FRÉTTABRÉF STAPA HAUST 2019
Tilgreind séreign eða samtrygging Tilgreind séreign er tegund lífeyrisréttinda sem kveðið er á um í kjarasamningi ASÍ og SA. Eingöngu sjóðfélagar sem falla undir þá kjarasamninga hafa val um tilgreinda séreign, nema kveðið sé á um slíkt í ráðningarsamningi. Það er eðlismunur á þeim réttindum sem ávinnast í samtryggingu annars vegar og í tilgreindri séreign hins vegar. Valkostirnir eru báðir góðir, hver sjóðfélagi fyrir sig ætti að meta hvort hann kýs fremur, aukna tryggingavernd sem felst í samtryggingunni eða aukinn sveigjanleika hvað varðar útgreiðslu og erfanleika, sem felst í tilgreindri séreign. Iðgjald rennur til tryggingadeildar
Iðgjald rennur í tilgreinda séreign
• Eykur rétt til ævilangra eftirlauna
• Eftirlaunaréttur hækkar meira en í tryggingadeild
• Eykur rétt til örorkulífeyris • Eykur rétt til makalífeyris • Hækkunin nemur allt að 30%
• Gefur kost á meiri sveigjanleika við starfslok • Erfist við fráfall
Vilji sjóðfélagi ráðstafa iðgjaldi umfram 12% í tilgreinda séreign, þarf að fylla út tilkynningu og skila til sjóðsins. Á tilkynningunni er að finna ítarlegar upplýsingar um tilgreinda séreign og hvaða þætti þarf að skoða áður en tekin er ákvörðun um hvernig iðgjaldinu er ráðstafað. Ef sjóðfélagi skilar ekki tilkynningu til sjóðsins rennur iðgjaldið í tryggingadeild.
Ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á lán Heimiluð hefur verið áframhaldandi ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á lán til og með 30. júní 2021. Þeir sjóðfélagar sem hafa nýtt sér ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán þurftu að framlengja umsóknir sínar fyrir 1. október sl. Ef umsókn var ekki framlengd þarf að sækja um að nýju hjá Ríkisskattstjóra. Athugið að sækja þarf um fyrir hvern og einn einstakling, hvort sem hann er einhleypur, í hjúskap eða uppfyllir skilyrði samsköttunar. Að gefnu tilefni minnir lánadeild á að ef lán eru endurfjármögnuð og lántaki ráðstafar séreign inn á lán þá er nauðsynlegt að sækja um að nýju hjá Ríkisskattstjóra til að séreign ráðstafist rétt.
F R É T TA B R É F S TA PA H A U S T 2 0 1 9
Ávöxtun tryggingadeildar Ávöxtun tryggingadeildar Stapa hefur verið góð síðustu 12 mánuði eða um 12,1%. Allir eignaflokkar hafa skilað jákvæðri ávöxtun á tímabilinu, flestir töluvert umfram markmið fjárfestingarstefnu sjóðsins. Lækkandi vaxtastig, bæði innanlands og erlendis, vegna lakari hagvaxtarhorfa hafa knúið áfram hækkanir á öllum helstu eignamörkuðum. Þannig hafa erlend hlutabréf sjóðsins hækkað um 14% undanfarna 12 mánuði (mælt í ISK), innlend skuldabréf um 13% og innlend hlutabréf um 9%. Veiking krónunnar á tímabilinu jók ávöxtun erlendra eignaflokka en undanfarna 12 mánuði hefur gengisvísitala krónunnar hækkað um 6%.
3% Innlend skuldabréf
24%
Innlend hlutabréf
12,1% NAFNÁVÖXTUN
6%
sl. 12 mánuði
53%
14%
Erlend skuldabréf Erlend hlutabréf Skammtímabréf
Opið hús hjá Stapa á Akureyri Á vormánuðum lauk endurbótum á húsnæði Stapa á Akureyri. Af því tilefni verður sjóðurinn með opið hús að Strandgötu 3 fimmtudaginn 14. nóvember frá kl. 15-17. Boðið verður upp á léttar veitingar auk þess sem stuttar kynningar verða haldnar á grunnþáttum réttindakerfis Stapa. Kynningarnar fara fram kl. 15:30 og 16:30. Við bjóðum sjóðfélaga hjartanlega velkomna.
F R É T TA B R É F S TA PA H A U S T 2 0 1 9
1. Merkið með letruðum undirtitli 2. Merkið án letraðs undirtitils
1
Átt þú lánsrétt hjá Stapa? Lánsrétt eiga sjóðfélagar sem: • Hafa greitt minnst þrjá síðustu mánuði til samtryggingardeildar • Hafa greitt eitt ár (síðastliðna 12 mánuði) til séreignardeilda • Eru lífeyrisþegar hjá sjóðnum Jafnframt þarf að uppfylla önnur skilyrði lánareglna og viðmið Stapa hverju sinni. Nánari upplýsingar á www.stapi.is
Vefur Landssamtaka lífeyrissjóða þar sem má finna margvíslegt kynningarefni og upplýsingar um lífeyrismál á íslensku, ensku og pólsku.
2
Fylgist þú með? • Skoða yfirlit greiddra iðgjalda • Fylgjast með áunnum lífeyrisréttindum • Horfa til framtíðar með reiknivélinni • Sjá réttindi hjá öðrum samtryggingarsjóðum • Skoða sjóðfélagayfirlit • Afþakka sjóðfélagayfirlit á pappír Vefurinn er aðgengilegur á heimasíðu Stapa www.stapi.is. Þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum eða veflykli.
Stjórn Stapa
Hafðu samband
Huld Aðalbjarnardóttir (formaður) Erla Jónsdóttir (varaformaður) Kristín Halldórsdóttir Oddný María Gunnarsdóttir Sverrir Mar Albertsson Tryggvi Jóhannsson Unnar Már Pétursson Valdimar Halldórsson
Skrifstofur Stapa eru til húsa að Strandgötu 3, 600 Akureyri og Hafnarbraut 20, 740 Neskaupstað. Opið alla virka daga: Akureyri kl. 9:00–12:30 og 13:00–15:00. Neskaupstaður kl. 12:00–15:00. Símanúmer: 460 4500. Vefslóð: www.stapi.is
Ábyrgðarmaður: Stapi lífeyrissjóður | Umbrot og hönnun: Blek auglýsingastofa | Prentun: Umslag ehf. | Forsíðumynd: Mývatn © Einar Guðmann
Á vef sjóðfélaga er einfalt að: