónur en litahlaupið verður haldið í vikunni 21.-28. maí. Líkt og undanfarin ár mun dagsetning koma í ljós þegar nær dregur en hún fer eftir veðri. Snæfellsbær fékk einnig 200.000 króna styrk til framkvæmdar á miðnætursundi á Snæfellsnesi 2025. Miðnætursund hefur slegið í gegn hjá bæjarbúum en þá er sundlaugin opin lengur og uppbrot er á starfsemi hennar. JJ

Nemendur taka við verðlaunum ásamt kennara sínum, Silju Sigurðardóttur.

www.hafkaup.is - Sími: 895-5525


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Baejarbladid_Jokull_1153tbl by Steinprent - Issuu