6. tbl. 18. árg. 2007 - júní
ÍSLENSKA AUGLÝSINGASTOFAN/SIA.IS LBI 27159 01/2005
Grafarvogsblaðið
Eitt númer
410 4000
Dreift ókeypis í öll hús í Grafarvogi
Bifreiðaverkstæði Grafarvogs
Allar almennar bílaviðgerðir Gylfaflöt 24 - 30 • 112 Reykjavík Sími 577 4477
Þjónustuaðili
Stelpurnar þurfa stuðning
Gjöf fyrir veiðimenn
Andrés Ellert Ólafsson er þjálfari kvennaliðs Fjölnis í knattspyrnu. Stelpurnar í Fjölni leika í sumar í deild þeirra bestu, Landsbankadeildinni, og í miðopnu blaðsins að þessu sinni kynnum við stelpurnar sem leika fyrir Fjölni í sumar og ræðum við þjálfarann. GV-mynd PS
Nýir tímar fyrir tjónaþola:
Komdu beint til okkar! – og við tjónaskoðum í hvelli þér að kostnaðarlausu! Það s máli kiptir eng hvern u ig bíl þú ert á!
BÍLAMÁLUN OG RÉTTINGAR Bæjarflöt 10 · 112 Reykjavík · Sími 567 8686
Við erum alltaf í leiðinni Landsbankinn leggur áherslu á faglega fjármálaþjónustu fyrir fyrirtæki og einstaklinga í Grafarvogi. Við tökum vel á móti þér í útibúum okkar að Fjallkonuvegi 1 og Höfðabakka 9.
Landsbankinn Banki allra landsmanna
410 4000
landsbanki.is
- Gjöfin fyrir veiði menn sem eiga allt - Glæsileg viðarbox úr léttum mangóviði - Gröfum nafn veiði mannsins á boxið - Laxa- og silunga flugur - Flugur í sérflokki - íslensk hönnun Upplýsingar á Krafla.is og í síma 698-2844
2
GV
Fréttir
Grafarvogsblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: skrautas@simnet.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Netfang Grafarvogsblaðsins: gv@centrum.is Ritstjórn og auglýsingar: Bíldshöfða 14 - Sími 587-9500 / 698-2844. Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir, Stefán Kristjánsson. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll hús og fyrirtæki í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi og öll fyrirtæki í póstnúmeri 110.
Siðlaus próf Nemendur í 10. bekk í grunnskólum hafa nú lokið samræmdum prófum þetta árið en um er að ræða próf sem eiga að skera úr um það hvort nemendur eru reiðubúnir að hefja nám í framhaldsskólum eða ekki. Og útkoman úr þessum prófum segir til um það hvort nemandi kemst í ákveðinn skóla eða ekki. Samræmdu prófin hafa verið gagnrýnd árum saman en líklega hefur gagnrýnin aldrei verið meiri en í dag. Og þessi gagnrýni á svo sannarlega fullan rétt á sér. Við höfum rætt við óánægða foreldra sem furða sig á þessum prófum. Þess eru mörg dæmi að margar spurningar í eina og sama prófinu komu úr efni sem ekki var fjallað um í námsbókunum. Hvernig er verjandi að koma svona fram við nemendur? Við höfum frétt af samviskusömum nemendum sem lásu námsefnið mjög samviskusamlega fyrir próf en komu síðan grátandi heim til sín eftir prófin vegna þess að spurt var um efni sem ekki var í bókunum. Samræmdu prófin vinna hrein skemmdarverk á unglingum í stað þess að meta hæfni þeirra til frekara náms. Ómögulegt er að skilja hvað býr að baki hjá því fólki sem semur þessi próf. Þessi próf eru þessu fólki til ævarandi skammar og með hreinum ólíkindum að fullorðið og væntanlega menntað fólk skuli skila frá sér slíku verki. Frést hefur af kærum sem kennarar hafa sent inn vegna prófanna. Kennarar eru ekki síður reiðir en nemendur og skildi engan undra. Mörgum þeirra ofbýður skepnuskapurinn sem hinir aumkunarverðu höfundar prófanna bera á borð fyrir saklausa nemendur í 10. bekk, nemendur sem eru að reyna það eitt að gera sitt besta.
Stefán Kristjánsson
gv@centrum.is
Hreinn Örvar Hreinsson, 24 ár gamall strákur af Skaganum, opnaði bón- og þvottastöð í Stórhöfðanum. Frekar lítið var að gera hjá Hreini þar til hann birti auglýsingu í Grafarvogsblaðinu. Þá varð hreinlega allt vitlaust og hefur hann átt erfitt með að anna eftirspurn síðan. GV-mynd PS
,,Það varð allt vitlaust eftir að GV-blaðið kom út’’ - segir Hreinn Örvar Hreinsson sem á og rekur bón- og þvottastöð í Stórhöfða 26 ,,Þetta er búið að vera alveg frábært. Mig langaði að láta þann draum minn rætast að stofna mitt eigið fyrirtæki í stað þess að vinna fyrir aðra. Í byrjun var frekar rólegt að gera og mér leist eiginlega ekkert á þetta. Þá hafði ég samband við Grafarvogsblaðið. Þar á bæ var fólk tilbúið að birta við mig smá viðtal og auglýsingu og segja má að allt hafi orðið vitlaust eftir að blaðið kom út,’’ segir Hreinn Örvar Hreinsson sem á og rekur sína eigin bón- og þvottastöð að Stórhöfða 26. Hreinn tekur bíla í alþrif ef því er að skipta og jafnt fólksbíla sem jeppa. Hann býður einnig upp á annars konar þrif og verðflokkarnir eru margir. Viðskiptavinir Hreins geta verið öryggir með góða þjónustu og gott verð. Hreinn segir að síminn hafi byrjað
að hringja strax sama daginn og Grafarvogsblaðinu var dreift. Það streymdu inn pantanir og ég var skyndilega farinn að bóka langt fram í tímann. Ég hafði frétt af miklum árangri af því að auglýsa í Grafarvogsblaðinu en þessi viðbrögð komu mér skemmtilega á óvart. Og það sem hefur kannski komið mér mest á óvart er að það hefur ekkert dregið úr símhringingum. Það er því greinilegt að fólk geymir blaðið lengi og hendir því ekki strax í ruslið eins og hinum blöðunum,’’ sagði Hreinn. Skagamaðurinn ungi segir að lætin eftir að Grafarvogsblaðið kom út hafi leitt til þess að hann íhugar nú alvarlega að ráða mann eða menn i vinnu. ,,Ég er búinn að vera alveg á haus og reyndar uppgefinn eftir suma dagana.
Ég stefndi alltaf að því að eiga frí um helgar en hef orðið að taka bíla í þrif á þeim tíma líka. Annars vonast ég eftir því að geta átt frí á laugardögum og sunnudögum,’’ sagði Hreinn Örvar. Eftir að umfjöllunin birtist í Grafarvogsblaðinu um fyrirtæki Hreins Örvars tók símhringingum að rigna yfir okkur á Grafarvogsblaðinu og þá jafnan frá fólki sem ekki hafði blaðið við hendina. Hreinn Örvar er vitanlega bjartsýnn á framhaldið: ,,Þetta lítur mjög vel út í dag og ég er mjög bjartsýnn á framhaldið. Það er hreinlega ekki hægt annað. Ég er einnig líka mjög þakklátur Grafarvogsblaðinu sem tók mér opnum örmum með þessum líka rosalega árangri.’’ Síminn hjá Hreini Örvari er 867-0187.
Grafarvogsbúar, fjölmennum á Korpúlfsstaði 12. júní Það er fagnaðarefni að skipulags- og hönnunarvinnu vegna væntanlegrar þjónustu- og menningarmiðstöðvar í Grafarvogi skuli miða jafn vel og raun ber vitni. Jafvel svo að þriðjudaginn 12. júní næstkomandi verður haldin kynning að Korpúlfsstöðum klukkan 17:30 þar sem okkur íbúum verða kynntar þær hönnunartillögur sem nú eru í vinnslu Það er von okkar allra að nú rísi í Spönginni vegleg menningarmiðstöð sem nýtast mun sem flestum Grafarvogsbúum, jafnt ungum sem öldnum. Enda hljótum við öll að líta svo á að það sé meginmarkmiðið með byggingunni þó henni sé einnig ætlað víðtækara hlutverk. Á þeim sama fundi og menning-
armiðstöðin okkar verður kynnt mun einnig kynnt nýtt leiðarkerfi Strætó bs. Þar gætir ýmissa áhugaverðra nýjunga sem væntanlega munu nýtast Grafarvogsbúum vel svo sem nýjar leiðir að og frá hverfinu og einnig innanhverfisvagn. Þó verður að segja eins og er að sú kynning hefði mátt vera miklu fyrr og reyndar ámælisvert af Strætó bs. að taka upp nýtt leiðarkerfi án nokkurrar kynningar utan einstaka blaðaauglýsinga sem birtust þremur dögum áður en það varð að veruleika. Þetta er sérstaklega einkennilegt í ljósi þess að tæpum 2 mánuðum áður hafði Hverfisráð Grafarvogs ályktað eftirfarandi: "Hverfisráð Grafarvogs fer fram á að Strætó bs. standi fyrir ítarlegri
kynningu á nýju leiðarkerfi áður en það verður tekið í gagnið, bæði með heimsendum gögnum og einnig á opnum fundi þar sem íbúum gefst kostur á að koma með athugasemdir."
mannvirkja í hverfinu, framkvæmdir á Gufunessvæði og hreinsunarátak í Grafarvogi í sumar.
