FRÉTTABRÉF STAPA HAUST 2018
Skipting eftirlaunaréttinda Í lögum um lífeyrissjóði er ákvæði sem heimilar hjónum og sambúðarfólki að gera samkomulag um skiptingu á eftirlaunagreiðslum eða eftirlaunaréttindum. Ákvæðið er hugsað sem jafnréttiseða sanngirnismál, til að jafna réttindi þeirra sem verið hafa á vinnumarkaði og þeirra sem hafa verið heimavinnandi. Skiptingin getur numið allt að 50% af eftirlaunaréttindum og hún skal vera gagnkvæm sem þýðir að ekki er hægt að skipta aðeins réttindum annars aðilans. Heimilt er að skipta réttindum til eftirlauna með þrennum hætti:
Lífeyrisgreiðslum skipt Greiðslur sjóðfélaga renna þá allt að hálfu til maka eða fyrrverandi maka. Þetta er tímabundin ráðstöfun á meðan báðir aðilar eru á lífi.
Áunnum lífeyrisréttindum er skipt Gera þarf samninginn fyrir 65 ára aldur og áður en lífeyristaka hefst. Ef sjúkdómar eða heilsufar draga úr lífslíkum er ekki hægt að gera slíkan samning.
Framtíðarréttindum er skipt Sjálfstæð réttindi myndast fyrir maka til að jafna lífeyrisréttindi til framtíðar. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir í hverju skiptingin er fólgin áður en hún er ákveðin. Eingöngu er verið að skipta rétti til eftirlauna. Réttur til örorku og makalífeyris helst óbreyttur. Í þeim tilfellum þar sem um er að ræða ævilangan makalífeyri má segja að búið sé að jafna réttindi að nokkru leyti. Tekjutenging Tryggingastofnunar gagnvart greiðslum frá lífeyrissjóðum getur einnig flækt málið. Skiptingin getur valdið því að heildargreiðslur til sjóðfélaga og maka frá Tryggingastofnun lækka en óljóst er hvernig reglur Tryggingastofnunar kunna breytast í framtíðinni. Frekari upplýsingar má finna á vefnum lifeyrismal.is og í samantekt Stapa um makasamninga sem birt var í frétt á heimasíðu sjóðsins í september síðastliðnum.
Sjóðfélagalán Stapi veitir lán gegn veði í fasteign í eigu sjóðfélaga. Lánsrétt eiga sjóðfélagar sem greiða eða hafa greitt til samtryggingar- eða séreignardeildar sjóðsins. Umsóknir og upplýsingar um lánareglur, vexti o.fl. er að finna á heimasíðu sjóðsins. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á lan@stapi.is eða hafa samband í síma 460-4500.
F R É T TA B R É F S TA PA H A U S T 2 0 1 8
Hvað ef launagreiðandi skilar ekki réttu mótframlagi í lífeyrissjóð? Lífeyrisréttindi grundvallast á þeim iðgjöldum sem greidd eru til sjóðsins. Ef launagreiðandi greiðir lægra mótframlag en hann á að gera þá verða lífeyrisréttindi viðkomandi sjóðfélaga lægri en ella. Það er því afar mikilvægt að yfirfara launaseðla og fylgjast með að launagreiðandi skili inn mótframlagi í samræmi við kjarasamning. Á sjóðfélagayfirlitum Stapa er einfalt að skoða hlutfallstölu iðgjalds og mótframlags. Fyrir aftan nafn laungreiðanda eru tvær tölur í sviga, iðgjald sjóðfélaga er fremri talan og mótframlag launagreiðanda sú aftari. Einnig er hægt að fylgjast með iðgjaldagreiðslum á sjóðfélagavef á heimasíðu Stapa. Lokahækkun mótframlags launagreiðenda samkvæmt samningi ASÍ og SA var þann 1. júlí 2018. Mótframlag samkvæmt samningnum er nú 11,5%. Ef sjóðfélagi er ekki viss um hvert mótframlag launagreiðanda á að vera er rétt að hafa samband við viðeigandi stéttarfélag.
