Skip to main content

Fréttabréf Stapa vor 2018

Page 1

FRÉTTABRÉF STAPA VOR 2018


Nýtt fyrirkomulag sjóðfélagalána Stapi lífeyrissjóður hefur breytt fyrirkomulagi sjóðfélagalána. Áður voru lánin afgreidd í samstarfi við lánastofnanir en nú sér sjóðurinn um alla umsýslu og afgreiðslu. Lánareglur hafa verið endurskoðaðar og bjóðast nú lægri vextir, fast lántökugjald, hærra hámarkslán og lánshlutfall. Lánsrétt eiga sjóðfélagar sem greiða eða hafa greitt til samtryggingar- eða séreignardeildar sjóðsins.

Lánamöguleikar • Verðtryggð lán með veði í fasteign í eigu lántaka • Lánshlutfall er að hámarki 75% af verðmæti íbúðarhúsnæðis • Hámarkslán með veði í íbúðarhúsnæði er 50.000.000 kr. • Fastir vextir 3,6% en breytilegir 2,72% • Lántökugjald er 50.000 kr. óháð lánsfjárhæð • Lánstími 5-40 ár og afborganir 12 á ári • Hægt er að greiða upp lán hvenær sem er án sérstakrar þóknunar • Lántakar og veð skulu einnig uppfylla önnur skilyrði lánareglna • Sjóðfélögum með eldri lán frá Stapa býðst að endurfjármagna lán sín án lántökukostnaðar, uppfylli þeir skilyrði lánareglna sjóðsins

Nánari upplýsingar Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu sjóðsins, www.stapi.is en einnig er hægt að senda fyrirspurnir á lan@stapi.is eða hafa samband í síma 460-4500.

Hálfur lífeyrir – Sveigjanleg starfslok Reglugerð nr. 1195/2017 um sveigjanlega töku ellilífeyris og heimilisuppbótar tók gildi þann 1. janúar síðastliðinn. Þar er kveðið á um heimild til greiðslu hálfs ellilífeyris frá Tryggingastofnun til þeirra sem eiga a.m.k. samsvarandi rétt á eftirlaunum úr skyldubundnum lífeyrissjóðum. Heimild til að greiða hálfan lífeyri kallar á breytingar á samþykktum margra lífeyrissjóða til samræmis við reglugerðina. Þá þarf að sjálfsögðu að breyta upplýsingakerfum og tilheyrandi verkferlum sjóðanna. Ítarlegri upplýsingar um hálfan lífeyri verða birtar á heimasíðu Stapa eftir ársfund sjóðsins.

F R É T TA B R É F S TA PA VO R 2 0 1 8


Hækkun mótframlags launagreiðenda Í kjarasamningi ASÍ og SA frá janúar 2016 var meðal annars samið um þrepaskipta hækkun mótframlags launagreiðenda í lífeyrissjóð. Þann 1. júlí 2018, þegar allar hækkanir samkvæmt samningnum eru komnar til framkvæmda, hefur mótframlagið hækkað um 3,5%. Framlag launþega er óbreytt. Samhliða kjarasamningnum var gert samkomulag um að sjóðfélagar geti valið hvort hækkunin, að hluta til eða í heild, fari í tryggingadeild eða tilgreinda séreignardeild. Vilji sjóðfélagi ráðstafa hækkun í tilgreinda séreignardeild þarf hann að fylla út tilkynningu og skila inn til sjóðsins. Ef sjóðfélagi skilar ekki inn tilkynningu rennur iðgjaldið í tryggingadeild. Með ráðstöfun iðgjalds í tilgreinda séreign ávinnst ekki, hvað þau iðgjöld snertir, réttur til ævilangs lífeyris, örorkulífeyris, þ.m.t. framreiknings né makalífeyris. Þannig er eðlismunur á þeim réttindum sem ávinnast í tryggingadeild annars vegar og í tilgreindri séreignardeild hins vegar. Tilgreind séreign er laus til útborgunar frá 62 ára aldri á tilteknu árabili, við orkutap ef örorka er umfram 50% og við fráfall sjóðfélaga. Ekki er hægt að nota tilgreinda séreign til að greiða inn á húsnæðislán. Á vef sjóðsins getur þú fengið upplýsingar um tilgreinda séreign og slegið þínum forsendum inn í reiknvélina á sjóðfélagavefnum til að skoða áætlaðar útgreiðslur á mánuði.

Berðu saman launaseðla og yfirlit Stapi brýnir fyrir sjóðfélögum að bera iðgjaldagreiðslur saman við launaseðla. Iðgjöld í lífeyrissjóð eru hluti af launatekjum og því mikilvægt að yfirfara iðgjaldagreiðslur til að réttindi glatist ekki. Ef upplýsingar um iðgjöld vantar á yfirlitið er mikilvægt að tilkynna það til sjóðsins innan 60 daga frá dagsetningu yfirlitsins. Berist ekki athugasemdir við iðgjaldaskilin innan þeirra tímamarka er sjóðurinn einungis ábyrgur fyrir réttindum sem iðgjöldin skapa að því marki sem þau fást greidd. Nánari upplýsingar um rétt hlutfall mótframlags má nálgast hjá viðkomandi stéttarfélagi. Til að einfalda sjóðfélögum að fara yfir iðgjöldin birtist nú hlutfallstala iðgjalds og mótframlags fyrir aftan nafn launagreiðanda á yfirlitunum.

F R É T TA B R É F S TA PA VO R 2 0 1 8


Af hverju séreign? Inneign í séreign er laus til útborgunar við 60 ára aldur. Hægt er að dreifa útgreiðslum á lengra tímabil eða taka allt út í einu. Sjóðfélagi sem þarf að hætta störfum vegna örorku á einnig rétt á að fá séreign sína greidda út á 7 árum.

Kostir séreignar eru ótvíræðir • Mótframlag launagreiðanda jafngildir 2% launahækkun • Þægilegur sparnaður sem launagreiðandi sér um að standa skil á • Eina sparnaðarformið sem er ekki aðfararhæft við gjaldþrot • Ekki er greiddur fjármagnstekjuskattur • Möguleiki á sveigjanlegum starfslokum • Séreign erfist við fráfall • Séreignarsparnað má nýta skattfrjálst til íbúðarkaupa og til að greiða niður húsnæðislán (sjá nánar www.rsk.is og www.leidretting.is).

Ávöxtunarleiðir Innlána safnið er áhættuminnsta safnið þar sem sveiflur í ávöxtun eru í lágmarki. Varfærna safnið hefur að markmiði að ná öruggri ávöxtun til lengri tíma litið með hóflegri áhættu. Áræðna safnið er fyrir þá sem vilja taka meiri markaðsáhættu. Markmið safnsins er að hámarka ávöxtun til lengri tíma en búast má við nokkrum sveiflum í ávöxtun þess.

Það er einfalt að hefja séreignarsparnað Þú getur sótt um á heimasíðu Stapa www.stapi.is eða prentað út umsókn og sent hana undirritaða til sjóðsins. Upplýsingar um ávöxtun og eignasamsetningu séreignar ásamt markaðsumfjöllun má finna á upplýsingablaði séreignar. Gögnin eru uppfærð ársfjórðungslega og birt á heimasíðu sjóðsins.

F R É T TA B R É F S TA PA VO R 2 0 1 8


Lykiltölur úr ársreikningi Breytingar á hreinni eign 2017

Fjárhæðir í milljónum króna

2016

Iðgjöld

10.191

8.842

Lífeyrir

-5.350

-4.999

Hreinar fjárfestingartekjur

13.672

3.924

-393

-327

38

-18

Hækkun á hreinni eign

18.158

7.421

Hrein eign frá fyrra ári

186.693

179.272

Hrein eign til greiðslu lífeyris

204.850

186.693

Rekstrarkostnaður Aðrar tekjur (önnur gjöld)

Efnahagsreikningur í árslok Fjárhæðir í milljónum króna

Eignarhlutir í félögum og sjóðum Skuldabréf

2017

2016

89.695

81.551

108.270 97.622

Bundnar bankainnstæður

1.145

1.390

Fjárfestingar í íbúðarhúsnæði

1.033

0

Kröfur

1.222

1.093

Ýmsar eignir

185

58

Handbært fé

3.361

5.414

-60

-434

204.850

186.693

Skuldir Hrein eign til greiðslu lífeyris

Hrein eign tryggingadeildar

199.419

181.742

Hrein eign séreignardeildar

5.416

4.951

Hrein eign tilgreindrar séreignardeildar Tryggingafræðileg staða

16 -0,9%

0

-1,5%

Nafnávöxtun

7,0% 2,0%

Hrein raunávöxtun

5,2%

-0,1%


1

Ársfundur Stapa Ársfundur sjóðsins verður haldinn þann 9. maí 2018 kl. 14:00 í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri. Allir sjóðfélagar og launagreiðendur eru hvattir til að mæta.

Í Lífeyrisgáttinni á lifeyrismal.is getur þú nálgast öll réttindi sem þú hefur unnið þér inn í samtryggingarsjóði hjá flestum lífeyrissjóðum á starfsævinni.

2

Á vef sjóðfélaga á heimasíðu Stapa er hægt að fylgjast með réttindum hjá sjóðnum og hvort iðgjöld hafa skilað sér. Þar er einnig að finna reiknivélar vegna lána, lífeyris, séreignar og tilgreindrar séreignar. Hægt er að skrá sig inn á vefinn með rafrænum skilríkjum eða veflykli.

Hjálpaðu okkur að minnka pappírsnotkun! Sjóðfélagayfirlit er sent út tvisvar á ári, í samræmi við lög nr. 129/1997 um lífeyrissjóði. Árlega sendir sjóðurinn því út þúsundir yfirlita á pappír. Við hvetjum sjóðfélaga til að hjálpa okkur að gera hlutina hagkvæmari og vistvænni með því að afþakka heimsendan pappír. Það er gert með því að skrá sig á sjóðfélagavefinn, fara í Stillingar / Notendaupplýsingar og haka í Afþakka pappír. Einnig þarf að skrá netfang í viðeigandi reit svo rafrænar tilkynningar berist.

Stjórn Stapa

Hafðu samband

Huld Aðalbjarnardóttir (formaður) Erla Jónsdóttir (varaformaður) Ágúst Torfi Hauksson Kristín Halldórsdóttir Sverrir Mar Albertsson Tryggvi Jóhannsson Valdimar Halldórsson Þórarinn Sverrisson

Skrifstofur Stapa eru til húsa að Strandgötu 3, 600 Akureyri og Egilsbraut 25, 740 Neskaupstað. Skrifstofurnar eru opnar alla virka daga frá 9:00–12:30 og 13:00–15:00. Símanúmer Stapa er 460 4500.

Ábyrgðarmaður: Stapi lífeyrissjóður | Umbrot og hönnun: Blek auglýsingastofa | Prentun: Umslag ehf. | Forsíðumynd: Dettifoss © Lilja Guðmundsdóttir

Sjóðfélagavefur Stapa


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Fréttabréf Stapa vor 2018 by Stapi lífeyrissjóður - Issuu