Skip to main content

Baejarbladid_Jokull1167tbl

Page 1

1167. tbl - 25. árg.

3. júlí 2025

Landsmót unglingabjörgunarsveita

Um 400 unglingar og umsjónar­ aðilar frá Slysavarnafélag inu Landsbjörgu skemmtu sér í Snæ­ fellsbæ yfir síðastliðna helgi þegar Landsmót unglingadeilda Lands­ bjargar fór hér fram. Bleikar peysur máttu sjá á hverju horni

en það var einkennisbúningur unglinganna um helgina og var gleðin allsráðandi. Þátttakend­ ur á Landsmótinu gistu á Reynis­ velli á Hellissandi og héldu þar kvöldvökur á kvöldin en á fimmtu­ dag og föstudag unnu þau í stöðv­

avinnu þar sem þau æfðu sig í ým­ issi færni tengdri björgunarstarfi. Á fimmtudeginum fengu þátttak­ endur blíðskapaveður en á föstu­ deginum var heldur napurt og blautt fyrri part dags og birti svo til og hélst gott fram yfir helgi. Það lét þó enginn smá rigningu stoppa sig og hlupu hundblautir hóparnir á milli stöðva með bros

á vör á meðan dropaði. Dagskráin var í höndum unglingadeildarinn­ ar Dreka í Snæfellsbæ og Óskar í Búðardal og lukkaðist helgin stór­ vel. Björgunarsveitin Lífsbjörg ásamt öðrum sveitum á landinu mega státa sig af því öfluga ung­ lingastarfi sem haldið er úti fyrir ungmennin. SJ


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Baejarbladid_Jokull1167tbl by Steinprent - Issuu