Skip to main content

Fréttabréf haust 2014

Page 1

frĂŠttabrĂŠf stapa haust 2014


– betri yfirsýn Nú geta sjóðfélagar nálgast á einum stað upplýsingar um lífeyrisréttindi í samtryggingarsjóðum. Algengt er að fólk eigi réttindi í mörgum sjóðum og yfirsýn því erfið en með lífeyrisgáttinni opnast greið leið að þessum upplýsingum. Lífeyrisgáttina er að finna á heimasíðu Stapa í gegnum sjóðfélagavefinn.

Hagkvæmasta sparnaðarformið Viðbótarlífeyrissparnaður er klárlega besta sparnaðarformið sem völ er á þegar spara á aukalega til eftirlaunaáranna.

• Kostur á sveigjanlegum starfslokum • Mótframlag launagreiðanda upp á 2% jafngildir 2 % launahækkun • Ekki greiddur fjármagnstekjuskattur • Séreign erfist við fráfall • Séreignarsparnaður er ekki aðfararhæfur

Viltu afþakka pappír?

Þjónusta

Á ný er vakin athygli á því hversu auðvelt er að fylgjast með réttindum sínum með rafrænum hætti. Það er ánægjulegt hversu margir sjóðfélagar hafa brugðist við og afþakkað pappírinn.

Skrifstofur sjóðsins eru opnar alla virka daga frá 9:00-12:30 og 13:00-16:00.

Kynntu þér málið á heimasíðu Stapa,

Eru þær til húsa að Strandgötu 3, Akureyri og Egilsbraut 25, Neskaupstað.

www.stapi.is.

Símanúmer Stapa er

460 4500.


F R É T TA B R É F S TA PA H A U S T 2 0 1 4

Mikil ásókn í séreignarsparnað Mikil aukning hefur verið í séreignarsparnaði hjá sjóðnum á síðustu mánuðum og margir nýir sjóðfélagar bæst í hópinn. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að heimila tímabundna notkun séreignarsparnaðar til að greiða inn á húsnæðislán hefur augljóslega haft mikil áhrif, en einnig hefur umræðan um þetta sparnaðarform vakið áhuga á þessari sparnaðarleið.

Ráðstöfun inn á fasteignaveðlán Stjórnvöld hafa heimilað að fólk geti nýtt viðbótarlífeyrissparnað til að greiða inn á húsnæðislán á næstu þremur árum, upp að vissu hámarki. Nánar má fræðast um þetta á www.leidretting.is. Í þessu er fólginn varanlegur skattaafsláttur svo hiklaust er hægt að mæla með þessari leið, ekki síst fyrir þá sem yngri eru og glíma við háar húsnæðisskuldir. Rétt er að minna á mikilvægi þess að halda sparnaðinum áfram og undirbúa sig þannig undir eftirlaunaárin. Einungis er hægt að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði Mikilvægt er að sjóðfélagar geri greinamun á lögbundnu iðgjaldi og iðgjaldi til viðbótarlífeyrissparnaðar (séreignar) og til hvaða sjóðs er verið að greiða hvort um sig. Lögbundna iðgjaldið (samtryggingin) nýtist ekki í þessum tilgangi. Forsenda þess að hægt sé að nýta séreignarúrræðið er að fyrir liggi samningur um viðbótarlífeyrissparnað. Á heimasíðu Stapa, www.stapi.is, er að finna upplýsingar með hvaða hætti er hægt að ganga frá samningi við sjóðinn.


F R É T TA B R É F S TA PA H A U S T 2 0 1 4

Hver einstaklingur verður að sækja um Rétt er að vekja athygli á því að þegar sótt er um að greiða viðbótarlífeyrissparnað inn á húsnæðislán þurfa hjón að sækja um í sitt hvoru lagi, þ.e. hver einstaklingur sækir um fyrir sig inn á www.leidretting.is. Annað hjóna getur ekki sótt um ráðstöfun á sparnaði beggja, en nokkuð hefur verið um misskilning af þessu tagi. Safn 4 fyrir umsækjendur séreignarúrræðis Stapi hefur sett upp sérstakt safn, Safn 4, sem öllum greiðslum sem fara eiga inn á húsnæðislán verður beint inn á. Fjármunirnir fara inn á óverðtryggðan bankareikning. Með því móti er komið í veg fyrir að þessar greiðslur hafi áhrif á afkomu annarra safna, sem tíðar útborganir gætu annars gert. Einnig tryggir þetta að lágmarkssveiflur verða í ávöxtun safnsins og þær hafa því ekki neikvæð áhrif á innágreiðslur á lánin.


F R É T TA B R É F S TA PA H A U S T 2 0 1 4

Markaðir og ávöxtun Innlendir markaðir voru erfiðir á fyrri helmingi ársins 2014, en skráð hlutabréf lækkuðu um 5,6% á tímabilinu og ríkisskuldabréf um 0,3%. Á sama tíma skiluðu erlendir markaðir betri ávöxtun, t.a.m. hækkaði MSCI heimsvísitala hlutabréfa um 4,4% fyrstu sex mánuði ársins og erlend ríkisskuldabréf um 3,2% á sama tímabili. Í ljósi þessa var ávöxtun sjóðsins hófleg á tímabilinu. Þannig var ávöxtun tryggingadeildar Stapa lífeyrissjóðs á fyrstu sex mánuðum ársins 5,3% og raunávöxtun 3,0%. Ávöxtun safna séreignardeildar var sem hér segir: Safn I -0,5%, Safn II -0,2% og Safn III 4,6%. Samsvarandi raunávöxtunartölur voru: -2,7%, -2,4% og 2,3%. Ávöxtunin hefur verið heldur betri það sem af er seinni helmingi ársins, en nánari upplýsingar um ávöxtun séreignaleiða má finna á heimasíðu sjóðsins www.stapi.is. Á fyrri helmingi ársins greiddu 16.223 sjóðfélagar og launagreiðendur þeirra 3.140 milljónir króna í iðgjöld til sjóðsins sem er hækkun um 7,5% frá sama tímabili í fyrra. Lífeyrisgreiðslur námu á sama tímabili 2.146 milljónum króna og hækkuðu um 11,6% milli ára. Allar líkur eru á að lífeyrisgreiðslur frá sjóðnum til lífeyrisþega fari yfir 4 milljarða á árinu.


STAPI lífeyrissjóður

Strandgötu 3, 600 Akureyri Egilsbraut 25, 740 Neskaupstað

Sími 460 4500

www.stapi.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Fréttabréf haust 2014 by Stapi lífeyrissjóður - Issuu