Skip to main content

Fréttabréf Stapa sjóðfélagalán

Page 1

Stapi rýmkar lánsrétt og eykur hámarkslánsfjárhæð

Desember 2021


Allt sem þú vilt vita um sjóðfélagalán Stapa Fyrir hverja?

Allir sem einhvern tímann hafa greitt iðgjöld til Stapa eiga lánsrétt hjá sjóðnum.

Hvernig lán?

Sjóðfélagalán Stapa eru verðtryggð með veði í íbúðarhúsnæði umsækjanda. Hægt er að velja um lán með breytilegum vöxtum, sem eru nú 1,75% eða föstum vöxtum, sem eru nú 3,3%. Vaxtaþróun er aðgengileg hér. Hægt er að greiða inn á lán eða greiða það upp hvenær sem er á lánstímanum án kostnaðar.

Lánsfjárhæð

Hámarkslánshlutfall er 70% af fasteignamati eða kaupverði íbúðarhúsnæðis þegar um fasteignaviðskipti er að ræða. Hámarkslán er 70 milljónir kr.

Hvernig sæki ég um?

Á vefsíðu Stapa er einfalt að sækja um lán og greiðslumat. Með því að sækja um lán með rafrænum skilríkjum auðvelda umsækjendur sér umsóknarferlið til muna þar sem nánast öll gögn fyrir greiðslumatið eru sótt rafrænt.

Nánari upplýsingar má finna á vef sjóðsins en fyrirspurnir má senda á lan@stapi.is

Sími: 460 4500 | www.stapi.is | stapi@stapi.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Fréttabréf Stapa sjóðfélagalán by Stapi lífeyrissjóður - Issuu