FRÉTTABRÉF HAUST 2015
Grundvallarbreytingar á réttindakerfi Stapa - Hver er stóri munurinn?
Að lifa vel og lengi
Þekkir þú kosti viðbótarlífeyrissparnaðar?
Breytingar á réttindakerfi Stapa Um áramótin verða grundvallarbreytingar hjá lífeyrissjóðnum Stapa þegar tekið verður upp nýtt réttindaávinnslukerfi. Kári Arnór Kárason, framkvæmdastjóri Stapa, segir að þetta geri sjóðnum kleift að tryggja betur samræmi milli eigna og skuldbindinga hans ásamt því að auka gegnsæi á virkni kerfisins.
Hvers vegna var farið í þessar breytingar á réttindakerfinu? Við fjármálahrunið 2008 fór svokölluð tryggingafræðileg staða sjóðsins úr því að vera jákvæð í neikvæða stöðu. Tryggingafræðileg staða segir til um það hvort að eignir sjóðsins dugi fyrir þeim lífeyrisloforðum sem sjóðfélagar eiga hjá sjóðnum, miðað við samþykktir hans. Dugi eignirnar ekki fyrir lífeyrisloforðunum, þarf að jafna þann mun með því að skerða lífeyrisréttindin. Um það eru skýr lagaákvæði. Sjóðurinn hefur ekki ábyrgðaraðila, sem tryggir réttindin, líkt og t.d. lífeyrissjóðir starfsmanna ríkis- eða sveitarfélaga. Þar eru það skattgreiðendur sem borga ef eignirnar duga ekki. Hjá lífeyrissjóðum eins og Stapa, sem tryggja fólk á almennum vinnumarkaði, eru réttindin eingöngu tryggð með eignum sjóðsins á hverjum tíma. Í raun eru þau því aldrei meira virði en eignirnar. Skerðingar eru aldrei vinsælar og sjóðfélagar eiga oft erfitt með að skilja hvers vegna þarf að grípa til þeirra, þar sem þeir telja sig „eiga“ ákveðin réttindi hjá sjóðnum og tengja þau ekki endilega við eignir sjóðsins. Því var vilji til að breyta kerfinu þannig að verðmæti eigna og lífeyrisloforða standist betur á.
Í hverju er breytingin fyrst og fremst fólgin? Í gamla kerfinu var innborguðu iðgjaldi breytt í réttindi samkvæmt töflu sem sagði að fyrir hverjar 10.000 kr. sem borgaðar voru inn í formi iðgjalds, fékk sjóðfélaginn tiltekin lífeyrisréttindi. Taflan byggir á því að sjóðurinn nái 3,5% raunávöxtun frá innborgun iðgjaldsins fram til þess tíma þegar það er endurgreitt í formi eftirlauna. M.ö.o. réttindin byggðu á fyrirfram gefinni ávöxtun oft marga áratugi fram í tímann. Ávöxtun er hins vegar óviss og misjöfn frá ári til árs. Því verður alltaf munur á eignunum annars vegar og verðmæti lífeyrisréttindanna hins
“
Í nýja kerfinu er þessu breytt þannig að réttindin, sem sjóðfélaginn fær við inngreiðslu iðgjalds, fá einfaldlega þá ávöxtun sem sjóðurinn nær hverju sinni.
vegar. Ef þessi munur fer umfram ákveðin mörk (+/- 10%) er sjóðurinn skyldugur að leiðrétta hann með því að auka eða skerða réttindi. Í nýja kerfinu er þessu breytt þannig að réttindin sem sjóðfélaginn fær við inngreiðslu iðgjalds eru ekki gefin fyrirfram, með ákveðinn ávöxtun fram að eftirlaunaaldri, heldur fá þau einfaldlega þá ávöxtun sem sjóðurinn nær hverju sinni. Þannig á að ríkja jafnvægi á milli eigna sjóðsins og skuldbindinga hans, sem eru verðmæti lífeyrisloforðanna á hverjum tíma. Með því að tengja réttindabreytingarnar við ávöxtun gerist þetta sjálfkrafa.
