Mánudaginn 27. apríl kl. 14:00 verður ársfundur Stapa haldinn
í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri. Á dagskrá eru hefðbundin ársfundarstörf. Fulltrúaráð fer með atkvæðisrétt á ársfundum en fundurinn er opinn öllum sjóðfélögum og eru þeir hvattir til að mæta.
Nánari upplýsingar eru birtar á stapi.is.
Lykiltölur úr ársreikningi
Breytingar á hreinni eign
Ársskýrsla
Rafræn ársskýrsla Stapa er komin út. Líkt og undanfarin sjö
ár er skýrslan á vefsíðuformi, sem er bæði umhverfisvænt og hagkvæmt.
Efnahagsreikningur í árslok
Fjárhæðir í milljónum króna
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs | Vor 2026
Ávöxtun sjóðsins
Árið 2025 einkenndist af krefjandi aðstæðum á fjármálamörkuðum, þar sem viðvarandi hátt vaxtastig og þrálát verðbólga höfðu veruleg áhrif á þróun eignaverðs. Þrátt fyrir að verðbólga hafi farið lækkandi þegar leið á árið, héldu seðlabankar áfram aðhaldi í peningamálum sem hafði áhrif á bæði hagvöxt og fjárfestingarumhverfi.
Á Íslandi var verðbólga yfir markmiði og studdi hátt vaxtastig við
ávöxtun skuldabréfa. Innlend hlutabréf þróuðust hins vegar með meiri sveiflum og áttu almennt erfitt uppdráttar. Á alþjóðavísu var hagvöxtur hægari en áður, þó héldu hlutabréfamarkaðir
áfram að skila viðunandi ávöxtun. Bandarísk hlutabréf, einkum í tækni- og gervigreindargeiranum, leiddu þá þróun og nýmarkaðir sýndu einnig styrk. Gengisþróun hafði neikvæð áhrif á ávöxtun erlendra eigna í krónum talið, þar sem styrking krónunnar gagnvart Bandaríkjadal vó á móti jákvæðri ávöxtun í undirliggjandi eignum.
Nafnávöxtun tryggingadeildar á árinu nam um 5,6% samanborið við 11,3% nafnávöxtun árið 2024. Raunávöxtun var um 1,8% samanborið við raunávöxtun upp á 6,3% árið 2024.
Stapa lífeyrissjóðs | Vor
Ríkisskuldabréf
Innlend hlutabréf
Erlend skuldabréf
Erlend hlutabréf
Skammtímabréf og innlán
Flestir eignaflokkar skiluðu jákvæðri ávöxtun á árinu. Innlend skuldabréf skiluðu hæstri nafnávöxtun, 8,2-8,6% en erlend skuldabréf lægstu, -0,9% sem að stærstum hluta skýrist af styrkingu krónu gagnvart bandarískum dollar.
Miðað við gengisrunu skilaði varfærna séreignarsafnið 6% ávöxtun á árinu sem var yfir viðmiði en áræðna safnið var hins vegar rétt undir viðmiði með 5,7% ávöxtun. Innlána séreignarsafnið skilaði 5,5% ávöxtun sem var umfram viðmið, sem rekja má til hárra innlánskjara á tímabilinu. Ávöxtun tilgreindrar séreignar var 5,6% á árinu 2025, sem er undir viðmiði sem var 5,9%.
NAFNÁVÖXTUN
Réttindakerfi Stapa tíu ára
Um síðustu áramót voru liðin tíu ár frá því að nýtt réttindakerfi var tekið upp hjá Stapa. Breytingin átti sér langan aðdraganda en fyrstu drög að réttindakerfinu urðu til árið 2011 en árið 2015, eftir mikla vinnu og ítarlega kynningu, var samþykkt á ársfundi að taka upp hið nýja kerfi frá 1. janúar 2016. Með breytingunni var horfið frá hefðbundinni réttindaávinnslu þar sem réttindi voru miðuð við 3,5% ávöxtun en síðan skert eða aukin á nokkurra ára fresti ef ávöxtunin reyndist önnur.
Réttindakerfi Stapa miðast við eignatengda réttindaávinnslu og raunverulega ávöxtun sjóðsins á hverjum tíma þar sem réttindi eru uppfærð mánaðarlega í samræmi við eignavísitölu.
