Skip to main content

BæjarblaðiðJökull1185

Page 1

1185. tbl - 25. árg.

10. desember 2025

Minnisvarði um Svanborgarslysið afhjúpaður Fyrir nokkrum árum ákváðu félagar í Lionsklúbbi Ólafsvíkur að eitthvað þyrfti að gera til að heiðra minningu þeirra sem létust er Svanborg SH 404 fórst þann 7. desember 2001. Fjórir menn voru í áhöfn skipsins en aðeins einn komst lífs af, honum var bjargað í þyrlu varnarliðsins en aftakaveður var á slysstaðnum, 20 til 25 m/ sek, slydda og dimmviðri. Héðinn Magnússon, Sæbjörn Vignir Ásgeirsson og Vigfús Elvan Friðriksson létu lífið í sjóslysinu en Eyþór Garðarsson komst lífs af. Sæbjörn var mjög virkur félagi í Lionsklúbbi Ólafsvíkur og málið því lionsmönnum skylt. Eftir nokkra umhugsun og hugmyndir varð niðurstaðan að útbúa skjöld eða skilti með útliti Útnessins til minningar um áhöfnina sem lést með slysstað merktum inná. Anton Jónas Illugason hjá AS-J hönnunarstofu hannaði skiltið og Geislatækni sá um að skera það út í ryðfrítt 316 stál sem var síðar rafpólerað. Með því eru minni líkur á að falli á skiltið þó það standi óvarið fyrir veðri og

seltu. Skiltin eru tvö, annað er til upplýsingar við Skálasnagavita en hitt er við slysstað um 2 kílómetra frá vitanum. Undanfarin ár hefur Lionsklúbbur Ólafsvíkur tekið þátt í að stika gönguleiðir í Snæfellsjökulsþjóðgarði og er ein slík gönguleið frá Skálasnagavita og niður með ströndinni

Útgáfa Jökuls á næstunni Næsta tölublað Jökuls kemur út 17. desember Jólablað Jökuls kemur út mánudaginn 22. desember, efni, jólakveðjum og auglýsingum þarf að skila fyrir kl. 16 föstudaginn 19. desember. Jökull kemur 30. desember og eru skil í það blað fyrir kl. 16 mánudaginn 29. desember

en ef sá stígur er genginn verður strandstaður Svanborgar SH á vegi göngumanna. Sunnudaginn 7. nóvember var minningarathöfn haldin við Skálasnagavita, 24 árum eftir slysið. Komu þar saman félagar úr Lionsklúbbi Ólafsvíkur, aðstandendur hinna látnu, félagar björgunarsveitarinnar Lífsbjargar, fulltrúi Snæfellsjökulsþjóðgarðs og hönnuður verksins til að vígja minningarskjöldinn. Jóhannes Ólafsson, ritari Lionsklúbbs Ólafsvíkur, byrjaði á að bjóða alla velkomna og fór yfir aðdraganda

verkefnisins og ferlið. Jón Guðmundsson, núverandi formaður Lionsklúbbs Ólafsvíkur og Hilmar Már Arason fyrrverandi formaður klúbbsins afhjúpuðu í sameiningu skiltið og að því loknu fór séra Ægir Örn Sveinsson með hugvekju. SJ


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BæjarblaðiðJökull1185 by Steinprent - Issuu