Grafarvogsblaðið 1. tbl. 19. árg. 2008 - janúar
Dreift ókeypis í öll hús í Grafarvogi
,,Brilleraði’’ á Stjörnumessu
Bifreiðaverkstæði Grafarvogs
Allar almennar bílaviðgerðir Gylfaflöt 24 - 30 • 112 Reykjavík Sími 577 4477
Þjónustuaðili
Mjódd – Kringlan- Spöng
Opið í Spöng og Mjódd Mán.– fim. 10-18 Föstudaga 10-19 Laugardaga 10-16 Opið í Kringlunni
Mán.– fim. 10-18 Föstudaga 10-19 Laugardaga 10-18 Sunndaga 12-16
Kristján Jóhannsson stórsöngvari er síður en svo dauður úr öllum æðum. Hann kom fram á Stjörnumessunni á vegum Bílastjörnunnar fyrir jólin og sló rækilega í gegn þrátt að hafa ekki verið heill heilsu. Áhorfendur risu úr sætum og klöppuðu kappann upp. Stjörnumessan var nú endurvakin og heppnðiist frábærlega í alla staði. Á myndinni þakkar Kristján frábærar móttökur. Nánar frá messunni í máli og myndum á bls. 8-9
]Xjk\`^eX$ jXc Xe el _m\i]`
Hársnyrtistofan Höfuðlausnir
Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is
He c\^c (,! '# ]¨Â &&' GZn`_Vk ` H b^ *,* -*-* ;Vm *,* -*-+
lll#[b\#^h
2
GV
Fréttir
Grafarvogsblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: skrautas@simnet.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Netfang Grafarvogsblaðsins: gv@centrum.is Ritstjórn og auglýsingar: Bíldshöfða 14 - Sími 587-9500 / 698-2844. Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir, Stefán Kristjánsson. Prentun: Landsprent ehf.. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll hús og fyrirtæki í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi og öll fyrirtæki í póstnúmeri 110.
Sundabraut 2018 Árið byrjar með látum og rifist er heiftarlega vegna gamalla timburhjalla við Laugaveg og umdeildra mannaráðninga ráðherra. Minna fer fyrir umræðu um Sundabraut sem snertir þorra landsmanna, einkum þó íbúa höfuðborgarinnar og mest íbúa í Grafarvogi og Laugardal. Laugavegurinn kemur mér lítið við, fer nánast aldrei í miðbæinn enda er hann að stóru leyti ógeðslegur. Sóðalegur og okkur öllum til skammar. Miðbærinn er löðrandi í óskipulagi. Mikið um timburkofa sem eru að hruni komnir og inn á milli þeirra nýtískuleg hönnun arkitekta sem vitanlega er algjör andstaða við gömlu húsin. Nýjasta dæmið við Laugaveginn kemur líklega til með að kosta skattgreiðendur 2-300 milljónir að aflokinni endanlegri friðun kofanna og skaðabótamáli eigenda lóðanna í kjölfarið. Pólitískar ráðningar ráðherra í stöður er áratuga gömul hefð hér á landi og ekkert nýtt í því enda ekkert gert til að koma í veg fyrir slíka spillingu. Frammistaða allra þeirra aðila sem hafa komið nálægt Sundabraut er orðin aðhlátursefni. Æðsti prestur hjá Vegagerð ríkisins sagði í viðtali á dögunum að enn væru að lágmarki 2-3 ár eftir við hönnunarvinnu Sundabrautar eftir að ákvörðun hefði verið tekin um legu brautarinnar. Framkvæmdatími við Sundabraut frá byrjun til enda væri aldrei undir sjö árum. Þetta segir okkur að fyrstu bílarnir munu aka um fullgerða Sundabraut árið 2018 í fyrsta lagi. Sundabraut er því ekki á leiðinni, síður en svo. Æðsti prestur Vegagerðarinnar og nýráðinn upplýsingafulltrúi apparatsins, fyrrverandi fréttamaður á RÚV, mæla með svokallaðri eyjaleið, innsta möguleikanum skammt utan við Geirsnefið. Sú leið sé ódýrust. Allir aðrir eru ósammála Vegagerðinni. Valkostur Vegagerðarinnar treður Sundabrautinni að stórum hlota ofan í kokið á íbúum í Grafarvogi og Laugardal. Einnig myndi innsta leiðin endanlega gera útaf við laxastofn Elliðaánna ef öllum er ekki alveg sama um hann í dag. Vonandi fær Vegagerðin sem minnstu ráðið um Sundabraut. Vítin eru til að varast þau. Má ég minna á frammistöðu Vegagerðarinnar vegna Grímseyjarferjunnar?
Stefán Kristjánsson, ritstjóri Grafarvogsblaðsins
gv@centrum.is
Falleg gjöf fyrir einstaklinga og fyrirtæki Falleg flugubox úr léttum viði með glæsilegum og gjöfulum flugum eftir Kristján Gíslason. Mikið úrval. Sjá nánar á www.krafla.is
5 tegundir boxa - 26 laxaflugur - 18 laxaflugur - 20 Kröflur
Dofri Hermannsson formaður í nýskipuðu sjö manna Hverfisráði Grafarvogs:
Vinnum saman að því að gera gott hverfi betra Fyrir skömmu var Hverfisráð Grafarvogs skipað upp á nýtt, kjörnum fulltrúum fjölgað úr þremur í sjö, fé til ráðsins aukið og því fengin stærri verkefni. Dofri Hermannsson, 1. varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, er nýr formaður Hverfisráðs Grafarvogs. Grafarvogsblaðið spurði Dofra um fjölgun í ráðinu og breyttar áherslur. ,,Hugmyndin á bak við hverfisráð almennt er að skapa tengilið á milli íbúanna og borgarkerfisins. Þótt Reykjavík sé ekki stórborg á alþjóðlegan mælikvarða er samt ekki augljóst hvert maður á að snúa sér ef maður t.d. vill benda á slysagildrur í umferð innan hverfisins eða að koma með góðar hugmyndir að einhverju sem gerir hverfið skemmtilegra. Þess vegna er gott að hafa alltaf aðgang að hverfisráði sem getur komið þessum athugasemdum og hugmyndum í réttan farveg. Þetta virkar ekki síður í hina áttina, hverfisráðin eru leið borgaryfirvalda til að hlusta eftir röddum íbúa, t.d. í skipulagsmálum, hönnun gatna, gerð útivistarsvæða o.s.frv.’’ - En hvaða breytingar er verið að gera á starfi ráðsins? ,,Fyrir kosningar 2005 höfðu hverfisráð borgarinnar dálitla fjárhæð sem þau gátu notað til að styrkja verkefni og samtök innan hverfanna. Eftir kosningar voru þessir fjármunir teknir af hverfisráðunum og allir urðu að snúa sér til borgarstjóra sem var bagalegt því það er betra að geta snúið sér til þeirra sem þekkja hverfið en til önnum kafins borgarstjóra. Þess
vegna var mjög sterkur vilji til þess hjá nýjum meirihluta að efla á ný hverfisráðin í borginni og nú verður það gert með myndarlegum hætti. Bæði munu þau fá talsvert fjármagn til að styrkja starf í hverfunum en auk þess er þeim ætlað stórt hlutverk í nýju og gríðarlega spennandi verkefni.’’ - Hvaða verkefni er það? ,,Næstu þrjú ár munu borgaryfirvöld setja tvöfalt það fjármagn sem sett hefur verið í útivistarsvæði, göngustíga og leiksvæði ýmiss konar og hverfisráðunum hefur verið fengið það hlutverk að hlusta eftir og hafa samráð við íbúana um það hvernig best verði staðið að röðun framkvæmda. Á til dæmis að leggja nýjan hjólastíg hér, bæta lýsingu þar eða setja upp fjölbreytt leik- og klifurtæki á einum fótboltavellinum? Á þessu öllu hafa íbúar skoðanir og ekki síður margar frábærar hugmyndir sem við í hverfisráðinu ætlum að bjóða íbúum að leggja í púkkið. Magnús Jónasson, stundum kenndur við Björninn, benti mér t.d. á að það væri tilvalið að flikka upp á vatnstankinn ofan við Gufunes, setja tröppur upp á hann, grindverk á brúnirnar, bekk og borð og þá væri þetta tilvalinn áningarstaður í gönguferðum þar sem væri hægt að setjast niður með nestisbita og horfa á fallegt útsýni yfir sundin. Þetta er skemmtilegt dæmi um hugmynd sem ekki kostar mikið eða ætti að taka langan tíma að framkvæma en getur sett skemmtilegan svip á hverfið. Ég er viss um að við eigum eftir að fá margar slíkar frá íbúum.’’
- Eru fleiri verkefni á könnu Hverfisráðs Grafarvogs? ,,Að sjálfsögðu, Hverfisráði Grafarvogs er ekkert óviðkomandi sem snertir hag Grafarvogsbúa. Við munum beita okkur fyrir farsælum lausnum í málum sem snerta Sundabraut og Hallsveg og við viljum leggja lið hinum fjölmörgu einstaklingum, fyrirtækjum og félagasamtökum hverfisins sem t.d. eru að vinna að forvörnum, efla umferðaröryggi, byggja upp nágrannavörslu, bæta skólastarf og gera lífið skemmtilegra. Við erum heppin með það í Grafarvogi að hér er mikil hverfisvitund og hverfið er ríkt af alls kyns félagsstarfi.’’ - Er Hverfisráð Grafarvogs pólitískt ráð? ,,Þetta er góð spurning og sem betur fer á ég við henni ánægjulegt svar. Auk áheyrnarfulltrúa er Hverfisráðið skipað sjö pólitískt kjörnum fulltrúum, fjórum úr meirihluta og þremur úr minnihluta. Á fyrsta fundi ráðsins tókum við opinskáa umræðu um það hvort flokkspólitík ætti heima í svona ráði og það voru allir hundrað prósent sammála um að svo væri ekki. Á vettvangi Hverfisráðs Grafarvogs erum við öll fyrst og fremst fulltrúar okkar hverfis og við viljum að sú vinna sem við vinnum þar sé í skjóli fyrir flokkspólitískum næðingi. Ég er mjög ánægður að ráðið skuli vera einhuga um þetta því það gefur okkur tækifæri til að skipta með okkur verkum og vinna saman að því að gera gott hverfi enn betra,’’ sagði Dofri Hermannsson.
Símanúmer GV er 587-9500
- 15 tvíkrækjur - 25 silungaflugur Framleiðandi: Skrautás ehf. - Sími: 587-9500 -
Nýtt Hverfisráð Grafarvogs á sínum fyrsta fundi á dögunum: Frá vinstri: Kristján Erlendsson, varamaður/minnihluti, Tómas Hafliðason, varamaður/minnihluti, Jón Arnar Sigurjónsson, kjörinn/minnihluti, Dofri Hermannsson, kjörinn/meirihluti/formaður, Ingibjörg Sigurþórsdóttir, framkvæmdastjóri Miðgarðs, Ragnar Sær Ragnarsson, kjörinn/minnihluti, Halla B. Þorkelsson, varamaður/meirihluti, Ásta Þorleifsdóttir, kjörinn/meirihluti/varaformaður, Halldór Lárusson, kjörinn/meirihluti, Ingibjörg Óðinsdóttir, varamaður/minnihluti, Elísabet Gísladóttir, áheyrnarfulltrúi/íbúasamtök Grafarvogs, Emil Örn Kristjánsson, kjörinn/minnihluti og Einar Már Guðmundsson, kjörinn/meirihluti.
www.krafla.is
398
498 20%
afslรกttur
559 998
129
98
598
98
498
59
798
4
Matgoggurinn
GV
Svínakjöt í rjómasveppasósu og landslagið á tunglinu - að hætti Erlu og Emils ,,Okkur langar að deila með Grafarvogsbúum uppskrift sem er í miklu uppáhaldi hjá allri fjölskyldunni. Þetta er frekar einföld og fljótleg matreiðsla en ákaflega bragðgóður réttur sem rennur ljúflega niður. Við höldum okkur einnig á einföldu nótunum þegar kemur að eftirréttinum þó hann sé ekki síður bragðgóður,’’ segja hjónin Erla Guðjónsdóttir og Emil Örn Kristjánsson, Smárarima 6, en þau eru matgoggar Grafarvogsblaðsins að þessu sinni og með áhugaverðar uppskriftir..
Svínakjöt í rjómasveppasósu (fyrir 4) í aðalrétt Það má reyndar nota allskonar kjöt í þennan rétt. Svínahnakka, svínakótilettur, svínagúllas o.fl. u.þ.b. 750 gr. Kjötið er kryddað með salti og pipar og síðan velt upp úr hveiti. Það er því næst brúnað á pönnu upp úr smjöri, mataroíu eða smjörlíki, allt eftir smekk. Meðan kjötið er að brúnast eru 250 gr. af nýjum, niðursneiddum svepp-
Ásta og Sigurður eru næstu matgoggar Emil Örn Kristjánsson og Erla Guðjónsdóttir, Smárarima 6, skora á Ástu Björgu Guðjónsdóttur og Sigurð Björn Reynisson, Miðhúsum 50, að vera matgoggar næsta mánaðar og koma með girnilegar uppskriftir í næsta blað. Við birtum frá þeim þessar girnilegu uppskriftir í næsta blaði í febrúar.
Erla Guðjónsdóttir og Emil Örn Kristjánsson. GV-mynd PS um soðin í vatni og sítrónusafa. Þegar kjötið er orðið brúnt er sveppunum og sveppasoðinu hellt yfir og hitinn lækkaður og látið krauma í 10 til 15 mínútur undir loki. Þá er hellt yfir 2 dl. af matreiðslurjóma eða kaffirjóma og suðan látin koma upp. Einnig má bragðbæta með salti, pipar og/eða salvíu. Borið fram með hrísgrjónum eða
soðnum kartöflum.
Landslagið á tunglinu í eftirrétt 4-5 epli. 2 dl. hveiti. 1 1/4 dl. sykur. 125 gr. smjörlíki. kanill. Salthnetur. Eplin eru afhýdd, skorin í bita og
sett í eldfast mót. Kanil stráð yfir eftir smekk. Hveiti, sykri og smjörlíki hnoðað saman og stráð yfir eplin. Salthnetum er síðan dreift yfir bökuna og bakað í 45 - 50 mínútur í 180° heitum ofni. Borið fram með þeyttum rjóma eða ís. Verði ykkur að góðu. Erla og Emil Örn
3 + ! 0 ! 2 ) . . ! 5 ' , Æ 3 ) . ' ! 3 4 / & !
lll#[b\#^h
]Xjk\`^eXjXc Xe el _m\i]` =_{ ;VhiZ^\cVb^Âajc <gV[Vgkd\h hiVg[Vg kVci [ a` bZÂ WgZ^ÂV d\ ]VaY\ ÂV gZnchaj V[ [VhiZ^\cVk^Âh`^eijb d\ Zg bZicVÂjg d``Vg VÂ k^Âh`^eiVk^c^g [^cc^ [ng^g [V\bZcch`j! gn\\^ d\ {c¨\_j h aj[Zga^cj# 6Â ÄZ``_V `dhi^ <gV[Vgkd\h d\ Ä_ cV <gV[Vgkd\hW jb hZb WZhi Zg bZicVÂjg d``Vg# Ãjg[^g Ä h`dÂjc d\ kZgÂbVi [VhiZ^\cVg Ä{ kZgÂjg Äk h^cci ]gVii d\ gj\\aZ\V#
<ZgÂj Ä{ h_{a[h \Âj `g [j VÂ Ä c [VhiZ^\cVk^Âh`^ei^ h j gj\\jb ] cYjb [V\VÂ^aV! Z``^ h¨iiV Ä^\ k^Â b^ccV#
H^\g c HiZaaV :^cVghY ii^g A \\^aijg [VhiZ^\cVhVa^
@Vga 9 ^ @Vgahhdc H ajbVÂjg
He c\^c (,! '# ]¨Â# &&' GZn`_Vk ` H b^ *,* -*-*# ;Vm *,* -*-+
6
GV
Fréttir Olís-Gullinbrúarmót fimleikadeildar Fjölnis haldið 4. árið í röð:
Glæsilegur fimleikahópur úr Fjölni ásamt þjálfara sínum. Her eru framtíðar fimleikakonur á ferðinni sem eiga eflaust eftir að ná langt þegar fram líða stundir..
Glæsilegur árangur hjá strákunum - mótið haldið í Ármannsheimilinu vegna aðstöðuleysis í Grafarvogi Árlegt Olís-Gullinbrúarmót fimleikadeildar Fjölnis var haldið í Ármannsheimilinu helgina 12.-13. janúar sl. og var það fjölmennasta til þessa. Alls voru 230 keppendur á mótinu, en auk iðkenda frá Fjölni, var keppendum boðið frá fimleikafélaginu Björk í Hafnarfirði, Gróttu á Seltjarnarnesi og Fylki í Árbæ. Keppendur voru á aldrinum 7-15 ára og kepptu í áhaldafimleikum stúlkna í 3., 4., 5. og 6. þrepi fimleikastigans og í 4. og 5. þrepi drengja. Stúlkurnar kepptu í stökki, á slá, tvíslá og í gólfæfingum en drengirnir á svifrá, tvíslá, gólfi, bogahesti og í hringjum og stökki. Um var að ræða einstaklingskeppni í öllum þrepum nema 6. þrepi þar sem yngstu keppendurnir kepptu í liðakeppni á sömu áhöldum.
Háloftafimleikar á tvíslá.
Framtíðarmaður á svifrá.
Það er skemmst frá því að segja að Fjölniskrakkarnir stóðu sig frábærlega og unnu til verðlauna í öllum flokkum og í flestum aldurshópum. Óhætt er að segja að strákarnir okkar hafi staðið sig áberandi best í 4. þrepinu þar sem þeir unnu 1., 2. og 3. sætið í samanlögðum árangri. Yngstu keppendurnir komu jafnframt skemmtilega á óvart því þeir lenntu í 3. sæti í liðakeppninni þó sumir þeirra væru að taka þátt í sínu fyrsta móti. Mátti sjá þar glæsileg tilþrif, einbeitingin og gleðin skein úr hverju andliti og það er ljóst að í þessum hópi eru margir efnilegir krakkar sem eiga eftir að gera góða hluti þegar fram líða stundir. Olís er helsti styrktaraðili mótsins, sem nú er haldið 4. árið í röð og orðið vel þekkt innan fimleikanna. Þátttakendur hafa aldrei verið fleiri en auk 230 keppenda voru áhorfendur í kringum 200
Sannarlega glæsileg tilþrif eins drengjanna úr Fjölni á mótinu í Ármannsheimilinu sem ekki var hægt að halda í Egilshöll vegna aðstöðuleysis sem vonandi sér fyrir endnn á. talsins. Allt utanumhald var til fyrirmyndar, tímamörk stóðust og keppendur voru leystir út með glæsilegum gjöfum. Þetta er hins vegar í fyrsta sinn sem mótið er haldið utan Grafarvogs og er ástæðan sú að salur fimleikadeildarinnar í Egilshöll er orðinn alltof lítill. Deildin hefur stækkað hratt undanfarin ár og býr nú við þröngan kost sem vonandi sér fyrir endann á með byggingu nýs fimleikahúss sem búið er að lofa fyrir árslok 2008. Einbeitingin á fullu og eins gott að standa sig.
VORNÁMSKEIÐIN HEFJAST Í FEBRÚAR
Söng- leik- og dansnámskeið fyrir börn og unglinga! ATH: Nú er hægt að nota Frístundakortin til að greiða niður námskeið hjá Tónvinnsluskólanum*
Barna- og unglinganámskeið sem er undirbúningur að skemmtiþætti fyrir sjónvarp Þetta námskeið vakti mikla lukku hjá okkur á síðustu önn og verður afraksturinn í sjónvarpinu fljótlega á þessu ári.
25.000 kr. niðurgreiðsla fyrir þá sem geta notað Frístundakort ÍTR* *Nánari upplýsingar á www.itr.is um möguleika Frístundakortsins
Nemendur fá að syngja, dansa og leika í mörgum mismunandi atriðum undir handleiðslu krafmikilla leiðbeinanda í 10 vikur. Þegar atriðin eru fullæfð er farið í myndver og gerður sjónvarpsþáttur upp úr afrakstrinum og allir fá að vera með. Birgitta Haukdal verður umsjónarmaður þáttarins.
Nú hafa Tónvinnsluskóli Þorvaldar Bjarna og Dansskóli Birnu Björnsdóttur tekið höndum saman um framhald á þessu stórskemmtilega námskeiði.
Námskeiðin hefjast í febrúar. Kennt verður í Kópavogi og Grafarvogi í Snælands- og Foldaskóla eftir að venjulegum skólatíma líkur.
Birgitta Haukdal
Nú verður einnig kennt í Lækjarskóla í Hafnarfirði. Skráningar á heimasíðunni www.tonvinnsluskoli.is eða í síma 534 9090
Sponsored Digidesign School
9
8
GV
Fréttir
Mögnuð messa
,,Þetta var frábær skemmtun og það fyrsta sem mér datt í hug þegar skemmtuninni var lokið var hvort þetta yrði ekki örugglega aftur á dagskrá að ári,’’ sagði yfir sig ánægður Grafarvogsbúi sem var á meðal fjölmargra gesta sem sóttu Stjörnumessu þeirra Bílastjörnumanna heim í hús-
næði fyrirtækisins við Bæjarflöt 10 í desember. Stjörnumessan var nú endurvakin og tókst í alla staði frábærlega vel. Húsnæði Bílastjörnunnar var troðfullt af áhugasömu fólki. Í boði var upplestur þriggja Grafarvogsskálda og inn á milli var skotið tónlistarat-
riðum og þeim ekki af verri endanum. Ari Trausti Guðmundsson, Sigurbjörg Þrastardóttir og Einar Már Guðmundsson lásu úr nýjum bókum sínum. Tónlistarflutningurinn hófst með leik ungra harmonikkuleikara úr Tónlistarskóla Grafarvogs og Eddu Borg og stóðu þeir sig frábærlega vel.
Söngur var í höndum Stebba og Eyfa og voru þeir frábærir að venju. Hápunkturinn var þó framganga Kristjáns Jóhannssonar sem mætti veikur til leiks. Var hann með flensu morguninn sem messan fór fram en mætti samt og söng af svo miklum krafti að húsnæði Bílastjörnunnar lék á reið-
GV
Fréttir
iskjálfi. Tók Kristján ekkert fyrir sönginn nema ánægjuna. Stjörnumessan er vonandi komin til að vera og ekki væri verra ef stjörnur á borð við Kristján Jóhannsson yrðu fastagestir í framtíðinni hjá þeim Bílastjörnumönnum sem eiga skilið miklar þakkir fyrir framtakið.
Áhorfendur voru fjölmargir og húsnæði Bílastjörnunnar troðfullt.
Slegið á létta strengi. Ari Trausti Guðmundsson, Kristmundur Árnason hjá Bílastjörnunni og Einar Kárason ræða málin. Einari var boðið á messuna eins og gjarnan er um einn listamann utan Grafarvogs. Einar las úr nýrri bók sinni og söng og er áberandi betri rithöfundur en söngvari. Ánægðir gestir streyma út úr húsnæði Bílastjörnunnar við Bæjarflöt til að sjá flugeldasýninguna sem var lokapunkturinn á magnaðri Stjörnumessu.
Eyfi og Stebbi voru frábærir svo ekki sé starkar að orði kveðið. Þeir tóku Nínu og allan pakkann og vöktu mikla lukku að venju.
Starfsmenn óskast í skemmtilegt og gefandi starf Gufunesbær leitar eftir jákvæðu, duglegu og áhugasömu fólki 18 ára og eldri. Starfsmenn Gufunesbæjar vinna á sviði íþrótta og tómstunda og eru lykillinn að því að veita íbúum fyrsta flokks þjónustu. Gufunesbær leggur áherslu á að starfsfólki líði vel og að það nái að þróast í starfi. Hjá Gufunesbæ vinnur starfsfólk á öllum aldri með fjölbreyttan bakgrunn. Um er að ræða hlutastörf: á frístundaheimilum með 6 - 9 ára börnum í frístundaklúbbi með 10-16 ára börnum og unglingum með fötlun Starfið veitir mjög góða reynslu fyrir fólk sem hefur áhuga á samskiptum, uppeldi, sálfræði og skapandi starfi, m.a. í: List- og verkgreinum Tónlist, myndlist, leiklist, smíði og textíl
..
Sigurbjörg Þrastardóttir las úr nýútkominni ljóðabók sinni. Einar Már Guðmundsson las upp úr nýjustu bók sinni og lifði sig vel inn í hlutverkið að venju.
Ari Trausti Guðmundsson les úr nýjustu bók sinni.
Íþróttum og leikjum Útivist og umhverfismennt Barnalýðræði og lífsleikni Hópastarf, barnafundir, vinátta og samvera Hægt er að sækja um á heimasíðu Gufunesbæjar, www.gufunes.is. Allar nánari
Ljóst er að Stjörnumessa Bílastjörnumanna er komin til að vera á ný, sannarlega frábær skemmtun.
upplýsingar fást hjá Þóru Melsted thora.melsted@reykjavik.is Sími: 520 2300 Frístundamiðstöðin Gufunesbær v/Gufunesveg Sími 5202300 www.gufunes.is Í lok Stjörnumessu var glæsileg flugeldasýning.
Kristján Jóhannsson hefur engu gleymt. Þrátt fyrir veikindi heillaði hann gesti upp úr skónum, var klappaður upp og gestir risu úr sætum.
Þrjú Grafarvogsskáldanna, Ari Trausti, Einar Már og Sigurbjörg lásu úr verkum sínum og fólk lagði við hlustir og líkaði vel.
10
GV
Fréttir
Íbúðin sem hér er fjallað um er í þessu húsi við Veghús. Eignin er til sölu hjá Fasteignamiðlun Grafarvogs.
Veghús 1 - stór og góð íbúð
Arnarsetur ehf Bókhaldsþjónusta í Grafarvogi Komdu bókhaldinu í lag - Öll almenn bókhaldsþjónusta fyrir fyrirtæki og einstaklinga í rekstri - Framtalsgerð - Vönduð vinnubrögð - Margra ára reynsla - Hröð þjónusta - Mætum á staðinn ef þarf Örn Gunnarsson Viðurkenndur bókari GSM: 899-8185 - www.arnarsetur.is
GV Ritstjórn og auglýsingar 587-9500
Í Grafarvogsblaðinu framvegis munum við birta greinargóða frásögn af einni sérstakri eign sem er til sölu hverju sinni hjá Fasteignamiðlun Grafarvogs í Spönginni. Hér koma upplýsingar um fyrstu eignina, stóra og glæsilega íbúð að Veghúsum 1. Falleg og vel útbúin 166,4 fm 4-5 herbergja endaíbúð á tveimur hæðum við Veghús.