En af hverju hafa eignir og skuldbindingar ekki alltaf verið látnar standast á – hvers vegna að leyfa þessi frávik?
Kári Arnór Kárason, framkvæmdastjóri og Anna Lilja Gunnlaugsdóttir, upplýsingafulltrúi ræða málin um breytingar á réttindakerfi Stapa.
Það er von að spurt sé, en þetta á sér sögulegar skýringar. Hér áður tók oft langan tíma að fá nákvæma stöðu á öllum eignum. Sjóðurinn var e.t.v. aðeins gerður upp einu sinni á ári. Það þarf hins vegar að úrskurða lífeyri og gefa
upplýsingar um réttindi með reglubundnum hætti. Því var eðlilegt að nota reiknireglu til að ákvarða réttindin á hverjum tíma og aðlaga þau svo að eignum ef frávik voru mikil. Nú höfum við hins vegar öflug upplýsingatæknikerfi sem geta gefið okkur daglega stöðuna á nær öllum okkar eignum. Það eru því allar forsendur fyrir því að breyta kerfinu þannig að réttindin myndist í takt við ávöxtun eignanna og jöfnuður sé á milli eigna og skuldbindinga á hverjum tíma.
Hvernig sér sjóðfélaginn réttindi sín í nýja kerfinu, samanborið við það gamla? Í nýja kerfinu fær sjóðfélagi upplýsingar um þann sjóð – svokallaðan iðgjaldasjóð – sem stendur á bak við réttindi hans og síðan hvernig hann þróast frá einum tíma til annars í samræmi við innborguð iðgjöld og ávöxtun. Í gamla kerfinu var bara gefin upp tala um réttindi, en ekki hvað stóð á bak við þau. Við vonum að sjóðfélagar skilji betur, í nýja kerfinu, hvernig réttindi þeirra myndast þar sem þau eru tengd beint við eignirnar sem á bak við þau eru og ávöxtun þeirra. Í gamla kerfinu breyttust réttindin í samræmi við fyrirfram gefna formúlu, sem fáir áttuðu sig á og tengdu lítið við eignirnar.
“
Sjóðurinn er tryggingasjóður í sameign sjóðfélaganna og markmiðið er að greiða sem hæstan lífeyri.
Er þessi iðgjaldasjóður sem stendur á bak við réttindi sjóðfélagans þá séreign hans? Nei, þetta er einungis reiknaður hluti af heildarsjóðnum sem stendur á bak við réttindi allra sjóðfélaga. Sjóðurinn er tryggingasjóður í sameign sjóðfélaganna og markmiðið er að greiða sem hæstan lífeyri. Iðgjaldasjóðurinn erfist því ekki. Falli sjóðfélagi frá rennur sú fjárhæð sem stóð á bak við réttindi hans til eftirlifandi sjóðfélaga. Ef iðgjaldasjóðurinn
NÚVERANDI KERFI gerir ráð fyrir hækkun lífeyrisréttinda óháð ávöxtun eignanna sem tryggja eiga réttindin
Verðmæti lífeyrisréttinda er hærra en verðmæti eigna. Ársfundur þarf að taka ákvörðun um að skerða réttindi til að aðlaga þau að eignum.
7,2%
Ár 1
Ár 2
-0,1%
3,0%
Ár 3
3,5%
3,5% 2,0%
Ár 4
Ár 5
Eign að baki réttindum Lífeyrisréttindi hækka árlega í takt við 3,5% raunávöxtun - óháð ávöxtun eigna
Í NÝJU KERFI breytast lífeyrisréttindi í takti við ávöxtun eigna að baki réttindum
Lífeyrir sjóðfélaga
Eignir
Iðgjöld sjóðfélaga
3,5%
3,5%
3,5%
Réttindi
2,5%
Verðmæti lífeyrisréttinda það sama og verðmæti eigna. Ekki þarf að taka neina ákvörðun um skerðingu.
7,2% 7,2% 3,0% 3,0%
Iðgjöld sjóðfélaga
Ár 1
Ár 2
Ár 3
Ár 4
2,0% 2,0%
Eign að baki réttindum Lífeyrisréttindi ákvarðast af ávöxtun eigna
myndi erfast þyrfti að lækka eftirlaun um 7-8%. Rétt er að minna á að eftirlifandi maki á rétt á makalífeyri en það er hluti áfallalífeyristrygginga, sem sjóðurinn veitir.
Hvað eru áfallatryggingar og hvernig er greitt fyrir þær? Þegar iðgjald er greitt til sjóðsins er því skipt milli eftirlaunaréttinda og áfallatrygginga. Það sem fer til að tryggja eftirlaunin rennur í iðgjaldasjóðinn. Hversu stór hluti fer í áfallatryggingar er háð aldri sjóðfélaga, en yfir starfsævina má búast við að 25-30% af iðgjaldinu fari í þessar tryggingar. Með áfallatryggingum er átt við örorku- maka- og barnalífeyri. Sjúkdómar, slys eða fráföll gera ekki boð á undan sér og geta gerst hvenær sem er á starfsævinni. Því er mikilvægt að tryggja afkomu sína þegar slíkt áföll dynja yfir. Áfallatryggingum frá lífeyrissjóði er ætlað að mæta þessari þörf. Með því að skipta iðgjaldinu strax við inngreiðslu sjá sjóðfélagar betur hvað þessar tryggingar kosta, en í gamla kerfinu var þetta ekki eins sýnilegt.
“
Þegar réttindin eru ekki tryggð með neinu öðru en eignunum þá verða þau í raun aldrei meira virði en eignirnar á hverjum tíma
Lífeyrir sjóðfélaga
Ár 5
Er ekki fólgin meiri óvissa í nýja kerfinu fyrir sjóðfélagana þegar réttindin ávinnast miða við ávöxtun hvers árs í stað þess að miða við fasta ávöxtun? Í rauninni ekki. Það er alltaf mikil óvissa um hvaða lífeyri er hægt að greiða þegar horft er langt fram í framtíðina. Það er í raun engin leið að segja til um hvaða réttindi tuttugu og fimm ára einstaklingur mun fá fyrir innborgað iðgjald 42 árum síðar þegar hann fer á eftirlaun. Til þess er framtíðin of óviss og ófyrirsjáanleg. Þegar réttindin eru ekki tryggð með neinu öðru en eignunum þá verða þau í raun aldrei meira virði en eignirnar á hverjum tíma, hvað sem stendur á yfirlitinu sem þú færð frá lífeyrissjóðnum. Það „loforð“ er alltaf skilyrt og háð því að eignir sjóðsins dugi til að standa undir því. Víki eignirnar verulega frá verðmætum lífeyrisloforðanna þarf að breyta loforðunum. Í gamla kerfinu gerðist það sjaldan, þar sem munurinn milli eigna og skuldbindinga var yfirleitt minni en 10%. En þegar þess þurfti gerðist það í stórum stökkum.
Eignir
-0,1% -0,1%
Réttindi
2,5% 2,5%
Í nýja kerfinu verða meiri sveiflur á þeim tíma sem réttindin eru að myndast, en þær verða jafnt og þétt og ekki í eins stórum stökkum. Við teljum að það sé betra að sjóðurinn eigi á hverjum tíma fyrir þeim lífeyrisréttindum, sem sjóðfélagar eiga hjá honum, frekar en að sjóðfélaginn fá upplýsingar um „réttindi“, sem e.t.v. þarf að skerða síðar af því að eignir standa ekki undir þessum réttindum. Óvissan um hver endanleg eftirlaun verða minnkar svo eftir því sem nær dregur lífeyrisaldrinum, þar sem árunum fækkar sem sjóðurinn er til ávöxtunar áður en hann kemur til útborgunar í formi lífeyris.