Emil Örn Kristjánssson, varaformaður Íbúasamtaka Grafarvogs, skrifar:
Vonandi bætir kynning Strætó bs. þann 12. júní næstkomandi eitthvað úr þó seint sé en það hlýtur að vera krafa borgarbúa að betur verði staðið að kynningarmálum þar á bæ í framtíðinni og gerum við því ráð fyrir ítarlegri kynningu frá þeirra hendi áður en vetraráætlun strætisvagnanna gengur í garð. Þá mun einnig verða kynnt væntanleg uppbygging íþrótta-
Það er von mín að sem flestir láti sjá sig þann 12. júní á Korpúlfsstöðum og sýni þannig áhuga sinn á því að hafa áhrif á sitt nánasta umhverfi. Við Grafarvogsbúar viljum vera vel upplýstir um það sem er að gerast í hverfinu okkar og það eru ýmis fleiri mál
sem kalla á að vera kynnt fyrir íbúum. Þar ber ekki sízt að nefna hugsanlega tengingu Hallsvegar við Vesturlandsveg. Þar verðum við að vera vel á verði og sporna gegn því að hann verði hugsaður sem einhverkonar hraðbraut í gegnum hverfið og tengibraut fyrir óviðkomandi umferð að væntanlegri Sundabraut. Því þarf að knýja vel á að Framkvæmdaráð Reykjavíkur standi fyrir vandaðri kynningu á umhverfis- og samgöngumálum í hverfinu. Höfundur er varaformaður Íbúasamtaka Grafarvogs.
<g^aajb hVbVc <g^aa"aVbWVa¨g^ =V\`VjeV
CZl DgaZVch 77F hk cVg^[
að hætti landsliðs matreiðslumeistara I^a VÂ c{ [gVb WZhiV WgV\Â^ hZb k a Zg { cdijb k^Â [Zgh`Vg `gnYY_jgi^g! ]k iaVj`! h ig cjhV[V d\ h ig cjW g`# I^a VÂ ideeV bVg^cZg^c\jcV cdijb k^Â [Zgh`Vc X]^a^e^eVg d\ \djgbZi da j#
CZl DgaZVch 77F hk cVg^[ Zgj [dgZaYj d\ i^aW ^c WZ^ci { \g^aa^Â# ÃVg[ VÂZ^ch g ii V ]^iV \Z\c
HeZccVcY^ cÅ_jc\Vg 7Zg_VWdbWV
EdgidWZaadhkZee^g
:ea^
@ `dhWdaajg
bV``Vg cjb d\ h ``jaVÂ^
b$[naa^c\j
b$`Vc^a d\ g h cjb
b$[Zgh`jb {k mijb
HkVgi^g i bViVg
beint á grillið
OjXX]^c^
:\\VaY^c
HiZ^chZa_jg i
I bViVg
BV h
@VhiVc jhkZee^g
[naai^g bZÂ \g{Âdhi^
GVb^gd eVeg^`V <g^aa^Â ("+ b c# ]Z^aj aV\^! a{i^Â hiVcYV & b c# d\ ]ÅÂ^Â iZ`^Â V[#
H`Zg^Â i^a ]Zab^c\V# EZcha^Â bZÂ da j d\ `gnYY^Â bZÂ WVh^a! ]k iaVj`! i^b^Vc! hVai^ d\ e^eVg# <g^aa^Â k^Â b^`^cc ]^iV &"' b c# { ]kdgg^ ]a^Â#
H¨iVg `Vgi [ajg
=k iaVj`jg
H`Zg^ `Vgi [ajgcVg h` [jg d\ eZcha^ bZ da j# @gnYY^ bZ ]k iaVj`! i^b_Vc d\ hVai^# <g^aa^ ÄVg i^a Ĩg Zgj ZaYVÂVg \Z\c#
<^aY^g { bZÂVc W^g\Â^g ZcYVhi#
EZcha^Â bZÂ da j! `gnYY^Â bZÂ i^b^Vc! hVai^ d\ e^eVg# EV``^Â ^cc {aeVee g d\ \g^aa^Â { b^aa^]Z^ij \g^aa^ (% b c#! hc ^Â Âgj ]kZg_j#
IV`^Â ]ÅÂ^Â V[ bV hcjb d\ hZi_^Â ]Vcc {aeVee g {hVbi hVai^ d\ hb_ g`a ej# <g^aa^Â -"&% b c ijg#
GVÂ^Â jee { \g^aaiZ^c d\ eZcha ^Â bZÂ da j# @gnYY^Â bZÂ hVak j! hVai^ d\ e^eVg# <g^aa^Â k^Â b^`^cc ]^iV (") b c#
HVaViaVj`jg
HiZ^chZa_jg i
b^hi h`dg^cc hcZ^ÂVg d\ eZchaVÂjg bZÂ da j d\ \g^aaVÂjg! ZÂV h`dg^cc hi gV W^iV d\ hZiijg { \g^aae^ccV#
b^hi W `j {aeVee g a `i d\ `Vgi [ajg ZÂV h`dg^c hcZ^ÂVg d\ hZii { \g^aae^ccV#
4
Matgoggurinn
Leikvöllur á vegum Gufunesbæjar við Fróðengi í allt sumar! Starfsemin miðast við að börn á aldrinum 2 - 6 ára geti leikið sér í þroskavænlegum útileikjum í öruggu umhverfi. Leikvöllurinn verður opinn alla virka daga í sumar frá 11. júní - 17. ágúst frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:0016:30. Skráning fer fram við fyrstu heimsókn. Hver heimsókn kostar 100 kr. Nánari upplýsingar er að að finna i sumarbæklingi ÍTR og á heimasíðu Gufunesbæjar, www.gufunes.is
GV Ritstjórn og auglýsingar 587-9500
GV
Ítalskur hálfmáni og ýsa í súrsætri sósu - að hætti Grafarvogsblaðsins Enn halupum við á Grafarvogsblaðinu í skarðið fyrir Hildi Árnadóttur og Ragnar Guðgeirsson. Þau áttu að færa okkur uppskriftir í síðasta blaði en voru þá stöd erlendis og voru það enn þegar kom að útgafu þessa blaðs. Góð ráð voru dýr en við fundumi f´rum okkar góðar uppskriftir af ítölskum hálfmána og ýsu í súrsætri sósu. Rétt er að benda áhugasömum kokkum ´aað betra er
Kíkið á brúðargreiðslur á vefsíðu okkar Stubbalubbar.is Bjóðum einnig upp á förðun. Kveðja, Helena Hólm, Hanna, Helena E., Oddný og Sirrý.
Hárgreiðslustofa Helenu - stubbalubbar - Barðastöðum 1-3 Sími 586 1717 - stubbalubbar.is Opnunartími: mán-mið 10-18, fim 10-19 föst 10-18 laugard 10-16
að hafa sófann innan seilingar þegr ítalski hálfmáninn er tekinn til kostanna enda um afar góðan rétt að ræða.
Ítalskur hálfmáni
fengið fallegan brúnan lit.
Ýsa í súrsætrisósu 700 - 800 gr. ýsuflök, roðflett og beinhreinsuð. Olía eftir þörfum.
Deig 1 bréf þurrger. 3 msk. olía. 2 tsk. salt. 3 1/2 dl vatn (volgt). 600 gr. hveiti.
Orlydeig 1 egg. 3 msk. kartöflumjöl. 5 msk. hveiti. Vatn. Allt sett í skál og hrært vel saman með pískara. Deigið á að vera
Hildur og Ragnar næstu matgoggar Hildur Árnadóttir og Ragnar Guðgeirsson, Funafold 87, verða með uppskriftir í næsta blaði. Þau áttu að vera í þessu blaði en voru stödd erlendis. Við hlupum í skarðið en birtum frá þeim girnilegar uppskriftir í næsta Grafarvogsblaði sem kemur út fimmtudaginn 5. júlí.
