Skip to main content

Grafarvogsbladid 7.tbl 2007

Page 1

7. tbl. 18. árg. 2007 - júlí

ÍSLENSKA AUGLÝSINGASTOFAN/SIA.IS LBI 27159 01/2005

Grafarvogsblaðið

Eitt númer

410 4000

Dreift ókeypis í öll hús í Grafarvogi

Stuð á heimaleikjum Fjölnis

Bifreiðaverkstæði Grafarvogs

Allar almennar bílaviðgerðir Gylfaflöt 24 - 30 • 112 Reykjavík Sími 577 4477

Þjónustuaðili

<VgÂV\g Âjg V[ aajb \ZgÂjb G{Â\_ [ d\ i^aWdÂh\ZgÂ

;67G>@6C $ hbe

Það var mikið stuð á síðasta heimaleik Fjölnis en þá gerðu okkar menn sér lítið fyrir og sigruðu topplið 1. deildar karla í knattspyrnu, lið Grindavíkur. Eins og sjá má á myndinni var stuðið mikið og úrslit leiksins dæmi um að öflugur stuðningur Grafarvogsbúa á heimaleikjum skiptir sköpum. Framundan í sumar eru mikilvægir heimaleikir þar sem skemmtileg umgjörð verður á heimavelli Fjölnis. Sjá nánar á bls. 8 og 9.

Gjöf fyrir veiðimenn

Hi_ gcj\g [ &- " H b^ *-& )**% " ;Vm *-& '''lll# bdg`#^h bdg`5bdg`#^h

Nýir tímar fyrir tjónaþola:

Komdu beint til okkar! – og við tjónaskoðum í hvelli þér að kostnaðarlausu! Það s máli kiptir eng hvern u ig bíl þú ert á!

BÍLAMÁLUN OG RÉTTINGAR Bæjarflöt 10 · 112 Reykjavík · Sími 567 8686

Við erum alltaf í leiðinni Landsbankinn leggur áherslu á faglega fjármálaþjónustu fyrir fyrirtæki og einstaklinga í Grafarvogi. Við tökum vel á móti þér í útibúum okkar að Vínlandsleið 1 og Höfðabakka 9.

- Gjöfin fyrir veiði menn sem eiga allt - Glæsileg viðarbox úr léttum mangóviði - Gröfum nafn veiði mannsins á boxið - Laxa- og silunga flugur - Flugur í sérflokki - íslensk hönnun Upplýsingar á Krafla.is og í síma 698-2844


<g^aajb hVbVc <g^aa"aVbWVa¨g^ =V\`VjeV

CZl DgaZVch 77F hk cVg^[

að hætti landsliðs matreiðslumeistara I^a VÂ c{ [gVb WZhiV WgV\Â^ hZb k a Zg { cdijb k^Â [Zgh`Vg `gnYY_jgi^g! ]k iaVj`! h ig cjhV[V d\ h ig cjW g`# I^a VÂ ideeV bVg^cZg^c\jcV cdijb k^Â [Zgh`Vc X]^a^e^eVg d\ \djgbZi da j#

CZl DgaZVch 77F hk cVg^[ Zgj [dgZaYj d\ i^aW ^c WZ^ci { \g^aa^Â# ÃVg[ VÂZ^ch g ii V ]^iV \Z\c

? ^ ;Za eaVc`VhiZ^`

? ^ ;Za hk cVajcY

HeZccVcY^ cÅ_jc\Vg 7Zg_VWdbWV

EdgidWZaadhkZee^g

:ea^

@ `dhWdaajg

bV``Vg cjb d\ h ``jaVÂ^

b$[naa^c\j

b$`Vc^a d\ g h cjb

b$[Zgh`jb {k mijb

OjXX]^c^

:\\VaY^c

ÏhaZch`Vg \g^aa`Vgi jg

[naai^g bZÂ \g{Âdhi^! \g^aaVÂ^g '"( b c#

h`dg^Â hcZ^ÂVg! eZchaVÂVg bZÂ eZhi ! \g^aaVÂVg '"( b c# { ]kdgg^ ]a^Â

h`dg^Â i^a ]Zab^c\V! eZchaVÂ bZÂ a [jda j! `gnYYVÂ bZÂ hVai^ d\ e^eVg! \g^aaVÂ )"* b c# { ]kdgg^ ]a^Â

\g^aaVÂVg )% b c# ZÂV ÄVg i^a b_ `Vg \Z\c

GVb^gd eVeg^`V

I bViVg

BV h

@VhiVc jhkZee^g

<g^aa^Â ("+ b c# ]Z^aj aV\^! a{i^Â hiVcYV & b c# d\ ]ÅÂ^Â iZ`^Â V[#

H¨iVg `Vgi [ajg H`Zg^ `Vgi [ajgcVg h` [jg d\ eZcha^ bZ da j# @gnYY^ bZ ]k iaVj`! i^b_Vc d\ hVai^# <g^aa^ ÄVg i^a Ĩg Zgj ZaYVÂVg \Z\c#

<^aY^g { bZÂVc W^g\Â^g ZcYVhi#

H`Zg^Â i^a ]Zab^c\V# EZcha^Â bZÂ da j d\ `gnYY^Â bZÂ WVh^a! ]k iaVj`! i^b^Vc! hVai^ d\ e^eVg# <g^aa^Â k^Â b^`^cc ]^iV &"' b c# { ]kdgg^ ]a^Â#

