1146. tbl - 25. árg.
6. febrúar 2025
Snjóflóð féll úr Ólafsvíkurenni
Appelsínugul viðvörun var í gildi á Snæfellsnesi fyrir helgi. Um land allt var spáð suðaustan hvassviðri og hláku en versta veðrinu var spáð á norðanverðu Snæfellsnesi. Á fimmtudeginum var mikið hvassviðri og úrkoma sem lægði með kvöldinu og upp úr hádegi á föstudeginum hafði appelsínugul viðvörun tekið gildi og stóð yfir í sólarhring. Björgunarsveitin Lífsbjörg hafði í nógu að snúast, á Fróðárheiði og Vatnaleið var lokað fyrir umferð, skólahaldi í Snæfellsbæ var aflýst á föstudeginum, Leikskólar Snæfellsbæjar lokuðu fyrr og æfingar hjá Ungmennafélaginu féllu niður. Vegna mikillar
úrkomu og hlýnandi veðurs lýsti Veðurstofa Íslands yfir óvissustigi vegna ofanflóðahættu á Vesturlandi. Tvö vot snjóflóð féllu úr Ólafsvíkurenni og lokuðu veginum á milli Rifs og Ólafsvíkur. Enginn slasaðist í snjóflóðinu og þegar veður fór að ganga niður og hætta á fleiri snjóflóðum gekk yfir hófu starfsmenn TS vélaleigu að hreinsa veginn. Þeir höfðu mikið verk fyrir höndum þegar fjögurra metra hár skafl beið þeirra, en þá hafði flóðið hjaðnað um tvo metra yfir nóttina á meðan veðrið lét sem verst. Mikið mildi var að ekki fór verr og opnaði vegurinn aftur fyrir umferð rétt fyrir
hádegi á laugardagsmorguninn, þá um 17 tímum eftir að flóðið féll. Meðfylgjandi mynd tók Michael Gluszuk þegar vinnuvélar TS
vélaleigu höfðu lokið við að opna veginn.
Hádegishlaðborð alla virka daga á mill 11:45-13:00 Súpa dagsins & brauð Ferskur salatbar Réttur dagsins
10% AFSLÁTTUR AF KLIPPIKORTUM TIL 13. FEBRÚAR Matseðill fyrir mánuðinn er aðgengilegur á skerrestaurant.is
Opnunartími mán-mið fim-fös lau sun 11:45 - 15:00 11:45 - 20:30 12:00 - 20:30 12:00 - 15:00
www.hafkaup.is - Sími: 895-5525
SJ