Hvenær tekur nýja kerfið gildi? Nýja kerfið tekur gildi um næstu áramót. Þá færast allir sjóðfélagar inn í nýja kerfið. Fyrstu yfirlitin sem þeir fá á árinu 2016 verða því með öðru sniði en þeir hafa átt að venjast, en vonandi skilja menn betur hvernig réttindi þeirra myndast í nýja kerfinu en því gamla.
Ert þú með spurningar varðandi breytingar á réttindakerfi Stapa? Á vefsíðunni okkar eru svör við ýmsum spurningum, www.stapi.is
Hver er stóri munurinn? Núverandi kerfi:
Aðdragandi samþykktabreytinga 2008 Efnahagshrun – tryggingafræðileg staða breytist úr jákvæðri í neikvæða
Réttindaávinnsla miðað við fasta fyrirfram ákveðna vexti frá því iðgjald er greitt inn þar til það kemur til endurgreiðslu Mikill munur getur myndast milli verðmætis eigna og lífeyrisloforða. Breytingar á réttindum verða í stökkum
2009 Umræða um viðbrögð og mat á stöðu
2010 Ákvarðanir um skerðingar og vangaveltur um breytingar til að auka jafnvægi til framtíðar litið
2011 Hugmyndavinna – skoðun á mögulegum lífeyriskerfum
Nýja kerfið:
Fyrstu drög að nýju kerfi
2012 Réttindaávinnslan miðuð við breytilega vexti – raunverulega ávöxtun sjóðsins – frá því iðgjald er greitt inn þar til það kemur til endurgreiðslu Jafnvægi milli verðmætis eigna og lífeyrisloforða á hverjum tíma. Breytingar gerast jafnt og þétt
Stjórnarformaður kynnir hugmynd að nýju kerfi á ársfundi Stjórn ákveður að láta vinna frekari tillögur – tryggingastærðfræðingur kemur að málum
2013 Unnið að nýju kerfi – útreikningar og hermilíkan Tillögur að nýju kerfi lagðar fyrir stjórn Unnið kynningarefni fyrir aðildarfélög og sjóðfélaga
2014 Mars: Kynningarefni send aðildarfélögum og birt á vefsíðu samhliða frétt Apríl: Stjórn samþykkir að fá tryggingastærðfræðing sjóðsins til að
MIÐAÐ VIÐ SÖMU VEXTI GEFA BÆÐI KERFIN SÖMU NIÐURSTÖÐU!
kynna kerfið á ársfundi Maí: Tryggingastærðfræðingur kynnir nýtt kerfi á ársfundi – samþykkt að láta vinna endanlegar tillögur Júní-sept: Unnið að endanlegum tillögum Sept-Nóv: Kynningar fyrir aðildarfélögum – 10 kynningarfundir Sept: Hugmyndir að nýju kerfi kynntar hjá LL, starfsmönnum sjóða og fulltrúum FME Nóv: Formlega óskað eftir afstöðu aðildarfélaga til tillagna
2015 Jan: Tillögur að nýju réttindakerfi kynntar fyrir SA Jan: Aðildarfélög samþykkja samhljóða að leggja tillögur fyrir ársfund Feb: Tillögur að nýju kerfi kynntar hjá lifeyrisnefnd ASÍ Feb: Tillögur til samþykktabreytinga lagðar fyrir stjórn Mars: Lögfræðileg rýni á tillögum til samþykktarbreytinga Mars: Þarfagreining vegna breytinga á hugbúnaðarkerfum sett í gang Apríl: Endanlegar tillögur afgreiddar af stjórn Apríl: Tillögur kynntar FME Apríl: Samþykktabreytingar lagðar fyrir ársfund og staðfestar þar Júlí: Samþykktabreytingar staðfestar af Fjármálaráðuneytinu