=k iaVj`jg EZcha^Â bZÂ da j! `gnYY^Â bZÂ i^b^Vc! hVai^ d\ e^eVg# EV``^Â ^cc {aeVee g d\ \g^aa^Â { b^aa^]Z^ij \g^aa^ (% b c#! hc ^Â Âgj ]kZg_j#

Landsins mesta vöruúrval!

beint á grillið

HkVgi^g i bViVg

IV`^Â ]ÅÂ^Â V[ bV hcjb d\ hZi_^Â ]Vcc {aeVee g {hVbi hVai^ d\ hb_ g`a ej# <g^aa^Â -"&% b c ijg#

GVÂ^Â jee { \g^aaiZ^c d\ eZcha ^Â bZÂ da j# @gnYY^Â bZÂ hVak j! hVai^ d\ e^eVg# <g^aa^Â k^Â b^`^cc ]^iV (") b c#

HVaViaVj`jg

HiZ^chZa_jg i

b^hi h`dg^cc hcZ^ÂVg d\ eZchaVÂjg bZÂ da j d\ \g^aaVÂjg! ZÂV h`dg^cc hi gV W^iV d\ hZiijg { \g^aae^ccV#

b^hi W `j {aeVee g a `i d\ `Vgi [ajg ZÂV h`dg^c hcZ^ÂVg d\ hZii { \g^aae^ccV#

? ^ ;Za \g^aah hjg

AVm

? V ;Za hk cV` i^aZiijg

;naaiVg hk cVajcY^g

H^\\^ hiZg`^ ]VbWdg\VgVg &,* \

WZ^ci g `_ iWdgÂ^

`gnYYaZ\cVg

WZ^ci g `_ iWdgÂ^

jc\cVjiV]VbWdg\VgVg

@gnYYaZ\cVg [gVb]gn\\_Vhc#

Jc\cVjiV g^WWZnZ

7a{WZg_VaZ\^c aVbWVh^gad^c

@_ `a^c\VWg^c\jg

VÂ ]¨ii^ =V\`VjeV

WZ^ci g `_ iWdgÂ^

WZ^ci g `_ iWdgÂ^

`dc V`h`gnYYaZ\cVg

AVbWVa¨g^hhcZ^ÂVg

Jc\cVjiV e^eVghiZ^`

G^[hZWZg_VaZ\^Â aVbWV aaZ

<g^aae^ccVg! cVji ZÂV aVbW

VÂ ]¨ii^ =V\`VjeV

WZ^ci g `_ iWdgÂ^

WZ^ci g `_ iWdgÂ^

WZ^ci g `_ iWdgÂ^


4

GV

Fréttir

Grafarvogsblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: skrautas@simnet.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Netfang Grafarvogsblaðsins: gv@centrum.is Ritstjórn og auglýsingar: Bíldshöfða 14 - Sími 587-9500 / 698-2844. Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir, Stefán Kristjánsson. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll hús og fyrirtæki í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi og öll fyrirtæki í póstnúmeri 110.

Áfram konur! Af mörgum ágætum fréttum undanfarna daga hérlendis var það þó ein frétt sem vakti athygli margra. Eftir óteljandi skýrslur, vinnu margra nefnda og vinnuhópa, er staðan enn sú, að konur fá ekki greidd sömu laun Íslandi í dag og karlar fyrir sömu vinnu. Með öðrum orðum. Launamunur kynjanna er enn sá sami á Íslandi eða meiri en hann var fyrir áratug síðan. Þessi staðreynd er mikill áfellisdómur yfir ráðamönum sem lofað hafa öllu fögru. Má nú öllum vera ljóst að allar þær aðferðir sem reyndar hafa verið mörg undanfarin árin til að jafna launamuninn hafa engu skilað. Til að koma málum í það horf að konur fái greidd sömu laun fyrir sömu vinnu og karlar er því aðeins eitt ráð eftir. Setja landslög sem banna launamuninn. Lengi hefur mér komið á óvart hve konur sjálfar eru rólegar yfir þessum ójöfnuði. Virðast íslenskar konur vera orðnar svo samdauna þessu óréttlæti að þær gera ekkert til að bæta ástandið. Alla vega ekki neitt hingað til sem skilað hefur árangri. Er ekki fyrir löngu kominn tími til að konur á Íslandi geri eitthvað í sínum málum? Grípi til einhverra aðgerða sem duga? Ég skil ekki langlundargeð íslenskra kvenna. Víst er að ef karlar fengju ekki greidd sömu laun fyrir sömu vinnu og konur væri fyrir margt löngu búið að kippa því í liðinn. Ég skora á konur að gera eitthvað róttækt í sínum málum. Því verður ekki trúað að óreyndu að konur ætli að láta þetta yfir sig ganga öllu lengur. Hreint undarlegur júnímánuður er nú að baki. Örugglega einn þurrasti júní í mjög langan tíma og varla hægt að segja að deigur dropi hafi komið úr lofti allan mánuðinn. Hafa margir nýtt sér þetta ótrúlega veðurfar til að taka til hendinni í garðinum. Og þeir sem hafa verið iðnir með garðslönguna hafa uppskorið vel. Líkast til hefur þörfin fyrir að vökva aldrei verið meiri en í liðnum mánuði. Mjög mikið hefur verið um það í sumar að húseigendur hafi tekið til hendinni og málað hús sín. Hefur viðrað einstaklega vel fyrir málningavinnu utan húss og verður svo vonandi áfram í júlí fyrir þá sem enn eiga eftir að leika listir sínar með rúlluna og pensilinn. Með þessu sjötta tölublaði ársins erum við hálfnuð með árið, sex blöð komin út af 12 á árinu. Nú tökum við okkur stutta sumarpásu en næsta blað kemur út þann 23. ágúst. Stefán Kristjánsson

gv@centrum.is

Ljósmyndin sýnir kolamökk yfir Reykjavík um 1930. Háteigsvegurinn sést vinstra megin á myndinni og það rétt grillir í Austurbæjarskólann í mekkinum.

100 þúsund krónur á hvert heimili

Hitaveitan á höfuðborgarsvæðinu sparar ekki eingöngu útblástur gróðurhúsalofttegunda heldur nam fjárhagslegur sparnaður viðskiptavina Orkuveitunnar um hundrað þúsund krónum á hvert heimili á höfuðborgarsvæðinu í fyrra, sé hitaveitan borin saman við olíukyndinguna, sem hún leysti af hólmi.

Heimilisbuddan nýtur þess Hitaveitan, sem starfrækt hefur verið frá 1930, kom í stað olíu- og kolakyndingar og er nú stærsta jarðhitaveita í heimi. Meðan verið var að byggja upp kerfið lá oft þykkur kolamökkur yfir borginni. Það er liðin tíð en auk hinna jákvæðu umhverfisáhrifa hefur hitaveitan haft afgerandi fjárhagsleg áhrif. Útreikningar sýna að það innflutta eldsneyti, sem þurft hefði

að kaupa til húshitunar í fyrra hefði verið um níu milljörðum króna dýrara en kynding með heitu vatni. Það svarar til um 100 þúsund króna á hvert heimili á höfuðborgarsvæðinu. Sé litið lengra aftur þá hefði innflutta eldsneytið kostað á árunum 1944 til 2006 borgarbúa meira en fjóra milljarða bandaríkjadala að núvirði. Upphæðin svarar til um 270 milljarða íslenskra króna eða um einnar milljónar króna á hvern landsmann.

Umhverfið nýtur þess ekki síður Sé reiknað með að í stað hitaveitunnar hefðu verið notuð kol af meðalgæðum þá hefði útblástur koltvísýrings orðið 100 milljónum tonna meiri en ella. Á árinu 2006 varð útblástur þessarar gróðurhúsalofttegundar 3,5

milljónum tonna minni vegna þess að jarðhitinn hefur leyst jarðefnaeldsneyti af hólmi í kyndingu húsa á höfuðborgarsvæðinu. Það eru staðreyndir á borð við þessar sem vekja mikla athygli meðal erlendra þjóða nú þegar heimsbyggðin stendur frammi fyrir hlýnun jarðar af völdum gróðurhúsalofttegunda. Það þykir einkar athyglisvert að hægt sé spara fé með því að leita umhverfisvænna lausna. Útreikningarnir sem hér er getið hafa verið kynntir á erlendum vísindaráðstefnum en voru nýlega uppfærðir að beiðni Clinton Foundation, stofnunar sem kennd er við fyrrverandi Bandaríkjaforseta og einbeitir sér nú að loftslagsmálunum. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Orkunnar, fréttabréfi Orkuveitu Reykjavíkur. Hægt er nálgast blaðið á vef Orkuveitunnar á slóðinni

GV

Ritstjórn og auglýsingar 587-9500


! T T NÝ

ON R P S N Á L R VIÐBÓTA ARLÁNASJÓÐI ÍBÚÐ Á R F N Á NT! ÁL Y M I R D Í ERLEN

Þitt stærsta lán er frelsi!

Íbúðalán SPRON – all t í íslenskri mynt • Þú getur valið á mi lli þess að hafa allt lán ið hjá SPRON eða að taka samsett lán hjá Íbúðalánasjóði og SPRON. Íbúðalán SPRON – all t í erlendri mynt • Þú getur valið á mi lli myntkörfu SPRON og eigin samsetningar á myntk örfu.

Íbúðalán SPRON í íslenskri og erlendri mynt einkennast af frelsi í nútíð og framtíð. Valfrelsið er mikið þegar kemur að samsetningu lánanna og eru þau án þvingandi skilyrða um bankaviðskipti til allt að 40 ára eins og tíðkast annars staðar.

Samsett íbúðalán SP RON – erlend og ísle nsk mynt • Þú getur valið á mi lli myntkörfu SPRON og eigin samsetningar á myntk örfu. • Þú getur valið hve rt hlutfallið er milli ísle nskrar og erlendrar myntar. Samsett íbúðalán SP RON og Íbúðalánasjóð s • Þú getur valið um að fá viðbótarlán frá SPR ON á lán frá Íbúðalánasjóði í íslensk ri eða erlendri mynt.

Veldu frelsi – fáðu ráðgjöf hjá viðskiptastjórum SPRON

Nánari upplýsingar fást í næsta útibúi SPRON, í þjónustuveri í síma 550 1400 eða á spron.is

SPÖNGINNI

ARGU S 07- 0366

FRELSIÐ ER ÞITT:


6

Matgoggurinn

GV

Drukkinn lax, kjúlli og marens með ávöxtum - að hætti Hildar og Ragnars Matgoggar okkar að þessu sinni eru hjónin Hildur Árnadóttir og Ragnar Guðgeirsson. Uppskriftir þeirra eru mjög áhugaverðar og við skorum á lesendur að prófa.

