Skip to main content

Fréttabréf vor 2017

Page 1

FRÉTTABRÉF STAPA

VOR 2017


F R É T TA B R É F S TA PA VO R 2 0 1 7

Stapi lífeyrissjóður 10 ára Nú í marsmánuði voru 10 ár liðin frá því Stapi lífeyrissjóður varð til með sameiningu Lífeyrissjóðs Norðurlands og Lífeyrissjóðs Austurlands. Þann 9. mars árið 2007 var skrefið stigið formlega með ársfundum beggja sjóða sem haldnir voru í Mývatnssveit.

TÍMAMÓTASJÓÐUR Á AUSTURLANDI Aðdraganda sameiningar lífeyrissjóðanna tveggja má rekja mun lengra aftur í tímann. Form lífeyrissjóðakerfisins á svæðunum tveimur, Norðurlandi og Austurlandi, hafði um langan tíma verið gjörólíkt. Á Austurlandi var stofnaður einn lífeyrissjóður sem tók til starfa 1. janúar 1970 og til hans greiddu félagsmenn úr 14 verkalýðsfélögum á Austurlandi. Með öðrum orðum var um að ræða lífeyrissjóð fyrir alla félagsmenn verkalýðsfélaga innan Alþýðusambands Austurlands, hvort heldur þeir störfuðu til sjós eða lands. Iðgjaldagreiðendur voru tæplega 2000 talsins.

Svartfell við Borgarfjörð eystra

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Stapi lífeyrissjóður. Sögusamantekt: Jóhann Ólafur Halldórsson. Ljósmyndir: Aðalsteinn Hjelm. Umbro


F R É T TA B R É F S TA PA VO R 2 0 1 7

NORÐLENSKIR SJÓÐIR SAMEINAST Eins og áður segir var skipan lífeyrissjóða frábrugðin á Norðurlandi. Með sama hætti og á Austurlandi var sameiningu lífeyrissjóða ýtt úr vör innan vettvangs verkalýðsfélaganna í fjórðungnum, Alþýðusambands Norðurlands. Skipuð var nefnd á vegum sambandsins árið 1990 sem hafði það hlutverk að fjalla um sameiningu lífeyrissjóða á Norðurlandi. Í henni sátu Jón Karlsson, Hafþór Rósmundsson, Jón Helgason, Heimir Ingimarsson, Kári Arnór Kárason, sem jafnframt var formaður, og Þóra Hjaltadóttir, forseti Alþýðusambands Norðurlands.

Súlur ofan Akureyrar

ot: Blek. Prentun: Umslag.

Í stuttu máli leiddi starf nefndarinnar til stofnunar Lífeyrissjóðs Norðurlands sem tók til starfa 1. janúar 1993 með sameiningu eftirtalinna sjö lífeyrissjóða: Lífeyrissjóðurinn Björg, Húsavík, Lífeyrissjóðurinn Sameining, Akureyri, Lífeyrissjóður trésmiða, Akureyri, Lífeyrissjóður Iðju, Akureyri, Lífeyrissjóður stéttarfélaga í Skagafirði, Lífeyrissjóður verkamanna á Hvammstanga og Blönduósdeild Lífeyrissjóðs verkalýðsfélaga á Norðurlandi vestra. Utan þessa samruna stóðu Lífeyrissjóður KEA og hluti Lífeyrissjóðs verkalýðsfélaganna á Norðurlandi vestra sem sameinuðust síðan Lífeyrissjóði Norðurlands árið 2001.


F R É T TA B R É F S TA PA VO R 2 0 1 7

LANDSBYGGÐARÁHERSLAN RÍK Þetta bakland er vert að hafa í huga þegar fjallað er um aðdragandann að stofnun Stapa lífeyrissjóðs og fyrstu árin í starfsemi hans. Af öllum gögnum og samtölum má ráða að á þessum tíma og æ síðan hefur náin tenging við heimahéruðin og landsbyggðina verið sem rauður þráður. Landsbyggðaráherslan kristallast líka í því að fljótlega upp úr aldamótunum komu fram hugmyndir um enn stærri lífeyrissjóð á landsbyggðinni og lengst komst hugmynd um sameiningu sjóða á Norðurlandi, Austurlandi, Vestfjörðum og í Vestmannaeyjum. Komið var nálægt formlegri ákvörðun um samruna þegar upp úr slitnaði. Í framhaldinu héldu Lífeyrissjóður Norðurlands og Lífeyrissjóður Austurlands áfram viðræðum sem lauk, líkt og áður segir, með stofnun Stapa lífeyrissjóðs árið 2007.

Í TAKTI VIÐ ÞRÓUNINA Sameining lífeyrissjóðanna tveggja í Stapa lífeyrissjóð var einnig í takti við þá þróun sem staðið hafði yfir í lífeyrissjóðakerfinu um árabil. Áhersla var lögð á að fækka lífeyrissjóðum, stækka þá og efla á þann hátt. Rekstrarkostnaður margra sjóða var alltof hár og gátu þeir að óbreyttu ekki staðið undir sínum skuldbindingum. Stofnun Stapa lífeyrissjóðs vakti talsverða athygli í íslensku viðskiptalífi, bæði vegna þess að með samruna sjóðanna varð til stór sjóður á landsvísu, sá fimmti stærsti, en jafnframt varð Stapi langstærsti lífeyrissjóður landsbyggðarinnar. Og svo er enn, 10 árum síðar. Stofnun Stapa lífeyrissjóðs og fyrstu árum er nánar gerð skil í ársskýrslu sjóðsins.


Lykiltölur úr ársreikningi Breytingar á hreinni eign Fjárhæðir í milljónum króna

2016

2015

Iðgjöld

8.842

7.911

Lífeyrir

-4.999

-4.687

3.924

18.428

-327

-285

-18

95

Hækkun á hreinni eign

7.421

21.461

Hrein eign frá fyrra ári

179.272

157.810

Hrein eign til greiðslu lífeyris

186.693

179.272

2016

2015

Eignarhlutir í félögum og sjóðum

81.551

79.374

Skuldabréf

97.622

86.647

Bundnar bankainnstæður

1.390

2.154

Kröfur

1.093

964

Ýmsar eignir

58

59

Handbært fé

5.414

10.181

-434

-108

Hrein eign til greiðslu lífeyris

186.693

179.272

Hrein eign tryggingadeildar

181.742

174.443

Hrein eign séreignardeildar

4.951

4.829

Tryggingafræðileg staða

-1,5%

0,4%

2,0%

11,4%

-0,1%

9,2%

Hreinar fjárfestingartekjur Rekstrarkostnaður Aðrar tekjur (önnur gjöld)

Efnahagsreikningur í árslok Fjárhæðir í milljónum króna

Skuldir

Nafnávöxtun Hrein raunávöxtun


Ársfundur Stapa Ársfundur sjóðsins verður haldinn þannlífeyrissjóða) 3. maí 2017 kl. 13:00 í Auðkenni Lífeyrismál.is (Landssamtök Útgáfa - 2017 Skjólbrekku í Mývatnssveit. Merkið er sett fram á tvo vegu: 1. Merkið með letruðum undirtitli 2. Merkið án letraðs undirtitils

Allir sjóðfélagar og launagreiðendur eru hvattir til að mæta.

1

Úr Herðubreiðarlindum

Stjórn Stapa Ágúst Torfi Hauksson (formaður) Þórarinn Sverrisson (varaformaður) Huld Aðalbjarnardóttir

Á nýjum vef www.lifeyrismal.is má fræðast um

Erla Jónsdóttir

allt sem við kemur íslenskum lífeyrissjóðum.

Sverrir Mar Albertsson Kristín Halldórsdóttir

Á vefnum er einnig hægt að nálgast Lífeyris2

Tryggvi Jóhannsson

gáttina þar sem hægt er að skoða réttindi sín hjá þeim sjóðum sem greitt hefur verið til.

Viltu afþakka pappír?

Þjónusta

Það er ánægjulegt að sjá hversu margir sjóðfélagar hafa afþakkað sjóðfélagayfirlit á pappír, því auðvelt er að fylgjast með réttindum sínum með rafrænum hætti.

Skrifstofur Stapa eru til húsa að Strandgötu 3, 600 Akureyri og Egilsbraut 25, 740 Neskaupstað.

Kynntu þér málið á heimasíðu Stapa,

Skrifstofurnar eru opnar alla virka daga frá 9:00-12:30 og 13:00-15:00.

www.stapi.is

Símanúmer Stapa er 460 4500.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Fréttabréf vor 2017 by Stapi lífeyrissjóður - Issuu