þvottavél og þurrkara. Gólfefni neðri hæðar eru fallegar ljósar flísar á öllum gólfum nema barnaherbergi, þar er ljóst parket. Á efri hæð er opið parketlagt hol sem nýtist vel sem sjónvarpshol, þar inn af er stórt dúklagt barnaherbergi með rislofti yfir. Baðherbergi með sturtu er á efri hæð, það er flísalagt í hólf og gólf og með góðri innréttingu. Hjónaherbergi er á hæðinni með stórum skápum með
HAGSTÆÐ LÁN GETA FYLGT MEÐ, ANNAÐ FRÁ LSR AÐ FJÁRHÆÐ TÆPLEGA 16 MILLJ. TIL 40 ÁRA MEÐ 4,15% FÖSTUM VÖXTUM, AFBORGUN U.Þ.B 70.ÞÚS Á MÁNUÐI Íbúðin er á 3. hæð og risi í húsinu. Hátt er til lofts í íbúðinni, gluggar stórir og er eignin afar björt. Á fyrstu hæð er gott hol með skápum, rúmgott eldhús með hvítri inntréttingu með viðarköntum. Gashelluborð og keramikhelluborð. Tengt er fyrir uppþvottavél. Borðkrókur við glugga. Borðstofa er við eldhús. Stofa er afar rúmgóð og björt og er m.a rúmgóð sólstofuútbygging tengd henni, farið er úr sólstofu út á rúmgóðar vestursvalir. Inn af sér gangi er gott barnaherbergi og baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf, baðkar og góð innrétting, tengt fyrir
Stofan er mjög björt og rúmgóð.
speglahurðum, parket á gólfi. Sameign er mjög snyrtileg og eru nýleg teppi á stigagangi. Á jarðhæð er sér geymsla og sameiginleg hjóla - og vagnageymsla. HAGSTÆÐ LÁN GETA FYLGT. ANNAÐ ÞEIRRA ER ERLENT GJALDEYRISLÁN OG HITT ER MEÐ 4,15% VÖXTUM, HAGSTÆÐAR AFBORGANIR
11
GV
Fréttir
Dagur orðsins í Grafarvogskirkju:
Tileinkaður sr. Auði Eir sjötugri Dagur Orðsins var haldinn hátíðlegur í annað sinn í Grafarvogskirkju 11. nóvember síðastliðinn. Dagskráin var tileinkuð sr. Auði Eir Vilhjálmsdóttur, sem fagnaði sjötugsafmæli sínu fyrr á þessu ári. Dagskráin hófst kl. 10.00. Fjögur erindi voru flutt um sr. Auði Eir: „Guð er vinkona mín.“ Um guðsmynd og guðfræðilegar áherslur. Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir, dósent. Samherjar í hálfa öld. Sr. Bernharður Guðmundsson. Í uppvexti – skólabróðir talar. Ólafur Egilsson, sendiherra. „Eins og ég sá/sé hana.’’ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra. Kl. 11.00 hófst messa, þar sem sr.
Auður Eir prédikaði. Dætur hennar tvær, sr. Dalla Þórðardóttir og sr. Yrsa Þórðardóttir þjónuðu fyrir altari ásamt prestum Grafarvogskirkju. Elín Þöll Þórðardóttir, sem einnig er dóttir sr. Auðar, söng einsöng. Kórar Grafarvogskirkju sungu undir stjórn Harðar Bragasonar og Aðalheiðar Þorsteinsdóttur og Svövu Kr. Ingólfsdóttur. Að lokinni messu verður boðið upp á léttar veitingar í safnaðarsal kirkjunnar. Dagur Orðsins tókst afar vel. Fyrirlestrarnir voru fjölsóttir, sem og messan. Á þriðja hundrað manns komu í Grafarvogskirkju á Degi Orðsins. Sr. Auður Eir ásamt dætrum sínum, sr. Döllu og sr. Elínu Þöll.
Nú er verið að ljúka við vinnu vegna lýsingu göngustíga allt frá Korpúlfsstöðum að Leiðhömrum í Hamrahverfi.
Lýsing göngustíga:
Ljós að kvikna á 112 staurum
ÍK
K J UGA R ÐA
MA DÆ
Starfsfólk Gufuneskirkjugarðs
IR
R
Það er starfsmönnum fagnaðarefni hversu margir hafa lýst yfir ánægju sinni með húsið og hversu vel það fellur að umhverfi sínu.
V R E Y K JA
Gramur lesandi Grafarvogsblaðsins hafði samband og vildi lýsa yfir mikilli óánægju með að ekkert apótek er með opið á kvöldin og á næturna í hverfinu. Hægt er að taka undir þessa gagnrýni og undarlegt að apótekin skuli ekki bjóða tuttugu þúsund manna hverfi upp á betri þjónustu og neyða íbúa í Grafarvogi til að leita í önnur hverfi eftir nauðsynlegum lyfjum að kvöld- og næturlagi.
Á næstu vikum taka Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma í notkun nýja þjónustuhúsið í Hallsholti. Grafarvogsbúum verður boðið að skoða húsið í vor þegar búið verður að ganga frá umhverfi þess með viðeigandi hætti.
TS
Ekkert apótek opið á kvöldin í Grafarvogi
Til hamingju Grafarvogsbúar !
K
Starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur eru þessa dagana að ljúka við að tengja rafmagn í 112 ljósastaura með göngustígum allt frá Korpúlfsstöðum að enda Leiðhamra í Hamrahverfi. Alls er vegalengd göngustíganna sem verður upplýst mjög fljótlega rétt rúmir 5 kílómetrar. Sem leið liggur frá Korpúlfsstöðum, niður í botn Grafarvogs, með voginum framhjá Grafarvogskirkju og alveg út á hamarinn yst í Hamrahverfi og að enda Leiðhamra. Það verður ekki lítil breyting þegar þessu þarfa verki lýkur en margir hafa veigrað sér við göngutúrum á umræddri leið í svartasta skammdeginu.
UR P Ó F A S R
12
Fréttir
GV
Herdís Storgaard, forstöðumaður Forvarnahússins, til hægri, veitir vef og styrk viðtöku úr hendi Bryndísar Hlöðversdóttur, stjórnarformanns Orkuveitunnar.
Átaksverkefni þegGrafarvogsblaðið ar borið árangur Auglýsingar - 587-9500
Er barnið þitt í
frístundastarfi? Frístundakortið 25.000 kr. fyrir árið 2008
Frístundakortið er styrkjakerfi í frístundastarfi fyrir 6-18 ára börn og unglinga í Reykjavík. Nánari upplýsingar á www.itr.is ÍTR · Bæjarhálsi 1 · 110 Reykjavík · Sími 411-5000 · www.itr.is · itr@itr.is
Jens Kjartansson, yfirlæknir á lýtalækningadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss telur að átaksverkefnið Stillum hitann hóflega hafi nú þegar borið árangur með fækkun brunaslysa af völdum heits vatns. Áfram er unnið að verkefninu með því að byggingafulltrúar fylgja eftir kröfum reglugerðar um hitastig neysluvatns í nýju húsnæði, fræðsla iðnaðarmanna er efld og lagnaefnissalar bjóða upp á heildarlausnir til að lækka hita neysluvatns í húsum. Orkuveita Reykjavíkur ýtti síðastliðið vor úr vör átaksverkefninu í samstarfi við Sjóvá Forvarnarhúsið, byggingafulltrúann í Reykjavík og Lýtalækningadeild LSH. Fyrirtækið veitti fé til rannsóknar á fjölda og eðli slysa af völdum heits vatns. Þá hleypti OR af stokkunum vefnum www.stillumhitann.is Á honum er m.a. að finna helstu niðurstöður áðurgreindra rannsókna ásamt fræðsluefni af ýmsu tagi. Þá var gengist fyrir ráðstefnu og námskeiði í samstarfi við byggingafulltrúann í Reykjavík um leiðir til að draga úr hættunni af slysum, m.a. með bættum frágangi neysluvatnskerfa. Í kjölfarið hafa söluaðilar lagnabúnaðar útbúið lausnir sem fáanlegar eru hvort heldur sem er fyrir nýtt húsnæði eða eldra.
Árangur þegar náðst Það er mat þeirra sem taka á móti fórnarlömbum brunaslysa á LSH að slysum hafi þegar fækkað. ,,Það er greinilegur munur,’’ segir Jens Kjartansson yfirlæknir. ,,Slysunum hefur fækkað umtalsvert og það rek ég beint til átaksins og viðbragða fólks við því.’’ Aðilar sem selja búnað sem lækkar hitastig neysluvatnsins hafa ekki síður orðið varir við aukna eftirspurn eftir honum. Þónokkur fyr-
irtæki hafa útbúið sérstakar heildarlausnir og má þar nefna Ísleif Jónsson, Tengi og Danfoss.
Sjóvá Forvarnarhúsið tekur við vefnum Í dag afhenti Orkuveitan Forvarnarhúsinu vefinn til eignar og umsjónar. Herdís Storgaard forstöðumaður Forvarnahússins veitti vefnum viðtöku ásamt 300 þúsund krónum til viðhalds hans og reksturs auk 300 þúsund króna styrks til almennra forvarna. Á vefnum getur almenningur og fagfólk nálgast upplýsingar og tæknilegar lausnir til að sporna við því að fólk brenni sig á heitu vatni. Börnum og eldra fólki er hættast við bruna af völdum heits vatns og þá sérstaklega sjúklingum. Á vefnum er m.a. sögð saga Hjartar Inga Kristjánssonar, sem er óðum að ná sér eftir slæmt brunaslys. Hjörtur er flogaveikur og rak sig í baðkranann í kasti og skrúfaði þannig óvitandi frá brennheitu vatninu. Baðherbergið er einmitt varasamasti staðurinn samkvæmt rannsókn LSH á slysaskrám.
Námskeið fyrir iðnaðarmenn, hönnuði og byggingafulltrúa Í tengslum við verkefnið gengst nú Iðan fræðslusetur ehf, fyrir námskeiðum ætluðum hönnuðum, pípulagningamönnum og byggingafulltrúum. Orkuveitan átti frumkvæði að því að efnt er til námskeiðanna og er ávinningur þátttakenda m.a. að auka meðvitund sína um tíðni brunaslysa, öðlast innsýn í kröfur, staðla og leiðbeiningar um hámarkshita neysluvatns og fá dæmi um tengingar og leiðir til lækkunar hita á heitu neysluvatni.
Vegna mikillar sölu undanfarið vantar allar gerðir bifreiða á skrá Gylfaflöt 5 S: 567-2700 www.arnarbilar.is
14
GV
Fréttir
Jólamánuðurinn í frístundaheimilum Í desembermánuði var mikið um að vera í frístundaheimilum Gufunesbæjar. Í mörgum þeirra var foreldrum boðið í heimsókn, t.d. í kaffi og föndur eða á sýningar hjá börnunum. Öll börn á frístundaheimilum fengu söngsystur, þær Þórdísi Heiðu og Hildi í heimsókn og sungu með þeim jólalög sem þau höfðu æft. Nokkur frístundaheimili söfnuðu peningum, m.a. með því að selja dósir og keyptu gjafir til að setja undir jólatré mæðrastyrksnefndar í Kringlunni. Unglingarnir gerðu ýmislegt til að safna sem mestu til góðgerðamála á Góðgerðaviku Gufunesbæjar.
200 þúsund og gjafir til góðgerðamála
Mikið var um að vera í frístundaheimilunum fyrir jólin.
Hin árlega Góðgerðavika unglinga og Gufunesbæjar var haldin í annað sinn dagana 30. nóvember til 7. desember sl. Hugmyndin að halda slíka Góðgerðaviku kviknaði haustið 2006 en þá vildu unglingarnir í félagsmiðstöðvunum láta gott af sér leiða þegar líða tók að jólum en einnig koma með jákvætt innlegg í umræðuna um unglinga í dag. Fyrsta Góðgerðavikan sem haldin var i desember 2006 gekk vonum framar og ekki tókst síður til í þetta skiptið. Á meðal þess sem gert var til að leggja góðum málefnum lið var að unglingarnir í Sigyn í Rimaskóla héldu ball
með hip/hop þema til að styrkja Umhyggju, unglingar í Engyn í Engjaskóla héldu böll til styrktar samtökunum Blátt áfram, unglingar í Borgyn í Borgaskóla söfnuðu fötum til styrktar Mæðrastyrksnefnd og unglingar í Fjörgyn í Foldaskóla og Nagyn í Húsaskóla söfnuðu leikföngum, spilum, myndböndum og fleiru í þeim dúr fyrir leikstofuna á Barnaspítala Hringsins. Hápunktar vikunnar voru svo hópferð í Smáralind þar sem yfir 130 unglingar fóru með jólagjafir sem lagðar voru undir jólatréð í Smáralind, en Mæðrastyrksnefnd og fleiri samtök sjá um að
dreifa gjöfunum til bágstaddra fyrir jólin, og loks Góðgerðaball Gufunesbæjar sem var haldið í Húsaskóla en ágóði af því balli rann óskiptur til Sjónarhóls. Ekki má gleyma að minnast á að jafnframt var útbúinn geisladiskur með söng hæfileikaríkra unglinga sem var seldur vítt og breitt um Grafarvoginn en ágóði af honum rennur til Blindrafélagsins. Í heildina söfnuðust hátt í 200 þúsund krónur auk þeirra gjafa, leikfanga o.fl. sem safnað var og hefur þetta vonandi komið sem flestum að góðum notum fyrir jólin. Frábært framtak hjá unglingunum í Grafarvogi!
Kæru viðskiptavinir! Nýtt ár og ný andlit hjá okkur á Höfuðlausnum! Vonumst til að sjá sem flest ykkar á komandi ári!
Hársnyrtistofan Höfuðlausnir Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is Opið: Mán 08.00-18.00 - þri - fim 09.00-18.00 fös 08:00-18:00
Pöntunarsími: 567-6330
15
GV
Fréttir
ROPE YOGA NÁMSKEIÐ Í VEGGSPORT Þriðjud. --fimmtud.: Þriðjud. fimmtud. Emil Örn og Erla.
Emil Örn og Erla bjóða í aldarafmæli
Laugard.
frákl.kl.7:3009:00-10:00 8:30 15:45-16:45 kl.kl.9:00-10:30 kl.14:45-16:15 frá kl. 10:00-11:00 (opinn tími.)
Opin tími á miðvikud.
kl. 9:00-10:00
Nánari upplýsingar og skráning hjá Siggu Dóru gsm:692-3062
Þann 18. janúar nk. verður Emil Örn Kristjánsson fimmtugur og þann 17. maí nk. verður Erla Guðjónsdóttir fimmtug. Þau hjónin hafa því ákveðið að halda upp á sameiginlegt aldarafmæli sitt á afmælidegi Emils og taka á móti vinum, vandamönnum og félögum í sal Félags sjálfstæðismanna í Grafarvogi, Hverafold 5, milli klukkan 17:30 og 21:00.
Spámiðill Ég býð upp á einkatíma í spámiðlun, er í Grafarvogi. Hef margra ára reynslu og vinn með kristalskúlu, sígauna-, blóma-, og zenspil. Sjá nánar á www.spamidill.com
Hrönn Friðriksdóttir
Sími 861 2505 E-mail hronnf@gmail.com
Grafarvogsblaðið 1. tbl. 19. árg.
2008 - janúar
Dreift ókeypis í öll hús í Grafarvogi
70% íbúa í Grafarvogi lesa Grafarvogsblaðið Mest lesni fjölmiðillinn í Grafarvogi Auglýsingarnar skila árangri í G V
587-9500
ARGUS / 08-0022
Sparnaðarreikningar
STIGHÆKKANDI
vextir á hávaxtareikningum SPRON!
Frábærir vextir – á sparnaðinn þinn! SPRON Vaxtabót
SPRON Viðbót
SPRON Veltubót
ÓkZgÂign\\Âjg ={^g! hi^\]¨``VcY^ kZmi^g Hi^\kVmVcY^ kVmiV{aV\ 6aaiV[ aVjh
KZgÂign\\Âjg 7jcY^cc i^a (+ b{cVÂV ={^g \gjcckZmi^g Hi^\]¨``VcY^ kVmiV{aV\ VÂ binditíma loknum
ÓkZgÂign\\Âjg ={^g! hi^\]¨``VcY^ kZmi^g B{cVÂVgaZ\ \gZ^ÂhaV kVmiV Hi^\kVmVcY^ kVmiV{aV\ 6aaiV[ aVjh
– allt að 14,90% vextir*
– allt að 7,95% vextir*
Þú getur stofnað reikning á spron.is Upplýsingar í næsta útibúi SPRON í síma 550 1200, í þjónustuveri SPRON í síma 550 1400 eða á spron.is *Samkvæmt gildandi vaxtatöflu SPRON 11. janúar 2008
– allt að 14,48% ársávöxtun*