Forréttur - ,,Drukkinn lax’’ 600 gr. beinlaust og ósoðið laxaflak. Skafa vel roðið og þerra. Mjög mikilvægt að plokka beinin úr flakinu. ½ bolli olía (ekki græn). ¼ bolli gin. ¼ bolli sykur. 2 msk. fínt salt. 2 msk. Martini (dry). 2 msk. Pernod. 1 msk. sítrónupipar. Nokkrir dropar Tabasco sósu, Teryaki sósu og soya sósu. Hella þessu öllu í skál og hræra saman. Setja laxinn á fat, hella blöndunni yfir og setja filmu yfir, láta bíða í kæliskáp í amk. 2 sólarhringa. Öðru hverju þarf að ausa blöndunni yfir flakið. Um það bil 6-12 tímum fyrir

notkun á að taka laxinn úr leginum, láta leka vel af. Pakka inn í álpappír og frysta. Taka úr frystinum ca 1 klst. fyrir notkun og skera í þunnar sneiðar. Sósan sem boðin er með þessu verður enn betri ef hún er búin til nokkrum klukkustundum fyrir notkun. Sósa 2 dósir Melónujógúrt. 2 msk. sætt sinnep. 2 msk. majones. ½ laukur, smátt skorinn (fínt að nota rifjárn). Sellerí eftir smekk, (a.m.k. einn stöngull jafnvel tveir), smátt skorið.

Aðalréttur - Kjúklingur með sveppum, pesto og pasta Kjúklingabringur ca 4 stk. Pesto. 1 box sveppir. ½ hvítur laukur. Parmesan. Pasta Ricatone. 3 hvítlauksrif.

Valfríður og Jón næstu matgoggar

Hildur Árnadóttir og Ragnar Guðgeirsson, ásamt syni sínum.

Steinselja ca ½ bunt. Byrjað á því að búa til fyllinguna í kjúklinginn, skera 2 sveppi mjög smátt, nánast í frumeindir ásamt ½ lauk. Svo er að setja smá olíu á pönnu og hita hana mjög vel, steikja sveppina og laukinn og brúna vel. Svo er slökkt undir pönnunni, 2 msk. af pestó ásamt ca 6 msk. af parmesan ostinum er hrært saman við. Massinn er svo kældur. Við gerum smá gat í bringurnar og setjum fyllinguna inn í. Kjúklingurinn er svo brúnaður á pönnu og settur inn í ofninn við 160 gráður í ca 25 mín-

Hildur Árnadóttir og Ragnar Guðgeirsson, Funafold 87, skora á Jón Karl Ólafsson og Valfríði Möller, Funafold 97. Við birtum frá þeim girnilegar uppskriftir í næsta Grafarvogsblaði sem kemur út fimmtudaginn 23. ágúst. útur. Á meðan kjúklingurinn er að eldast gerum við pastað. Pastað er soðið samkvæmt leiðbeiningum. Sveppirnir eru steiktir upp úr smjöri og hvítlauk, í restina er pestó og ólífuolíu blandað saman við ásamt steinseljunni. Kjúklingurinn er skorinn í þunnar sneiðar og raðað á disk og pastað er raðað í kring. Svo er smá nýrifnum

parmesan osti stráð yfir diskinn.

Eftirréttur - Marengsskál með ávöxtum 6 Eggjahvítur. 300 gr. Sykur. 1 stór tsk. Lyftiduft. 1 stórt box jarðarber. 1 box bláber. 2 kiwi. 2 pelar rjómi, þeyttur. Eggjahvítur og sykur þeytt vel saman, lyftidufti bætt út í. Sett í stórt eldfast mót, bakað við 170 gráður í 40 mínútur. Slökkt á ofninum og látið standa í 2-3 tíma svo marengsinn falli og myndi skál. Ávextirnir brytjaðir og settir ofan í marengsskálina. Borið fram með þeyttum rjóma.

i¨`^[¨g^ K^Â h`jb Z[i^g hkZ^cjb d\ bZ^hijgjb ]Z^ah" d\ ]{a[hYV\hhi g[ { a [aZ\jb d\ gi hi¨``VcY^ k^ccjhiVÂ# Óh`jb Z^cc^\ Z[i^g cZbjb i^a hiVg[V#

] { g h i d [ V lll#iZmijgZ#^h H b^ *++ -*%%

Þessar uppskriftir sem við sendum inn til Grafarvogsblaðsins eru í miklu uppáhaldi hjá okkur. Forrétturinn ,,Drukkinn lax’’ er réttur sem hentar hugsanlega betur fullorðan fólkinu. Þetta er einfaldur réttur eftir að búið er að kaupa allt inn í fyrsta sinn. Laxinn hef ég boðið nokkrum sinnum, einiberjabragðið kemur skemmtilega fram og hefur hann alltaf vakið lukku. Okkar gestum hefur þótt alveg jafngott og jafnvel betra að borða laxinn sem sashimi, það er með góðri soya sósu, wasabi og engifer, og sleppa sósunni sem fylgir upphaflegu uppskriftinni. Aðalrétturinn er réttur sem ég sá upphaflega í þáttunum hans Jóa Fel. Þetta eru kjúklingabringur, fylltar með sveppum og pestó, borið fram með pasta, einfaldur og jafnframt mjög góður réttur sem hefur aldrei brugðist. Eftirrétturinn er síðan útfærsla af hefðbundnum marengstertum en ávextirnir gera marengsinn mjög ferskan. Verði ykkur að góðu, Hildur og Ragnar


9

8

Fréttir

GV

Sólarstemmning hjá Gufunesbæ Fjölmargir krakkar hafa tekið þátt í sumarstarfi Gufunesbæjar víðs vegar um Grafarvog. Hér

eru myndir af krökkunum okkar við nokkur af þeim viðfangsefnum sem þeir hafa tekið sér

GV

Fréttir

Fjör á Fjölnisvellinum

fyrir hendur í sólinni og veðurblíðunni sem leikið hefur við okkur.