Að lifa vel og lengi Allir vilja lifa vel og lengi og vera við góða heilsu. Lífaldur Íslendinga hefur stöðugt verið að lengjast undanfarin ár. Þetta er sambærileg þróun og í öllum þróuðum löndum. Um leið og þessi þróun er gleðileg þá hefur hún líka í för með sér ýmsar áskoranir, ekki síst fyrir eftirlaunakerfi. Ef litið er sérstaklega til Íslands þá hefur meðalævi íslenskra karla aukist um tæp 9 ár á síðustu 50 árum og meðalævi íslenskra kvenna hefur lengst um 6 ár á sama tíma. Þótt dregið hafi saman með kynjunum lifa íslenskar konur enn að meðaltali um 4 árum lengur en karlar. Eins og staðan er í dag má reikna með því að 65 ára einstaklingur eigi að meðaltali eftir um 20 ár ólifuð. Flest bendir til þess að þróunin haldi áfram í all mörg ár enn, ekki síst vegna betri lífsskilyrða og bættrar heilbrigðisþjónustu. Reikna má með að einhver efri mörk hljóti að vera á því hve háum aldri mannskepnan getur náð, en þó virðist ekki komið að þeim mörkum enn. Eitt af því sem þessi þróun hefur í för með sér, er að einstaklingar verða mun lengur á eftirlaunum en áður var reiknað með. Það verður í það minnsta raunin ef menn hefja almennt lífeyristöku á sama tíma og verið hefur undanfarin ár. Miðað við spár um þetta efni, sem unnar hafa verið af tryggingastærðfræðingum, má reikna með að útgjöld vegna eftirlauna aukist um 5-8% vegna eldri aldurshópanna og fari svo stigvaxandi eftir því sem neðar dregur í aldursstiganum. Þannig má gera ráð fyrir að aukningin verði allt að 20-30% hjá þeim sem nú eru á táningsaldri, miðað við að lífaldur haldi áfram að aukast. Augljóst er að ekki verður hægt að greiða jafn háan lífeyri með sömu fjármunum ef ævilengd á eftir að aukast að meðaltali um 10-15%.
En hvernig á þá að bregðast við? Í grunninn eru þrjár mögulegar leiðir til skoðunar: a) Að leggja meira fyrir til eftirlaunaáranna, þ.e. að hækka iðgjöldin á meðan menn eru á vinnumarkaði. b) Að sætta sig við lækkun á lífeyri, þ.e. að iðgjöld verði óbreytt þannig að sömu fjárhæð verði dreift á fleiri ár. c) Að seinka töku eftirlauna, þ.e. að eftirlaun verði greidd í svipaðan árafjölda og nú er gert, en lífeyristökunni seinkað í takt við það sem ævilengdin eykst. Umræður um það hvernig best er að bregðast við til að leysa þetta verkefni hafa lengi staðið í löndunum í kringum okkur og ýmis lönd þegar gripið til ráðstafana. Þær hafa bæði verið fólgnar
Þekkir þú kosti viðbótarlífeyrissparnaðar? – Tímabundin heimild til að ráðstafa sparnaði skattfrjálst inn á lán – Gefur kost á sveigjanlegum starfslokum – Mótframlag launagreiðanda upp á 2% jafngildir 2% launahækkun – Ekki greiddur fjármagnstekjuskattur – Séreign erfist við fráfall – Séreignarsparnaður er ekki aðfararhæfur
Kynntu þér málið á www.stapi.is
í hækkuðum framlögum, en þó einkum í seinkun á eftirlaunaaldri. Hér á landi er þessi umræða á byrjunarstigi. Engar tillögur hafa enn litið dagsins ljós, en umræðan er mikilvæg og ljóst að fram hjá þessari þróun verður ekki horft og við henni verður að bregðast. Ef til vill er hægt að gera það með einhverri blöndu af öllum þeim leiðum sem nefndar voru hér og jafnvel þannig að einstaklingar geti átt val um hvernig þeir vilja bregðast við. Vert er að minna á að þetta tengist einnig baráttunni fyrir því að einstaklingar, sem það vilja, fái að vinna lengur en nú er yfirleitt heimilað. Margir búa við góða heilsu og fullt vinnuþrek langt fram eftir ævi og vilja gjarnan leggja sitt að mörkum, en æ oftar heyrist að mismunun á grundvelli aldurs sé vaxandi vandamál á íslenskum vinnumarkaði.
