FRÉTTABRÉF STAPA VOR 2019
Lykiltölur úr ársreikningi Breytingar á hreinni eign 2018
Fjárhæðir í milljónum króna
2017
Iðgjöld
12.054 10.191
Lífeyrir
-5.967 -5.350
Hreinar fjárfestingartekjur
10.242
Rekstrarkostnaður
13.672
-456 -393
Aðrar tekjur (önnur gjöld)
-17
38
Hækkun á hreinni eign
15.856
18.158
Hrein eign frá fyrra ári
204.850
186.693
Hrein eign til greiðslu lífeyris
220.707
204.850
Efnahagsreikningur í árslok Fjárhæðir í milljónum króna
Eignarhlutir í félögum og sjóðum Skuldabréf
2018
2017
99.202
89.695
116.152 108.270
Bundnar bankainnstæður Fjárfestingar í íbúðarhúsnæði Kröfur
971
1.145
25
1.033
1.533 1.222
Ýmsar eignir
181
185
Handbært fé
2.796
3.361
Skuldir
-153 -60
Hrein eign til greiðslu lífeyris
220.707
204.850
Hrein eign tryggingadeildar
215.123
199.419
Hrein eign séreignardeildar
5.498
5.416
86
16
-1,8%
-0,9%
Hrein eign tilgreindrar séreignardeildar Tryggingafræðileg staða
Nafnávöxtun
4,8% 7,0%
Hrein raunávöxtun
1,5%
5,2%
Hver eru áhrif þess að flýta eða seinka töku eftirlauna? Sjóðfélagar geta valið að hefja töku eftirlauna á aldrinum 60-80 ára. Sjóðnum ber þó að úrskurða eftirlaun þegar sjóðfélagi verður 70 ára, hafi hann ekki óskað eftir frestun. Algengast er að sjóðfélagar hefji töku eftirlauna við 67 ára aldur. Á undanförnum árum hefur þeim þó fjölgað sem hefja töku eftirlauna upp úr 60 ára aldri og einnig þeim sem kjósa að hefja tökuna eftir 70 ára aldur. Það er því ekki úr vegi að velta fyrir sér áhrifum þessa á fjárhæð eftirlauna. Fjárhæð eftirlauna stjórnast annars vegar af því hvaða réttindasjóð sjóðfélagi á og hins vegar af aldri við upphaf töku eftirlauna. Áætluð mánaðarleg eftirlaun hækka eftir því sem aldur við upphaf töku þeirra hækkar en það er fyrst og fremst vegna þess að þá dreifist réttindasjóðurinn á færri áætlaða ólifaða mánuði. Ef sjóðfélagi hefur töku eftirlauna við 60 ára aldur þá er mánaðarlegur lífeyrir nær 40% lægri en áætlaður lífeyrir við 67 ára aldur. Áætlaður lífeyrir hækkar hins vegar um tæp 30% ef sjóðfélagi hefur töku lífeyris 70 ára í stað 67 ára. Hægt er að skoða áhrif aldurs á fjárhæð lífeyris með reiknivél á vef sjóðfélaga á heimasíðu sjóðsins. Ef sjóðfélagi vill fresta töku eftirlauna fram yfir 70 ára aldur þarf hann að sækja sérstaklega um það. Umsóknina er að finna á heimasíðu sjóðsins.
F R É T TA B R É F S TA PA VO R 2 0 1 9
Breytingar á sjóðfélagalánum mælast vel fyrir Í lok janúar 2018 var fyrirkomulagi sjóðfélagalána hjá Stapa breytt. Sjóðurinn hóf þá alla umsýslu og afgreiðslu lánanna en áður voru þau afgreidd í samstarfi við lánastofnanir. Sjóðfélagar hafa tekið þessari breytingu vel enda býður sjóðurinn nú upp á samkeppnishæfari kjör. Á fyrstu tólf mánuðunum voru afgreiddar 179 umsóknir eða um 15 að meðaltali í hverjum mánuði. Meðallánsfjárhæð var um 21 milljón króna. Lánsrétt eiga þeir sem greiða eða hafa greitt í samtryggingar- eða séreignardeild Stapa að uppfylltum öðrum skilyrðum lánareglna og viðmiðum um lánveitingar hverju sinni. Mjög margir eiga því lánsrétt hjá sjóðnum og umsóknir berast víða af landinu. Fastir verðtryggðir vextir sjóðfélagalána Stapa eru nú 3,60% en breytilegir vextir 2,42%. Breytilegir vextir eru endurskoðaðir ársfjórðungslega og fylgja þróun á markaðskröfu skuldabréfa Íbúðalánasjóðs. Allar nánari upplýsingar um lánareglur og kjör sjóðfélagalána er að finna á heimasíðu sjóðsins www.stapi.is en einnig er hægt að senda fyrirspurnir á lan@stapi.is eða hafa samband í síma 460-4500.