Umhverfiðmitt!

Í sumar er starfræktur Umhverfishópur á vegum Gufunesbæjar og Vinnuskólans í Reykjavík. Hópurinn telst til skapandi sumarhópa Vinnuskólans og einbeitir sér að því að fegra og bæta umhverfið í Grafarvoginum með nýstárlegum hætti. Þar fyrir utan stefnir hópurinn að því að gera úttekt á því sem að hans mati er vel gert í umhverfismálum hverfisins og hvað mætti betur fara. Í hópnum eru níu krakkar á fimmtánda aldursári og voru þau valin í hópinn vegna áhuga þeirra á því að vinna skapandi starf og áhuga á að hafa áhrif á sitt nánasta umhverfi. Hópurinn byrjaði á því að lífga upp á útlit Grafarvogsins með því að búa til blómaker úr gömlum slitnum dekkjum. Þessum kerum hefur nú verið dreift um Grafarvoginn og er vonast til að sem flestir geti baðað sig í fegurð þeirra á gangi um hverfið. Á dagskrá eru síðan fleiri svipuð verkefni ásamt því að hópurinn mun halda ljósmyndasýningu í haust og kynna niðurstöður úttektar sinnar á hverfinu. Úttektin verður síðan að sjálfsögðu send ráðamönnum og öðrum sem málin varða. Áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með fréttum af hópnum á heimasíðunni www.gufunes.is

Frá leikjanámskeiði ÍTR í sumar.

Öflugir stuðningsmenn eru á við einn eða tvo leikmenn inn á vellinum. Þetta sannaðist gegn Grindavík.

Næst er það ÍBV - 16. júlí Frá leikjanámskeiði ÍTR. Þessir voru áhugasamir um knattspyrnuna. Brugðið á leik á leikjanámskeiði eins og vera ber.

Sumarhátíð Korpukots Sumarhátíð leikskólans Korpukots var haldin miðvikudaginn 13, júní í blíðskaparveðri. Margt var gert til skemmtunar s. s hoppukastalar, leiktæki og grillaðir voru hamborgarar. Einnig kíkti Sproti frá Landsbankanum í heimsókn og gaf börnunum sápukúlur.

Spáð í spilin á leikvellinum.

Fjörugir krakkar á smíðavellinum.

Buslað á leikjanámskeiði.

Fjör á róló.

Mikil stemmning var á Fjölnisvelli á síðasta heimaleik meistraraflokks karla. Grindvíkingar, topplið 1. Deildarinnar kom í heimsókn var leikurinn gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið. Skemmst er frá því að segja að Tómas Leifsson Fjölnismaður skoraði sigurmarkið í síðar hálfleik. Fjölnir var langtum sterkari aðilinn í þessari viðureign og átti m.a. tvö skot í tréverkið. Mikil stemming var fyrir leikinn og fór Eiki feiti þar fremstur í flokki. Hann mætti með grill eitt mikið og steikti hamborgara af miklum móð. Sagði Eiki eftir leikinn að þetta hefði verið hörku törn. Hann steikti og seldi 230 borgara og býsna ánægður með

Grafarvogsbúa. „Meðalmaður og meðalkona geta klárað sig þægilega af tveimur borgurum. Afburðafólk tekur þrjá og ég þekki nokkra í sérflokki sem ráða sem við fjóra.“ Eiki var í essinu sínu og glöddust margir áhorfendur á vellinum með úrvals hamborgara á aðeins 500 kr. Dæmi voru um heilu fjölskyldurnar sem mættu og fóru út að borða í orðsins fyllstu merkingu. Leikmenn og þjálfarar beggja liða fengu að sjálfsögðu fría borgara eftir leik. Mjög vaxandi stemming hefur verið á leikjum Fjölnis í sumar og hefur hvert aðsóknarmetið af öðru verið slegið. Ef Fjölnir á að eiga raunhæfan möguleika á að komast upp um deild

þá er ljóst að áhorfendur spila þar stóra rullu. Ef tekst að gera Fjölnisvöllinn að ljónagryfju eykur það möguleika liðsins á að komast í úrvalsdeildina í fyrsta skipti. Fjöldi ungra Fjölnismanna af báðum kynjum kom á völlinn og fengu andlitsmálningu, léku sér í hoppukasta í boði Landsbanks og tóku þátt í happdrætti fyrir leik og í hálfleik, þar sem aðalvinningur var meistaraflokkstreyja árituð af öllum leikmönnum. Nú er bara að fjölmenn á næsta heimaleik sem verður 16. Júlí, þegar Fjölnir tekur á móti gamla stórveldinu úr Vestamannaeyjum, ÍBV.

Frá sumarhátíð Korpukots. Tígri var mættur og skemmti ungviðinu á heimaleiknum gegn Grindavík.

Eiki feiti grillaði sem aldrei fyrr.


Kældu þig niður Líter af ís og sósa á aðeins

lu l i n Va

450,Gildir frá 5. - 12. júlí

Grillið í Grafarvogi - Gylfaflöt 1 - Sími: 567-7974


12

GV

Fréttir

Grafarvogsbúinn Rannveig Ásbjörnsdóttir sýnir glæsilegar vatnslitamyndir á Geysir Bistro&bar í Aðalstræti 2.

Spönginni

Sími: 5 700 900

Ritstjórn og auglýsingar GV - 587-9500

Ransý sýnir 33 vatnslitamyndir í Aðalstræti 2

,,Ég er með 33 vatnslitamyndir á staðnum Geysir Bistro & bar, Aðalstræti 2 á efri hæð hússins. Sýningin mun standa út júlí og staðurinn er opinn frá 11 fyrir hádegi til 22 á kvöldin. Sýninguna nefni ég ,,LANDSLAG OG BLÓM’’ og skiptist nokkuð jafnt þar á milli,’’ segir myndlistarmaðurinn Rannveig Ásbjörnsdóttir í samtali við Grafarvogsblaðið.

,,Ég hef búið í Grafarvoginum síðastliðin þrjú ár og líkar afskaplega vel. Ég er með vinnustofu heima og fólki er velkomið að líta við hafi það áhuga á að fá mynd hjá mér, einkum eftir sýninguna,’’ segir Rannveig ennfremur en hún er gjarnan kölluð Ransý. Ransý er útstillingahönnuður að mennt og hefur aðallega helgað sig myndlistinni síðustu ár. Eftir nám á

Listasviði í Fjölbrautaskóla Breiðholts sótti hún kennslu í Myndlistaskóla Kópavogs, Myndlistaskóla Reykjavíkur og Símenntun Hafnarfjarðar. Þeir sem áhuga hafa á myndlist ættu því endilega að skella sér á sýningu Ransýar í Aðalstræti 2. Hún er með vinnustofu að Funafold 59 og hægt er að ná í listamanninn í síma 567-2088 eða 849-4887.

Sumarið er komið og við erum í sumarskapi! Ert þú að fara erlendis í sól eða ætlar þú að baka þig í Nauthólsvíkinni í sumar? Hvort sem er þá þarf hárið sólarvörn eins og húðin! Við erum með frábærar sólarvörur frá KÉRASTASE og Redken. Komdu og fáðu ráðgjöf frá fagmönnum.

Hársnyrtistofan Höfuðlausnir Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is Opið: Mán 08.00-18.00 - þri - fim 09.00-18.00 fös 08:00-18:00

Pöntunarsími: 567-6330


Grafarvogsblaðið 5. tbl. 18. árg. 2007 - maí

Dreift ókeypis í öll hús í Grafarvogi

70% íbúa í Grafarvogi lesa Grafarvogsblaðið Mest lesni fjölmiðillinn í Grafarvogi Besta auglýsingaverðið og frábær árangur

587-9500


14

GV

Fréttir Guðmundur Vernharðsson í Mörk gefur Grafarvogsbúum gagnlegar upplýsingar um garðinn sinn:

Vökvun, klipping og barátta við mosa - Gróðrarstöðin Mörk fagnar 40 ára afmæli um þessar mundir ,,Það sem helst er viðkvæmt fyrir þurrki eru plöntur sem nýbúið er að planta. Það á jafnt við um tré runna sumarblóm matjurtir og fjölærar plöntur. Nýlagðar þökur eru sérlega viðkvæmar sem og grassáningar,’’ segir Guðmundur Vernharðsson, garðyrkjufræðingur í gróðrastöðinni Mörk sem fagnar 40 ára afmæli um þessar mundir. Eftir mikla þurrkatíð undanfarið leituðum við ráða hjá Guðmundi um vökvun, baráttuna við mosann og klippingu. ,,Mikilvægt er að vökva vel þegar vökvað er þannig að jarðvegurinn blotni vel niður í að minnsta kosti 20 cm dýpi. Ekki er heppilegt að vökva mörgum sinnum á dag pínulítið í einu þannig að jarðvegurinn blotni jafnvel bara rétt í yfirborðinu. Það dregur úr vexti plantnanna að vera sífellt að baða þær í köldu vatni í góðu hlýju veðri þegar þær eiga að vera í fullum vexti. Plöntu sem plantað er niður í jörð er nóg að vökva einu sinni á dag ef rétt og vel er vökvað. Plöntur sem eru í pottum geta þurft vökvun tvisvar á dag í miklum þurrki. Þurrkur er mestur þegar hlýtt er og vindur. Látið ekki smáskúr blekkja ykkur. Ef skúrin er ekki nægilega mikil til þess að bleyta þessa 20 sentimetra ofan í jörðina þá getið þig samt þurf að vökva ef útlit er fyrir áframhaldandi þurrk, til dæmis daginn eftir,’’ segir Guðmundur. Og þá er það mosinn. ,,Merkilegt með mosann sem virtist eiga alla grasflötina eins og hún lagði sig. Það er eins og hann hafi hörvað. En skýringin er venjulegast sú að það er grasið sem er orðið meyra áberandi. Til að eiga von um að geta gert eitt-

