Ávöxtun tryggingadeildar
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs
Lykiltölur úr ársreikningi Breyttar lífslíkur – Hvað þýðir það? Samanburður lífeyriskerfa – Ísland efst Ávöxtun skilað strax í réttindasjóð hjá Stapa Viljayfirlýsing um grænar fjárfestingar Breytingar á lánareglum sjóðfélagalána
Vor 2022 Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs | Vor 2022
Mikilvægt að rýna sjóðfélagayfirlit Ársfundur og ársskýrsla
Ávöxtun tryggingadeildar Árið 2021 var ávöxtun í flestum eignaflokkum betri en
2%
væntingar gerðu ráð fyrir í upphafi árs. Nafnávöxtun sjóðsins var 18,5% sem er besta ár í sögu sjóðsins í núverandi mynd.
Ríkisskuldabréf
34%
Vægi innlendra skuldabréfa í eignasafni Stapa lækkaði um tæp
NAFNÁVÖXTUN
6% en vægi erlendra eigna og innlendra hlutabréfa hækkaði á móti. Breytingin er í takt við fjárfestingarstefnu en má einnig rekja til mikilla hækkana á hlutabréfum á síðasta ári.
18,5%
41%
Innlend hlutabréf Erlend hlutabréf Skammtímabréf og innlán
3% 20%
Erlend skuldabréf
Í skjóli lágs vaxtastigs og stuðningsaðgerða ríkisstjórna
Ávöxtun ársins var að mestu dregin áfram af miklum
víða um heim stóðust hagkerfi heimsins skert ferðafrelsi
hækkunum á hlutabréfum, bæði innlendum og erlendum.
og samkomutakmarkanir. Það má meðal annars rekja til
Verðbólgan reyndist þrálát á síðasta ári en þar hafa
breyttrar neysluhegðunar en eftirspurn eftir vörum jókst
verðhækkanir á fasteignum verið stór þáttur. Seðlabankinn
verulega. Ísland var ekkert frábrugðið en innlend eftirspurn
hefur haldið áfram vaxtahækkunum, sem hófust í maí, sem
leiddi hagvöxt ársins. Ferðasumarið var einnig mjög gott, bæði
tilraun til að slá á hækkanir á fasteignamarkaði.
Íslendingar að ferðast um landið en einnig auknar komur erlendra ferðamanna sem bæði dvöldu lengur og eyddu hærri
Það sem af er árinu 2022 hefur ávöxtun á helstu
fjárhæðum en oft áður.
eignamörkuðum verið erfið sem litast af stríðsátökum í Úkraínu og auknum áhyggjum markaðsaðila um aukna verðbólgu í kjölfar mikilla hækkana á hrávörum.
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs | Vor 2022
Lykiltölur úr ársreikningi Breytingar á hreinni eign
2021
2020
Efnahagsreikningur í árslok
Iðgjöld
14.711
13.391
Eignarhlutir í félögum og sjóðum
Lífeyrir
-8.295
-7.501
Skuldabréf
Hreinar fjárfestingartekjur
55.774
34.310
-505
-465
Hækkun á hreinni eign
61.685
39.735
Kröfur
Hrein eign frá fyrra ári
295.868
256.113
Hrein eign til greiðslu lífeyris
357.554
295.868
Rekstrarkostnaður
2021
2020
208.297
158.534
141.779
131.251
Afleiðusamningar
24
45
Bundnar bankainnistæður
311
496
1.370
1.418
Ýmsar eignir
274
283
Handbært fé
5.602
3.967
-104
-127
Hrein eign til greiðslu lífeyris
357.554
295.868
Hrein eign tryggingadeildar
348.662
288.345
Hrein eign séreignardeildar
8.420
7.204
472
319
Tryggingafræðileg staða
-4,7%
1,5%
Nafnávöxtun
18,5%
13,1%
Hrein raunávöxtun
12,8%
9,2%
Skuldir
Hrein eign tilgreindrar séreignardeildar
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs | Vor 2022
Fjárhæðir í milljónum króna
Breyttar lífslíkur – Hvað þýðir það?
Meðalævilengd Íslendinga hefur aukist jafnt og þétt síðustu
sínar. Þetta mun leiða af sér að lífeyrissjóðir þurfa að breyta
ár. Það er að sjálfsögðu jákvætt ef við náum hærri aldri en
réttindatöflum talsvert, til að taka tillit til þessarar spár, í stað
lífeyrisjóðir geta aðeins greitt út lífeyri í samræmi við þær
þess að breyta þeim lítillega á nokkurra ára fresti eins og gert
eignir sem eru til staðar. Lengri meðalævi eykur skuldbindingar
hefur verið hingað til. Breytingarnar verða mestar hjá yngstu
sjóðanna þar sem þeir greiða lífeyri til æviloka. Því hafa
aldurshópunum enda gert ráð fyrir að þeir nái hærri aldri en
lífeyrissjóðir þurft að uppfæra réttindatöflur sínar jafnt og
þeir sem þegar eru að nálgast eftirlaunaaldur.
þétt til að bregðast við auknum lífslíkum. Ef sjóðfélagar lifa að meðaltali lengur en áður þarf að dreifa réttindasjóði þeirra á
Nákvæm áhrif geta verið mismunandi hjá lífeyrissjóðum en
fleiri áætluð ólifuð ár og því eru mánaðarleg eftirlaun lægri.
hjá Stapa er unnið að hugmyndum varðandi breytingar á samþykktum en ekki er enn ljóst hvort þær verða lagðar fyrir
Búist er við að lífslíkur haldi áfram að aukast og um síðustu
ársfund í ár eða á næsta ári. Segja má að þegar breytingarnar
áramót staðfesti Fjármála- og efnahagsráðuneytið tillögur
ganga í gegn munu sjóðfélagar fá réttara mat á áætluð
Félags íslenskra tryggingastærðfræðinga um að lífeyrissjóðir
eftirlaun svo framarlega sem þessi spá um hækkandi lífslíkur
taki spá um áframhaldandi hækkandi lífslíkur inn í forsendur
gangi eftir.
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs | Vor 2022
Samanburður lífeyriskerfa – Ísland efst
Íslenska lífeyriskerfið mældist í efsta sæti í alþjóðlegri lífeyrisvísitölu sem ráðgjafarfyrirtækið Mercer og samtökin CFA Institute standa að. Ísland var í fyrsta sinn með í þessum samanburði en 43 lönd úr öllum heimsálfum tóku þátt, þ.á.m. öll Norðurlöndin. Lífeyriskerfin geta mest fengið 100 stig á vísitölulistanum. Ísland fékk 84,2 stig, Holland 83,5 stig og Danmörk 82,0 stig en ríkin voru þau einu sem náðu yfir 80 stigum og teljast því búa við öflug lífeyriskerfi sem skili góðum réttindum, eru sjálfbær og með trausta umgjörð. Þessi samanburður lífeyriskerfa byggist annars vegar á talnaefni frá Efnahags- og framfarastofnuninni – OECD og öðrum fjölþjóðastofnunum og gagnabönkum en hins vegar á upplýsingum sem sérfræðingar hjá Mercer og fleiri hafa aflað í viðkomandi ríkjum. Sjá nánar í frétt á vef Stapa.
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs | Vor 2022
Ávöxtun skilað strax í réttindasjóð hjá Stapa
Hjá Stapa eru réttindi sjóðfélaga tengd beint við ávöxtun sjóðsins með svokallaðri eignavísitölu. Í hverjum mánuði eru eignir sjóðsins metnar og réttindi sjóðfélaga uppfærð í samræmi við ávöxtun. Með þessum móti njóta sjóðfélagar góðrar ávöxtunar strax í áunnum réttindum og ekki þörf á að uppfæra þau í stórum stökkum á ársfundum líkt og tíðkast hjá öðrum íslenskum lífeyrissjóðum. Undanfarin þrjú ár hafa verið hagfelld hvað varðar ávöxtun eigna Stapa og hefur eignavísitalan hækkað um 51% frá ársbyrjun 2019 til ársloka 2021. Óúrskurðuð réttindi hafa því hækkað um ríflega helming á þessu tímabili. Því miður hefur þróunin á eignamörkuðum ekki verið jafn hagfelld fyrstu mánuði ársins 2022 en eignasafn Stapa er vel í stakk búið til að takast á við þær áskoranir.
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs | Vor 2022
Viljayfirlýsing um grænar fjárfestingar
Stapi er einn þrettán íslenskra lífeyrissjóða sem hyggjast
Horft verður til verkefna sem nýta jarðvarma en einnig
fjárfesta samtals 4,5 milljörðum Bandaríkjadala (um 580
er stefnan að styðja við aukna notkun annarra sjálfbærra
milljörðum króna) til ársins 2030 í verkefnum sem tengjast
orkugjafa með það að markmiði að stuðla að aukinni notkun
hreinni orku og öðrum umhverfisvænum lausnum. Sjóðirnir
hreinnar orku í samgöngum og atvinnustarfsemi. Sömu viðmið
hafa skrifað undir viljayfirlýsingu þess efnis gagnvart
gilda varðandi áreiðanleikakannanir og arðsemismarkmið
alþjóðlegu samtökunum Climate Investment Coalition (CIC).
fyrir grænar fjárfestingar og aðrar fjárfestingar hjá Stapa.
Með
yfirlýsingunni
staðfesta
sjóðirnir
þrettán
vilja
til að stórauka grænar fjárfestingar sínar og styðja þannig við markmið um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu. Þar er meðal annars horft til ákvæða Parísarsamkomulagsins um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda.
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs | Vor 2022
Breytingar á lánareglum sjóðfélagalána Nýlega voru gerðar breytingar á lánareglum hjá Stapa þegar lánsréttur var rýmkaður og hámarkslánsfjárhæð hækkuð. Helstu skilyrði lánareglna eru: Lánsrétt eiga allir sem greitt hafa til sjóðsins. Hámarkslánsfjárhæð er 70 milljónir. Lánshlutfall er að hámarki 70%. Lánstími er að lágmarki 5 ár en að hámarki 40 ár. Heimilt að greiða upp lán hvenær sem er á lánstíma án þóknunar. Á vefsíðu Stapa er einfalt að sækja um lán og greiðslumat. Með því að sækja um lán með rafrænum skilríkjum auðvelda umsækjendur sér umsóknarferlið þar sem nánast öll gögn fyrir greiðslumatið eru sótt rafrænt.
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs | Vor 2022
Mikilvægt að rýna sjóðfélagayfirlit Það er góð regla að bera saman launaseðla og iðgjaldagreiðslur sem koma fram á sjóðfélagayfirliti. Mikilvægt er að skoða hvort: Iðgjöld sem dregin eru af launum skila sér til sjóðsins. Mótframlag launagreiðanda er rétt. Ávöxtunarleið séreignar er í samræmi við val sjóðfélaga. Réttindasjóður byggir á þeim greiðslum sem skila sér til sjóðsins og því mikilvægt að hafa samband við Stapa innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits ef iðgjöld vantar frá launagreiðanda. Stapi sendir sjóðfélögum yfirlit tvisvar á ári, að vori og hausti, en upplýsingar um iðgjaldagreiðslur eru ávallt aðgengilegar á sjóðfélagavef.
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs | Vor 2022
Ársfundur og ársskýrsla Ársfundur Stapa verður haldinn í Hofi miðvikudaginn 1. júní kl. 14:00. Fundinum verður einnig streymt á heimasíðu sjóðsins. Nánari upplýsingar um fundinn verða birtar á stapi.is. Ársskýrsla Stapa vegna ársins 2021 er komin út. Undanfarin þrjú ár hefur skýrslan verið í vefsíðuformi sem er bæði umhverfisvænt og hagkvæmt.
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs | Vor 2022
Viltu afþakka pappír? Við hvetjum sjóðfélaga til að hjálpa okkur að gera hlutina hagkvæmari og vistvænni með því að afþakka pappír. Hægt er að afþakka pappír á vef sjóðfélaga, með veflykli eða rafrænum skilríkjum. Undir Stillingar/Notendaupplýsingar er hakað í Afþakka pappír. Þeir sem afþakka heimsendan pappír þurfa að gefa upp netfang sitt og og fá eftir það upplýsingar sem sjóðurinn telur nauðsynlegt að koma á framfæri við sjóðfélaga sendar í tölvupósti s.s. vegna sjóðfélagayfirlita, fréttabréf o.fl. Til að fá aðstoð er hægt að senda beiðni á stapi@stapi.is eða hafa samband við sjóðinn í síma 460-4500.
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs | Vor 2022
Rafræn samskipti – Hafðu samband! Á vefsíðu sjóðsins er hægt að sinna nánast öllum erindum. Hægt að finna allar upplýsingar um réttindi, iðgjaldagreiðslur, stöðu lána, sjóðfélagayfirlit o.fl. á vef sjóðfélaga. Á launagreiðendavef eru allar upplýsingar um iðgjaldaskil. Allar umsóknir sjóðsins eru á umsóknarvef. Hægt er að skila inn öllum umsóknum með rafrænum skilríkum. Fyrirspurnir vegna sjóðfélagalána má senda í tölvupósti á netfangið lan@stapi.is. Hægt er að senda fyrirspurnir í tölvupósti á stapi@stapi.is.
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs | Vor 2022
Strandgötu 3, 600 Akureyri og Bakkavegi 5, 740 Neskaupstað. Afgreiðslutími skrifstofu: Akureyri kl. 9:00–12:30 og 13:00–15:00. Neskaupstaður kl. 9:00–12:00.
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs | Vor 2022
Sími: 460 4500 | www.stapi.is | stapi@stapi.is Umbrot og teikningar: Blek hönnunarstofa blek.design Ljósmyndir: Einar Guðmann (bls. 5), Gyða Henningsdóttir (bls. 8,10), Sindri Svan (bls. 1,12,13), Sunna Gautadóttir (bls. 6,9).