Sveigjanleg starfslok Með iðgjaldagreiðslum til sjóðsins byggir sjóðfélagi upp réttindasjóð sem líkja má við verðbréfasjóð sem ávaxtast í samræmi við eignir sjóðsins. Réttindasjóðurinn ákvarðar rétt til ævilangra eftirlauna. Sjóðfélagi hefur eftirfarandi valmöguleika þegar hugað er að töku eftirlauna: • Hægt er að hefja töku eftirlauna á aldrinum 60-80 ára. Mánaðarleg eftirlaun eru hærri ef sjóðfélagi seinkar töku eftirlauna því þá dreifist réttindasjóður hans á færri áætlaða ólifaða mánuði. • Sjóðfélagi getur ákveðið að hefja töku 50% eftirlauna. Tryggingastofnun býður einnig upp á töku 50% lífeyris á móti að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þessi möguleiki getur hentað ef sjóðfélagi vill minnka við sig vinnu en vill halda því sem næst fyrri tekjum. • Sjóðfélagi sem hefur töku eftirlauna að hluta eða að fullu fyrir 67 ára aldur getur hætt tökunni og hafið hana á ný síðar. Sjóðfélagi er þó bundinn við val sitt í minnst 12 mánuði í senn. • Eftirlaun eru úrskurðuð á grunni tilkynningar frá sjóðfélaga. Hægt er að nálgast eyðublöð eða sækja um rafrænt á heimasíðu Stapa. Sjóðurinn sendir tilkynninguna áfram til annarra lífeyrissjóða nema um annað sé beðið. Einnig er hægt að óska eftir því að send sé staðfesting á Tryggingastofnun. • Inneign í séreign er laus til útgreiðslu við 60 ára aldur og í tilgreindri séreign á ákveðnu árabili frá 62 ára aldri. Sækja þarf um útgreiðslu til hvers og eins séreignarsjóðs.
F R É T TA B R É F S TA PA H A U S T 2 0 1 8
Sjóðfélagavefur Stapa Á vef sjóðfélaga á heimasíðu Stapa er hægt að fylgjast með réttindum hjá sjóðnum og hvort iðgjöld hafa skilað sér. Þar er einnig að finna reiknivélar vegna lána, lífeyris, séreignar og tilgreindrar séreignar. Hægt er að skrá sig inn á vefinn með rafrænum skilríkjum eða veflykli.
Í Lífeyrisgáttinni á lifeyrismal.is getur þú nálgast upplýsingar um öll réttindi sem þú hefur unnið þér inn í samtryggingarsjóði hjá flestum lífeyrissjóðum á starfsævinni.
Tökum höndum saman
FÆKKUM PAPPÍRSYFIRLITUM VISSIR ÞÚ AÐ... Stapa er skylt samkvæmt lögum að upplýsa sjóðfélaga um réttindi þeirra. Sjóðurinn sendir því árlega út 34.000 yfirlit á pappír. Til að Stapi geti sent yfirlitin rafrænt þarf sjóðfélagi að óska eftir því. Þeir sem sem afþakka heimsendan pappír fá sendar tilkynningar í tölvupósti.
Til að afþakka pappír ferðu inn á vef sjóðfélaga á stapi.is með rafrænum skilríkjum eða veflykli.
Það er auðvelt að fylgjast með réttindum á sjóðfélagavefnum.
Stjórn Stapa
Hafðu samband
Erla Jónsdóttir (formaður) Huld Aðalbjarnardóttir (varaformaður) Kristín Halldórsdóttir Sverrir Mar Albertsson Særún Björnsdóttir Tryggvi Jóhannsson Unnar Már Pétursson Valdimar Halldórsson
Skrifstofur Stapa eru til húsa að Strandgötu 3, 600 Akureyri og Egilsbraut 25, 740 Neskaupstað. Skrifstofurnar eru opnar alla virka daga frá 9:00–12:30 og 13:00–15:00. Símanúmer Stapa er 460 4500.
Ábyrgðarmaður: Stapi lífeyrissjóður | Umbrot og hönnun: Blek auglýsingastofa | Prentun: Umslag ehf. | Forsíðumynd: Skriðuklaustur í Fljótsdal © Lilja Guðmundsdóttir
2