Skip to main content

Grafarvogsbladid 11.tbl 2007

Page 1

Grafarvogsblaðið 11. tbl. 18. árg. 2007 - nóvember

Eitt númer

410 4000

Dreift ókeypis í öll hús í Grafarvogi

Bifreiðaverkstæði Grafarvogs

Allar almennar bílaviðgerðir Gylfaflöt 24 - 30 • 112 Reykjavík Sími 577 4477

Þjónustuaðili

Mjódd – Kringlan- Spöng Fimleikastúlkur úr Fjölni skelltu sér í æfingaferð til Danmerkur fyrir nokkru og skemmtu sér konunglega. Stúlkurnar lögðu mikið á sig til að komast í ferðina sem var afar vel heppnuð. Hér eru stúlkurnar eftir vel heppnaða ferð í Legoland. Nánar á bls. 12 og 13

Einstök jólagjöf fyrir veiðimenn Falleg flugubox með vinsælum laxaog silungaflugum frá Krafla.is Tilvalin gjöf fyrir einstaklinga og fyrirtæki Kannaðu málið á Krafla.is eða í síma 587-9500

Opið í Spöng og Mjódd Mán.– fim. 10-18 Föstudaga 10-19 Laugardaga 10-16 Opið í Kringlunni

Mán.– fim. 10-18 Föstudaga 10-19 Laugardaga 10-18 Sunndaga 12-16

Gröfum nöfn veiðimanna og lógó fyrirtækja á boxin

Við erum alltaf í leiðinni Landsbankinn leggur áherslu á faglega fjármálaþjónustu fyrir fyrirtæki og einstaklinga í Grafarvogi. Við tökum vel á móti þér í útibúum okkar að Vínlandsleið 1 og Höfðabakka 9.

Jólablað GV kemur út 6. desember Jólablað Grafarvogsblaðsins kemur út þann 6. desember. Efni blaðsins verður fjölbreytt að vanda og að miklu leyti tengt jólunum. Þeir aðilar sem áhuga hafa á að auglýsa í blaðinu hafi samband á gv@centrum.is eða í síma 587-9500.


2

GV

Fréttir

Grafarvogsblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: skrautas@simnet.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Netfang Grafarvogsblaðsins: gv@centrum.is Ritstjórn og auglýsingar: Bíldshöfða 14 - Sími 587-9500 / 698-2844. Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir, Stefán Kristjánsson. Prentun: Landsprent ehf.. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll hús og fyrirtæki í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi og öll fyrirtæki í póstnúmeri 110.

Hallsvegurinn Útlit er fyrir harða baráttu næstu mánuðina vegna þeirra áforma að flýta lagningu Hallsvegar í gegnum mitt Grafarvogshverfi. Ljóst er að Íbúasamtök Grafarvogs munu berjast til síðasta manns gegn þessari framkvæmd. Það hlýtur að teljast hæpið að kljúfa 20 þúsund manna hverfi í tvennt með þvílíkri hraðbraut sem Hallsvegurinn verður ef af framkvæmdum verður. Annars er maður orðinn öllu vanur þegar borgaryfirvöld eru annars vegar og þá eru hagsmunir íbúa og óskir þeirra sjaldan virtar. Rétt er að vekja áhuga þeirra Grafarvogsbúa sem áhuga hafa á málinu að nú mun fyrirhugað að flýta mjög framkvæmdum við Hallsveg. Ef Íbúasmtökin verða ekki á varðbergi og allir þeir íbúar sem ekki eru hrifnir af framkvæmdinni þá vakna þeir fljótlega upp við að vinnuvélarnar séu byrjaðar og þá verður ekki aftur snúið. Til er einföld lausn sem allir geta sætt sig við. Að leggja Hallsveginn í stokk. Vissulega er það dýrasti valkosturinn í stöðunni en sá langbesti. Yfirvöldum er tamt að spara aurinn og kasta krónunni þegar kemur að stórum framkvæmdum. Krafa Grafarvogsbúa númer eitt á að vera að Hallsvegurinn verði lagður í stokk og við eigum hvergi að víkja frá þeirri kröfu. Að öðru og skemmtilegra máli. Lið Fjölnis í Landsbankadeildinni styrkist nú á hverjum degi. Nýverið sömdu þeir Óli Stefán Flóventsson, sem lék áður með Grindavík, og Ágúst Gylfason, sem áður lék með KR, við Fjölni og munu þessir reynsluboltar reynast ungu liði Fjölnis vel á næstu leiktíð. Þá bárust af því fregnir skömmu áður en blaðið fór í prentun að Ólafur Páll Snorrason væri genginn til liðs við Fjölni frá FH. Er liðinu mikill styrkur í honum. Í blaðinu að þessu sinni segjum við í máli og myndum frá skemmtilegri æfingaferð fimleikastúlkna úr Fjölni til Danmerkur. Þetta var afar lærdómsrík ferð og stelpurnar lögðu mikið á sig við fjáröflun fyrir ferðina. Við minnum á jólablað Grafarvogsblaðsins sem verður dreift fimmtudaginn 6. desember. Stefán Kristjánsson

gv@centrum.is

Tveir hættulegustu þjóðvegir landsins tengdir saman og leiddir gegnum Grafarvog ef af fyrirhuguðum framkvæmdum verður:

Við köllum menn til ábyrgðar! Með tengingu Hallsvegar með mislægum gatnamótum upp á Vesturlandsveg, Úlfarsfellsveg, yfir Hólmsheiði að Suðurlandsvegi verðum við fyrir óafturkræfu umhverfisslysi! Frá því Hallsvegur var fyrst settur á aðalskipulag hafa forsendur tekið stakkaskiptum. Íbúar lýsa furðu sinni á gamaldags vinnubrögðum? Að menn hafi ekki látið sér aðkallandi vanda vegna umferðaþunga í grónum hverfum sér að kenningu verða og reyni því að forðast nýjar framkvæmdir sem dæmdar eru til að verða skipulagsklúður í komandi framtíð. Með lagningu Hallsvegar er fyrirhugað að beina umferð af Vesturlandvegi Úlfarsfellsvegi, atvinnusvæðum á Hólmsheiði frá Suðurlandsvegi í gegnum Grafarvogshverfið inn á komandi Sundabraut. Það er vert að íhuga að Vesturlandsvegur og Suðurlandsvegur eru með hæstu og alvarlegust slysatíðni landsins. Þessari umferð hyggjast menn beina í gegnum friðsælt íbúahverfi! Þrátt fyrir að íbúar hafi hreyft við mótmælum nú á annan áratug um fyrirhugaða lagningu og tengingar Hallvegar við Vesturlandsveg, farið með málið fyrir dómstóla og unnið það. Þá vinna vegamála- eða samgönguyfirvöld að því hörðum höndum að flýta sem mest má tengingu Hallsvegar við mislæg gatnamót Vesturlandsvegar, líklega í von um að íbúar séu búnir að gleyma. Íbúar hafa löngum gert sér grein fyrir þeirri blóðtöku sem þessi framkvæmd hefur á hverfið í heild. Þrátt fyrir að forsendur lagningar hafi breyst gífurlega í gegnum árin eru sjónarmið íbúa þau sömu: Að varðveita friðsælt íbúahverfi og halda nýlegu hverfi frá, gegnumakstri utanaðkomandi umferðar, hættum og mengun eins og kostur er. Skipulag er ekkert lögmál sem er óbreytanlegt menn vita að aðalskipulag má breyta ef það þjónar íbúum. Hallsvegur er samt enn skilgreindur sem þjóðbraut í þéttbýli eða stofnbraut þar sem leyfður verður meiri umferðarhraði en almennt er í íbúahverfum borgarinnar. Í stað 30 km verður leyfilegur hraði frá 60 km - 90 km, mitt í gegnum hverfið fram hjá fjölmennasta ungmenna- og íþróttafélagi landsins.

að undanförnu hefur verið að reisa mikið verslunarhúsnæði við fyrirhugaða tengingu. Annars séu hagsmunir þeirra í hættu. Krafa þeirra er sögð vera að flýta skuli Hallsvegstengingu upp á Vesturlandsveg og um mislæg gatnamót til að mæta kröfum verslunareigenda um að auka aðgengi væntanlegra viðskiptavina þeirra að verslunarhúsnæðinu! Leggjum við til að þessar framkvæmdir verði teknar til gagngerrar heildarendurskoðunar m.t.t. hagsmuna íbúa hverfisins nú og í komandi framtíð. Mál verslunareigendanna verði tekin sérstaklega fyrir. Hagsmunir íbúa verða að ganga fyrir hagsmunum fjárfesta og einstakra hagsmunaðila og auðvalds. Við leggjum til að fundin verði einföld lausn á því máli. T.d. með því að hanna einfalda brú undir Vesturlandsveg til að auðvelda aðgegni frá suðri. S.s. eins og Grafarholtsveg undir Vesturlandsveg. Aukin slysahætta auk stóraukin heilsuspillandi svifryksmengun við fjölmennasta íþróttafélag landsins. Hallsvegur liggur rétt við eitt fjölsóttasta ungmennafélag og íþróttasvæði landsins í Dalhúsum þar sem þúsundir barna stunda íþróttir og íbúar á öllum aldri sækja sund. Sýnt hefur verið fram á að svifryks- og loftmeng-

Drög að matsáætlun í auglýsingu Nú á dögunum auglýsti Vegagerðin drög að matsáætlun um þessa framkvæmd. Íbúasamtökin hafa sent harðorðar athugsemdir við þessum tillögum. Forsendur fyrir lagningu og tengingu Hallsvegar hafa tekið stakkaskiptum á þessum langa tíma frá því baráttan hófst. Og alltaf versnar hún fyrir hverfið. En staðreyndin er sú að þessi tenging er algerlega óþörf í dag og kemur ekki til með að þjóna Grafarvogsbúum á neinn hátt. Aftur á móti hafa öryggis og heilsusjónarmið vikið fyrir hagsmunum auðvalds sem er að reisa miklar verslunarbyggingar og gera kröfu um þessa framkvæmd sem greiða fyrir aðkomu viðskiptavina sinna og krefjast þeir misslægra gatnamóta og að fá umrædda vegtengingu. Við förum fram á að þessum framkvæmdum verði ýtt út af borðum skipulags- og samgönguyfirvalda strax eins og þau eru sett fram í þessum drögum Vegagerðarinnar. Við gerum alvarlega athugasemd við þá skýringu sem fulltrúar framkvæmdaryfirvalda hafa gefið okkur á nauðsyn þess að hraða framkvæmdum við tenginu Hallsvegar við Vesturlandsveg, sé vegna kröfu eigenda verslunarrisa sem

Ekki lengur sömu forsendur fyrir tenginu Hallsvegar upp á Vesturlandsveg Í forsendum framkvæmdar er tekið fram að markmið sé ekki hvað síst að stuðla að greiðari samgöngum milli hverfa. Þrátt fyrir að Hallsvegurinn hafi verið lengi á skipulagi hafa forsendur breyst verulega á þeim tíma og aðrar vegtengingar, sem ekki voru á aðalskipulagi, leyst þörfina á að komast út úr hverfinu og tengingar við önnur hverfi. Hallsvegur þjónar ekki hagsmunum fyrir íbúa Grafarvogs og verður því eingöngu gegnumakstursleið sem ekki á heima í miðju íbúahverfi. Umferðamannvirki sem þessi eru venjulega skipulögð utan um hverfi íbúa eins og nýjar ígrundaðar skynsamar framkvæmdir erlendis sýna. Það eru góðar tengingar við Vesturlandsveg og austurbyggðirnar um mislæg gatnamót við Víkurveg og einnig tenging um Korpúlfsstaðaveg, sem báðar nýtast vel því eru um þrjár megin tengingar út úr hverfinu, auk tengingar undir Ártúnshöfða, Grafarholtsveg og leið í meðfram Bryggjuhverfi. Með Sundabraut bætist enn ein tenging við, Grafarvogshverfi er því vel í sveit sett hvað varðar

Elísabet Gísladóttir, formaður Íbúasamtaka Grafarvogs, skrifar: un er mikil og alloft yfir heilsufarsmörkum við mestu umferðargötur. Fjöldi vísindarannsókna sýnir fram á alvarlegar afleiðingar á heilsu manna sem eru í nálægð við mikil umferðamannvirki. Lungu barna eru sérstaklega viðkvæm og því meira sem öndun er hraðari og dýpri eins og við íþróttaiðkun. Það er skylda stjórnvalda að standa vörð um lýðheilsu íbúanna. Því ber að forðast að velja slíku stað þar sem sýnt er að áhrif loftmengunar, svifryks og hávaða verða langt umfram hættumörk við æfingasvæðin.

vegtengingar og síst af öllu þarf enn eina vegtenginguna yfir Úlfarsá til austurs. Tengingin, er í dag, óþörf fyrir íbúa sunnan Vesturlandsvegar m.t.t. nýrra mannfjöldaspár í Reykjavík næstu fimmtíu árin. Annað sem benda má á er að fram kemur í nýjustu niðurstöðum um mannfjöldaspá í Reykjavík að fjölgun verður ekki eins mikil og menn ætluðu, sem dregur úr eftirspurn eftir nýbyggingum í úthverfum eins og hverfum við Úlfarsfell. Því geta þeir íbúar þeirra hverfa nýtt sér Ártúnsbrekkuna sérstaklega eftir að Sundabrautin verður lögð því mikill hluti Grafarvogsbúa sem og Mosfellinga, munu nýta Sundabraut og þar með létta á umferðarþunga um Ártúnsbrekku, sérstaklega ef Sundabraut verður á ytri leið. Sem styrkir þá röksemd að ekki sé þörf á Hallsvegstengingu. Lífsgæði, útivist og náttúra Tenging Hallsvegar við Vesturlandsveg krefst enn einnar framkvæmdar við Úlfarsána eða Korpu. Áin er á náttúruminjaskrá vegna einstakra skilyrða fyrir lífríkið. Áin er einnig ágæt laxveiðiá. Fjöldi íbúa notar umhverfi árinnar til hollrar útivistar og við bakka árinnar er vinsæll golfvöllur. Öllum þessum verðmætu lífsgæðum er stefnt í voða verði af þessari framkvæmd þar sem friðsælu og endurnærandi umhverfi verður skipt út fyrir stöðugt áreiti umferðarþungans. Eins og fram hefur komið hafa íbúasamtökin mótmælt þessu og telja að verið sé að fórna framtíðarhagsmunum borgarbúa fyrir hagsmuni skammsýnna sjónarmiða og auðvalds. Við förum fram á eftirfarandi: - Að heildarúttekt verði gerð á allri framkvæmd m.t.t. mats á breyttum forsendum á umferðamagni frá Vesturlandsvegi og Hólmsheiði /Suðurlandsvegi ef af verður að Sundabraut og breyttum lífskilyrðum íbúa. - Að kannaðir verði möguleikar á að fara með þessa framkvæmd í stokk. - Að fyrir liggi áhættumat lungnasérfræðinga, við fjölmennasta ungmenna- og íþróttafélag landsins. Hvað það kostar þjóðfélagið í heilbrigðisþjónustu! - Einnig að fyrir liggi raunhæft mat á áhættu og öryggismat frá sérfræðingum í umferðaöryggi barna. Við köllum menn til ábyrgðar! Grafarvogsbúar! Við þurfum að standa saman að því að vernda hverfið okkar. Við skorum á borgaryfirvöld að taka af skarið og standa vörð um hagmuni okkar og hindra þessar framkvæmdir. Einnig höfum við skorað á samgönguyfirvöld og þingmenn okkar í Reykjavík norður að kynna sér þessi mál og koma í veg fyrir þennan óafturkræfa verknað og láta hlutlausa aðila í að skoða að setja þessa þjóðbraut í stokk eða veita þessum mikla umferðaþunga í annan farveg en mitt í gegnum hverfið okkar.


Ítalíu vörulínan samanstendur af hágæða ítölskum vörum sem eru sérvaldar fyrir þig. Þær endurspegla allt það besta sem ítalska eldhúsið hefur upp á að bjóða.

Ítalía pastasósa með basiliku Þetta er 100% lífræn ræktun frá Toscana. Þetta er frábær pastasósa bragðbætt með lífrænni basiliku, tilbúin beint í t.d. pastaréttinn eða annan rétt sem kallar á góða tómatsósu.

Ítalía pastasósa með grænmeti Þetta er 100% lífræn ræktun frá Toscana. Þetta er frábær pastasósa bragðbætt með lífrænu grænmeti, tilbúin beint í t.d. pastaréttinn eða annan rétt sem kallar á góða tómatsósu. Sósan getur líka hentað sem pizzasósa.

Ítalía tómata passata Hér erum við með 100% lífræna ræktun frá Toscana. Passata eru maukaðir tómatar sem hafa svo verið sigtaðir til að taka frá skinn og kjarna. Úr verður því hentugur tómatagrunnur sem er undirstaða í alla ítalska matargerð. Sósan er einnig frábær sem pizzasósa.

Ítalía extra virgin Toscana ólífuolía Hér erum við með Toscana ólífuolíu. Á hálsi flöskunar má sjá grænan Toscana miða. Þessi miði er hæsta gæðamerki sem olíur á Ítalíu fá. Hann staðfestir að öllum ströngustu gæðastöðlum sem héraðið setur fram hefur verið framfylgt. Þetta er dýrari olía sem unnin er úr ólífum sem allar eru ræktaðar í Toscana héraðinu og eru gæðin í sérflokki. Þetta er svona spari-olía sem þú notar á fínu réttina þegar gera á eitthvað alveg sérstakt.

Ítalía extra virgin hvítlauksolía Mjög vönduð extra virgin ólífuolía, sem er unnin úr ítölskum ólífum og bragðbætt með kreistum hvítlauk. Þetta er frábær olía á pizzur, salöt og fleiri rétti þar sem þú vilt fá meira hvítlauksbragð.

Ítalía tómatar heilir Þetta er 100% lífræn ræktun frá Toscana. Í krukkunni eru heilir tómatar og fyllt er upp í krukkuna með maukuðum tómötum (passötu). Grunnur í alla ítalska matargerð.

Ítalía tómatar maukaðir

Ítalía risotto

Þetta er 100% lífræn ræktun frá Toscana. Tómatarnir eru maukaðir, með smá biti og eru því grófari en Passata. Grunnur í alla ítalska matargerð.

Við bjóðum upp á frábærar tegundir af bragðbættu risotto. Risotto er einn af þekktari réttum Ítala. Ristotto grjón eru soðin á sérstakan hátt þar sem þau eru látin taka í sig mismunandi bragð og svo gjarnan borin fram sem forréttur. Í línunni okkar erum við með 3 tegundir: Tómata og basil, 4 osta og trufflusveppa risotto.


4

Matgoggurinn

GV

Pizza og Tiramisu - að hætti Hildar og Jóhanns

Hildur Inga Björnsdóttir og Jóhann Kristjánsson, Dalhúsum 107, eru matgoggar okkar að þessu sinni. Girnilegar uppskriftir þeirra fara hér á eftir: Heimagerð pizza að hætti Jóhanns - fyrir 6-8 Uppskriftin er eftirfarandi sem hentar í tvær stórar skúffupizzur (þ.e. passa í ofnskúffu) og afgangurinn af deiginu er notaður til að búa til brauðstangir (fæ stundum aðstoð frá 6 ára dóttur minni við þetta): Deigið (þunnur og stökkur botn) 2 dl. af köldu vatni sem er hitað upp í stofuhita og sett í stóra skál. 10 gr. af þurrgeri sett í vatnið og hrært létt í með skeið. 5 tsk. af hrásykri og 2 tsk. af salti bætt út í (má sleppa en mæli ekki með því). Rúmlega 1 msk. af ólífuolíu (extra vergine,) bætt út í. 2 msk. af bjór bætt við (má ekki klikka) og gjarnan hella í glas til að dreypa á við baksturinn. Að lokum eru sett uþb. 175 gr. af hveiti og hnoðað saman. Deigið látið standa og hefa sig aðeins meðan áleggið er undirbúið.

Álegg Ég legg áherslu á að nota sem mest af fersku hráefni á pizzuna og mín uppáhalds útgáfa er eftirfarandi: 1 meðalstór ferskur ananas (lítill dugar) skorinn í litla bita. Ef það er afgangur má bjóða hann sem lystauka á undan meðan pizzan bakast. Ferskur hvítlaukur, eitt-tvö lauf eftir smekk, saxaður niður í litla bita. 2-3 ferskir tómatar skornir í þunnar sneiðar. 1 1/2 ferskur laukur saxaður í sneiðar. 1 marabo ostur (má sleppa og nota í staðinn pizza ost í pokum). 2-3 pokar af rifnum pizza osti. 1-2 préf af Ali pepperoni (má einnig nota skinku og/eða bacon). 1 meðalstór ferskur, rauður chilli skorinn smátt. 1 krukka af jalepeno. 1-2 krukkur af salsa sósu (nota ,,hot’’ fyrir þá sem það vilja en ,,mild’’ fyrir krakkana). Aðferð Þegar ég er búinn að skera niður allt sem á að fara á pizzuna og setja það í skálar er komið að því að fletja deigið út og er gott að hnoða deigið vel áður. Ég tek ca 1/3 af deiginu, strái hveiti á borðið og

Hildur Inga Björnsdóttir og Jóhann Kristjánsson ásamt dóttur sinni Æsu. flet það út þannig að það þeki rúmlega ofnskúffustærð svo að botninn verði mjög þunnur. Strái smávegis hveiti á ofnskúffurnar og set botninn í skúffuna. Gott er að setja ofninn í gang á 175-180 gráður á þessum tíma til að ofnin sé orðinn vel heitur þegar pizzan er tilbúin að fara inn í ofninn. Næst er að rúlla aðeins uppá kantana til að fá smá brún og dreifa vel af salsa sósu á pizzuna (í staðinn fyrir hefðundna pizzusósu). Síðan sker ég niður sneiðar af maribo ostinum og þeki

vel, set svo pepperoni á pizzuna og þar yfir hitt hráefnið sem ég dreifi vel úr (eftir smekk) og set svo vel af pizza osti yfir í lokin. Þegar þetta er komið þá er pizzan tilbúin til að fara í ofnin og bakast í um 15-20 mínútur. Yfirleitt set ég brauðstangirnar í ofninn á undan pizzunum til þess að fólk geti nartað í þær áður en pizzan er tilbúin (mikið uppáhald hjá öllum - sér-

GV-mynd PS

1- 1 1/2 pakki af Lady Fingers (fer eftir því hvernig þeir raðast). ½ plata af dökku suðusúkkulaði. Aðferð 1. Þeyta eggjarauðurnar þar til þær eru orðnar stífar. Blanda mascarpone ostinum saman við ásamt vanillusykrinum og þeyta saman þangað til osturinn

Unnur og Ragnar Sær eru næstu matgoggar Hildur Inga Björnsdóttir og Jóhann Kristjánsson, Dalhúsum 107, skora á Unni Ágústu Sigurjónsdóttur og Ragnar Sæ Ragnarsson, Dalhúsum 70, að koma með girnilegar uppskriftir í næsta blað. Við birtum frá þeim uppskriftir 6. desember.

Nýtt: Hárlengingar og þykking á frábæru verði. Vorum að fá extra sítt hár. Vönduð vinnubrögð. Notum aðeins hágæða hár frá BALMAIN Paris. Skoðið myndir á stubbalubbar.is Fléttunámskeið að hefjast. Skráning í síma 586-1717. Hárgreiðslustofa Helenu - stubbalubbar - Barðastöðum 1-5 Sími 586 1717 - panta tíma á netinu! - stubbalubbar.is Opnunartími: mán-mið 10-18, fim 10-19, laugard 10-16

staklega yngri kynslóðinni). Ef það er afgangur af pizzunni er ekki síðra að narta í hana daginn eftir og er einnig frábær köld. en oftast nær er hún kláruð á staðnum. Þessi matur fer yfirleitt vel í alla og hentar vel við afslöppuð tilefni og gaman að blanda saman eldamennskunni og spjalli við gestina. Ég mæli með flösku af góðu rauðvíni t.d. Fonterutoli Chianti Classico, lagerbjór t.d. Anchor Steam Beer eða bara sódavatni með klaka. Tiramisu að hætti Hildar Ég lærði í Mílanó og heillaðist þá algjörlega af ítalskri matargerð. Eldamennskan á heimilinu einkennist því mjög mikið af því og nánast allt sem við eldum er undir einhverjum áhrifum frá Miðjarðarhafslöndunum. Við Jóhann skiptum oft með okkur verkum en þegar hann eldar er hann meira í aðalréttunum og ég í eftirréttunum og er Tiramisu mitt uppáhald. Fyrir 6-8 3 egg, aðskilin. 450 gr. mascarpone ostur, nauðsynlegt að taka hann úr ísskápnum 1-2 klst. áður. 2 tsk. vanillusykur. ¾ bolli sterkt espresso kaffi. ½ bolli Kahlua eða annar kaffilíkjör.

hefur alveg blandast við eggin. Hræra svo eggjahvítunum saman við. 2. Setja 1/3 af mascarpone blöndunni í í grunna skál (þvermál ca. 25 cm) og jafna út. Einnig er hægt setja eftirréttinn í nokkrar litlar skálar og bera hann fram þannig. Fyrir þá sem það vilja má sleppa líkjörnum og fyrir krakka er hægt að bleyta upp í fingrunum með kakói eða súkkulaði blandað með mjólk og setja eftirréttinn í sér skál. 3. Blanda saman kaffi og líkjöri í djúpan disk. Fingrum er dýft ofan í kaffiblönduna þannig að þeir blotni vel og raðað hlið við hlið ofan á mascarpone blönduna í skálinni þangað til að þeir þekja hana alveg. 4. Smyrja helming af því sem eftir er af mascarpone-blöndunni yfir fingurna í skálinni og þar ofan á raða fingrum eins og áður. Afganginum af líkjörsblöndunni er hellt yfir fingurna og að lokum er smurt yfir því sem eftir er af mascarpone blöndunni. Eftirrétturinn er látinn standa í ískáp yfir nótt og áður en hann er borinn fram er rifnu súkkulaði dreift yfir. Tiramisu ber ég fram með rótsterku espresso kaffi. Verði ykkur að góðu, Hildur Inga og Jóhann


15% vaxtaauki! Þeir sem stofna sparnaðarreikningana SPRON Vaxtabót, SPRON Viðbót eða SPRON Veltubót á Netinu fyrir 3. desember nk. fá um næstu áramót 15% vaxtaauka á áunna vexti.

SPRON Vaxtabót

SPRON Viðbót

SPRON Veltubót

– allt að 14,6% vextir* + vaxtaauki

– allt að 7,5% vextir* + vaxtaauki

– allt að 14,6% ársávöxtun* + vaxtaauki

• • • •

• • • •

• • • • •

Óverðtryggður Háir, stighækkandi vextir Stighækkandi vaxtaálag Alltaf laus

Verðtryggður Bundinn til 36 mánaða Háir grunnvextir Stighækkandi vaxtaálag að binditíma loknum

ARGUS / 07-0827

a TILBOÐ

Nýttu þér þett

ikning á og stofnaðu re

spron.is

Upplýsingar um innlánsreikninga SPRON fást í næsta útibúi SPRON, í þjónustuveri í síma 550 1400 eða á spron.is *Samkvæmt gildandi vaxtatöflu SPRON 1. nóvember 2007.

Óverðtryggður Háir, stighækkandi vextir Mánaðarleg greiðsla vaxta Stighækkandi vaxtaálag Alltaf laus


Fréttir frá Miðgarði:

Góð dagvistun er gulli betri Í Grafarvogi eru starfandi 33 dagforeldrar vítt og breitt um hverfið. Flestir eru með langa starfsreynslu að baki, en rúmlega 60% þeirra hafa starfað lengur en 6 ár. Það dagforeldri sem hefur starfað lengst er með 37 ára reynslu. Þó dagforeldrahópurinn sé stöðugur er alltaf þörf fyrir nýtt og gott fólk. Þann 31. október síðastliðinn hófst 70 stunda grunnnámskeið fyrir væntanlega dagforeldra, með nýju og breyttu námsefni. Námskeiðið er eitt af skilyrðum fyrir leyfisveitingu og eru þau haldin 1 2 sinnum á ári hverju. Mikilvægt er að foreldrar hafi sem breiðast val um dagvistun fyrir börnin sín og að þeim sé gulltryggð góð og örugg þjónusta. Í fyrsta sinn í Grafarvogi tóku til starfa 2 karlmenn sem dagforeldrar við árslok 2006 og ársbyrjun 2007 og útskrifuðust þeir báðir af grunnnámskeiðinu vorið 2007. Þeir starfa báðir við dagvistunina ásamt eiginkonum sínum á heimilum þeirra í Grafarvogi. Þeir eru Jónas Jón Hallsson og Friðleifur Ingvar Friðriksson. Úr löggæslu í daggæslu Jónas Jón Hallsson hafði starfað við löggæslustörf í um 39 ár þegar

hann ákvað að hætta. Hann tjáði okkur að hann hefði ákveðið að fara yfir í daggæslustarfið eftir að hafa fylgst með starfi eiginkonu sinnar, Ingu Hrannar Dagbjartsdóttur, sem starfað hefur sem dagforeldri í mörg ár. Honum finnst dagforeldrastarfið mjög gefandi, m.a. þau forréttindi að fá að fylgjast með þroska barnanna og kostur að fá að vera heima að starfa með konunni. Jónas sagðist hafa uppgötvað, eftir að hann fór að starfa sem dagforeldri, að hann hefði farið á mis við uppeldi sinna eigin barna vegna mikilla anna. Þau hjón hafa ákveðna verkaskiptingu í skipulagi dagsins. Jónas er með samverustund með börnunum á meðan Inga Hanna útbýr hádegisverð. Hann hefur bleyjuskipti og hún klæðir út í vagn o.s.frv. Að sögn Jónasar hefur dagforeldrastarfið staðist fyllilega þær væntingar sem hann hafði til þess og hann kann mjög vel við sig í starfinu. Þeim hjónum finnst mikið öryggi að starfa tvö saman. Þau leggja áherslu á rólegheit í samveru barnanna og að þau læri að virða hvert annað. Börnin þurfi, að þeirra mati, að finna fyrir ör-

yggi og reglu til þess að örva sjálfsöryggið. Algengast er að börnin séu hjá þeim í eitt ár og líta þau á þann tíma sem góðan undirbúning fyrir leikskóladvöl. Í starfinu hefur Jónas ekki fundið fyrir fordómum af því hann er karlmaður og börnin upplifa hann gjarnan sem afa og kalla hann því nafni. Að lokum segjast þau vera mjög heppin með foreldrahóp, en að alltaf væri misjafnt hversu langan tíma tæki að vinna traust foreldra. Fram kom hjá Jónasi að honum finndist nauðsynlegt að stytta vinnudag foreldra fremur en lengja fæðingarorlofið og að veikindadögum barna yrði fjölgað frá því sem nú er svo foreldrar geti verið heima með veik börn og þurfi ekki að óttast að missa vinnuna. Gefandi starf Friðleifur Ingvar Friðriksson hóf starf sem dagforeldri snemma árs 2007. Eiginkona hans, Hrönn Friðgeirsdóttir, átti fyrst hugmyndina um að þau færu að starfa saman sem dagforeldrar. Í upphafi fannst Friðleifi það fáránleg hugmynd. Hann hafði kynnst starfinu ágætlega í gegnum starf konu sinnar því Friðleifur vann lengi

vel vaktavinnu og var því oft heima yfir daginn en kona hans hefur starfað sem dagforeldri á heimili þeirra í rúmlega 20 ár. Þegar dóttir þeirra hjóna spurði pabba sinn að því af hverju hann ætlaði í þetta starf svaraði hann því til að hann ætti engin barnabörn og vistunarbörnin yrðu því hans "afabörn". Það hefur síðan komið honum skemmtilega á óvart hversu vel hann kann við sig í starfinu þrátt fyrir "hrakspár" barna sinna sem reiknuðu ekki með löngum starfsferli hans í dagforeldrastarfinu. Það var ekki fyrr en Friðleifur fór að starfa sem dagforeldri sem hann uppgötvaði hvað starfið er gefandi, þó það sé einnig stundum erfitt. Friðleifur hefur ekki fundið fyrir neinum fordómum frá foreldrum þó hann sé karlmaður. Fordómum hefur hann hins vegar fundið fyrir þegar hann er spurður af ókunnugum við hvað hann vinni. Í starfinu leggja þau hjón mesta áherslu á samstarf við foreldra barnanna sem vistast hjá þeim. Framtíðarsýn Friðleifs á dagforeldrastarfið er að það muni leggjast af eftir 5 - 10 ár þegar öll börn komast ung inn á leikskóla, með

Hera Hallbera Björnsdóttir, frístundaráðgjafi Miðgarði, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness hera.hallbera.bjornsdottir@reykjavik.is stofnun ungbarnaleikskóla. Þau hjónin hafa upplifað það í dagforeldrastarfinu að börnin fara sífellt yngri og yngri inn á leikskóla. Dagforeldrar Dagforeldrar búa flestir við félagslega einangrun í starfi og því er nauðsynlegt að hittast og bera saman bækur sínar. Reglulega eru haldin fræðslukvöld fyrir dagforeldra í Grafarvogi og eru meðfylgjandi myndir frá síðasta fræðslukvöldi sem haldið far mánudagskvöldið 29. október síðastliðinn. Birna Róbertsdóttir, daggæslufulltrúi

Námskeiðsbæklingur Framtíðarskólans

Dagforeldrar í Grafarvogi.

Foreldraröltið Hjá mörgum foreldrafélögum grunnskóla hefur skapast hefð fyrir svokölluðu foreldrarölti. Foreldraröltið fer aðallega fram um helgar og þegar einhverjir viðburðir kalla á aukið eftirlit, svo sem við lok samræmdu prófanna eða eftir skemmtanir. Markmið með foreldrarölti er m.a. að virkja foreldra til samstöðu um útivistarreglur barna og unglinga og koma í veg fyrir hópamyndun eftir að lögbundnum útivistartíma er lokið, koma í veg fyrir áfengi- og vímuefnaneyslu unglinga og að efla og styrkja foreldra í uppeldishlutverki sínu. Foreldraröltið hefur sannað forvarnagildi sitt og skilað góðum árangri þar sem það hefur verið skipulagt. Nærvera hinna fullorðnu virðist hafa fyrirbyggjandi áhrif og minnka líkur á því að unglingar lendi í óæskilegum eða ógnandi aðstæðum. Unglingarnir upplifa að þarna eru einhverjir sem láta sig velferð þeirra varða og það veitir þeim öryggi að vita af ábyrgu fullorðnu fólki á ferli í hverfinu. Að sjálfsögðu bera foreldrar ábyrgð á börnum sínum en nærvera og umhyggja foreldra í hverfinu getur verið uppbyggileg viðbót og mikilvægur stuðningur fyrir sum þeirra. Öll viljum við börnunum okkar það besta. Foreldraröltið er ein leið til þess að bæta líðan og aðstæður barnanna okkar. Þeim tíma sem við getum varið í að taka þátt í foreldrarölti er því vel varið.

Útivistarreglur barna og unglinga Útivistartími barna og ungmenna breyttist 1. september síðastliðinn en þá tók vetrartíminn við og sá tími sem börn mega vera úti á kvöldin styttist. Frá 1. september til 1. maí mega börn 12 ára og yngri vera úti til kl. 20 og 13-16 ára mega vera úti til kl. 22. Utan þessa tíma verða börn að vera í fylgd með fullorðnum. Þó má bregða út af þessum reglum þegar 13-16 ára eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta-, eða æskulýðssamkomu. Útivistarreglurnar eru landslög, foreldrar geta ekki leyft börnum að vera lengur úti en lögin ákveða. Þeir geta hinsvegar sett sínar eigin reglur innan ramma útivistarreglanna, kjósi þeir það.

Framtíðarskólinn er fyrirtæki í eigu Miðgarðs, þjónustumiðstöðvar Grafarvogs og Kjalarness, og er reksturinn aðgreindur frá rekstri Miðgarðs. Meginmarkmið Framtíðarskólans er að halda utan um ýmis konar fræðslu, námskeið og fyrirlestra fyrir almenning, með áherslu á börn og fjölskyldur. Markhópur Framtíðarskólans er börn og fjölskyldur þeirra. Framtíðarskólinn auðveldar foreldrum að afla sér þekkingar um barnauppeldi og fjölskyldumál óháð skuldbindingum og tengslum við aðra opinbera þjónustu Reykjavíkurborgar eða annarra aðila. Framtíðarskólinn býður upp á: - Námskeið og fræðslu fyrir foreldra, s.s. uppeldisnámskeið, fyrirlestra um hegðunar-, tilfinningaog námserfiðleika. - Námskeið fyrir börn, s.s. sjálfstyrkingar- og félagsfærninámskeið. - Námskeið og fræðslu fyrir starfsfólk stofnana og fyrirtækja. - Ráðstefnur um málefni er varða hag fjölskyldna. - Kannanir og rannsóknir varðandi fjölskyldumál. Nú standa yfir Reiðistjórnunarnámskeið fyrir 11-12 ára börn og SOS uppeldisnámskeið fyrir foreldra. Fljótlega hefjast fleiri uppeldisnámskeiðið bæði SOS og ,,Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar’’ og færninámskeiðið ,,Lært á lífið’’ verður strax eftir áramót. Einnig er fyrirhugað að hafa stutt námskeið fyrir foreldra um tölvunotkun barna, þ.e. hvernig megi stjórna og fylgjast með hvað börnin gera í tölvum sínum. Kostnaður við námskeið og aðra fræðslu greiðist af þátttakendum en miðað er við að námskeið eða önnur fræðsla sé nálægt kostnaðarverði fyrir þátttakendur. Hægt er að nálgast námskeiðsbækling Framtíðarskólans og umsóknareyðublöð á heimasíðu Miðgarðs: www.midgardur.is Helgi Viborg, deildarstjóri í Miðgarði


498 49

,3+(ð<9 21Ø2305.<9 B V \g^aaVÂjg ]Z^aa @?Ö@A>C<JG jÄW# &&*%\ ).- `g$hi`#

:<>AH E>AHC:G *%% ba ). `g#

1115

59 7ÓCJH B6AI *%% ba *. `g#

6A> ;DG:A96Á>G GwII>G

HMZSm[[\Y &&&* `g$`\# BZg`i kZg &*.( `g#

59 :<>AH 6EE:AHÏC *%% ba *. `g#

139 EDA6G7G6JÁ + ` `jg &(. `g#

îL[[H [PSIVó MYHTSLUN[ \T ]PR\

69 7ÓCJH HBNG>AA (%%\ ]LYóS¤RR\U# 6ÂZ^ch +. `g Y h^c#

69 Bnaaj &$' =:>B>A>H7G6JÁ N +. `g#

6;<G:>ÁHAJIÏB>/ A6J<6G9/ &%#%%"&-#%% HJCCJ9# &'#%%"&-#%%


8

GV

Fréttir

Sérverslun með

Mjóddinni & Glæsibæ

Frábært úrval af skóm & töskum

Félagsleg heimaþjónusta

Stærðir yfir kálfa: S-M-L-XL-XXL

www.xena.is

GLÆSIBÆ S: 553 7060 MJÓDDINNI S: 557 1291

Miðgarður, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness, óskar eftir að ráða áhugasaman starfsmann til að veita fjölskyldu aðstoð sem býr í Grafarvogi. Um er að ræða 40% starf í dagog kvöldvinnu. Helstu verkefni: - Hvetja og styðja fjölskyldumeðlimi við athafnir daglegs lífs. - Auka færni og efla sjálfstæði fjölskyldumeðlima. - Veita fjölskyldumeðlimum félagslegan stuðning. - Aðstoð við heimilishald og almenn þrif. Hæfniskröfur: Félagsliðamenntun eða reynsla af þjónustu við fólk á einhverfurófi æskileg. - Umsækjandi þarf að búa yfir umburðarlyndi, jákvæðni og þjónustulund. Við bjóðum upp á: - Fjölbreytt starf. - Fræðslu og leiðsögn í starfi. Vinnutími er á morgnana og síðdegis eftir samkomulagi. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Eflingar stéttarfélags. Nánari upplýsingar veitir Margrét Magnúsdóttir, félagsráðgjafi, í síma 411-1400. Umsóknum skal skilað í Miðgarð, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness, Langarima 21 eða á netfangið margret.magnusd@reykjavik.is fyrir 25. nóvember 2007.

Vilt þú taka að þér spennandi verkefni? Miðgarður, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness óskar eftir að ráða áhugasamt fólk, eldra en 18 ára, til að starfa við liðveislu fyrir fatlaða, bæði börn og fullorðna í Grafarvogi. Markmið stuðningsþjónustunnar er að veita félagslegan stuðning til þátttöku í samfélaginu og stuðla að aukinni félagsfærni. Helstu verkefni: - Að veita persónulegan stuðning til þess að njóta menningar- og félagslífs. - Að veita aðstoð til að taka þátt í íþrótta- og tómstundastarfi. Hæfniskröfur: - Umsækjendur þurfa að búa yfir hæfni í mannlegum samskiptum og geta starfað sjálfstætt. Við bjóðum upp á: - Fjölbreytt starf. - Fræðslu og leiðsögn ráðgjafa Miðgarðs. Um er að ræða hlutastörf 16 - 30 klst. í mánuði. Vinnutími er eftir samkomulagi. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Nánari upplýsingar veitir Margrét Magnúsdóttir, félagsráðgjafi í síma 411-1400. Umsóknum skal skilað í Miðgarð, þjónustumið Grafarvogs og Kjalarness, Langarima 21 eða á netfangið margret.magnusd@reykjavik.is fyrir 25. nóvember 2007.

Starfsfólk Gufunesbæjar fylgist vel með á námskeiðinu.

Starfsfólk Gufunesbæjar fræðist um barnavernd Nýlega bauðst öllu starfsfólki Gufunesbæjar að sækja námskeiðið ,,Verndum þau’’ sem haldið er af Félagi fagfólks í frítímaþjónustu í samstarfi við Menntamálaráðuneytið. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem koma að uppeldi barna og ungmenna og fræðist starfsfólk þar um hvernig bregðast eigi við vanrækslu og/eða ofbeldi gegn börnum. Námskeiðið byggir á bókinni ,,Verndum þau’’ en höfundar hennar eru þær Ólöf Ásta Farestveit og Þorbjörg Sveinsdóttir sem báðar hafa mikla reynslu af vinnu með barnaverndarmál. Haldin voru tvö slík námskeið fyrir um 80 starfsmenn frístundaheimila og félagsmiðstöðva í Grafarvogi og á Kjalarnesi.

Einn af leiðbeinendum á námskeiðinu ræðir við gestina úr Gufunesbæ.

Forvarnardagurinn

Kæru Grafarvogsbúar! Í næstu viku, miðvikudaginn 21. nóvember n.k., verður í annað sinn haldinn Forvarnardagurinn. Þessi dagur er haldinn að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við ýmiss félagasamtök og fyrirtæki. Eitt af markmiðum þessa dags er að koma á framfæri við unglinga og fjölskyldur upplýsingum um þætti sem geta haft úrslitaáhrif á það hvort ungmenni verði vímuefnum að bráð. Kjarninn í Forvarnardeginum í ár felst, eins og á síðasta ári, í dagskrá í öllum 9. bekkjum landsins. Þrír mikilvægir þættir geta stuðlað að því að forða börnun og unglingum frá því að ánetjast vímuefnum: 1) Að fjölskyldan verji sem mestum tíma saman. 2) Að börn og unglingar taki þátt í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi. 3) Að unglingar sniðgangi áfengi sem lengst. Hvert ár skiptir máli. Fyrsti þátturinn er óumdeilanlega mikilvægastur í öllum forvörnum, enda hefjast þær ávallt inni á heimilum barna og unglinga. Samverustundir fjölskyldunnar skipta því miklu máli. Rannsóknir hafa leitt það í ljós, að þeir unglingar sem verja í það minnsta einni klukkustund á dag með fjölskyldum

sinum, eru síður líklegir til að hefja neyslu fíkniefna. Þetta þurfa foreldrar að hafa í huga. Unglingar þurfa því sannarlega á slíkum gæðastundum að halda. Framundan er aðventan, þessi undirbúningstími jólanna. Sá tími er tilvalinn til að skapa þessar gæðastundir baka piparkökur eða laufabrauð, búa til jólakortin og föndra. Það er svo fjölda margt sem hægt er að gera til að efla þennan þátt innan fjölskyldna. Fyrst af öllu getur verið ágætt að slökkva á sjónvarpinu, farsímanum og tölvunni, setja einhverja ljúfa tónlist í græjurnar, kveikja á kertum, fá sér heitt kakó og njóta samvista hvers annars og spjalla, enda er nóg um stressið og streituna allt í kringum okkur. Það er gott fyrir unglinga að spjalla og bara vera. Það er mikilvægt fyrir okkur öll að eiga slíkar stundir saman, ekki síður foreldra. Verum dugleg á þessum vetri að skapa fleiri ánægjustundir fjölskyldunnar, sem eru í senn bæði innihaldsríkar og gefandi. Slíkar stundir eru besta forvörnin. Fyrir hönd Grósku, stýrihóps um forvarnir í Grafarvogi og á Kjalarnesi. Bjarni Þór Bjarnason, Grafarvogskirkjuprestur.


HVÍTA HÚSIÐ / SÍA 07-1628

TRYGG FRAMTÍÐ FRAMTÍÐARREIKNINGUR MEÐ BARNAVERND Glitnir og Sjóvá Forvarnahúsið vinna saman að slysavörnum barna. Hluti af því samstarfi er ný trygging, Barnavernd, sem er mótuð með hagsmuni barna og fjölskyldna í huga.

TILBOÐ ÞEIR SEM GREIÐA 1.000 KR. REGLULEGA Á FRAMTÍÐARREIKNING FÁ BARNAVERND FRÍTT Í 6 MÁN. MEÐ ÞVÍ AÐ SKRÁ SIG.

Kynntu K t þér þé málið álið á www.glitnir.is lit i i Hvað getur þú gert til að varna slysum heima hjá þér? Kíktu á www.forvarnahus.is


10

GV

Fréttir Íslandsmót skákfélaga Skákhátíð í Rimaskóla:

Lið Fjölnis í mjög góðum málum

Íslandsmót skákfélaga fyrri hluti, fjölmennasta skákmót landsins, var haldið í Rimaskóla helgina 12. - 14. október. Að mati þátttakenda sem voru 400 talsins þá þykir aðstaðan í skólanum frábær fyrir þvílíkt risamót og er þar horft til húsnæðis, lýsingar og loftræstingar á mótstað. Þetta er í annað skipið sem mótið er haldið í Rimaskóla og allt bendir til þess að síðari hluti mótsins fari einnig fram í skólanum. Á Íslandsmóti skákfélaga er teflt í fjórum deildum og voru um 50 lið skráð til þátttöku. Lið Fjölnis var nú í fyrsta sinn með lið í 1. deild eftir mikla hraðferð A sveitar upp allar neðri deildirnar á þremur árum, allt frá stofnun skákdeildarinnar árið 2004. A sveit Fjölnis er gríðarlega sterk skáksveit og eftir fyrri hluta Íslandsmótsins eru Fjölnismenn í harðri baráttu um efstu sætin ásamt stórveldunum TR og Helli. Engin deild innan Umf. Fjölnis hefur líkast til náð jafnlangt í árangri og skákdeildin. Meðal Fjölnismanna eru Héðinn Steingrímsson nýjasti stórmeistari Íslands í skák og eflaust sá sterkasti um þessar

mundir. Meðal sterkustu liðanna í 1. deild tefla gríðarlega sterkir erlendir skákmenn. Á fyrsta borði í sveit Fjölnis fer stórmeistarinn ungi Tomas Oral frá Tékklandi sem lagði Hannes Hlífar Stefánsson Íslandsmeistara og liðsmann TR í fyrstu umferð mótsins. Grafarvogsbúar geta verið stoltir af skáksveitum Fjölnis. B- sveit félagsins sem að stórum hluta er skipuð unglingum náði einnig frábærum árangri á mótinu. B- sveitin er í öðru sæti 4. deildar eftir fyrri hluta mótsins, sæti sem dugir til að komast upp í 3. deild. Skákin er ein af þjóðaríþróttum Íslendinga og Íslandsmót skákfélaga því nokkurs konar landsmót skákmanna þar sem skákfélagar á öllum aldri taka þátt í og hittast. Það vakti athygli í Rimaskóla að Friðrik Ólafsson fyrsti stórmeistari Íslands og sá frægasti mætti til leiks í fyrsta sinn á þessum vettvangi í rúm þrjátíu ár. Eins og áður er getið þá er Rimaskóli að verða vettvangur fjölda skákviðburða og kominn á kortið í skákheiminum bæði sem mótsstaður og einnig fyrir árangur nemenda skólans í skák. Nemendur 10. bekkjar Ri-

Íþróttahús Rimaskóla. Fjölmennasta skákmót ársins, Íslandsmót félagsliða í skák, var haldið þar við bestu aðstæður að mati skákmeistara.

maskóla áttu sinn þátt í velheppnuðu skákmóti. Með aðstoð foreldra sinna sáu þeir um alla veitingasölu á Íslandsmótinu og uppröðun skákborða og gerðu þetta allt með miklum sóma. Ágóði veitingasölunnar fer í að greiða útskriftarferð eftir samræmd próf í vor.

Tvö sterkustu lið 1. deildar Fjölnir og Taflfélag Reykjavíkur mættust í 1. umferð. Á 1. borði vann Fjölnismaðurinn Tómas Oral sjálfan Íslandsmeistarann Hannes Hlífar Stefánsson.

A sveit Fjölnis, nýliðar í 1. deild eru í hópi fjögurra skáksveita sem berjast um Íslandsmeistaratitilinn. F.v. Héðinn Steingrímsson, Dejan Bojkov og Tómas Likavsky. Fyrir aftan þá er skákdrottningin Regina Pokorna sem teflt hefur fyrir Fjölni frá upphafi.

Tveir öflugir í 1. deild Íslandsmótsins í skák. Hjörvar Steinn Grétarsson Norðurlandameistari og nemandi Rimaskóla teflir við Íslandsmeistarann Hannes Hlífar Stefánsson.


Einstök jólagjöf fyrir veiðimenn og konur Falleg áletruð flugubox með vinsælum laxa- og/eða silungaflugum frá Krafla.is Tilvalin gjöf fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem gera kröfur Gröfum nöfn veiðimanna eða lógó fyrirtækja á boxin

Kannaðu málið á Krafla.is eða í síma 587-9500

íslensk fluguveiði Skrautás ehf. Sími: 587-9500


13

12

Í Riis Skov, skóginum sem við gengum í gegnum á leiðinni á ströndina og til baka.

GV

GV

Fréttir

Fréttir

Frábær Danmerkurferð

Afmælisbarnið vakið með köku og söng.

Allar í hrúgu á stóru dýnunni eftir æfingu.

Í fimleikasalnum í Aarhus ásamt þjálfurunum, Ólöfu og Hrefnu.

Flott uppstilling eftir kvöldvöku sprell.

- fimleikastúkna úr Fjölni. ,,Sumar voru farnar að hrjóta fljótlega eftir að lestur hófst’’

Ofurhressar eftir búðarráp í Velje.

Flottar fimleikamömmur.

Ákveðið var á haustmánuðum að keppnishópur K-1 í áhaldafimleikum hjá Fjölni færi í æfingabúðir í Danmörku sumarið 2007. Stelpurnar byrjuðu af krafti í fjáröflun strax sl. haust sem stóð fram í júní í sumar, seldu af miklum eldmóð klósettpappír, eldhúsrúllur, pítsur, hreinlætispakka ofl. Einnig fóru þær í flösku- og dósasöfnun

tvö kvöld strax eftir páskana, frábær stemning var í hópnum og góð samvinna stelpnanna og foreldra skilaði góðri fjáröflun og þjappaði hópnum mjög vel saman fyrir komandi ferð. Haldið var til Aarhus í Danmörku miðvikudaginn 4. júlí sl. í 10 nátta ferð 4.-14. júlí. Hópurinn samanstóð af 12 sprækum fimleikastelpum fæddum

1994-1995 sem er fremsti keppnishópur Fjölnis í áhaldafimleikum. Með í för voru yfirstrumparnir og þjálfararnir Ólöf og Hrefna ásamt 8 hörkusprækum fimleikamömmum sem ekki ætluðu að missa af þessari upplifun með dætrum sínum. Einnig fékk ein 5 ára systir að koma með. Ferðinni var heitið í AGTC, Aarhus Gymnastic og Trampolin Center sem staðsett er á stóru háskólasvæði í Aarhus. Flogið var til Billund og tók sólin á móti okkur þar. Að sjálfsögðu tókum við hana með okkur eftir miklar rigningar í Danmörku. Við fengum slæmar fréttir daginn fyrir ferðina, vegna mikilla rigninga í Danmörku hefðu gryfjurnar í æfingahúsnæðinu fyllst af vatni og svampurinn væri mikið skemmdur og ónýtur en byrjað væri að tæma gryfjurnar og þurrka fyrir komu okkar og stóðu vonir til að hægt yrði að nota gryfjurnar í ferðinni, sem því miður varð ekki raunin sem var svekkjandi því Fjölnir er ekki með gryfjur í sínu húsnæði. Undir kvöld var hópurinn kominn á áfangastað og byrjað var á að skoða sig um í fimleikahúsinu og koma öllum fyrir. Höfðum við allt húsið fyrir okkur og aðstaðan var frábær, stórt og gott eldhús var í húsinu og ekki veitti af þar sem 8 vaskar mömmur sáu um morgun-, hádegis- og kvöldmat ásamt kaffitíma alla daga. Stelpurnar fengu síðan það hlutverk að vaska upp og ganga frá eftir matinn, þrjár saman í einn og hálfan dag hver hópur. Fyrsta morguninn var byrjað á

tveggja klst. æfingu eftir góðan morgunverð og síðan var síðdegisæfing í þrjár klst. eftir kaffitíma og hvíld. Æfingaprógrammið var stíft hjá stelpunum enda æfingaferð og voru æfingar í fimm til fimm og hálfa klst. alla daga nema þá daga sem farið úr húsi. Skipulagið var svona: Morgunmatur 8:30, æfing, hádegismatur, frágangur, hvíldartími, kaffitími, síðdegisæfing, kvöldmatur, frágangur og kvöldvaka. Eftir kvöldvöku voru allar komnar á sína dýnu kl. 21 og las Ólöf þjálfari þær í svefn með spennandi bók, sumar voru farnar að hrjóta snemma eftir að lestur hófst og oft þurfti að rifja upp lestur fyrra kvölds. Suma daga voru mömmurnar teknar með í útihlaup og síðan farið í þrekhring í salnum með stelpunum og þá var fjör. Eitt kvöldið tóku mömmurnar sig til og voru með skemmtiatriði á kvöldvökunni. Hrefna þjálfari samdi dans og voru stífar æfingar. Það var mjög gaman að sjá svipinn á stelpunum þegar atriðið var frumsýnt og útskýrði það allt trampið í okkur á efri hæðinni kvöldin áður. Ekki er hægt að fara í svona ferð nema sprella líka og skoða sig um. Vaknað var snemma á laugardeginum 7. júlí og afmælisbarn dagsins var vakið með köku og söng, tekin morgunæfing og svo var haldið inní miðbæ Aarhus, kíkt í búðir og fleira og endað á að fara út að borða í tilefni dagsins. Í bænum var heilmikið mannlíf þennan laugardag og gaman fyrir alla að koma

þangað. Mánudaginn 9. júlí fórum við 23 skvísur á öllum aldri gangandi niður á strönd eftir hádegismat þar sem veðrið var svo gott. Gangan tók um hálfa klst. hvora leið og gengum við á leiðinni gegnum skemmtilegan skóg, Riis Skov. Þar sáum við ýmislegt merkilegt s.s. stór og falleg tré og gróður ásamt flottum húsum, risastóra forvitnilega appelsínugula snigla sem líktust gulrótum, broddgelti, sveppi ofl. Á ströndinni dýfðu stelpurnar tánum í sjóinn, skemmtu sér og skoðuðu marglyttur sem mikið var af í víkinni. Síðdegisæfing var þegar komið var til baka enda mátti ekki slá slöku við, næg var orkan í stelpunum. Síðan höfðum við kvöldvökuna úti, fórum í ratleik og ótrúlegt var hvað stelpurnar gátu hlaupið heilu fótboltavellina fram og til baka eftir langan dag á æfingum og göngu um ströndina. Daginn eftir fórum við í Djurs Sommerland sem er tívolí og vatnsgarður, þar áttum við eftirminnilegan dag í góðu veðri. Síðustu nóttina var gist á farfuglaheimili í bænum Velje, héldum við með rútu frá Aarhus til Velje. Fannst öllum ansi merkilegt að þegar bílsjórinn var búinn að skutla okkur fór hann beint að sækja hljómsveitina Metalica í sömu rútu en þeir áttu að spila í Aarhus þetta kvöld. Í Velje notuðum við tækifærið og skoðuðum okkur um í miðbænum og borðuðum kvöldmat áður en farið var í háttinn því síðasti dagurinn í ferðinni yrði langur og strangur. Hann var tekinn

K-1 hópurinn fyrir utan Egilshöll áður en haldið var af stað til Keflavíkur: Andrea, Sara K., Ilmur, Katrín, Harpa, Una, Birgitta, Dagmar, Inga Björk, Magga, Aníta og Fríða.

snemma og fórum við með farangurinn á flugvöllinn, eyddum svo öllum deginum fram á kvöld í Legolandi og áttum þar stórskemmtilegan dag í góðu veðri. Það voru þeyttar stelpur, þjálfarar og mömmur sem lentu í Keflavík seint um kvöld þann 14. júlí og tóku við fagnaðarfundir í Leifsstöð þegar ættingjar tóku á móti sínu fólki. Allir voru sammála um að þessi ferð hefði tekist með eindæmum vel, enda vel skipulögð af þjálfurum, aðstaðan var frábær í fimleikahúsinu, mömmurnar slógu í gegn með góðri samvinnu, hörku kokkamennsku og skipulagi og síðast en ekki síst samanstóð fimleikahópurinn af frábærum stelpum sem styrktu vinskapinn og tóku miklum framförum í æfingum á þessum 10 dögum svo allir mega vera stoltir af. Er það ósk okkar allra að úr aðstöðu fimleikadeildarinnar verði bætt hið snarasta þar sem núverandi aðstaða er löngu sprungin og ófært að þurfa að sækja æfingar í önnur bæjarfélög úr stærsta hverfi Reykjavíkur.

