10. apríl 2025
1155. tbl - 25. árg.
Sker verður einnig hótel
Samningur um kaup Sker Restaurant ehf. á efri hæð Ólafsbrautar 19 af fyrirtækinu Welcome Apartments ehf. hefur nú verið undirritaður. Veitingastaðurinn Sker Restaurant er á neðri hæð húsnæðisins en fyrirtækið ætlar að færa út kvíarnar og reka hótel samhliða veitingastaðnum. Hótelið verður því ekki lengur staðsett beggja megin Ólafsbrautar og hótelgestir þjónustaðir í gegnum
veitingastaðinn. Þar munu hótelgestir einnig borða morgunmat og sækja aðra þjónustu. Arnar Laxdal Jóhannsson sem er einn nýrra rekstraraðila sagði í samtali við blaðamann að nýjar áherslur verða á rekstri hótelsins sem verða í takt við samfélagið og svæðið. Þau gera ráð fyrir að taka við rekstri hótelsins 1. maí en ætla eftir sumarið að fara í framkvæmdir á húsnæðinu.
www.hafkaup.is - Sími: 895-5525
Altarisganga á Jaðri
JJ
Sunnudaginn 6. apríl hélt Sr. Ægir Örn Sveinsson messu á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Jaðri. Viðburðurinn var opin öllum og var mæting mjög góð en rúmlega 50 manns sóttu athöfnina. Fermingarbörn lásu bænir og kórinn
leiddi söng í messunni. Gengið var til altaris í lok messunnar en það hefur ekki verið gert áður á Jaðri. Eftir messuna bauð dvalarheimilið upp á kaffi og konfekt. Vonir eru bundnar við að þetta verði árlegur viðburður.
STEBBI OG EYFI
Tónleikar Félagsheimilinu Klifi Skírdag fimmtudaginn 17. apríl kl. 21:00
Forsala aðgöngumiða í Sjoppunni, sími 436-1012 Heppnir tónleikagestir fá gefins ljúffeng páskaegg frá GÓU en dregið verður úr seldum miðum.