Skip to main content

Baejarbladid_Jokull_11454tbl

Page 1

1154. tbl - 25. árg.

3. apríl 2025

Viðbygging Leikskólans vígð Fimmtudaginn 27. mars var nýja viðbyggingin á leikskólan­ um Krílakoti í Ólafsvík formlega opnuð. Viðbyggingin hefur ver­ ið tekin í notkun og er nú rauða deildin, elsta deildin á Krílakoti, komin yfir í nýja húsnæðið. Elstu börnin á leikskólanum eru skilj­ anlega mjög kát og hafa komið sér vel fyrir í nýjum húsakynn­ um. Með framkvæmdinni hefur leikskólinn stækkað um 115 fer­ metra og stórbætir það aðstöðu fyrir bæði starfsfólk og leikskóla­ börn. Við opnunina töluðu Krist­ inn Jónasson, bæjarstjóri Snæ­ fellsbæjar, og Hermína Kristín Lárusdóttir, leikskólastjóri Snæ­ fellsbæjar, um framkvæmdina, hugsunina á bakvið húsið og hve góð viðbót viðbyggingin sé fyrir leikskólann. Kristinn fór yfir þá fjölmörgu iðnmeistara sem komu að framkvæmdinni og tók að lok­ um fram að liturinn á húsinu sé til­ kominn vegna þess að í umhverfi barna eigi að vera litadýrð. Lita­ dýrðin á að höfða til skynjunar barnanna og því hafi gulur litur orðið fyrir valinu. Fjölmennt var við opnunina og eftir formlega opnun hússins og ræðuhöld var fólki boðið að skoða nýju húsa­ kynnin og gæða sér á snittum frá Skerinu. SJ

- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Baejarbladid_Jokull_11454tbl by Steinprent - Issuu