Af hverju Stapi lífeyrissjóður? Varfærinn eignastýrandi með áratuga reynslu Góð raunávöxtun yfir langt tímabil Enginn sölulaun og hófleg umsýslugjöld Góð þjónusta við sjóðfélaga
– betri yfirsýn Hægt er að skrá sig inn á lífeyrisgáttina af sjóðfélagavef Stapa, www.stapi.is annað hvort með veflykli eða rafrænum skilríkjum. Veitir gáttin sjóðfélögum greiða leið að upplýsingum um áunnin lífeyrisréttindi í samtryggingardeildum allra lífeyrissjóða sem greitt hefur verið til. Frá því lífeyrisgáttin opnaði á haustmánuðum 2013 hefur hún sannað sig sem mikilvægur upplýsingabrunnur og yfirsýn sjóðfélagans aldrei verið betri.
Orðsending til launagreiðenda
Skrifstofur sjóðsins
Nú eru launagreiðendayfirlit eingöngu aðgengileg á rafrænu formi á launagreiðendavef Stapa og ekki send út pappírsyfirlit nema sérstaklega sé óskað eftir því. Er þetta í senn vistvænni og hagkvæmari aðferð en þeir launagreiðendur sem skráð hafa virk netföng fá orðsendingu í tölvupósti þegar yfirlitin eru aðgengileg. Stapi hvetur alla launagreiðendur til að yfirfara skráningu netfangs til að greiða fyrir upplýsingagjöf.
Skrifstofur sjóðsins eru opnar alla virka daga frá 9:00-12:30 og 13:00-16:00. Eru þær til húsa að Strandgötu 3 Akureyri og Egilsbraut 25 Neskaupstað. Símanúmer Stapa er 460 4500 og netfang sjóðsins stapi@stapi.is.
Innskráning með rafrænum skilríkjum Á heimasíðu Stapa er hægt að skrá sig inn á sjóðfélaga – og launagreiðendavef með rafrænum skilríkjum bæði í
Þórarinn Sverrisson, formaður, Ágúst Torfi Hauksson, varaformaður, Erla Jónsdóttir, Huld Aðalbjarnardóttir, Kristín Halldórsdóttir, Sverrir Mar Albertsson, Tryggvi Jóhannsson, Unnur Gréta Haraldsdóttir.
www.stapi.is
Framkvæmdastjóri er Kári Arnór Kárason.
STAPI lífeyrissjóður
Strandgötu 3, 600 Akureyri Egilsbraut 25, 740 Neskaupstað
Sími 460 4500
www.stapi.is
blekhonnun.is blekhonnun.is
Það er ánægjulegt hversu margir sjóðfélagar hafa brugðist við og afþakkað yfirlit á pappír en auðvelt er að fylgjast með réttindum með rafrænum hætti. Að afþakka pappír er í senn fljótlegt og einfalt. Sjóðfélagi skráir sig inn á vef sjóðfélaga, sem er að finna á heimasíðu Stapa, með veflykli eða rafrænum skilríkjum. Undir Stillingar/Notendaupplýsingar er hægt að haka í „Afþakka pappír“. Ekki gleyma að skrá inn tölvupóstfang undir Notendaupplýsingar svo rafrænar tilkynningar berist.
Hönnun:
Stjórn Stapa
Viltu afþakka pappír?
Ljósmyndir: Aðalsteinn Hjelm Prentun: Ásprent
farsíma sem og kortalesara í tölvu og aðgengi því mjög gott.