Af hverju er mikilvægt að yfirfara sjóðfélagayfirlit? Á launaseðlum kemur fram hvaða greiðslur launagreiðandi ætlar að greiða til lífeyrissjóðsins. Því miður getur orðið misbrestur á því að iðgjöldin skili sér til sjóðsins og einnig á að iðgjöldin séu í samræmi við kjarasamninga. Lífeyrissjóðurinn getur eingöngu innheimt þau iðgjöld sem hann veit af og hefur auk þess ekki upplýsingar um eftir hvaða kjarasamningi sjóðfélagar fá greitt. Það er því mikilvægt að sjóðfélagar beri saman launaseðla við sjóðfélagayfirlit og einnig hvort greitt er í samræmi við kjarasamning, til að rétt upphæð skili sér til sjóðsins. Sjóðfélagi þarf að hafa samband við lífeyrissjóðinn án tafar telji hann að iðgjöld vanti. Komi ekki fram athugasemd frá launþega, er lífeyrissjóðurinn einungis ábyrgur fyrir þeim réttindum sem koma fram á yfirlitinu.
F R É T TA B R É F S TA PA VO R 2 0 1 9
Skrifstofa Stapa í Neskaupstað flutt Í lok nóvember flutti skrifstofa Stapa í Neskaupstað að Hafnarbraut 20. Sjóðurinn deilir nú húsnæði með Landsbankanum og breyttist afgreiðslutíminn á Austurlandi til samræmis við opnunartíma bankans. Opið er alla virka daga frá kl. 12:00 til 15:00 en skrifstofa sjóðsins hefur fram til þessa verið lokuð í hádeginu. Með flutningnum var aðgengi að húsnæði sjóðsins bætt verulega þar sem skrifstofan er nú á fyrstu hæð með betra aðgengi. Engar breytingar verða á starfsmannahaldi. Sjóðurinn verður áfram með einn starfsmann í fullu starfi sem veitir allar almennar upplýsingar til sjóðfélaga og sinnir iðgjaldaskráningu og símsvörun utan opnunartíma í Neskaupstað. Sjóðfélagar eru boðnir velkomnir á nýjan stað.
Starfslokanámskeið og kynningar Í febrúar tók Stapi þátt í starfslokanámskeiði sem haldið var á Egilsstöðum og Reyðarfirði. Forstöðumaður réttindasviðs sjóðsins fjallaði um lífeyrismál á námskeiðinu sem var vel sótt. Á þessu ári hefur sjóðurinn einnig verið með erindi fyrir trúnaðarmenn FVSA og Framsýnar auk kynningar á aðalfundi Öldunnar stéttarfélags. Við hvetjum stærri vinnustaði og stéttarfélög til að hafa samband ef áhugi er fyrir því að starfsmenn Stapa komi og útskýri lífeyriskerfið eða einstaka þætti þess.
F R É T TA B R É F S TA PA VO R 2 0 1 9
1. Merkið með letruðum undirtitli 2. Merkið án letraðs undirtitils
1
Ársfundur Stapa Ársfundur sjóðsins verður haldinn þann 8. maí 2019 kl. 14:00 í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri. Allir sjóðfélagar og launagreiðendur eru hvattir til að mæta. Hægt verður að fylgjast með fundinum í vefútsendingu á heimasíðu Stapa.
Vefur Landssamtaka lífeyrissjóða þar sem má finna margvíslegt kynningarefni og upplýsingar um lífeyrismál á íslensku, ensku og pólsku.
2
Á vef sjóðfélaga er einfalt að: • Skoða yfirlit greiddra iðgjalda • Fylgjast með áunnum lífeyrisréttindum • Horfa til framtíðar með reiknivélinni • Sjá réttindi hjá öðrum samtryggingarsjóðum • Skoða sjóðfélagayfirlit • Afþakka sjóðfélagayfirlit á pappír Vefurinn er aðgengilegur á heimasíðu Stapa www.stapi.is. Þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum eða veflykli.
Stjórn Stapa
Hafðu samband
Erla Jónsdóttir (formaður) Huld Aðalbjarnardóttir (varaformaður) Guðbjörg Særún Björnsdóttir (til febrúar 2019) Kristín Halldórsdóttir Sverrir Mar Albertsson Tryggvi Jóhannsson Unnar Már Pétursson Valdimar Halldórsson
Skrifstofur Stapa eru til húsa að Strandgötu 3, 600 Akureyri og Hafnarbraut 20, 740 Neskaupstað. Opið alla virka daga: Akureyri kl. 9:00–12:30 og 13:00–15:00. Neskaupstaður kl. 12:00–15:00. Símanúmer: 460 4500. Vefslóð: www.stapi.is
Ábyrgðarmaður: Stapi lífeyrissjóður | Umbrot og hönnun: Blek auglýsingastofa | Prentun: Umslag ehf. | Myndir: © Einar Gudmann og Gyða Henningsdóttir
Fylgist þú með?