Fylling 1 dós hunts diced tomatoes (má í raun vera hvaða hunts sósa sem er) fer eftir smekk hvers og eins. Skinka. Sveppir. Ostur (rifinn gouda ostur 26%). Gráðostur. 1 egg til penslunar (pískað með gaffli). Byrjið á því að leysa gerið upp í volgu vatni. Bætið út í olíu, salti og hveiti og hnoðið vel. Látið hefast á hlýjum stað í um það bil 30 mínútur. Skiptið deiginu í fjóra jafnstóra parta og fletjið út hvern bita fyrir sig í hring. Setjið fyllingu á helming bökunnar. Fyrst sósu, síðan skinku, sveppi, gráðost og að lokum rifna ostinn. Breiðið síðan hinn helminginn yfir og myndið hálfmána. Penslið með eggi yfir brúnirnar og þrýstið saman með gaffli. Að lokum er penslað yfir alla bökuna. Bakið við 220 gráðu hita í 15 - 20 mínútur eða þar til bökurnar hafa
eins og súrmjólk að þykkt. Skerið ýsuflökin í litla bita um það bil 4 cm og setjið í orlydeigið. Blandið vel saman. Djúpsteikið ýsuna í mjög heitri olíu á wok pönnu. Súrsæt sósa 8 msk. sykur. 6-8 msk. edik. 2 tsk. kartöflumjöl. 8 msk. tómatsósa. 8 msk. vatn. 2 msk. soyasósa. 1 tsk. salt. Öllu skellt í pott og hitað saman. 1 laukur. 1 paprika. 1/4 dós ananas. Byrjað er á að krauma lauk og paprika á pönnu þar til meyrt. Síðan er því bætt út í sósuna. Að lokum er ananasinn sigtaður frá safanum og sett út í sósuna. hitað áfram örskamma stund. Borið fram með hrísgrjónum og snittubrauði.
6
GV
Fréttir
Vorhátíð í Húsaskóla
Í dag var haldin Vorhátíð Húsaskóla í Grafarvogi. Þrátt fyrir að veðurguðir hafi ekki verið hátíðarhöldurum hliðhollir var mæting afargóð og skemmtu allir sér lista vel. Innandyra sýndu nemendur afrakstur vetrarins ásamt því að skemmta á sal með hlóðfæraleik, leikþáttum, stuttmyndum og ýmsum öðrum atriðum sem þeir hafa samið og æft í vetur. Utandyra var hoppað og skoppað í þartilgerðum leikföngum. Boðið var upp á pylsur og svala, kaffi og kökur. Meðfylgjandi á síðunni eru myndir frá Vorhátíð Húsaskóla 2007. Fh. vorhátíðarnefndar Regína og Pálína
Fjölmenni mætti á Vorhátíðina í Húsaskóla. Veðrið var ekki sem best en allir skemmtu sér þó vel.
Listaverk með Noreg í aðalhlutverki.
Listverk nemenda voru mörg og margvísleg.
Útibú Kaupflings í Grafarvogi er á sínum sta› og flar veitum vi› flér og flinni fjölskyldu alla flá fjármálafljónustu sem flörf er á.
ur me› happk k o já h i› v u d m Ko inn - hver veit fl n n a i› m is tt ræ d n á veglegum o v ir ig e ú fl a m e n vinningi!
8
GV
Fréttir
Helgi G. Björnsson, útibússtjóri Kaupþings í Grafarvogi.
GV-mynd PS
Uppbygging KaupÞetta er gjöfin fyrir vandlátu þings í Grafarvogi veiðimennina!
Grafarvogsblaðið hitti Helga G. Björnsson útibússtjóra Kaupþings í Grafarvogi nýlega og ræddi við hann um uppbyggingu Kaupþings í Grafarvogi o.fl. ,,Já, það er rétt, í undirbúningi hjá okkur eru veigamiklar breytingar á útibúinu í Grafarvogi og eru þær hluti af metnaðarfullri uppbyggingu útibúana sem koma til með að gera okkur kleyft að veita enn frekari og betri þjónustu á öllum sviðum fjármála, fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Í dag bjóðum við upp á alla almenna fjármálaþjónustu í Grafarvogi. Við erum einnig að skoða frekari útvíkkun á starfsemi útibússins okkar. - Nú er Landsbankinn fluttur úr Grafarvoginum. Finnið þið fyrir þeirri breytingu? ,,Já, Landsbankinn flutti starfsemi sína úr Grafarvoginum fyrir u.þ.b. 3 vikum. Því er ekki að leyna að við finnum fyrir aukinni eftir-
spurn eftir bankaviðskiptum þessu samfara og munum taka vel á móti öllum sem til okkar leita. Starfsfólkið hér býr yfir afburða fjármálaþekkingu, og þekkingu á vörum bankans og er tilbúið að veita góða ráðgjöf. Útibúið í Grafarvogi var einn af frumbyggjum þessa hverfis og fagnar 20 ára starfsafmæli á næsta ári. Við munum blása til veglegrar afmælishátíðar vegna þeirra tímamóta. Útibúið hefur vaxið og dafnað með aukinni byggð í Grafarvogi. Þótt byggðin hafi sannanlega vaxið meira til norðurs og austurs frá þeim tíma þá lít ég svo á að staðsetning okkar og hlutverk sé mikilvæg, í kjarna rótgróins hverfis með góðu aðgengi að banka. Hugur okkar stendur til þess að styrkja okkur enn frekar í Grafarvogi til hagsbóta fyrir Grafarvogsbúa. ’’ - Hvernig leggst svo sumarið í
þig? ,,Það fer nú kannski eftir því hvenær maður er spurður. Nú er veðrið gott og maður fyllist gleði og þrótti, en það getur nú dregið úr spenningnum þegar norðanáttin kemur með nepju og kulda. En ég er nú frekar heimakær með fjölskyldunni, en sleppi þó ekki úr ferðum mínum vestur í Dali, en þar á fjölskyldan jörð þar sem við stundum skógrækt. Og það vill svo vel til að það virðist vera nokkur vakning í bankanum vegna skógræktar. Við erum öflugustu bakhjarlar Kolviðar.is, sem er afkolunarsjóður. Og á dögunum gaf bankinn öllum starfsmönnum bakka með 67 birkiplöntum. Umhverfismálin eru í brennidepli og maður reynir að leggja sitt af mörkum, þótt í smáu sé. Nú svo skreppur maður einn og einn hring í golfi með félögunum og þetta er nú það helsta,’’ sagði Helgi G. Björnsson.
Suðurlandsbraut 4. 1 08 Reykjavík.
Glæsileg flugubox úr Mangóviði Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Langmesta úrval landsins af íslenskum laxa- og silungaflugum
Kíktu á www.Krafla.is
Sími 533 1115 og 893 7654.
Allt í veiðina f yrir konur og karla. Fluguveiðiskóli Veiðihallarinnar og Íslensku fluguveiðiþjónustunnar. www.veidihollin.is veidihollin @veidihollin.is veidihollin @simnet.is .
10
GV
Fréttir
Aðkoman að þjónustumiðstöðinni í Spöng verður glæsileg sem og byggingin sjálf.
Ný þjónustumiðstöð rís í Spönginni í Grafarvogi
Við Spöngina í Grafarvogi er Reykjavíkurborg að hanna nýtt þjónustuhús á tveimur hæðum með
möguleikum á fjölbreyttri menningartengdri afþreyingu.
Ævintýranámskeið Gufunesbæjar fyrir 8 - 9 ára börn (fædd 1997 - 1998) í allt sumar! Spennandi þematengd námskeið þar sem börnin taka þátt í að skipuleggja dagskrána og fá útrás fyrir ævintýraþrána. Meðal viðfangsefna eru sundferðir, siglingar, leikir, bæjarferðir og fleira. Skráning á námskeiðin er á rafrænu formi á vefslóðinni www.reykjavik.is Námskeiðin verða sem hér segir: Hvergiland við Borgaskóla 11. júní - 6. júlí Tígrisbær við Rimaskóla 9. júlí - 27. júlí Regnbogaland við Foldaskóla 30. júlí - 17. ágúst Nánari upplýsingar er að að finna í sumarbæklingi ÍTR og á heimasíðu Gufunesbæjar, www.gufunes.is
Í þjónustuhúsinu er gert ráð fyrir aðkomu í gegnum opið miðrými, þar sem verður móttaka með upplýsingaþjónustu fyrir hverfið. Út frá því, í sama rými verður kaffihús og matsalur. Borgarbókasafnið verður í húsinu en auk þess verður þar kirkjusel, fjölnotasalur fyrir tónleika, sýningar, fyrirlestra og fleira. Þá verða á hæðinni fundasalir, tómstundaaðstaða og aðstaða lögreglunnar vegna hverfislöggæslu svo dæmi sé tekið. Á efri hæð verður Miðgarður með aðstöðu fyrir þjónustustarfsemi. Þar verður einnig dagdeild fyrir minnissjúka, stjórnstöð heimaþjónustu, sjúkraböð, sjúkraþjálfun og aðstaða fyrir hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofu. Í kjallara verður aðstaða fyrir föndurstarf, ásamt verkstæði, búningsaðstaða fyrir starfsfólk hússins, geymslur, aðstaða húsvarðar auk bíl-
akjallara.