hvað varanlegt gegn mosanum þá þarf að skilja mosann. Hvað líkar honum og hvað líkar honum ekki? Til þess að fá fallegan grasblett þarf á sama hátt að skilja hvað grasinu líkar og hvað grasinu líkar ekki. Þetta spilar reyndar ótrúlega vel saman. Það sem grasinu líkar það mislíkar mosanum og öfugt. Loft ofan í jarðveginn. Grasið vill hafa loftríkan jarðveg. Það er jarðveg sem er hvorki samanklesstur né blautur. Rætur grassins þrífast illa ef ekki er til staðar súrefni ofan í jarðveginum. Súrefnið minnkar eða hverfur ef jarðvegur er klesstur eða of blautur. Einnig er blautur jarðvegur kaldur og dregur þannig úr vexti. Mosinn vill hafa jarðveginn rakan. Þannig að þéttur og blautur jarðvegur hentar honum vel. Hvernig fæst loft ofan í jarðveginn? Ef jarðvegur er mjög blautur þá getur þurft að ræsa hann fram með þar til gerðum framræsisskurðum (drenskurðum). Mjög er til bóta að hafa mikið sandinnihald í jarðvegi undir grasi. Sumir hafa jafnvel gengið svo langt að setja hreint sandlag í allt að 10 centimetra undir þökur og reynst vel. En þá þarf að gæta mun betur að vökvun á þökunum á meðan þær róta sig niður úr sandlaginu. Í gömlum þéttum grasflötum hefur reynst vel að sandstrá með allt að 3 cm sandlagi sem þurrkar yfirborðið til ógagns fyrir mosann. Einnig er gott að fara út með stungugaffal og stinga lárétt ofan í flötinn og ýta gaflinum fram og til baka þannig að eftir sitja göt í jarðveginum. Þessi göt hleypa súrefni ofan í jarðveginn. Það spilar mjög vel saman með götun að setja sand sem fyllir í holurnar og heldur þeim þannig lengur virkum. Grasið vill fá nóg að

Atvinnuhúsnæði óskast til leigu Ca 60-90 fermetra verslunarog/eða skrifstofuhúsnæði óskast til leigu Snyrtileg aðkoma skilyrði Uppl. í síma: 699-1322 / 698-2844

borða en mosanum er sama um mat. Grasið vill fá sinn áburð en mosinn þrífst mjög vel án allrar áburðargjafar. Hér þarf líka að gæta hófs vegna þess að meiri áburður þýðir meiri garðslátt. Gæta þarf þess í allri meðhöndlun á tilbúnum áburði að hann fari jafnt á yfirborðið. Gras getur mjög auðveldlega sviðið og jafnvel drepist undan ójafnri áburðargjöf. Gras í samkeppni við tré. Gras getur látið á sjá í samkeppni við tré um bæði ljós og næringu. Og merkilegt nokk þá líður mosanum bara vel í skugga trjánna. Er þá ekki bara ráðið að gefa grasinu meiri áburð? En kannski er ekki meiningin að örva vöxt hjá stóru trjánum.’’ - Nú klæjar mig í fingurna að dunda mér eitthvað í garðinum, snyrta trén og klippa. En má ég það á þessum árstíma? Má ekki bara klippa þegar trén eru í dvala? ,,Sumarklipping á fullmótuðum limgerðum gefur þeim skýrar og formfagrar línur síðsumars og fram á vetur. Hana skal framkvæma á tímabilinu upp úr miðjum júlí fram í byrjun ágúst. Ef hún er framkvæmd seinna er hætta á að það sem eftir situr eftir klippinguna séu gulnuð laufblöð sem voru komin í skugga inn í limgerðinu fyrir klippingu. Ef klippt er fyrr þá vex limgerðið of mikið eftir klippinguna og línurnar aflagast. Þó að klippt sé á réttum tíma þá getur engu að síður þurft að klippa einstaka anga seinna í ágúst ef það á að halda línunum alveg hreinum og beinum,’’ segir Guðmundur. Almenn smávægileg snyrting á trjágróðri. Almennt má framkvæma á hvaða árstíma sem er.

Hjónin í Mörk, Guðmundur Vernharðsson og Sigríður Helga Sigurðardóttir. GV-mynd PS ,,Ef fella á tré þá er mjög gott að gera það á miðju sumri og þá koma færri rótarskot upp en ella. En hvort það fæst nokkur garðyrkjumaður til að framkvæma verkið á þeim tíma skál ósagt látið. Það skal hinsvegar alveg forðast á sumrin að klippa trjágróður alveg niður til þess að láta hann endurnýja sig. Það gæti reynst trjáplöntum ofviða á þessum árstíma. Slíkt er betra að framkvæma á veturna þegar plönturnar eru í dvala.’’

Gróðrastöðin Mörk umvafin gróðri í 40 ár og dafnar enn Í ár fagnar Gróðrarstöðin Mörk 40 ára starfsafmæli og er í dag sankallaður sælureitur. Gróðrarstöðin var stofnuð þann 1. ágúst 1967 af hjónunum Pétur N Olsen og Mörthu C Björnsson. Í ársbyrjun 1999 keyptu Guðmundur Vernharðsson og Sigríður Helga Sigurðardóttir stöðina af þeim og reka hana í dag. Gróðrar-

