20. mars 2025
1152. tbl - 25. árg.
Kirkjufellið næst fegurst í heimi
Kirkjufellið hefur lengi verið talið fallegt fjall sem trekkir að ferðamenn allstaðar að úr heiminum til að fá að bera fjallið augum og fanga það á filmu. Þar er engin breyting á og heldur Kirkjufellið áfram að vekja athygli á alþjóðavettvangi. Á ferðavefnum Original Travel hefur Kirkjufellið verið titlað sem næst fegursta fjall heims, á eftir Vinicunca í Perú. Á þessum lista er fjallið í hópi með náttúru-
undrum á borð við Matterhorn, Mount Fuji og Table Mountain. Original Travel gefur sig út fyrir sérsníðin ferðalög auk þess sem þau halda úti bloggi á vefsíðunni. Vefurinn nær til allt að 127 milljóna lesenda og annað sætið á þessum lista mikils virði fyrir bæði Grundarfjörð og Snæfellsnesið allt sem áningarstað ferðamanna.
Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111
SJ
Jarðhiti getur jafnað leikinn Nýr umhverfis-, orku og loftslagsráðherra kynnti fyrir stuttu átakið Jarðhiti jafnar leikinn. Með átakinu verður um einum milljarði króna varið í átak til leitar og nýtingu jarðhita á köldum svæðum á árunum 20252028. Markmiðið með átakinu eru að jafna stöðu heimila og fyrirtækja með lækkun húshitunarkostnaðar, að styðja við byggðaþróun og verðmætasköpun og að draga út olíunotkun til hitunar og losun gróðurhúsalofttegunda. Styrkir verða meðal annars veittir til sveitarfélaga og getur styrkupphæð fyrir hvert verkefni numið allt að tveimur þriðju af heildarkostnaði þess gegn mótframlagi umsækjanda. Árangur í leit og nýtingu á jarðhita mun lækka húshitunar kostnað heimila á köldum svæð-
um, létta kostnaði af fyrirtækjum, sveitarfélögum og stofnunum. Í samtali við Kristinn Jónasson bæjarstjóra Snæfellsbæjar kveðst hann vera ánægður með verkefnið sem mun vonandi hjálpa til við varmadæluvæðingu sveitarfélagsins. JJ