1148. tbl - 25. árg.
20. febrúar 2025
Útivera í mildara veðri
Kærkominn smjörþefur af vori hefur einkennt síðustu viku á norðanverðu Snæfellsnesi sem og landinu öllu. Rauðar og appelsínugular viðvaranir voru orðnar daglegt brauð í byrjun mánaðar en nú er farið að sjást meira til sólu og veðrið mildara. Þó svo að hitastig sé um frostmark hafa börn
sótt hjól sín í geymslu og þeysast nú um götur bæjanna alsæl. Í byrjun vikunnar voru nemendur leikskóla og grunnskóla á svæðinu í vetrarfríi og nýttu margir dagana í ýmiss konar útivist á svæðinu, t.d. fjöruferð eins og bræðurnir sem myndin er af en þeir skelltu sér í fjöruferð.
Asmer og Allan í æfingahóp U19 Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111
Þórhallur Siggeirsson, þjálfari U19 landsliðs karla í knattspyrnu, hefur valið í æfingarhóp sem æfir saman dagana 17.-18. febrúar. Asmer Begic sem er leikmaður Víkings Ó. var valinn í hópinn sem samanstendur af drengjum sem eru fæddir árið 2007 og verða því 18 ára á árinu. 31 leikmenn munu koma saman þessa daga og freista þess að fá að taka þátt í næsta
verkefni U19 landsliðsins sem er seinni umferð undankeppni EM 2025. Þar er Ísland í riðli með Danmörku, Ungverjalandi og Austurríki. Fyrri æfingahópur liðsins kom saman 27.-28. janúar síðastliðinn. Í þeim hópi var Allan Purisevic sem er uppalinn í Ólafsvík en hann er sonur Ejub Purisevic sem var þjálfari Víkings Ó til fjölda ára. JJ