Lýsing á byggingu Aðkoma að þjónustuhúsi og bílakjallara verður frá Spönginni. Byggingin verður tvær hæðir að hluta til, en annars ein hæð og bílakjallari. Þak verður að mestu flatt, en rísandi yfir miðrými. Byggingin er felld inn í landslagið og hluti 1. hæðar er niðurgrafinn, ásamt garði í suðurátt. Vegna legu landsins svarar önnur hæð þjónustuhúss til fyrstu hæðar þjónustuíbúða. Tenging um glerbrú verður milli þessara tveggja bygginga.
Þjónustuíbúðir fyrir aldraða Bygging öryggis- og þjónustuíbúða verður á austurhluta lóðar með aðkomu þaðan, þ.e. frá Fróðengi. Byggingin stallast á nokkra vegu, frá einni hæð og upp í fjórar að hluta til. Þakgarðar, með aðgengi frá sameign. Aðgengi að íbúðum verður í gegnum
glerganga á austurhlið og á neðstu hæð myndar glergangurinn innigötu sem liggur yfir í þjónustuhús. Það er sjálfseignarstofnunin Eir stendur að uppbyggingu íbúðanna sem mun selja búseturétt þar auk þess sem þar verða nokkrar leiguíbúðir. Þjónustumiðstöðin er enn ekki fullmótuð en hugmyndin er að geta boðið félagasamtökum að nýta aðstöðu í húsinu m.a. til fundarhalda. Það er von stýrihóps um búsetu og uppbyggingu fyrir aldraða að uppbyggingunni verði vel tekið og að sem flestir nýti sér þá miklu möguleika sem húsið hefur uppá að bjóða fyrir hverfið. Þriðjudaginn 12. júní n.k. kl. 17:30 mun Hverfisráð Grafarvogs standa að kynningu á fyrirhugaðri uppbyggingu í samvinnu við stýrihóp um búsetu á uppbyggingu fyrir aldraðra. Kynningin verður að Korpúlfsstöðum.
Grafarvogsblaðið Sími - 587-9500
Velkomin í nýtt og glæsilegt
útibú í Grafarholti Við bjóðum upp á alhliða fjármálaþjónustu sem er sniðin að þínum þörfum.
ÍSLENSKA SIA.IS LBI 37452 06.2007
Við rekum öfluga einstaklingsþjónustu þar sem viðskiptavinir okkar geta haft öll sín fjármál á einum stað, hvort sem þau snúa að útlánum, sparnaði eða annarri þjónustu bankans. Fyrirtækjaþjónustan okkar hefur verið efld til muna. Markmið okkar er að veita fyrirtækjum framúrskarandi þjónustu með áherslu á stuttan svartíma og persónulega þjónustu.
Við bjóðum viðskiptavini okkar hjartanlega velkomna.
Viljir þú bóka fund varðandi fjármál þín skaltu hafa samband í síma 410 4114 eða tölvupóstfang 0114@landsbanki.is
17
12
GV
Fréttir
Ásta Sigrún Friðriksdóttir, 19 ára varnarmaður.
Birna Sif Kristinsdóttir, 16 ára framherji.
Carolyn A. Warhaftig, 23 ára, miðjumaður.
Edda María Birgisdóttir, 18 ára, miðjumaður.
Elín Heiður Gunnarsdóttir, 26 ára, miðjumaður.
Elísa Ósk Viðarsdóttir, 21 árs, framherji.
Erna Björk Þorsteinsdóttir, 17 ára, varnarmaður.
Fanný Ragna Gröndal, 16 ára, miðjumaður.
Guðný Jónsdóttir, 26 ára, miðjumaður.
Helga Franklínsdóttir, 19 ára, miðjumaður.
Hrafnhildur Eymundsdóttir, 25 ára, varnarmaður.
Hrefna Lára Sigurðardóttir, 20 ára, varnarmaður.
GV
Fréttir
,,Hver leikur skiptir miklu máli og við þurfum að mæta í hvern leik með það að leiðarljósi að lágmarka veiku þættina og hámarka okkar sterku hliðar. Taka síðan sénsa gegn þeim liðum sem við teljum að við getum tekið sénsana á móti. Á þessu verða menn að hafa skilning og það er einmitt þannig sem við tökum inn þessi stig okkar,’’ segir Andrés Ellert Ólafsson, þjálfari kvennaliðs Fjölnis. GV-mynd PS
Andrés Ellert Ólafsson þjálfari kvennaliðs Fjölnis í knattspyrnu: Íris Ósk Valmundardóttir, 15 ára, framherji.
Sigrún Eva Jónsdóttir, 15 ára, miðjumaður.
Jóhanna G. Jóhannesdóttir, 19 ára, miðjumaður.
Sonný Lára Þráinsdóttir, 20 ára, markvörður.
Katrín Elfa Arnardóttir, 16 ára, varnarmaður.
Sunnefa Hamar Penning, 15 ára, framherji.
Kristrún Kristjánsdóttir, 18 ára, miðjumaður.
Meagan DeWan, 23 ára, framherji.
Rúna Sif Stefánsdóttir, 18 ára, miðjumaður.
Tinna Þorsteinsdóttir, 19 ára, varnarmaður.
Fjölnir 2007
Andrés Ellert Ólafsson, þjálfari.
- kvennalið Fjölnis í knattspyrnunni er gríðarlega efnilegt framtíðarlið Hér á þessari síðu kynnum við þá leikmenn sem leika með meistaraflokksliði Fjölnis í knattspyrnu kvenna í sumar. Lið Fjölnis vann sig upp í Landsbankadeildina í fyrra og er því nýliði í deildinni.
Þrátt fyrir það hefur liðið staðið sig mjög vel það sem af er Íslandsmótinu í kvennaknattsprnunni. Er skemmst að minnast mjög góðrar frammistöðu liðsins gegn KR á dögunum en þar tapaði Fjölnisliðið leiknum á marki
sem KR-stúlkur skoruðu þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma. Frammistaða Fjölnis-stúlkna í þessum leik sýndi að liðið getur velgt bestu liðum landsins undir uggum og vel það. Stúlkurnar í Fjölnisliðinu eru mjög ung-
ar en að sama skapi efnilegar. Þjálfun liðsins er í öruggum höndum Andrésar Ellerts Ólafssonar, sem hefur verið viðloðandi kvennaknattspurnu síðan seint á síðustu öld. Hann er sprenglærður þjálfari og er greinilega á
réttri leið með Fjölnisliðið. Vonandi halda stelpurnar áfram að standa sig vel. Takmarkið hjá liðinu er að halda sæti sínu í Landsbankadeildinni og leika áfram á meðal þeirra bestu. Vonandi næst þetta takmark og ekki væri
verra ef einhverjir Grafarvogsbúar treystu sér til þess að mæta á leiki liðsins og hvetja stelpurnar í þeim miklu baráttuleikjum sem framundan eru í sumar.
Stelpurnar þurfa hvatningu Ekki er annað hægt að segja en að kvennalið okkar Grafarvogsbúa í knattspyrnunni fari vel af stað í Landsbankadeildinni á þessari leiktíð. Byrjunin er góð en mikið er enn eftir af mótinu og mikið vatn á eftir að renna til sjávar áður en yfir lýkur í haust. Þegar vel gengur ber auðvitað að fagna og liðið þó ungt sé hefur sýnt að það getur á góðum degi velgt sterkum liðum undir uggum. Þegar þessi orð eru skrifuð er liðið í fjórða sæti deildarinnar og með sama dugnaði geta góðir hlutir gerst í sumar. Í liðinu eru margar mjög efnilegar stelpur sem eru tilbúnir að leggja hart að sér til að ná árangri. Þjálfari liðsins er Andrés Ellert Ólafsson sem hefur starfað lengi innan kvennaknattspyrnunnar í Grafarvogi. Andrés segist hafa efnilegt lið í höndunum en stlepurnar þurfa mikla hvatningu til að standast sterkum liðum í deildinni snúning. Andrés Ellert hefur yfir töluverðri reynslu að ráða í knattspyrnuþjálfun. Hann hefur lokið öllum þjálfarstigum hjá KSí auk UEFA a-gráðu sem hann lauk eigi alls fyrir löngu. Andrés Ellert er kennaramenntaður og er núna í mastersnámi við Kennaraháskóla Íslands. Hann kom til starfa í kvennaknattspyrnunni í Fjölni í kringum 1989 eða tveimur árum eftir stofnun félagsins og starfaði í samfleytt 10 ár. Eftir það þjálfaði hann hjá Val um hríð og tók síðan við þjálfun Grindvíkinga í kvennaboltanum 2000-2001. Eftir það hefur hann starfað hjá Fjölni. ,,Það býr heilmargt í þessu liði en árangurinn byggist upp á markvissu skipulagi, leikfræðinni og öguðum leikmönnum. Liðið er ungt að árum og vandamálið í byrjun var hvað leik-
mennirnir voru viltir. Það tók því svolítinn tíma að aga þá til. Til þessa hefur svo sem ekkert komið mér á óvart. Þegar að við höfum alla okkar leikmenn til staðar getum við svo sannarlega bytið frá okkur. Landsbankadeildin er mjög skipt en það vita það svo sem allir sem þekkja til deildarinnar að Valur og KR hafa á að skipa yfirburðarliðum. Við sem nýliðar í deildinni stóðum heldur betur í KR-ingum á dögunum og var sárgrætilegt að tapa leiknum í uppbótartíma. Þar áttu flestir von á yfirburðarsigri KR-inga en annað koma á daginn. Í þessum leik gerðu stelpurnar sér grein fyrir að þetta væri hægt með baráttunni og skynsömum leik. Þetta krefst þess ennfremur að leikmenn séu mjög agaðir í sínum aðgerðum og séu ekki að hlaupa fram úr sér,’’ sagði Andrés Ellert. Andrés Ellert segir að nokkrar stelpur í hópnum í dag séu búnar leika í mörg ár saman og nefndi hann í því sambandi Elín Heiði, Hrafnhildi og Gyðnýju. Þær væru í raun búnar að leika með félaginu í gegnum súrt og sætt eins og þjálfarinn komst að orði. Merki um eljusemi sagði Andrés Ellert að Elín Heiða Gunnarsdóttir hefði átt barn í janúar. Hún hefði byrjað í göngutúrum í lok janúar og síðan í skokki og alltaf haft það að markmiði að komast inn í þetta á ný og leika með liðinu í sumar. Þau óform hefðu gengið eftir sem væri í raun stórkostlegt. Það koma síðan inn í liðið margar mjög efnilegar stelpur sem sett hafa mjög sterkan svip á liðið. - Hvernig sérðu sumarið ganga fyrir sig. Varla er hægt að dæma liðið strax? ,,Það fer algjörlega eftir okkur sjálf-
um hvernig liðinu reiðir af í sumar, stemmingunni og umgjörðinni í kringum liðið. Hópurinn er viðkvæmur varðandi umtal og gagngrýni og af þeim sökum þarf hópurinn mikla hvatningu. Hópurinn getur vissulega margt með góðum meðbyr og hafa réttu úræðin í hverjum leik. Hver leikur er ný áskorun sem býður upp á ný tækifæri og nýjar hættur. Það eru margir ungir leikmenn sem eiga eftir að skólast í þessu sem öðru. Við eigum að geta tekið stig af nokkrum liðum og með smáheppni hefðum við getað náð fleiri stigum úr viðureignunum gegn KR og Fylki. Það er ekki á allt kosið í þessum efnum enda er hver leikur upp á líf og dauða fyrir okkur.’’ - Þú sagðir að deildin væri nokkuð skipt. Finnst þér það standa deildinni fyrir þrifum? ,,Nei, það finnst mér ekki. Vandamálið með kvennaknattspyrnuna á Íslandi er að það á að vera búið að fjölga liðum í úrvalsdeildinni fyrir löngu. Umræðan í mörg ár er að það ætti að fjölga þeim í tíu og svo hefði verið hægt að skipta henni upp eftir ákveðnar umferðir í úrslitakeppni efri og neðri parts deildarinnar. Þetta fyrirkomulag hefði gefið félögunum meira svigrúm til þess að að vera með leikmenn og um leið hefðu þeir haft meiri þolinmæði til að vera í sínum félögum. Um leið og komið hefur fram frambærilegur leikmaður þá hafa í gegnum tíðina Valur, KR og Breiðablik verið komin. Það hefur oft verið meira spenanndi að fara þangað en að standa í baslinu og uppbyggingunni því það eru alltaf gríðarleg afföll í kvennaboltanum. Það hefur alltaf verið til hópur sem telur best að
fækka liðum niður í sex í deildinni en það tel ég ekki vænlegan kost. Þá spyr ég, hvernig á lið sem kemur upp í þannig deild að fóta sig þar,’’ sagði Andrés Ellert. - Hvernig sérðu framtíðina í kvennaknattspyrnunni hjá Fjölni? ,,Yngri flokkarnir margir hverjir eru stórir og öflugir. Auðvitað má samt taka sig á og gera betur í vissum þáttum en félög þurfa samt alltaf að vera í stöðugri naflaskoðun og skoða hlutina með gagnrýnisröddum. Menn mega alls ekki gleyma sér þegar vel gengur, heldur einmitt þá að setjast niður, spá í það hvort hægt sé að gera betur. Ef rétt verður á spilum haldið þá get ég ekki annað séð en að framtíðin sé björt.’’ - Markmið ykkar í sumar hlýtur samt að vera að halda sæti ykkar í Landsbankadeildinni? ,,Hver leikur skiptir miklu máli og við þurfum að mæta í hvern leik með það að leiðarljósi að lágmarka veiku þættina og hámarka okkar sterku hliðar. Taka síðan sénsa gegn þeim liðum sem við teljum að við getum tekið sénsana á móti. Á þessu verða menn að hafa skilning og það er einmitt þannig sem við tökum inn þessi stig okkar. Eflaust eigum við eftir að fá einhverja skelli en það er bara ákveðið þroskaferli sem liðið þarf að ganga í gegn um eins og mörg önnur lið þurfa að gera. Valur er með yfirburðarlið og svo virðist manni KR-ingar ekki hafa þetta yfirburðarlið sem talið var í upphafi. Þarna eiga eftir að koma jöfn lið á borð við Breiðablik, Stjarnan, Keflavík og önnur lið koma á eftir í einum hnapp. Flest liðin hafa verið að styrkja sig
með innlendum og erlendum leikmönnum. Það kemur ekkert annað til greina en að Valur vinni deildina og bikarinn einnig. Ég sé bara ekkert lið stoppa Valsmenn. Markmið Fjölnisliðsins verður á hinn bóginn að halda okkar sæti í deildinni og treysta okkur í sessi í Landsbankadeildinni,’’ sagði Andrés Ellert. -Nú ert þú búinn að starfa lengi innan félagsins. Finnst þér vera í gangi vakning fyrir kvennaboltanum? ,,Það hefur átt sér stað viss breyting og það stendur kynjunum jafnt til boða að æfa knattspyrnu. Þjálfunin hefur batnað mikið í gegnum árin. Mér finnst þetta samt mest snúa að heimilunum. Stelpurnar eru með minni hvatningu að heiman heldur en strákarnir í sambandi við fótboltann. Oft á tíðum er það einhver langþráður draumur foreldra að þeir séu að verða atvinnumenn í þeim dúrnum og þetta sé meira tómstundagaman hjá stelpunum. Stelpurnar þurfa einfaldlega meiri hvatningu að heiman. Það er ekkert hægt að setja út á umgjörðina hjá félaginu og hún er í raun til fyrirmyndar en liðið þarf hvatningu. Markmið nýliða í deildinni hlýtur að vera sú að halda sætinu og það finnst mér skipta mestu máli fyrir félagið. Það þarf að byggja upp sterkan grunn, hlúa vel að leikmönnum þannig að ekki sé alltaf verið að færast aftur á byrjunarpunkt með nýjan leikmannahóp á hverju hausti,’’ sagði Andrés Ellert Ólafsson, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Fjölni, í spjallinu við Grafarvogsblaðið.
14
GV
Fréttir
Ábending frá lögreglunni til foreldra og forráðamanna barna! FF klúbbur Gufunesbæjar fyrir 10 - 12 ára krakka (fædda ´94,´95 og´96) hefst 11. júní! Fjör, hreyfing og útivera fyrir hressa krakka sem vilja fá útrás fyrir orkuna í stuttum og löngum gönguferðum, hjólaferðum, sundi, sulli, klifri og flakki. Námskeiðin verða í Foldaskóla 11. júní - 22. júní og í Borgaskóla 25. júní - 6. júlí. Skráning á námskeiðin er á rafrænu formi á vefslóðinni www.reykjavik.is. Nánari upplýsingar er að að finna í sumarbæklingi ÍTR og á heimasíðu Gufunesbæjar, www.gufunes.is
70%
Nú þegar vora tekur fjölgar reiðhjólum á götum borgarinnar og um leið slysum á reiðhjólafólki. Töluverð brögð hafa verið að því að börn í Grafarvogi, sem víðar um borgina, hafi verið hjálmlaus á ferð á hjólum sínum og því þarf að
breyta. Á hverju ári bjarga hjálmar börnum frá dauða eða alvarlegum slysum og því viljum við á lögreglustöðinni í Grafarvogi hvetja foreldra og forráðamenn til að sjá til þess að börn séu ekki hjálmlaus á ferð á reiðhjólum.
Við viljum um leið hvetja foreldra til að sýna fordæmi og setja upp hjálma, því börn læra það sem fyrir þeim er haft. Kveðja, Einar Ásbjörnsson og Ásdís Haraldsdóttir
Áhyggjur af vélknúnum hjólum Og hér er ábending frá lesanda Grafarvogsblaðsins sem okkur barst ásamt beiðni um birtingu: ,,Mig langar að nota tækifærið
og koma á framfæri miklum áhyggjum af akstri vélknúinna ökutækja á göngustígunum í dalnum, sérstaklega mótorhjóla. Ég bý
við stíginn við íþróttasvæði Fjölnis og hef ég miklar áhyggjur af því að það eigi eftir að verða alvarleg slys vegna þessa aksturs.’’
Frá Heilsugæslustöðinni Grafarvogi Síðdegisvaktin í sumar
íbúa í Grafarvogi lesa
Því miður verðum við að fella niður síðdegisvaktina kl 16-18 á
Grafarvogsblaðið
Heilsugæslustöðinni í Grafarvogi alla miðvikudaga fimmtudaga
Mest lesni fjölmiðillinn í Grafarvogi Besta auglýsingaverðið og frábær árangur
587-9500
og föstudaga á tímabilinu 27 júní til og með 17 ágúst vegna sumarleyfa. Síðdegisvaktin verður hins vegar opin óbreytt mánudaga og þriðjudaga. Þeir sem þurfa á þjónustu að halda ofangreindan tíma er bent á Læknavaktina á Smáratorgi sem er sameiginleg vaktþjónusta heimilis og heilsugæslulækna alls höfuðborgarsvæðisins eftir kl 1700 alla virka daga svo og allan daginn um helgar og hátíðisdaga.
Vinsamlegast geymið auglýsinguna
16
GV
Fréttir
Ungmennaráð funda með Borgarstjórn Ungmennaráð Grafarvogs og Kjalarness hefur verið starfandi síðan í haust en þar sitja nemendur frá flestum grunn- og framhaldsskólum hverfisins á aldrinum 13 - 18 ára. Einnig sitja í ráðinu þrír nemar úr Verslunarskóla Íslands en þeir eru allir búsettir í Grafarvogi. Ráðið hefur það að markmiði að koma skoðunum ungs fólks á framfæri í Reykvísku samfélagi. Í janúar var ráðinu, sem haldið er til haga af starfsfólki Gufunesbæjar boðið á fund með pólítískt skipuðu hverfisráði Grafarvogs. Formaður ráðsins, Ragnar Sær Ragnarsson, bauð ungmennunum upp á léttar veitingar og ræddar voru skoðanir þeirra á málefnum líðandi stundar. Krakkarnir stóðu sig eins og hetjur á fundinum og eiga mikið hrós skilið. Þann 24. apríl síðastliðinn átti Reykjavíkurráð ungmenna glæsilegan fund með Borgarstjóra og borgar-
fulltrúum á opnum borgarstjórnarfundi í Ráðhúsinu. Þar kynntu ungmennin tillögur sínar fyrir borgarstjórn. Fulltrúi ungmennaráðs Grafarvogs og Kjalarness, Þuríður Davíðsdóttir flutti tvö erindi á fundinum. Annars vegar tillögu um aukna þjónustu á Kjalarnesi og hinsvegar tillögu um byggingu frístundahúss í Gufunesbæ. Þuríður stóð sig með mikilli prýði líkt og aðrir fulltrúar Reykjavíkurráðs og sýndu þessi ungmenni hvað raddir þeirra eru mikilvægar. Borgarsstjóri og borgarfulltrúar veittu þeim mikið lof fyrir fagmennsku og málefnalegar tillögur og töluðu margir hverjir um að þetta væri líklega skemmtilegasti og jákvæðasti borgarstjórnarfundur sem þau hefðu setið. Sannarlega frábært framtak hjá unga fólkinu okkar. Harpa Stefánsdóttir og Magnús Guðmundson Frístundaráðgjafar í Gufunesbæ
Þuríður Davíðsdóttir og Vilhjálmur Vilhjálmsson borgarstjóri.
Allir starfsmenn Grafarvogsbúar Grafar-
vogsblaðið
- segir Arnbjörg Gylfadóttir Blöndal, þjónustustjóri Spron í Spönginni
Útibúi Spron í Spönginni var opnað 15. janúar 1999 og varð því átta ára í janúar s.l. Afgreiðslan er staðsett í Spönginni stærsta verslunarkjarna Grafarvogs. ,,Útibúið hefur vaxið og dafnað jafnt og þétt frá opnun þess og er ört vaxandi. Spron Spönginni veitir alla alhliða bankaþjónustu hvort heldur sem er fyrir fyrirtæki eða einstaklinga og er þekkt fyrir persónulega og góða þjónustu og hefur Spron
fengið viðurkenningu fyrir að eiga ánægðustu viðskiptavinina undanfarin 7 ár. Ásamt því að fá viðurkenningu jafnréttisráðs fyrir síðasta ár,’’ sagði Arnbjörg Gylfadóttir Blöndal, þjónustustjóri Spron í Spönginni í samtali við Grafarvogsblaðið. ,,Það starfa fimm starfsmenn við afgreiðsluna sem allir hafa mikla reynslu af bankastörfum, allir starfsmenn hjá okkur eru Grafarvogsbúar enda Spron í Spönginni
banki Grafarvogsbúa. Stefna Spron er að sinna sínum viðskiptavinum sem allra best og er opnunartíminn einn liður í þeim þætti en útibúið er opið frá klukkan 10 á morgnana til klukkan 18:00 og hentar það Grafarvogsbúum vel þar sem margir starfa utan Grafarvogs og eiga því kost á að koma við í bankanum sínum á leiðinni heim úr vinnu. SPRON er 75 ára á árinu og verður afmælisins minnst með margvísleg-
um hætti og hófst með því að öllum var boðið í kaffi og afmælisköku þann 7. maí síðastliðinn. Margt er á döfinni hjá okkur og er Esjudagurinn okkar sem allir þekkja næstur á dagskrá og verðu hann 23. júní næstkomandi sannkallaður fjölskyldudagur þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi,’’ sagði Arnbjörg Gylfadóttir Blöndal.
Auglýsingar sem skila miklum árangri Sími: 587-9500 Arnbjörg Gylfadóttir Blöndal, þjónustustjóri Spron í Spönginni.
GV-mynd PS
GÓÐIR GLITNIS PUNKTAR
DÆMI UM GLITNISPUNKTASÖFNUN
H V Í TA H Ú S I Ð / S Í A 8 1 3 1
Viðskiptavinur með 300.000 kr. kreditkortanotkun á mánuði, í Platínum og Eignastýringu, með bílalán, viðbótarlífeyrissparnað og tryggingar hjá Sjóvá, safnar um 70.000 punktum á ári.
SKRÁÐU ÞIG NÚNA!
NÝJUNG Í BANKAVIÐSKIPTUM Vildarklúbbur Glitnis er nýtt tryggðarkerfi fyrir viðskiptavini í Vildarþjónustu Glitnis.* Meðlimir safna verðmætum Glitnispunktum fyrir það eitt að vera í viðskiptum við Glitni og samstarfsaðila.
Vildarklúbbur Glitnis margborgar sig ... punktur! * Viðskiptavinir í Vild, Gullvild, Platínum og Námsvild.
Þeir sem skrá sig fyrir 17. júní fá 10.000 Glitnispunkta strax!
Kynntu þér málið á www.glitnir.is, í næsta útibúi eða hjá Þjónustuveri í síma 440 4000.
18
GV
Fréttir
Norðurá í Borgarfirði opnuð af stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur - betri opnun en tvö undan gengin sumur - fimm laxar á land fyrsta veiðidaginn:
Æsispennandi viðureign við Kröflulax - formaðurinn náði fyrsta laxinum og varð tvívegis var á gula Kröflutúpu ,,Þetta var í sannleika sagt æsispennandi viðureign. Laxinn tók Kröfluna með látum en var síðan rólegur í dálítinn tíma. Síðan tók hann strikið út úr hylnum og niður eftir ánni og það var ekki auðvelt að fylgja honum eftir. En þetta hafðist allt að lokum og þetta var 10 punda hrygna,’’ sagði Guðmundur Stefán Maríasson, varaformaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur, í samtali við Grafarvogsblaðið en hann hafði þá nýlokið veiði á opnunardegi Norðurár í Borgarfirði sl. þriðjudag. Opnun Norðurár var seinkað fyrir vertíðina í sumar og það var Bjarni Júlíusson, formaður SVFR, sem náði fyrsta laxi sumarsins á land fyrsta morguninn. Laxinn tók Black Eyed Prawn og var 9 pund. Síðar varð Bjarni tvívegis var á gula Kröflu keilutúpu á sama veiðistað, Brotinu. Alls komu 5 laxar á land fyrsta veiðidaginn. En viðureign dagsins var hjá Guðmundi Stefáni. Laxinn fékk hann á
veiðistað sem nefnist Berghylsbrot og er nokkru ofan við Laxfoss. Ekki er algengt að lax veiðist svo ofarlega í Norðurá fyrstu daga sumars og voru því fáir viðstaddir en auk Guðmundar var Haraldur Eiríksson hjá SVFR á staðnum og tók myndir af viðureigninni sem sjá má á Krafla.is ,,Ég byrjaði með rauða Kröflu keilutúpu 1” og það hljóp fiskur á hana en festi sig ekki. Sama gerðist í næstu köstum með Frances og Snældu. Þá setti ég rauðu Kröfluna aftur á en í þetta skipti 1/2” tommu langa keilutúpu. Þá kom hann og negldi hana svona líka hraustlega,’’ sagði Guðmundur. Viðureignin var mjög spennandi eftir að fiskurinn straujaði úr hylnum en Guðmundur var með einhendu og einn síns liðs við ána en Haraldur var á hinum bakkanum að mynda og fylgjast með gangi mála. ,,Ég landaði laxinum í veiðistað sem heitir Réttarhylur eftir 25 mínútna viðureign og þetta var afar skemmti-
Guðmundur Stefán Maríasson, varaformaður SVFR, hnýtir á hjá sér rauða Kröflutúpu með keiluhaus við Norðurá þegar áin var opnuð síðasta þriðjudag. Guðmundur landaði glæsilegum fiski á Kröfluna á frekar óvenjulegum veiðistað á opnunardeginum. legt,’’ sagði Guðmundur og var að vonum ánægður með gang mála. Þess má geta að á veiðivefnum og netversluninni Krafla.is er nú í fyrsta skipti hægt að fá Kröflutúpurnar mjög þungar, með svokölluðum tungsten keiluhaus. Einhverjir veiðimenn hafa hingað til haldið því fram að Kröflu keilutúpurnar hafi ekki verið nægilega þungar en ævintýri Guðmundar Stefáns á Berghylsbrotinu sannar svo ekki verður um villst að þessar nýju Kröflutúpur eru eins og þyngdar túpur eiga að vera. Fróðlegt verður að fylgjast með veiðinni í Norðurá í sumar og hægt að fullyrða að þessi góða byrjun stjórnarmanna lofar svo sannarlega góðu. Og ekki eingöngu fyrir Norðurá heldur allar aðrar ár í Borgrfirði. Tveir laxar veiddust fyrsta daginn í Blöndu og voru báðir um 11 pund.
Rosaleg veiði á Beyki, Beyglu og Krókinn í urriðanum nyrðra
Leikjanámskeið Gufunesbæjar fyrir 6 -7 ára börn (fædd 1999 - 2000) á þremur stöðum! Fjölbreytt og skemmtileg þematengd námskeið verða haldin á eftirtöldum stöðum: Vík við Víkurskóla 11. júní 13. júlí og aftur 7. ágúst - 17. ágúst. Tígrisbæ við Rimaskóla 11. júní - 17. ágúst Regnbogalandi við Foldaskóla 11. júní - 6. júlí og aftur 30. júlí - 17. ágúst. Námskeiðin eru sniðin að þroska og áhuga barnanna og byggja mikið á útiveru, leikjum og stuttum ferðum. Skráning á námskeiðin er á rafrænu formi á vefslóðinni www.reykjavik.is Nánari upplýsingar er að að finna i sumarbæklingi ÍTR og á heimasíðu Gufunesbæjar, www.gufunes.is
Félgarnir Gunnlaugur Kristinsson og Kristján Hjálmarsson frá Akureyri lentu í mikilli urriðaveiði í Mývatnssveitinni á dögunum. Alls veiddu þeir 58 fallega urriða og tóku þeir allir silungaflugurnar Krókinn, Beyki og Beyglu. Allar þessar flugur eru hannaðar af Gylfa Kristjánssyni og eru með allra öflugustu silungaflugum á markaðnum í dag ásamt Mýslunni hans Gylfa. Allar fást flugurnar í netversluninni Krafla.is
Gunnlaugur Kristinsson með væna urriða úr Mývatnssveitinni. Gunnlaugur veiddi 58 fiska ásamt veiðifélaga sínum Kristjáni Hjálmarssyni og allir fiskarnir veiddust á Beyki, Krókinn og Beyglu.
Hann er á í Geirastaðaskurði í Laxá í Þingeyjarsýslu. Vænn urriði hefur tekið Beyki.
GV auglýsingar og ritstjórn: 587-9500
GRAFARVOGSBÚAR! Opinn íbúafundur Hverfisráðs Grafarvogs um helstu málefni, uppbyggingu og þjónustu í hverfinu verður haldinn þriðjudaginn 12. júní n.k. kl. 17:30. Fundurinn verður haldinn að Korpúlfstöðum (húsnæði Korpúlfa)
Dagskrá fundarins: Kynning: Ragnar Sær Ragnarsson, formaður Hverfisráðs. Bygging þjónustu- og menningarhúss í Spönginni: Jórunn Frímannsdóttir, borgarfulltrúi. Strætó og Grafarvogur: Einar Kristjánsson forstöðumaður hjá Strætó bs. Einnig verður kynnt með teikningum og texta uppbygging íþróttamannvirkja, Gufunessvæðið og hreinsunarátak í Grafarvogi. Fundarstjóri: Halldór Lárusson, varaformaður Hverfisráðs
20
GV
Fréttir
Spönginni Sigrún Breiðfjörð Magnúsdóttir, starfamaður Kaupþings í Grafarvogi, með leikskólabörnum í hverfinu.
Sími: 5 700 900
Ritstjórn og auglýsingar GV - 587-9500
Grænmeti í alla leikskóla - framlag Kaupþings til að auka áhuga barna á grænmeti
Kaupþing banki hefur ákveðið að leggja sitt lóð á vogarskálarnar til að þess að auka áhuga barna á grænmeti og grænmetisneyslu. Með þessu átaki er vonast til að börnin geri sér ekki einungis grein fyrir hvernig grænmeti verður til heldur þyki líka spennandi að borða grænmeti sem þau sjálf hafa ræktað.
Haft var samband við alla leikskóla á landinu og þeim boðin tæki og tól sem nauðsynleg eru til að útbúa lítinn matjurtagarð. Undirtektir voru undantekningalítið mjög jákvæðar og nú er verið að ljúka við að færa leikskólunum það sem til þarf. Þorgrímur Þráinsson er sérlegur erindreki bankans í þessu verkefni. Haft var samstarf við
Félag íslenskra leikskólastjóra og Samband íslenskra sveitarfélaga áður en ráðist var í framkvæmdina. Bankinn mun síðan leitast við að fylgjast með gróðursetningunni og flytja fréttir af gangi mála í görðum barnanna þegar fram líða stundir.
Kæru viðskiptavinir! Vorverkin að baki. Þá er um að gera að nostra við hendurnar! Paraffin-handarmaski fyrir þá sem koma í háralitun eða permanent frá 11. júni til 29. júní
Hársnyrtistofan Höfuðlausnir Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is Opið: Mán 08.00-18.00 - þri - fim 09.00-18.00 fös 08:00-18:00
Pöntunarsími: 567-6330
Verslun fluguveiðimanna er á www.Krafla.is
Landsins mesta úrval af íslenskum gæðaflugum Vorum að bæta við mörgum nýjum flugum
Kröflurnar í öllum litum sem keilutúpur í fyrsta sinn á Íslandi
Krafla orange
Krafla rauð
Krafla svört
Krafla gul
Iða
Skröggur
Gríma rauð
Elsa
Fjölbreytt úrval af íslenskum laxaflugum - tvíkrækjur/þríkrækjur - Flugur með reynslu
Beykir
Mýsla
Krókurinn
SilungaKrafla rauð
SilungaKrafla svört
SilungaKrafla Orange
,,Landsliðið’’ þegar íslenskar silungflugur eru annars vegar Besta vörnin í netverslun í dag Framleiðandi Skrautás ehf - Bíldshöfða 14 - Sími: 587-9500 / 698-2844
Beygla
22
Smíðavellir á vegum Gufunesbæjar fyrir 8 - 12 ára krakka (fædda 1994 -1998) við Engjaskóla og Foldaskóla!
GV
Fréttir
Frá 11. júní - 20. júlí geta krakkar komið á smíðavellina og smíðað sér kofa, kassabíl eða það sem þeim dettur í hug og hægt er að framkvæma. Smíðavellirnir verða staðsettir við Engjaskóla og Foldaskóla og eru opnir virka daga frá klukkan 9:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00. Skráning fer fram á staðnum gegn greiðslu skráningargjalds kr. 550. Nánari upplýsingar er að að finna i sumarbæklingi ÍTR og á heimasíðu Gufunesbæjar, www.gufunes.is
Atvinnuhúsnæði óskast til leigu Ca 60-90 fermetra verslunar- og/eða skrifstofuhúsnæði óskast til leigu Snyrtileg aðkoma skilyrði Upplýsingar í síma: 699-1322 / 698-2844
Tölvubúnaður – Eftirlitsmyndavélar Þjónusta fyrir fyrirtæki og einstaklinga. BST Gylfaflöt 24-30 Sími: 5679760 www.bst.is
Myndin er tekin í fræðslugöngu á vegum Orkuveitu Reykjavíkur.
Fræðslugöngur OR
Orkuveita Reykjavíkur hefur gengist fyrir fræðslugöngum frá árinu 2001, þegar Elliðaárvirkjun átti 80 ára afmæli. Þetta er því sjöunda árið sem boðið er upp á göngurnar, sem ávallt hafa verið fjölsóttar. Sem fyrr verður boðið uppá margvíslega fræðslu um náttúru og sögu útivistarsvæða OR í fræðslugöngunum. Umsjónarmenn eru Einar Gunnlaugsson jarðfræðingur og Kristinn H. Þorsteinsson garðyrkjufræðingur. Fjöldi annarra fræðimanna kemur að göngunum. Dagskrá:
Mæting við Stöðvarhús OR við Kolviðarhól kl.19:30.
12. júní 2007 - Skordýr í Elliðaárdal Farið verður um mismunandi gróðurlendi dalsins og litið til smádýra. Þátttakendur eru hvattir til að hafa með sér stækkunargler. Gangan hefst við Minjasafnið í Elliðaárdal kl. 19:30.
24. júlí 2007 - Íslenska flóran í Elliðaárdal Skoðað verður margbreytilegt gróðurfar í dalnum, blómplöntur og byrkningar. Þátttakendur eru hvattir til að hafa með sér stækkunargler. Gangan hefst kl. 19.30 við Minjasafnið í Elliðaárdal.
19. júní 2007 - Gróðurrækt í Elliðaárdal Skoðaðar verða blóm- og trjáplöntur og vikið að breytingum sem orðið hafa síðustu áratugi. Gangan hefst kl. 19:30 við Minjasafnið í Elliðaárdal.
28. júlí 2007 - Fræðsluganga um Elliðaárdal og upp að Gvendarbrunnum Gengið verður frá Minjasafninu í Elliðaárdal kl. 10 upp dalinn að Gvendarbrunnum. Gengnir verða um 12 km en boðið verður upp á hressingu á leiðinni og akstur til baka um kl 16:00.
26. júní og 17. júlí 2007 - Ganga á Hengilssvæðið Orkan og beislun hennar, orkujarðfræði, gróður og saga.
3. júlí 2007 - Sagan í Elliðaárdal Gengið eftir dalnum og hugað að örnefnum og sögustöðum í dalnum. Gangan hefst kl. 19:30 við Minjasafnið í Elliðaárdal. 10. júlí 2007 - Jarðfræði í Elliðaárdal Athyglinni er beint að áhugaverðum jarðfræðifyrirbærum í Elliðaárdal. Gangan hefst við Minjasafnið í Elliðaárdal kl. 19:30.
23
GV
Fréttir
Mikilvægir leikir framundan Staða Fjölnis í 1. deild í knattspyrnu karla er ekki alveg sú sem menn vonuðust eftir þegar leiknar hafa verið þrjár umferðir. Fjölnir er í næst neðsta sæti en í kvöld, fimmtudagskvöld, leikur liðið á Akureyri þar sem Fjölnir mætir KA í erfiðum útileik. Framundan eftir leikinn gegn KA eru erfiðir en að sama skapi mikilvægir
leikir. Næsti heimaleikur Fjölnis er föstudaginn 15. júní en þá koma Víkingar frá Ólafsvík í heimsókn í Grafarvoginn. Er það mjög mikilvægur leikur fyrir Fjölni og má segja að sigur verði að vinnast í þeim leik ef liðið ætlar ekki að eiga í erfiðri baráttu í neðri hluta deildarinnar í sumar. Þann 22. júní fer lið Fjölnis til Njarðvíkur og má ljóst vera að þar verður
á brattann að sækja eins og raunar í öllum leikjum í deildinni. Stórleikur er síðan á dagskrá föstudaginn 29. júní en þá kemur firnasterkt lið Grindvíkur í heimsókn í Grafarvoginn. Loks leikur lið Fjölnis gegn Þrótti í Laugardalnum mánudaginn 2. júlí. Rétt er að hvetja Grafarvogsbúa til að mæta á völlinn föstudagskvöldin 15. og
29. júní. Það er mjög mikilvægt fyrir okkar menn að finna fyrir stuðningi Grafarvogsbúa og varla hægt að ætlast til þess að okkar lið nái nokkrum árangri ef íbúar í hverfinu hafa ekki áhuga á að mæta á heimaleiki liðsins. Lið Fjölnis er aðeins með eitt stig af níu mögulegum eftir þrjá fyrstu leikina. Enn er nægur tími til að snúa blaðinu rækilega við
enda fjölmargir leikir eftir og liðin í deildinni virðast vera nokkuð jöfn að getu og eiga eftir að hirða stig hvert af öðru í sumar. Möguleikar Fjölnisliðsins á góðum árangri eru því enn sprelllifandi. Hreinn hellingur af stigum í pottinum og vonandi verður gengi okkar manna sem allra best í næstu leikjum.
Sumarnámskeið fyrir 6-12 ára Skráning á sumarnámskeið hafin. Vikunámskeið (kl.: 9-12 og/eða 13-16). Sjá nánar: www.keramik.is og í ITR-blaðinu.
Laugavegi 48B, 101 Rvík. S: 552-2882. keramik@keramik.is www.keramik.is
¹ BÎRNIN
Komdu í heimsókn í sumar! Stærðir: 27 - 35 4.690 kr.
Íslensk orkumál og virkjanir – alþjóðleg fyrirmynd í umhverfismálum Landsvirkjun býður landsmönnum að heimsækja sex stöðvar í sumar þar sem bæði er hægt að kynna sér staðreyndir um umhverfisvæna íslenska orku og skoða fjölbreyttar sýningar um menningu, list og sögu.
„Hvað er með Ásum?“
Orka í iðrum jarðar!
Ævintýraferð í goðheima fyrir alla fjölskylduna. Goðastyttur Hallsteins Sigurðssonar við texta Árna Björnssonar, þjóðháttafræðings. Laxárstöðvar í Aðaldal
Heimsækið gestastofuna í Kröflu, sjáið myndir frá Kröflueldum. Kynnist jarðvarma og orkuvinnslu. Kröflustöð í Mývatnssveit
Stærðir 27 - 35 4.690 kr.
PIPAR • SÍA • 70994
Stærðir 27 - 35 5.890 kr.
List í eigu Landsvirkjunar
Kynnist Kárahnjúkavirkjun!
Listaverk sem sjaldan hafa komið fyrir almenningssjónir – mörg hver með áhugaverða sögu sem tengist Landsvirkjun og orkumálum. Ljósafossstöð við Sog
Upplýsingar um Kárahnjúkaframkvæmdirnar ásamt ferðamennsku og útivist norðan Vatnajökuls. Góður viðkomustaður áður en haldið er upp á Fljótsdalsheiði. Végarður í Fljótsdal
Líf í Þjórsárdal
Heimsókn í Húnaþing
Ómissandi viðkomustaður á leiðinni inn á Sprengisand og í Veiðivötn. Sultartangastöð ofan Þjórsárdals
Kynnið ykkur orkumál og starfsemi Blöndustöðvar í starfsmannahúsi stöðvarinnar. Blöndustöð, Húnaþingi
Kynnist okkur af eigin raun
Fyrstu sýningar
opna 9. júní
Heimsækið Landsvirkjun í sumar. Stöðvarnar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar.
Nánari upplýsingar á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000
Stærðir 21 - 26 5.990 kr.
Stærðir 21 - 26 5.390 kr.