stöðin hefur á að skipa 4 garðykjufræðingum auk eigenda. Mörk er staðsett í Stjörnugróf í Fossvogi og er alls 5,2 hektarar, stór hluti af stöðinni nær yfir í Kópavogi. Í stöðinni eru framleiddar og seldar margar og mismunandi tegundir trjáa og runna í stærðum allt frá 10 cm upp í 4-5 metra, einnig sumarblóm og fjölærar plöntur og matjurtir. Seinni ár hafa bæst við ávaxtatré svo sem epla, plómu, kirsuberja og perutré. Í Mörk eru til sölu vörur sem tilheyra garðrækt, t.d. mold, áburður, og ker. Í stöðinni eru 30 plasthús sem eru frá 50-256 m2 að stærð. Einnig eru í stöðinni 2 glergróðurhús, annað er 358 m2 og hitt er 150 m2. Í stærra glerhúsinu fer fram sáning sumarblóma og dreifplöntun á tímabilinu febrúar fram í júní . Síðan tekur við stunga og ræting sumargræðlinga fram á haust . Í Gróðrarstöðinni Mörk eru 4 heilsársstarfsmenn en 25 starfsmenn bætast við yfir sumartímann.


15

GV

Fréttir

Sigursveit Rimaskóla fékk ferð til London

Lið Rimaskóla sigraði í fyrstu kokkakeppni grunnskóla sem haldin var í húsnæði Menntaskólans í Kópavogi laugardaginn 21. apríl. Alls tóku 10 grunnskólar þátt í úrslitakeppninni þar af sex skólar úr Grafarvogi. Það er greinilegt að mikill kraftur er í heimilisfræðikennslu í skólum Grafarvogs. Í sigurliði Rimaskóla voru þrír nemendur 10. bekkjar, þeir Arnar Sigurðsson, Kjartan Guðmundsson og Sindri Hrafn Heimisson. Þessir piltar hlutu glæsileg verðlaun að launum og bar þar hæst

ókeypis ferð til London. Með þeim var í för heimilisfræðikennari Rimaskóla Áslaug Helga Traustadóttir sem er eins og mörgum er kunnugt upphafsmaður keppninnar fyrst í Rimaskóla og nú í öllum grunnskólum höfuðborgarinnar. Í London heimsóttu piltarnir sælkeradeild Harrods og smökkuðu þar meðal annars á ostrum og ítalskri parmaskinku af bestu gerð. Glæsilegur hádegsiverður var snæddur á veitingastað Jamie Oliver, Fifteen, en þar fá ungmenni mjög alhliða og ítarlega þjálfun í

að verða matreiðslumeistarar. Á matseðlinum á Fifteen var á meðal rétta sérvalið svínakjöt sem hafði verið eldað í þrettán klukkustundir og smakkaðist það frábærlega. Ferðin til London var drengjunum frá Rimaskóla mikil upplifun ekki síst að kynnast þar matarmenningunni sem blasir við á hverju götuhorni með fjölbreyttum og góðum veitingastöðum. Verðlaunarferðin var í boði Fiskisögu/Gallerí með stuðningi Gestgjafans og Icelandair.

Brúðarfarðanir Förðun við öll tækifæri Mist snyrtistofa og verslun - Spönginni 23 - S:577-1577

Fyrstu meistararnir í Kokkakeppni grunnskóla Reykjavíkur með verðlaun og verðlaunagripi. Lið Rimaskóla f.v. Arnar Sigurðsson, Sindri Hrafn Heimisson, Kjartan Guðmundsson og Áslaug Traustadóttir heimilisfræðikennari Rimaskóla.

Meindyraeydir.is

V ILTU V IN N A M EÐ BÖ R N U M Í S K EM MT ILEG U STAR FSUM H V ERR?FI N Æ STA V E T U

G ufun esbæ le it ar efti r fórlki 18 ára o g eld ri Starfsmenn Gufunesbæjar vinna á sviði íþrótta og tómstunda og eru lykillinn að því að veita íbúum fyrsta flokks þjónustu Gufunesbær leggur áherslu á að starfsfólki líði vel og að það nái að þróast í starfi Hjá Gufunesbæ vinnur starfsfólk á öllum aldri með fjölbreyttan bakgrunn

Um er að ræða hlutastörf til að vinna með 6–9 ára börnum í: List- og verkgreinum tónlist, myndlist, leiklist, smíði, textíl Íþróttum og leikjum Útivist og umhverfismennt Barnalýðræði og lífsleikni hópastarf, barnafundir, vinátta og samvera Hægt er að sækja um á heimasíðu Gufunesbæjar, www.gufunes.is. Allar nánari upplýsingar fást í síma 5202300.

Frístundamiðstöðin Gufunesbær v/Gufunesveg I Sími 5202300 I www.gufunes.is

Guðrún og Sirrý bjóða ykkur velkomin í Hársport Hársport - Brekkuhúsum - Sími: 567-3530


Taktu þessar með í veiðitúrinn Laxaflugur

Iða

Krafla gul

Krafla rauð

Krafla orange

Krafla blá

Krafla græn

Iða

Skröggur

Grænfriðungur

Elsa

Gríma blá

Krafla orange

Tungsten keilutúpur

Krafla keilutúpa - Tungsten (Mjög þung) Krafla keilutúpa - Tungsten (Mjög þung) Krafla keilutúpa - Tungsten (Mjög þung) Krafla keilutúpa - Tungsten (Mjög þung)

Íslenska landsliðið í silungaflugum Beygla

Beykir

SilungaKrafla bleik

SilungaKrafla orange

Kíktu á Krafla.is - Gjöfular, fallegar og sterkar flugur - Íslensk hönnun

Krókurinn

Mýsla

íslensk fluguveiði Skrautás ehf. Sími: 587-9500


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook