2. tbl. 18. árg. 2007 - febrúar
ÍSLENSKA AUGLÝSINGASTOFAN/SIA.IS LBI 27159 01/2005
Grafarvogsblaðið
Eitt númer
410 4000
Dreift ókeypis í öll hús í Grafarvogi
Sara H. Magnúsdóttir.
Sara Norðurlandameistari
Sara H. Magnúsdóttir varð norðurlandameistari í léttvigt unglinga í Taekwondo í janúar. Sara byrjaði í Taekwondo árið 2000 í Bandaríkjunum, en þegar hún flutti til Íslands árið 2003 kom hún beint í Fjölni og hefur verið þar síðan. Sara er margfaldur Íslandsmeistari og landsliðskona til tveggja ára. Sara er með svarta beltið. Sara er fjórði Norðurlandameistari Taekwondo deildar Fjölnis.
Strákarnir í Fjölni sem settu íslandsmet í 4x400 metra boðhlaupi. F.v. Ingvar Haukur Guðmundsson, Leifur Þorbergsson, Sveinn Elías Elíasson og Bjarni Malmquist. Á bakvið sést glitta í Stefán Jóhannsson, þjálfara. Sjá nánar á bls. 11
Gjöf fyrir veiðimanninn - Gjöfin fyrir veiðimenn sem eiga allt - Glæsileg viðarbox úr léttum mangóviði - Gröfum nafn veiðimannsins á boxið - Laxa- og silungaflugur- Fimm útgáfur - Flugur í sérflokki - íslensk hönnun Allar nánari upplýsingar á Krafla.is og í síma 698-2844
Bilastjarnan_02_001.ai
18.11.2004
15:18:40
Egilshöllinni Sími: 594-9630
Komdu beint til okkar! - og við tjónaskoðum í hvelli þér að kostnaðarlausu Bílastjarnan ehf. · Bæjarflöt 10 · 112 Reykjavík · Sími 567 8686
Vantar þig heimasíðu?
Við erum alltaf í leiðinni
Samkvæmt Hagstofu Íslands leita 86% Íslendinga sér upplýsinga um vöru og þjónustu á internetinu
Landsbankinn leggur áherslu á faglega fjármálaþjónustu fyrir fyrirtæki og einstaklinga í Grafarvogi. Við tökum vel á móti þér í útibúum okkar að Fjallkonuvegi 1 og Höfðabakka 9.
Landsbankinn Banki allra landsmanna
410 4000
landsbanki.is
2
GV
Fréttir
Grafarvogsblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: skrautas@simnet.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Netfang Grafarvogsblaðsins: gv@centrum.is Ritstjórn og auglýsingar: Bíldshöfða 14 - Sími 587-9500 / 698-2844. Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir, Stefán Kristjánsson. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll hús og fyrirtæki í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi og öll fyrirtæki í póstnúmeri 110.
Að læra sína lexíu
Kristján Sigurðsson, elsti starfsmaður Brosbæjar í Engjaskóla, les fyrir börnin.
,,Ég var alltaf opinn fyrir því að hlúa að öðrum’’
Sorglegir atburðir tengdir börnum og ungu fólki hafa undanfarnar vikur leikið aðalhlutverkið í fjölmiðlum. Nægir hér að nefna Byrgið og Breiðavík. Nú liggur fyrir að líf og framtíð fjölmargra Íslendinga sem dvöldust á þessum stöðum í leit að hjálp og umhyggju var lagt í rúst. Ungir drengir voru meðhöndlaðir sem skepnur í Breiðavík af fullorðnu fólki. Vissulega er Breiðavík mun lengra frá okkur í tímanum. Nánast er hægt að fullyrða að slíkir hlutir gerist ekki og gætu ekki gerst í dag. Hreint ótrúlegir hlutir sem gerst hafa í Byrginu eru auðvitað alvarlegir fyrir þær sakir að þeir eru að gerast í nútímanum. Á 21. öldinni. Undarlegt er að hundruð milljóna hafa streymt úr ríkissjóði í Byrgið eftirlitslaust. Auðvelt verður að laga þau mistök. Erfiðara verður hins vegar að bæta sjúku fólki sem leitaði í Byrgið skaðann. Það verður hins vegar að gera strax með öllum tiltækum ráðum. Reynslan af Byrgismálinu sýnir í eitt skipti fyrir öll að fagmennskan á að ráða ríkjum í meðferðarmálum. Það á ekki að geta gerst að trúarhópar eða trúfélög geti kynnt sig út á við sem meðferðarstofnanir og sogað til sín fúlgur fjár á gjörsamlega fölskum forsendum. Sem betur fer hefur félagsmálaráðherra brugðist skjótt við í þessum málum. Fórnarlömbin fá aðstoð á næstu dögum og svo á auðvitað að greiða fórnrlömbunum frá Breiðavík bætur sem eru sæmandi og skipta máli. Þar erum við ekki að tala um 3 milljónir eins og einn örlátur alþingismaður nefndi um daginn. Nær væri að tala um 15-20 milljónir á mann til þeirra sem verst urðu úti og voru sendir nauðugir í opið fangið á glæpamönnum. Stefán Kristjánsson
- 80 ára og helgar börnum enn starfskrafta sína ,,Ég fæddist 11. september 1926 og er alinn upp í Breiðdalshreppi í SuðurMúlasýslu og vorum við sjö systkinin. Við bjuggum á bóndabýli en pabbi átti svolitla trillu svo við sóttum sjóinn líka. Ég fór minn fyrsta róður 6 ára gamall með föður mínum og man ég vel eftir því hversu sjóveikur ég varð. Ég byrjaði snemma að vinna og ég var ekki nema 11 ára þegar faðir minn sótti mig í skólann til að sjá um kindurnar, fjármaðurinn veiktist og má geta þess að ég þekkti hverja kind og voru þær um 150 talsins. Gaman er að taka fram að ég var í heildina 5 mánuði í skóla. Í þá daga var svokallaður farskóli sem var þannig að kennt var á einum bænum þennan mánuð og svo öðrum þann næsta,’’ segir Kristján í samtali við Grafarvogsblaðið en hann er elsti starfsmaður frístundamiðstöðvarinnar Brosbæjar í Engjaskóla. - Þú kemur úr stórri fjölskyldu og ert því vanur miklum látum á heimilinu, eignaðist þú sjálfur svona mörg börn?
gv@centrum.is
,,Ég var giftur tvisvar og átti fjögur börn með hvorri konu. Barnabörnin eru orðin 11 og barnabarnabörnin orðin þrjú. Í þá daga þótti eðlilegt að eiga mörg börn og oft voru þau upp undir 10 á bæ. Ég á eina dóttur sem er 57 og aðra 17 ára.’’ - Hvenær fluttir þú til Reykjavíkur? ,,Ég tók stúdentspróf árið 1951 og vann hjá rannsóknarlögreglu í 16 ár og þá aðallega í tengslum við afbrotaunglinga. Tók svo kennarapróf eftir lögregluna og var þá 40 ára gamall og kenndi í nokkur ár. Eftir þetta tók ég við stöðu forstöðumanns á Unglingaheimili ríkisins og starfaði þar í 15 ár.’’ - Hvernig var að stjórna unglingaheimili i þá daga? ,,Við tókum við unglingum sem aðrir höfðu gefist upp á. Almenningur vildi hafa þetta sem unglingafangelsi og að krakkarnir væru lokaðir inni. Ég neitaði að hafa þetta lokað og fannst betra að krakkarnir kæmust inn og út. Þetta var uppeldi en ekki fangelsi. Ég fékk
Atvinnu
tækifæri Vegna aukinna umsvifa óskum við eftir sveinum eða meisturum í heilsog hálfsdagsstörf á nýjum og líflegum vinnustað.
TEXTURE h á r s t o f a
www.texture.is • Sími 566 8500
mikla gagnrýni frá blöðunum fyrstu árin og þá aðallega vegna þess að krakkarnir gerðu eitthvað af sér þegar þau fóru út og var stofnuninni þá kennt um allt. Ég hafði stjórnarnefndina og menntamálaráðaneytið á bak við mig og gagnrýnisraddirnar minnkuðu með tímanum. Eftir að ég hætti þar vann ég hjá Íþrótta- og tómstundarráði og þá aðallega sem flokkstjóri hjá unglingum sem og við fleiri verkefni.’’ - Þú hefur greinilega mjög gaman af að vinna með börnum, er ástæða fyrir þvi að þú valdir þessa braut eða slysaðist þú svona inn á þetta? ,,Fjögurra ára gamall frændi bjó hjá okkur og eyddi ég miklum tíma með honum þegar ég var 9 ára. Ég var alltaf opinn fyri þvi að hlúa að öðrum og svo vatt þetta kannski aðeins upp á sig. Ætlaði mér alltaf í frekara nám en í þá daga voru engin námslán og ég var kominn með fjölskyldu og því var vinnan fyrsti kostur. Ég tel mig hafa verið að gera samfélaginu gott með því að hjálpa börnum og beina þeim inn á réttu brautina, koma þeim þannig aftur inn á samfélagið í staðinn fyrir fangelsi. Ég sá í hvert stefndi þegar ég var í lögreglunni og fannst ég þurfa að gera eitthvað í stað þess að upplýsa einungis sakamál. Að mínu mati er menntun undirstaða þess að fólk fari að horfa á sjálft sig sem persónu. Krakkarnir sem ég vann með voru búnir að tapa allri sjálfsvirðingu. Það þurfti oft að vera harður við börnin og oft mikið mál þegar maður var búinn að setja upp vissan ramma sem þau þurftu svo að halda sig innan.’’ - Hvernig eru jólin hjá þér með allan þennan krakkaskara? ,,Þau voru ekki svo mikið mál, við foreldrarnir skiptum þeim svona á milli okkar. Í ár var ég með yngri hópinn með mér. Ég held einnig fast í gamlar jólahefðir með hangikjöt á jóladag og nýjársdag. Eldri fjölskyldan borðaði rjúpu en sú yngri sérvalið nautakjöt. Á mínum yngri árum var skammtað á diska hvers manns um hátíðirnar. Hangikjöt, saltkjöt og meðlæti sem oft dugði í nokkra daga og var maður þá alltaf að narta í þetta nokkra daga í senn. Jólatréð okkar í þá daga var spýta sem var skreytt með kertaljósum og beitilyngi sem blómstrar um jólin og svo snérist toppurinn ofan á.’’ - Hver er ástæðan fyrir því að maður á þínum aldri ákveður að byrja aftur að vinna með börnum? ,,Ég fór út í sveit 72 ára og byggði þar hótel sem ekki gekk nógu vel, svo ég kom aftur í bæinn og fór á eftirlaun. Ég er þannig gerður að ég vil hafa eitthvað fyrir stafni og var byrjað að leiðast. Ég segi alltaf að um leið og maður leggst með tærnar upp í loft þá fyrst er maður orðinn gamall, ég stunda sund á hverjum degi og hreyfi mig mikið,’’ segir Kristján Sigurðsson.
9jgjb ]Z^a]kZ^i^
4
Matgoggurinn
GV
Sophiu Loren pasta, Skrímsla-risottó og Biriyani lambaréttur - þrír magnaðir aðalréttir að hætti Sigurlaugar og Pálma ,,Ein uppskriftin er af pastarétti sem Sophia Loren eldaði gjarnan handa Marcello Mastroianni. Rétturinn er afar fljótlegur í framreiðslu og slær ekki síst í gegn í garðinum á sumarkvöldi,’’ segir Sigurlaug Halldórsdóttir sem er ásamt eiginmanni sínum, Pálma Gestssyni, matgoggar okkar í þessu blaði.
Sophiu Loren pasta
Sigurlaug ,,Dillý’’ Halldórsdóttir og Pálmi Gestsson bjóða lesendum GV upp á girnilega rétti.
GV-mynd PS
Ferskir tómatar 6-8 stk. Skornir í litla bita. Eitt búnt steinselja..söxuð. Svartar ólífur… ca hálf 100 g krukka. Kapers….2 matsk. Einn rauðlaukur…skorinn smátt. 3 hvítlauksrif…..marin. Parmesanostur rifinn….fullt af honum. Olía…mæli með Sólblómaolíu frá Wesson því hún er svo bragðlítil. Ferskur svartur pipar og sjávarsalt. Þessu er öllu blandað saman í stóra skál. Spaghetti er soðið ´al dente’ og síðan blandað saman við í skálina og meiri parmesan ostur rifinn yfir. Má bera
Sjóðið við vægan hita í 20-25 mínútur, vatni bætt við ef þarf. Hrærið reglulega í. Setjið skrímslin út í og látið malla siðustu 5 mínúturnar.. Risotto er yfirleitt ekki borið fram með neinu meðlæti. Skammtið á diska og skreytið með steinseljulaufi. Hægt er að setja hvað sem er í svona risotto, við þennan rétt má t.d. bæta krabbakjöti og risarækjum, hálfri dós af túnfiski, hvaða sjávarfangi sem er. Svo má gera svepparisotto með smjörsteiktum potabella sveppum og beikoni ( steiktu og söxuðu). Og prófa sig áfram með grænmetis- eða sveppasoði. Og svo einn fljótlegur indverskur í lokin:
Lambaréttur biriyani fyrir tvo Sólblómaolía. 400 gr. lambakjöt ( beinlaust og skorið í litla bita). 1 tsk Cumin fræ. 1 rauðlaukur, gróft skorinn. 200 g basmati hrísgrjón.
Jóhanna og Guðlaugur næstu matgoggar Sigurlaug ,,Dillý’’ Halldórsdóttir og Pálmi Gestsson, skora á Jóhönnu og Guðlaug, Logafold 60, að koma með uppskriftir í næsta blað. Við birtum frá þeim girnilegar uppskriftir í næsta Grafarvogsblaði sem kemur út í mars. fram með baguette og ekki spillir ítalskt rauðvín fyrir.
Skrímsla-risottó
Kíktu og viðskiptin flott pöntunarGleðilegt áár nýtt og þökkum á árinu 2006 Erum byrjaðar taka niður pantanir fyrir fermingarnar kerfi aðwww.stubbalubbar.is Kveðja, Guðrún, Hanna Lára, Helena Hólm, Karitas.og Helena E. Hárgreiðslustofa Helenu - stubbalubbar - Barðastöðum 1-5 Sími 586 1717 - stubbalubbar.is Opnunartími: mán-mið 10-18, fim 10-19 föst 10-18 laugard 10-16
Þessi er kölluð Skrímsla-risottó hér á heimilinu vegna fjölbreytileika sjávardýranna sem finnast í réttinum. Fyrir fjóra. Einn poki af sjávarréttakokteil frá Snæfiski , látinn þiðna í sigti. Einn laukur. 2 marin hvítlauksrif. Arborio hrísgrjón (risotto grjón), hálfur pakki. Kjúklingasoð ( 2 teningar og 400 ml soðið vatn). Ferskur pipar, salt. Búið til kjúklingasoð ( ca 2 teningar og soðið vatn). Laukurinn er saxaður og hvítlaukurinn marinn og gylltur í olíu á djúpri pönnu. Grjónum hellt saman við og hrært saman og soðinu hellt yfir. Piprað og saltað.
400 ml grænmetissoð (einn – tveir teningar og soðið vatn). 2 tsksterkt karrý mauk ( curry pastefæst í pokum eða krukkum). Safi af einni límónu (lime). Fersk kóreander lauf. Veltið lambakjötinu upp úr cumin fræjunum og steikið í olíunni á pönnu ásamt rauðlauknum í ca 5 mín. Bætið grjónunum við og grænmetissoðinu ásamt karrý maukinu og hrærið vel saman.. Látið suðuna koma upp, lækkið svo hitann og látið malla á lágum hita í 20 mín., þar til vökvinn er horfinn. Hrærið þá límónu safanum saman við. Skammtið á diska og skreytið með ferskum kóreanderlaufum. Berið fram með sultuðu mangói (mango chutney) og ekki er verra að hafa poppadums með. Þau er létt að steikja í olíu. Verði ykkur að góðu, Sigurlaug og Pálmi
6
Grafarvogsbúar!
GV
Fréttir
Verið velkomin í nýja blómaverslun okkar í Langarima 21 (næst Rima-apóteki) Blóm af ýmsu tagi - afskorin - silki- og stofublóm Bjóðum einnig nýstárlega gjafavöru frá Afríku og Indlandi pasmínur - handofnar körfur og töskur - styttur ofl.
Karlar! Munið Konudaginn, nk. sunnudag Öðruvísi blómvendir handa frúnni
Ath! 15% afsláttur gegn afhendingu auglýsingar Við erum BLÓMSTRANDI í Grafarvogi! Jón Tryggvi og Sibeso
b lómst rand i verslun með öðruvísi gjafavöru
Dagmar kennari og Guðni aðstoðarskólastjóri ánægð með fránærar undirtektir foreldra að kaupa kleinur.
Kleinurnar runnu út eins og heitar lummur
Hópur kennara og starfsmanna í Rimaskóla er á leið til stórborgarinnar Liverpool að kynna sér skólastraf. Ferðin er farin á starfsdögum kennara og vetrarleyfisdögum skólans. Ferðin er skipulögð af ÍT ferðum en Verkefna-og námstyrkjasjóður Kennarasamband Íslands og Starfsmannafélag Reykjavíkur veita þátttakendum fararstyrk. Til að mæta umframkostnaði þá ákváðu Liverpoolfarar að steikja kleinur og selja þær foreldrum í hverfinu og öðrum velunnurum. Er skemmst frá því að segja að foreldrar í Rimaskóla tóku þessari fjáröflun fyrir Liverpool-ferðina í meira lagi vel. Pöntunarblöðin
streymdu í skólann og þegar upp var staðið bárust 450 pantanir sem hljóðuðu upp á 9000 kleinur. Þetta þýðir að nánast hvert heimili í Rimahverfi vildi styrkja gott málefni og njóta bragðgóðra kleina sem engan sviku enda uppskriftin ættuð úr Bárðardal fyrir norðan. Steikingin fór fram í heimilisfræðistofunni og tók aðeins um fimm klukkustundir. Það sannaðist hið fornkveðna að margar hendur vinna létt verk. Liverpool- farar standa í mikilli þakkarskuld við foreldra í Rimaskóla. Þeir eru staðráðnir í að nýta ferðina vel til að skoða skóla og kynnast sögu stórborgarinnar Liverpool.
Dvergshöfða 27 Reykjavík Sími/Símsvari 567-7888 www.heilunarsetrid.is
Hjá Heilunarsetrinu vinnur fagfólk á sviði heildrænna meðferða Okkur er umhugað um að hjálpa fólki til þess að finna jafnvægi og betri líðan. Höfuðbeina og Fæðuóþolsmælingar. Svæðanudd. Bowen. Skynhreyfiþjálfun. Heilun. Reiki-Heilun. Detox meðferð. SRT/andleg svörunarmeðferð.
Einari Erni samfélagsfræðikennara er margt til lista lagt.
Þær Fjóla Borg, Guðrún Íris og Þórunn passa upp á að allt sé samkvæmt uppskriftinni sem ættuð var úr Bárðardal.
Tilvalin gjöf fyrir vandláta veiðimenn! Flugubox úr mangóviði og við gröfum nafn veiðimannsins á boxið - þéttsetið íslenskum flugum í allra fremstu röð!!
Hágæðaflugur - íslensk hönnun Sjón er sögu ríkari!! Kíktu á www.Krafla.is Þar finnur þú gjöfina sem alla fluguveiðimenn dreymir um
Sturla Örlygsson með glæsilegan tveggja ára lax sem tók eina af Kröfluflugunum í Hofsá sl. sumar.
Besta vörnin í netverslun í dag Framleiðandi Skrautás ehf - Bíldshöfða 14 - Sími: 587-9500 / 698-2844
,,Flugurnar hans Kristjáns Gíslasonar frá Krafla.is eru alltaf til staðar í mínum fluguboxum og hafa reynst mér ómissandi í lax- og silungsveiði. Fluguboxin frá Kröflu eru stórglæsileg,’’ segir Sturla Örlygsson
9
8
Fréttir
GV
GV
Fréttir
Grafarvogsmeistararnir í öðru sæti ,,Nema hvað’’
Allar Fjölnisvörur á
fjolnirshop.net
Grafarvogur fór mikinn þetta árið í spurningakeppni grunnskólanna, ,,Nema hvað’’. Fyrst kepptu allir skólar Grafarvogs innbyrðis og sigurvegarinn úr hverfiskeppninni fór svo áfram í undanúrslit Reykjavíkurkeppninnar. Hverfiskeppnin var æsispennandi og skólarnir greinilega stútfullir af vel lesnum nemum. Borgaskóli lagði hart að sér og varð Grafarvogs-
Fjölnir og Errea á Íslandi hafa sett upp heimasíðu þar sem allar vörur tengdar Fjölni verða til sölu. Á síðunni er hægt að kaupa keppnisbúninga, æfingagalla, húfur, takkaskó og margt fleira. Allar vörurnar eru frá Errea. Með tilkomu þessarrar síðu ætti að vera mun auðveldara fyrir foreldra, iðkendur og aðra sem koma að félaginu að ná sér í fatnað tengdan félaginu. Ef fólk hefur áhuga á að máta fatnaðinn áður en hann er keyptur verða sýnishorn á skrifstofu Fjölnis í Egilshöll þar sem fólk getur komið og mátað. Hægt er að láta senda vörurnar heim með póstinum gegn vægu gjaldi en einnig er hægt að sækja vörurnar á skrifstofu Fjölnis á föstudögum millil kl. 13.00 og 16.00 en þá verður að vera búið að panta í seinasti lagi á þriðjudeginum áður svo varan skili sér á skrifstofuna.
meistari annað árið í röð og hafði því erindi sem erfiði. Þeir lögðu lið Hamraskóla, Engjaskóla og unnu svo lið Rimaskóla 23-17 í úrslitarimmu Grafarvogs. Þar með voru þeir komnir áfram og öttu kappi við sigurvegara síðasta árs, Réttarholtsskóla. Borgaskóli átti harma að hefna þar sem Réttó lagði hann í úrslitum keppninar í fyrra. Hefndin var sæt og unnu strákanir
örugglega og því ljóst að þeir myndu keppa til úrslita annað árið í röð. Þar fengu þeir sem mótherja Hólabrekkurskóla en lukkan snerist við því Breiðhyltingar höfðu betur. Annað árið í röð lentu því Grafarvogsmeistarar Borgaskóla í öðru sæti í ,,Nema hvað’’. Grafarvogsbúar óska Stefáni, Guðmundi og Gísla að sjálfsögðu til lukku með frábæran árangur.
Íslandsmeistarar Fjölnis í sundi. Frá vinstri: Ólafur Páll Ólafsson, Sigrún Brá Sverrisdóttir og Sindri Sævarsson.
Sundfólk Fjölnis stendur enn í stórræðum
GV Ritstjórn og auglýsingar 587-9500
Hér sést netsíðan þar sem nú er hægt að kaupa á einum og sama staðnum allar Fjölnisvörurnar.
Í lok janúar hélt sundfélagið Ægir firnasterkt alþjóðlegt sundmót í Reykjavík þar sem besta sundfólk landsins tók þátt, auk fjölmargra erlendra þátttakenda. Fjölnir sendi 14 keppendur sem stóðu sig með afbrigðum vel. Þeir settu samtals 11 Fjölnismet og náðu 7 sinnum í verðlaunasæti. Í liði þar sem sundfólkið bætti sig í 66 af 95 greinum og sýndi gífurlegar framfarir þá stóð árangur þeirra Gísla Þórs Þórðarsonar, Maríönnu Kristjánsdóttur og Sigrúnar Bráar Sverrisdóttur þó hæst og unnu þau til þeirra verðlauna sem Fjölnir fékk að þessu sinni. Sigrún Brá sigraði t.d. í 200 m skriðsundi og bar þar sigurorð af hinni frægu Rebeccu Cooke frá skoska sundliðinu City of Glasgow sem keppti til úrslita á síðasta Evrópumeistaramóti í sundi og annarri frá sama félagi sem einnig er í breska unglingalandsliðinu. Á sunnudeginum kepptu þær svo aftur í 400 m skriðsundi en þá höfðu þær bresku betur. Þá setti Sigrún Brá Fjölnismet kvenna og stúlkna í 200 m fjórsundi. Gísli Þór Þórðarson var sterkur í drengjaflokki og synti fjórum sinnum inn í úrslit og fór heim með 2 silfurverðlaun og 2 bronsverðlaun og hefur nýlega náð lágmarksfjölda sundstiga til að komast í Aldursflokkahóp SSÍ og setti á mótinu tvö Fjölnismet í 50 m skriðsundi og 100 m bringusundi í drengjaflokki 13-14 ára. Maríanna Kristjánsdóttir var valin í Aldursflokkahóp SSÍ í sumar og sýndi það á þessu móti að hún er líkleg til afreka í framtíðinni. Ein silfurverðlaun og ein bronsverðlaun var
uppskera hennar og þar að auki setti hún glæsilegt Fjölnismet í 200 m baksundi í kvenna, stúlkna- og telpnaflokki. Allt í allt mjög góður árangur hjá þessu unga og efnilega liði sem skartar nú 8 einstaklingum í landsliðshópum SSÍ og fleiri eru nálægt því. Þetta var annað mótið sem sundfólk Fjölnis tók þátt í á árinu, en helgina 12. til 14. janúar héldu sundfélögin í Reykjavík aldursflokkameistaramót Reykjavíkur en þar tóku 19 Fjölniskrakkar þátt, syntu 95 sund og þar af 54 bætingar eða fyrstu sund. Frábær árangur á þessu móti sem haldið var stuttu eftir jólafrí og sumt af sundfólkinu hafði rétt nýhafið æfingar. Í stuttu máli var afrakstur þessa móts 12 gull, 18 silfur, 7 brons og 2 Fjölnismet. Miðvikudaginn 31. janúar sl. veitti Afrekssjóður SPRON og ÍBR öllum reykvískum Íslandsmeisturum á aldrinum 13-22 ára viðurkenningu. Í þeim fríða hópi átti sunddeild Fjölnis þrjá glæsilega fulltrúa, þau Ólaf Pál Ólafsson sem er Íslandsmeistari unglinga 15-17 ára í 1500 m skriðsundi, Sigrúnu Brá Sverrisdóttur sem er 8 faldur meistari, Íslandsmeistari unglinga 15-17 ára í 800 og 400 m skriðsundi og 100 og 200 m flugsundi og Íslandsmeistari í flokki fullorðinna í 800 m skriðsundi í 50 m laug og í 800, 400 og 200 m skriðsundi í 25 m laug og Sindra Sævarsson sem er Íslandsmeistari unglinga 13-14 ára í 100 og 200 m baksundi.
Lið Borgaskóla sem náði náði þeim góða árangri að verða í öðru sæti í ,,Nema hvað’’.
10
GV
Fréttir
Sif Ragnarsdóttir er yngsti starfsmaður Brosbæjar ii Engjaskóla.
,,Gefandi starf og góður undirbúningur fyrir framtíðina’’ - segir Sif Ragnarsdóttir, yngsti starfsmaður Brosbæjar í Engjaskóla
Hjá Snyrtistofunni Mist Tilboð í febrúar á fótaaðgerð kr. 3.500,Munið að panta tímanlega fyrir ferminguna Afsláttur fyrir eldri borgara
Sif Ragnarsdóttir er yngsti starfsmaður Brosbæjar í Engjaskóla. Hún er fædd 1. janúar árið 1989. - Í hvaða skóla ertu? ,,Í Menntaskólanum við Sund á félagsfræðibraut.’’ - Hvert er stefnan tekin eftir framhaldsskólann? ,, Ég er að hugsa um að skella mér til Bandaríkjanna í háskóla en hvað ég mun læra þar á svo eftir að koma í ljós.’’ - Af hverju ákvaðstu að fara að vinna á frístundaheimili? ,,Mér finnst gaman að vinna með krökkum og mjög þroskandi. Einnig er vinnutíminn sniðinn að skólanum mínum. Svo er starfsfólkið mjög skemmtilegt.’’ - Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú varst ung? ,,Hárgreiðslukona.’’ - Hvað ætlar þú að gera í sumar?
,,Ég ætla að skella mér til Danmerkur með vinkonu minni að vinna á líkamsræktarstöð. Ef það gengur ekki upp langar mig að vinna í Brosbæ.’’ - Hvar sérðu sjálfa þig eftir 20 ár? ,,Heimavinnandi móðir í Bandaríkjunum með ríkan karl og þrjú börn, tvo stráka og eina stúlku.’’ - Mælirðu með því að fólk á þínum aldri vinni við störf tengdum börnum? ,,Já, tvímælalaut, þetta er svo gefandi starf og góður undirbúningur fyrir framtíðina.’’ - Áttu einhver yngri systkini, ef svo er tekurðu þá virkan þátt í uppeldi þeirra? ,,Nei, en ég væri alveg til í að eiga eitt krútt. En ég á eldri systur sem er 23 ára.’’ - Stundarðu einhverja hreyfingu og ert þú sammála því að mataræði
og regluleg hreyfing sé nauðsynlegur þáttur í lífi barna? ,,Já, ég stunda ræktina af krafti og spilaði nú lengi vel knattspyrnu með Fjölni. Mataræði er mjög mikilvægt og sérstaklega í nútíma þjóðfélagi þar sem freistingar eru á hverju götuhorni. Hreyfing er einnig stór þáttur og ég er þeirrar skoðunar að gott sé að venja krakka snemma á reglulega hreyfingu. Með því móti lærir barnið snemma samvinnu og aga svo fátt eitt sé nefnt. Svo ekki sé minnst á að íþróttir virka sem góðar forvarnir fyrir krakka nú til dags.’’ - Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? ,,Ég er mikill aðdáandi matar frá Mexíkó og þá sérstaklega tacos. Gaman væri að hafa það í matinn einn daginn handa krökkunum, svona aðeins til að breyta til.’’
Síðdegishressing á vegum allra frístundaheimila Gufunesbæjar
Gylfaflöt - Sími 567-7974
Um síðustu mánaðamót tók frístundaheimilið Regnbogaland í Foldaskóla við umsjón síðdegishressingar af skólanum. Með því er síðdegishressing á vegum allra frístundaheimilanna fyrir þau börn sem það velja. Boðið er
upp á fjölbreytt og hollt fæði. Við framreiðslu hressingarinnar gefst gott tækifæri til að æfa borðsiði og ýmsa aðra þætti s.s. að smyrja og ganga frá.
11
GV
Fréttir
Frábær árangur Fjölnisfólks í frjálsum íþróttum
Þann 20. janúar var haldið stórt alþjóðlegt mót í frjálsum sem kallað er Reykjavíkurleikarnir (Reykjavík Indoor Games). Flestir af bestu frjálsíþróttamönnum þjóðarinnar tóku þátt í mótinu og voru allir sterkustu keppendur Fjölnis með í mótinu. Stefanía Hákonardóttir sigraði 400 m. hlaupi kvenna og setti Íslandsmet í stúlkna og ungkvennaflokki. Sveinn Elías Elíasson varð 2. í 200 m. hlaupi aðeins 5/100 frá Íslandsmeti sínu í karlaflokki frá því í fyrra. Íris Anna varð í 2. sæti í 1500 m. hlaupi. Íris Anna Skúladóttir varð í öðru sæti í 1500 m. hlaupi á 4:40,33 mín. Arndís Ýr Hafþórsdóttir varð í 4. sæti í 1500 m. hlaupi á 4:49,37. Arndís var að bæta sinn besta árangur um tæpar 5 sek. Bjarni Malmquist varð 4. í langstökki - stökk 6,55 m. Hann var 3. í B riðli í 60 m. hlaupi á 7,30 sek. (bæting, átti 7,32 sek)) og hljóp 200 m. á 23,11 (bæting, átti 23,91 sek inni og 23,27 úti). Sigurður Lúðvík Stefánsson varð 4. í B riðli í 60 m. hlaupi á 7,35 sek., Ingvar Haukur Guðmundsson, varð í 4. sæti í 3000 m. hlaupi á 9:48,11 Meistaramót Íslands Fjölnir náði mjög góðum árangri á meistarmóti Íslands í frjálsum íþróttum 15-22 ára nú fyrir stuttu. Mótið var haldið í Laugardalshöllinni. Sveinn Elías Elíasson bætti eigið íslandsmet í 200 m. hlaupi. Boðhlaupssveit Fjölnis bætti íslandsmetið í 4x400 m. hlaupi en það voru þeir Sveinn Elías Elíasson, Bjarni Malmquist Jónsson, Ingvar Haukur Guðmundsson og Leifur Þorbergs-
son sem bættu íslandsmetið glæsilega. Bjarni Malmquist Jónsson var sá keppandi sem komst oftast á verðlaunapall í öllu mótinu, Bjarni sigraði stangarstökkið með stökki upp á 3,90 metra, sigraði í þrístökki, sigraði 400 m hlaupið, var í sigursveit-
inni í 4x400 m, lenti í öðru sæti í langstökki og náði þriðja sætinu í 60 m grindarhlaupi. Svo sannarlega fjölhæfur íþróttamaður þar á ferð. Einnig náðu Íris Anna Skúladóttir (3000 m hlaup og 1500 m hlaup) og Stefanía Hákonardóttir (800 m hlaup) að sigra í sínum greinum.
Grafarvogsblaðið Sveit Fjölnis sem setti Íslandsmet í 4x400 m hlaupi ásamt þjálfara sínum, Stefáni Jóhannssyni.
Auglýsingar og ritstjórn 587-9500
Gudda og Sirrý hafa keypt Hársport og Vera verður með okkur áfram á stofunni
Takk fyrir að skipta við okkur Opið virka daga frá kl. 09-18 og á laugardögum kl. 10-14
Hársport - Brekkuhúsum 1 - S. 567-3530
12
GV
Fréttir
Ísklifur í súrheysturni Veflistakona
Óskar eftir að taka húsnæði á leigu fyrir vinnustofu c.a. 30 - 40 fm Má þarfnast viðgerðar Uppl. í síma 586-1698 og 864-5503
Gamli súrheysturninn við Gufunesbæinn var í síðasta frostkafla ísi lagður og þá að sjálfsögðu nýttur til ísklifurs. Tvær vikur fóru í að gera ísinn tilbúinn þar sem vatni var úðað á grind sem fest er við turninn. Klifrararnir sem spreyttu sig eru flestir þrautreyndir og eru ýmist félagar í Íslenska alpaklúbbnum eða hjálparsveitum á höfuðborgarsvæðinu. Aðstaða þessi er kjörin til ísklifurs í öruggum aðstæðum og án tilheyrandi ferðalaga. Nýliðið hlýindaskeið bræddi því miður allan ísinn en vonast er til að næsti frostkafli bæti þar úr. Í Gufunesbæ er einnig góð aðstaða til veggjaklifurs inni í súrheysturninum og í hlöðunni og þar hefur meðal annars verið boðið upp á veggjaklifurnámskeið fyrir börn og unglinga undanfarna vetur. GV-mynd Freyr Ingi Björnsson
Kæru viðskiptavinir! Við erum byrjaðar að vinna með hárlengingar! Dagana 16. nóvember til 7. desember fá allir viðskiptavinir
Síttokkar hár á 120 mínútum! Hægt að nota aftur og aftur! 99% sem panta 100% lit ogmennskt strípurhár! PARAFIN handarmeðferð Hafið samband Frekari til að fáupplýsingar frekari upplýsingar ósýnilegt Hágæða hárlengingar hjá okkur í síma 567-6330
Hársnyrtistofan Höfuðlausnir Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is Opið: Mán 08.00-18.00 - þri - fim 09.00-18.00 fös 08:00-18:00
Pöntunarsími: 567-6330
Frábær febrúar í Orkuverinu Sex mánaðakort 19.990.-
Skólakort 12.990.Tveir fyrir einn á átaksnámskeiðum. Hefjast 21. febrúar Alhliða líkamsrækt og sjúkraþjálfun Egilshöllinni Simi: 594 9630
www.orkuverid.is
Falleg gjöf fyrir einstaklinga og fyrirtæki Falleg flugubox úr léttum viði með glæsilegum Við gröfum nöfn veiðimanna eða lógó og gjöfulum flugum eftir Kristján Gíslason. fyrirtækja á boxin Mikið úrval. Sjá nánar á www.krafla.is
Sjá nánar á www.Krafla.is
5 tegundir boxa - 26 laxaflugur - 18 laxaflugur - 20 Kröflur - 15 tvíkrækjur - 25 silungaflugur Framleiðandi: Skrautás ehf. - Sími: 587-9500 -
www.krafla.is
14
GV
Fréttir
Blómstrandi í Rimahverfi
- nýir eigendur hafa tekið við rekstrinum í Langarima
Eins og margur lesandi Grafarvogsblaðsins veit þá hefur blómaverslun verið rekin í verslunarkjarnanum í Rimahverfi síðan hann var reistur fyrir tæpum tíu árum. Nú hafa nýir eigendur tekið við rekstrinum og er það ætlun þeirra að sinna enn betur íbúum hverfisins með auknu framboði af afskornum blómum og innflutningi á öðruvísi gjafavöru en fást í hefðbundnum blómabúðum. Opnunartíminn er frá 12-20, alla daga vikunnar. Nafn verslunarinnar er ,,Blómstrandi – verslun með öðruvísi gjafavöru’’. Eigendurnir eru Jón Tryggvi og Sibeso Imbula, ung hjón sem hafa mikinn áhuga á samfélagsmálum og vilja gera sitt til að fegra umhverfið. ,,Við tókum við rekstrinum nú um áramótin. Það var ákvörðun okkar að breyta um nafn á versluninni til að leggja áherslu á að við erum ekki eingöngu með hefðbundnar blómaskreytingar heldur bjóðum við og upp á sérstaka og handunna gjafavöru frá sunnanverðri Afríku, Indlandi og víðar að úr heiminum. Við vinnum með öðru góðu fólki í hjálparstarfi víða um heim og í gegnum það starf höfum við kynnst því frábæra handverki sem unnið er í þessum löndum og viljum gjarna gefa Íslendingum kost á þessum munum á hóflegu verði.’’ Aðspurð segjast þau ætla að leggja áherslu á hóflega verðlagningu en breikka vöruúrvalið. ,,Hún Kata, sem var hérna með Blómasmiðjuna áður, var alltaf með góð verð í samanburði við aðra blómasala og við ætlum að halda okkur á þeim nótum. Við erum mjög bjartsýn á reksturinn, við höfum svo góða nágranna hér í kjarnanum, segir Jón Tryggvi. Fyrir utan 10-11 búðina sem allir þekkja, þá er Rimaapótek við hliðina á okkur, þekkt fyrir að vera ódýrasta apótekið í bænum. Nú svo er það Miðgarður þar sem íbúar sækja margvíslega þjónustu, auk þess sem hverfislögreglan er á neðri hæðinni og lítur eftir öllu. Þetta gæti bara ekki verið betra!’’ Sibeso og Jón Tryggvi bjóða ykkur velkomin í verslunina ,,Blómstrandi’’, Langarima 21. Sími verslunarinnar er 587-9300.
Atvinnuhúsnæði óskast til leigu Ca 50-80 fermetra verslunar og/eða skrifstofuhúsnæði óskast til leigu Snyrtileg aðkoma skilyrði
Heilsuhorn Grafarvogsblaðsins:
Getubætandi lyf - eftir Georg Ögmundsson í Orkuverinu Undanfarið hefur lögreglan verið dugleg við að uppræta sendingar af ólöglegum lyfjum. Um það er ekkert nema gott að segja og sýnir að íslenska lögreglan er að standa sig í stykkinu. En í ljósi þessarra funda fer þessi endalausa umræða um getubætandi lyf aftur af stað. Í hvert skipti sem þessi umræða dettur inn þá hrynja yfir mig spurningar um þessi efni og viti menn, þessi umræða einkennist af fordómum og fáfræði. Fordómarnir liggja í því að fólk virðist vera með það á hreinu að ég viti allt um þennan málflokk þar sem ég legg stund á kraftaíþróttir en ekki vegna þess að ég hef lagt stund á krefjandi heilbrigðistengt háskólanám. Hver veit? það er möguleiki á því að ég hafi verið vakandi í lífeðlisfræðitímum. Fáfræðin einkennist svo í spurningunum og ákvað ég að slá margar flugur í einu höggi og svara þeim hér. Sögulegt ágrip Notkun getubætandi lyfja er síður en svo nýtt fyrirbæri. Það kemur kannski á óvart að til eru heimildir fyrir notkun Kínverja á jurt sem heitir ma huang fyrir allt að 5000 árum síðan. Jurtin var notuð til að auka einbeitingu og auka orku. Inkar og mayar tuggðu kókalauf í sama tilgangi. Grikkir til forna voru kannski fyrstir til þess að ráða lyfjafræðinga sér til hjálpar, þ.e. svokallaða seiðmenn. Þeir bjuggu til hinar ýmsu formúlur úr fræjum og plöntum til þess að bæta árangur íþrótta-
manna á þeirra fyrstu Ólympíuleikum. Víkingar fundu sveppi sem þeir átu fyrir bardaga til þess að koma sér í réttu stemminguna, þeir sem átu þessa sveppi komust í berserksham. Þessir sveppir eru vel þekktir í dag og ganga undir nafninu berserkir. Það er svo ekki fyrr en undir lok átjándu aldarinnar að fyrst eru gerðar tilraunir með testósterón. Þá hafði franskur vísindamaður sprautað sjálfan sig með vökva sem búinn var til úr eistum naggrísa, smekklegt. Það var ekki fyrr en eftir seinni heimsstyrjöldina að testósterón fann síðan leið sína inn í íþróttaheiminn. Þegar talað er um getubætandi lyf virðast flestir halda að það eina sem sé í boði séu sterar. Raunin er sú að þeir eru bara smá hópur í sístækkandi lyfjasúpu. Það eru í raun til lyf fyrir hvert tilefni til að stækka, minnka, styrkjast, auka þol og fleira og fleira. Getubætandi lyf eru algengari en við höldum og neytum við sjálfsagt öll einhverra lyfja sem eru á bannlista hjá Alþjóða Ólympíusambandinu, t.d. koffín, astmalyf, hjartalyf o.s.frv. Það er þó grundvallar munur á því að fá sér kaffibolla til að hressa sig við og fá sér koffínpillu til að hlaupa hraðar. Hverjir nota getubætandi lyf ? Notkun getubætandi lyfja er ótrúlega algeng í heiminum og gera fæstir sér grein fyrir því hversu stórt vandamál þessi lyf í raun eru. Ef við tökum til að mynda anabóliska stera þá kom í ljós í kanadískri könnun að
Georg Ögmundsson, aflraunamaður og eigandi Orkuversins í Egilshöll. þeir voru í öðru sæti yfir ólögleg lyf sem notuð voru af unglingum. Þetta segir okkur að þessi lyf eru ekki lengur bundin við íþróttamenn heldur orðin algeng meðal almennings. Það er ekki gott að segja hvernig ástandið er hérlendis þar sem notkun á meðal almennings hefur ekki verið skoðuð, allavega ekki mér vitandi. Það virðist vera almmenn vitneskja að sterar séu einungis notaðir af stórum og heimskum vaxtarræktar- og kraftlyftingamönnum. Staðreynd málsins er allt önnur. Það eru notuð getubætandi lyf í öllum íþróttagreinum, sama hvað þær heita. Eini munurinn er nafnið á lyfinu. Þegar umræða einnkennist af jafnmikilli fáfræði og einelti og lyfjaumræðan þá er skautað fram hjá alvarleika málsins. Um leið og einn blóraböggull er krossfestur er horft fram hjá þeim alvarleika að almenningur er að sökkva í þennan pitt. Að lokum vil ég koma frá sjálfum mér að ég verð móðgaður þegar einhver heldur því fram að smá lyfjanotkun komi í staðinn fyrir margra ára þrotlausa þjálfun. Þegar öllu er á botninn hvolft þá er það æfingin sem skapar meistarann. Kveðja, húsbóndinn í Orkuverinu.
Upplýsingar í síma: 699-1322 / 698-2844
Þessar dömur í Rimaskóla tóku sig vel út með ,,börnin sín’’.
,,Hugsað um barn’’ í 8. bekk Rimaskóla Tölvuþjónusta fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Netverslun með tölvubúnað og rekstrarvöru www.bst.is Gylfaflöt 24-30 Sími: 5679760
Rimaskóli býður nú annað árið í röð nemendum og foreldrum 8. bekkjar upp á að taka þátt í verkefninu ,,Hugsað um barnið’’. Verkefnið er lagt upp sem forvarna- og fræðsluverkefni. Fræðslan felst í því að nemendur skilji og finni til mikilvægi þess að seinka kynlífsiðkun og koma í veg fyrir ótímabærar þunganir og kynsjúkdóma. Áhugaverðast er að fá að ala önn fyrir forrituðu ungabarni eina helgi. Ungabarnið er dúkka sem að útliti
og þyngd líkist eins mikið raunveruleikanum og hægt er. Líkt og með alvöru ungabörn þá krefjast þessar forrituðu dúkkur þess að á þeim sé skipt, þau fái pelann sinn og þeim sé sinnt þegar þau taka upp á því að gráta jafnt daga sem nætur. Umsjón með verkefninu hefur Jónína Ómarsdóttir kennari. Það var líf í tuskunum í stofu 36 þegar nemendur í 8-T riðu á vaðið og héldu af stað með ungabörnin sín inn í helgina 2. 4. febrúar. Af þessu tilefni komu
nemendur á mömmumorgni, tóku nýburana með sér í búðir og afmælisboð. Mesti glansinn var hins vegar farinn af þessu foreldrahlutverki þegar helgin var liðin. Nemendur 8T virtust margir dauðfegnir þegar þeir skiluðu barninu af sér á mánudagsmorgni. Þau urðu reynslunni ríkari og ein alvörumamman lét hafa það eftir sér að hún yrði ábyggilega ekki amma í bráð.
15
GV
Fréttir
Fjör í handboltanum
Fjörugt hefur verið í handboltanum að undanförnu. Handknattleiksdeild Fjölnis hélt velheppnað skólamót í upphafi HM í janúar og góður árangur landsliðsins á HM í Þýskalandi hefur aukið áhuga unglinganna á íþróttinni. Mörg ný andlit hafa látið sjá sig á æfingum upp úr áramótum og það stefnir því í að Fjölnir geti fjölgað handboltaliðum sínum á næstu mótum vetrarins. Nokkur mót eru nýafstaðin. 6. flokkarnir héldu á 2. umferð Íslandsmóts vetrarins helgina 19.-21. janúar, drengirnir á mót hjá Fram og stúlkurnar hjá Gróttu. Strákarnir sendu
fjögur lið til keppni að þessu sinni og stelpurnar sendu tvö lið. Krakkarnir voru öll að standa sig afar vel og voru sjálfum sér og félaginu til sóma á mótinu með framgöngu sinni innan vallar sem utan. A-lið drengja spilaði feikivel og vann 5 leiki og gerði eitt jafntefli og lenti í 2. sæti á mótinu eftir spennandi úrslitaleik við FH. 5. flokkarnir kepptu helgina 26.-28. janúar á 2. umferð Íslandsmóts. Drengirnir kepptu að þessu sinni hjá Haukum í Hafnarfirði, en stúlkurnar í Laugardal á móti haldið af Ármanni, Þrótti og Val. Báðir flokkar sendu tvö lið til keppni, A-lið og B-lið.
Öll fjögur liðin voru að keppa í afar erfiðum riðlum, en unglingarnir okkar sýndu mikið keppnisskap og leikgleði og áttu flotta og lærdómsríka leiki. Mörg spennandi mót eru framundan í handboltanum á næstu vikum fram á vorið og þar mætum við enn fjölmennari til leiks með nýjum iðkendum sem bæst hafa í hópinn að undanförnu. Verið velkomin(n) á handboltaæfingar hjá Fjölni, allar nánari upplýsingar eru á www.fjolnir.is. Ragnheiður Þórarinsdóttir, ritari handknattleiksdeildar
Barnakór og Unglingakór Grafarvogskirkju
Þjálfararnir Arna og Berta með hópinn sinn – 5. flokk kvenna.
Góður hópur saman kominn í markinu - 5. flokkur karla.
Ætlum að setja upp söngleik í vor og auglýsum því eftir söngröddum í kórana Hér er tækifæri til að blómstra sönglega séð, hvort heldur sem er fyrir einsöngsraddir eða í kór Allir fá þjálfun í söng, undir leiðsögn söngkennara og píanista í fyrsta flokki Unglingakórinn er fyrir stelpur og stráka á aldrinum 1218 ára, Barnakórinn er fyrir stelpur og stráka á aldrinum 9-11 ára Skráning og uppl. hjá Svövu Kristínu í síma 867-7882 eða á netfanginu svavaki@simnet.is
Nýjar DVD myndir + ein eldri á kr. 350,-
Skalli Hraunbæ 102
Flottir með verðlaunapeningana – 6. flokkur karla.
Sími: 567-2880