Kerfið er gagnsærra en fyrra kerfi og það auðveldar sjóðfélögum að skilja hvað verður um iðgjöldin þeirra. Á sjóðfélagayfirlitum er útskýrt hvernig iðgjöld og ávöxtun móta lífeyrisréttindi hvers
Iðgjald greitt til sjóðsins er skipt
í tvo hluta
Réttindasjóður
Réttindasjóður
ávaxtaður
og eins. Réttindi eru beintengd ávöxtun sem eykur skilning sjóðfélaga á lífeyriskerfinu og áhrifum markaðsávöxtunar á áætluð eftirlaun, auk þess sem eignir og skuldbindingar fylgjast betur að en áður.
Með greiðslu í lífeyrissjóð ávinnast réttindi til eftirlauna og áfallatrygginga (örorkulífeyris, makalífeyris og barnalífeyris). Þegar iðgjald berst til Stapa er því strax skipt upp í tvo hluta, réttindasjóð og áfallatryggingar. Réttindasjóðurinn stendur undir eftirlaunum sjóðfélaga og heldur áfram að vaxa með innborgun á iðgjöldum og ávöxtun. Þegar sjóðfélagi ákveður að hefja töku eftirlauna er réttindasjóðnum skipt upp í mánaðarlegar ævilangar greiðslur. Það er einfalt að skoða stöðu réttindasjóðs og áætluð eftirlaun í lífeyrisreiknivélinni á sjóðfélagavef.
Þegar sjóðfélagi kýs að fara á eftirlaun er réttindasjóði breytt í mánaðarlegar
greiðslur
Eftirlaun: Hægt er að sækja um eftirlaun frá 60 ára aldri. Ef sjóðfélagi hefur lífeyristöku snemma þá skiptist réttindasjóðurinn á fleiri mánuði sem þýðir lægri greiðslu í hverjum mánuði en ef sjóðfélagi kýs að hefja lífeyristöku seinna.
Örorkulífeyrir: Ef starfsorka skerðist um 50% eða meira og veldur tekjutapi er greiddur endurhæfingar- eða örorkulífeyrir. Sjóðfélagi þarf að hafa greitt í lífeyrissjóð í a.m.k. tvö ár.
Makalífeyrir: Greiðist til maka við andlát sjóðfélaga.
Barnalífeyrir: Er greiddur til barna látins sjóðfélaga og þeirra sem fá örorkulífeyri.
Áfallatryggingar
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs | Vor 2026
Örorkulífeyrir, makalífeyrir, barnalífeyrir
Misstir þú af umfjöllun Kveiks?
Í desember síðastliðnum var birt áhugaverð umfjöllun í þættinum Kveik á RÚV um viðskiptahætti tengda sölu lífeyristrygginga og þann kostnað sem getur fallið til m.a. vegna séreignarsamninga. Nú sem fyrr hvetur Stapi sjóðfélaga til að kynna sér alla samninga mjög vel áður en kemur til undirritunar.
Dæmin sanna að kostnaður getur numið háum fjárhæðum, allt að einum mánaðarlaunum á fyrstu 12 mánuðum samnings.
Þessir samningar eru oft flóknir og mikilvægt að vanda valið þegar kemur að vörsluaðila. Það er lögbundin skylda þeirra að birta stöðluð upplýsingablöð þar sem m.a. koma fram upplýsingar um kostnað, áhættu og vænta ávöxtun. Það er góð og einföld leið að nota lykilupplýsingablöðin til samanburðar á helstu þáttum.
Fyrir þá sem ekki hafa kynnt sér umfjöllunina er hægt að smella á myndirnar til að skoða brot úr þættinum.
Smelltu á myndirnar til að skoða brot úr þættinum.
Séreign inn á lán – Nýtt frumvarp lagt fram
Almenn heimild til ráðstöfunar á séreignarsparnaði skattfrjálst
inn á höfuðstól lána kom fyrst til sögunnar árið 2014 og var þá lögfest til þriggja ára. Gildistíminn var framlengdur fimm sinnum en heimildin var ekki framlengd um síðustu áramót og
féll þá úr gildi.
Í mars síðastliðnum var lagt fram nýtt frumvarp á Alþingi um sérlög varðandi úrræðið og er þar lagt til að það verði
ótímabundið. Fyrstu umræðu um málið er lokið en næst fer málið til nefndar áður en það verður tekið til annarrar umræðu.
• Hámarksupphæð miðist við einstaklinga í stað þess að sérstakt viðmið gildi um hjón eða sambúðarfólk.
• Einstaklingar geti nýtt heimildina í samanlagt tíu ár eða samtals í 120 mánuði að hámarki. Þeir sem þegar hafa nýtt eldri úrræði þann tíma eða lengur geta ekki nýtt nýja úrræðið.
