Skip to main content

Baejarblaðið Jokull 1149tbl

Page 1

27. febrúar 2025

1149. tbl - 25. árg.

18 tóku þátt í sundmóti Ungmennafélag Víkings Reynis hélt nýárssundmót miðvikudaginn 12. febrúar síðastliðinn. 22 iðkendur æfa sund hjá félaginu og tóku 18 öflugir krakkar þátt á sundmótinu í þetta skiptið. Allir stóðu sig mjög vel og hlutu verðlaunapening fyrir sem mikil kátína var með. Það var Kvenfélag Hellissands sem styrktu sundgarpana um þetta mót og mættu þrjár konur frá félaginu sem aðstoðuðu Helgu Guðrúnu Sigurðardóttir, sundþjálfara, með tímatöku og fleira sem kemur að mótshaldi. Eftir myndatöku að mótinu loknu var haldið í áralanga hefð og Helgu Guðrúnu hent ofan í sundlaugina í fötunum, börnunum til mikillar lukku. SJ

Kallað eftir aðgerðum í vegamálum www.hafkaup.is - Sími: 895-5525

Fyrsti leikurinn í Lengjubikarnum Lengjubikarinn er hafinn að nýju og spilar Víkingur þar í 2. riðli B deildar karla. Fyrsti leikur Víkings í lengubikarnum var spilaður í Kórnum í Kópavogi föstudaginn 14. febrúar síðastliðinn þar sem þeir heimsóttu Ými. Daginn fyrir leikinn fékk Víkingur þrjá leikmenn til viðbótar við liðið, sem allir eiga það sameiginlegt að heita Björn. Það voru þeir Björn Henry Kristjánsson frá KV, Björn Darri Ásmundsson frá Kára og Björn Óli Snorrason frá Reyni Hellissandi, þá hefur liðið einnig samið við ÍA um að fá Kristófer

Áka Hlínason að láni á tímabilinu. Bikarkeppnin byrjaði erfiðlega hjá Víkingum en í fyrri hálfleik þessa fyrsta leiks skoruðu leikmenn Ýmis 6 mörk. Lítið gerðist í seinni hálfleik svo að lokum fór leikurinn 6-0 fyrir Ými. Þá áttu Vikingar leik við Víði frá Garði í Nettóhöllinni í Reykjanesbæ 23. febrúar. Þar átti Víðir eitt mark í net Víkinga á 69. mínútu og lauk leiknum með 1-0 sigri Víðis. Næsti leikur Víkings verður heimaleikur á Akranesvelli þann 28. febrúar þar sem þeir taka á móti Ægi. SJ

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og sveitarfélögin á Vesturlandi sendu á dögunum forsætisráðherra formlegt bréf þar sem kallað er eftir aðgerðum vegna alvarlegs ástands í vegamálum á svæðinu. Eins og flestir hafa tekið eftir eru vegirnir í lélegu standi og hafa m.a. verið miklar bikblæðingar á vegum en sveitarfélögin hafa verið að þrýsta á stjórnvöld og krefjast úrbóta. Í erindinu er óskað eftir fundi sem fyrst með forsætisráðherra svo að hægt sé að ræða skipun viðbragðshóps um

aðgerðir svo að tryggja megi öryggi íbúa svæðisins og þeirra sem fara um vegina. Áhersla er einnig lögð á að ástand veganna megi ekki valda skerðingu á atvinnuog mannlífi á svæðinu. Í bréfinu kom einnig fram að Almannavarnanefnd Vesturlands hafi verið tilkynnt um það ástand sem hefur skapast á vegum svæðisins þar sem sveitastjórnirnar töldu að neyðarakstri væri stefn í hættu og öryggi almennings þar með. Erindið má finna í heild sinni á heimasíðunni www.ssv.is. JJ


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Baejarblaðið Jokull 1149tbl by Steinprent - Issuu