6. mars 2025
1150. tbl - 25. árg.
Há sjávarstaða í stórstreymi
Mikið hvassviðri var um land allt um síðastliðna helgi auk þess sem há sjávarstaða samfara stórstraumi og mikilli ölduhæð olli verulegum ágangi sjávar. Sjór gekk á land og olli talsverðu tjóni víða um land. Íbúar á Snæfellsnesi voru þó lausir við eignatjón en þó mátti finna grjót og sand víða á og í kringum vegi sem borist hafði
með öldugangi upp á land. Þá bárust einnig fiskar á land með öldugangi en á Malarrifi hafði fjöldi fiska skolast nokkra metra upp í fjöruna og lágu svo þar eftir að fjaraði út. Sjávarstaða var há í höfnum á Snæfellsnesi eins og sjá má á meðfylgjandi mynd sem Sigurjón Hilmarsson tók við höfnina í Ólafsvík.
Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111
SJ
Verkfalli Kennarasambands Íslands lokið Kjaradeilu kennara, ríkis og sveitarfélaga lauk að kvöldi 25. febrúar og um leið lauk ótímabundnu verkfalli sem staðið hafði yfir í leikskólum Snæfellsbæjar og Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Undirritun samninga fór fram í Karphúsinu í Reykjavík og mun samningurinn gilda til til 31. mars 2028. Öll aðildarfélög Kennarasambands Íslands skrifuðu undir
samninginn. Þann 4. mars kom svo í ljós að 92,85 prósent félagsfólks Kennarasambands Íslands samþykkti nýjan kjarasamning Kennarasambands Íslands við ríki og sveitarfélög. Kjörsókn var 76 prósent. Sex prósent sögðu nei og eitt prósent atkvæðaseðla voru auðir eða ógildir. JJ