Þar sem frumvarpið er enn í meðförum Alþingis getur það enn tekið breytingum. Við munum að sjálfsögðu fylgjast með framvindunni og birta upplýsingar á vefsíðu sjóðsins þegar niðurstaðan liggur fyrir. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að mögulegt verði að nýta heimildina afturvirkt frá 1. janúar 2026. Lagt er til að sambærileg skilyrði gildi um úrræðið og gilt hafa undanfarin ár. Nokkrar breytingar eru þó lagðar til, meðal annars að:
• Hámarksfjárhæð til skattfrjálsrar notkunar á árinu 2026 geti numið 500.000 kr. en að fjárhæðin taki árlegum hækkunum í samræmi við vísitölu neysluverðs í upphafi hvers árs, fyrst árið 2027.
• Lögin geti tekið til fyrstu kaupenda sem hafa ekki náð að nýta það úrræði í samanlagt 10 ár.
Stapa lífeyrissjóðs
Mikilvægt að yfirfara sjóðfélagayfirlit
Réttindi sjóðfélaga byggja á þeim iðgjöldum sem skila sér til Stapa. Það er því afar mikilvægt að rýna vel yfirlit frá sjóðum og bera þau saman við iðgjöld sem dregin eru af launum.
Ef iðgjöld hafa ekki skilað sér er mikilvægt að hafa samband við sjóðinn innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits.
Yfirlitin eru birt tvisvar á ári undir Skjöl á sjóðfélagavef og á Ísland.is.
Sjóðfélagar með skráð netfang í Mínar upplýsingar á vefnum fá sendan tölvupóst þegar nýtt yfirlit er birt.
Sjóðfélagi getur óskað eftir að fá yfirlit í bréfapósti með því að skrá það undir Mínar upplýsingar á sjóðfélagavef eða með því að hafa samband við sjóðinn.
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs | Vor 2026
Ert þú með séreignarsparnað?
Það er einfalt að hefja séreignarsparnað og ávinningurinn er ótvíræður.
Ef sjóðfélagi greiðir 2-4% í séreignarsparnað þá greiðir launagreiðandi 2% mótframlag sem er ígildi launahækkunar.
Hægt að nýta sparnaðinn skattfrjálst til kaupa á fyrstu íbúð.
Aukinn sveigjanleiki við starfslok
Hægt er að skila inn rafrænni umsókn á umsóknarvef.
Stapi sér um að senda upplýsingar áfram til launagreiðanda.
Athugið!
Ef skipt er um launagreiðanda þarf að fylla út nýja umsókn um séreignarsparnað. Samningar flytjast ekki sjálfkrafa á milli launagreiðenda
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs | Vor 2026
Undirbúðu framtíðina – Kíktu á vefinn!
Á sjóðfélagavefnum getur þú skoðað margvíslegar upplýsingar um eign þína hjá sjóðnum og ýmislegt fleira.
Mundu að skrá netfangið þitt á sjóðfélagavefinn!
Réttindi þín til eftirlauna
– Skoðaðu áunnin lífeyrisréttindi
– Reiknaðu framtíðarlífeyri
– Lífeyrisgáttin sýnir réttindi í öllum samtryggingarsjóðum
Samkeppnishæf íbúðalán
– Upplýsingar um lánsrétt eru á vefnum
– Skoðaðu stöðu lánsins þíns og greidda gjalddaga
– Fylgstu með aukainnborgunum
– Þú getur skoðað vexti og endurgreiðsluform lánsins
– Reiknaðu hvernig afborgun þróast miðað við mismunandi verðbólguspá
Réttindi þín byggjast á greiddum iðgjöldum
– Fylgstu með að iðgjöld skili sér frá launagreiðanda
– Iðjaldayfirlit sýnir greiðslur sem berast til sjóðsins
– Sjóðfélagayfirlit eru birt í Skjölum
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs
Fréttabréf Stapa lífeyrissjóðs | Vor 2026
Strandgötu 3, 600 Akureyri og Bakkavegi 5, 740 Neskaupstað
Afgreiðslutími skrifstofu:
Akureyri kl. 9:00–12:30 og 13:00–15:00. Neskaupstaður kl. 9:00–12:00
Sími: 460 4500 | www.stapi.is | stapi@stapi.is
Umbrot og teikningar: Blek hönnunarstofa – blekhonnun.is Ljósmyndir: Gyða Henningsdóttir og Einar Guðmann