Fyrir utan farfuglaheimilið í Velje með verðlaun fyrir vel unnin eldhússtörf í ferðinni.

Kvöldsnakk með Hrefnu þjálfara.


14

GV

Fréttir Einar Jónsson tekur við stjórninni hjá Skólahljómsveit Grafarvogs af Jóni Hjaltasyni:

Mikið framundan hjá hljómsveitinni Eftir að hafa stýrt Skólahljómsveit Grafarvogs frá stofnun hennar lét Jón Hjaltason af störfum á vordögum og nú í haust tók Einar Jónsson við starfi hljómsveitarstjóra. Einar hefur starfað undanfarin 7 ár í Noregi við tónlistarkennslu og hljómsveitarstjórnun en er nú alkominn heim og sestur að í Grafarvogi. Auk Einars kennir úrvalslið kennara við skólahljómsveitina, en það eru Sigurður Þorbergsson (málmblástur), Zoltán Szklenár (málmblástur), Þórir Þórisson (klarinett/ saxófónn), Snorri Heimisson (flauta/klarinett/fagott), Ólafur Björn Ólafsson (slagverk) og Borgar Þór Magnason (rafbassi). Nú í haust stunda um 80 nemendur tónlistarnám hjá Skólahljómsveitinni og hafa þeir haft nóg að gera. Í vor var farið saman í æfingaferð að Slakka í Biskupstungum og einnig lék hljómsveitin í skrúðgöngu á sumar-

daginn fyrsta. Helgina 12.-14. október var Landsmót Sambands íslenzkra skólahljómsveita haldið á Höfn í Hornarfirði og fóru á þriðja tug nemenda úr A-sveit (yngri sveit) Skólahljómsveitarinnar til þátttöku ásamt fararstjórum og kennurum. Var ferðin einstaklega vel heppnuð og stóðu hljófæraleikararnir sig með miklum sóma. Eldri sveitin (C-sveit) fór svo í æfingabúðir að Laugum í Sælingsdal helgina 27.-28. október. Æfðu nemendur þar ýmis ný og eldri tónverk saman auk þess að eiga saman skemmtilega helgi. Má segja að ferðir sem þessar séu nauðsynlegar bæði til þess að geta einbeitt sér að tónlistinni og einnig til þess að hljóðfæraleikarar kynnist hver öðrum betur og geti þá um leið átt betra samstarf. Fastir liðir í starfi Skólahljómsveit-

Skólhljómsveit Grafarvogs er mjög góð en hér sést hluti sveitarinnar á æfingu. arinnar eru svo tvennir tónleikar ári. Það eru jólatónleikar, sem nú í ár verða haldnir þann 15. desember, og vortónleikar sem að þessu sinni eru einnig 15 ára afmælistónleikar. Vortónleikarnir verða haldnir nálægt stofndegi hljómsveitarinnar þann 21. mars. Tónleikarnir eru að sjálfsögðu opnir öllum og eru tónlistarunnendur í Grafarvogi hvattir til að koma og hlýða á ungt tónlistarfólk í hverfinu okkar. Í tilefni af 15 ára afmæli sveitarinnar á næsta ári verða afmælis- og vortónleikar hljómsveitarinnar jafnvel enn metnaðarfyllri en fyrr. Þá er áætlað að fara í utanlandsferð og einnig er í bígerð að gefa út geisladisk í lok næsta árs.

Skólahljómsveit Grafarvogs fagnar leikum næsta vor. Nám í skólahljómsveit er skemmtilegur kostur fyrir þá sem stefna á tónlistarnám. Nemendur fá bæði kennslu í einkatímum á sitt hljóðfæri auk þess sem þeir fá þjálfun í að leika saman í hljómsveit. Kennt er í einkatímum í grunnskólum nemenda og á skólatíma, þar sem því verður við komið en annars í Foldaskóla. Hljómsveitaræfingar fara alltaf fram í Foldaskóla. Samningur er við Tónlistarskóla Grafarvogs um tónfræðikennslu. Almennt eru nemendur í 4. - 10. bekk grunnskóla og hægt er að leigja hljóðfæri hjá Skólahljómsveitinni gegn vægu verði. Til gamans má geta þess að Skóla-

15 ára afmæli með sérstökum tónhljómsveit Grafarvogs er líklega eina skólahljómsveit á landinu sem býður upp á nám í fagottleik. Allir áhugasamir eru hvattir til að kynna sér nánar hvað er í boði hjá Skólahljómsveit Grafarvogs á heimasíðu sveitarinnar www.skolahljomsveitir.is/grafarvogs. Það er alltaf rúm fyrir áhugasama hljóðfæraleikara en þessa stundina er sérstaklega verið að leita eftir málmblásurum og bassaleikara. Foreldrar fyrri nemenda eru og hvattir til þess að gæta að því hvort gleymst hafi að skila inn hljóðfærum að námi loknu og koma þeim til hljómsveitarstjóra ef svo reynist.

Skólahljómsveit Grafarvogs á æfingu fyrir Landsmótið á Höfn.

Efnilegir málmblásarar æfa sig en fleiri slíka vantar í Skólahljómsveit Grafarvogs og einnig bassaleikara.

Slagverkið æft undir stjórn Einars Jónssonar hljómsveitarstjóra.


2.070,-

Gildir frá 15. - 22. nóvember

Grillið í Grafarvogi - Gylfaflöt 1 - Sími: 567-7974


16

GV

Fréttir Nýbygging Bílabúðar Benna að Krókhálsi 9, Reykjavík verður næsta lóð við nýtt hús Ræsis gegnt golfvellinum Grafarholti:

150 manns taka fyrstu skóflustunguna að nýjum höfuðstöðvum Bílabúðar Benna. Fólkið raðaði sér þétt saman og myndaði útlínur hinnar nýju byggingar sem verður 7500 fermetrar að stærð.

150 manna skóflustustunga

Þann 21. september sl. var tekin fyrsta skóflustungan að nýbyggingu Bílabúðar Benna að Krókhálsi 9. Réttara væri að tala um fyrstu skóflustungurnar í fleirtölu því allir starfsmenn, makar þeirra og börn, tóku fyrstu skóflustunguna. 150 manns voru því með sérmerktar skóflur í höndum, öryggishjálm á höfði og voru samtaka í því að taka þessa fyrstu skóflustungu að hinni glæsilegu nýbyggingu. Hópurinn raðaði sér eftir útlínum byggingarinnar og körfubíll á staðnum veitti ljósmyndurum tækifæri til að mynda þessa skemmtilegu skóflustungu úr lofti.

Nýbyggingin Fyrirhuguð nýbygging að Krókhálsi 9 mun hýsa alla starfsemi Bílabúðar Benna, sýningarsali Porsche, Chevrolet og Ssangyong auk verslunar og sölu notaðra bíla. Auk þess verður í húsinu eitt fullkomnasta bílaverkstæði landsins. Nýjar höfuðstöðvar á Krókhálsi gera Bílabúð Benna kleift að bæta þjónustu við viðskiptavini fyrirtækisins enn frekar auk þess sem öll aðstaða fyrir starfsmenn batnar umtalsvert. Byggingin mun hýsa bílasölu, verslun og bílaverkstæði á fyrstu hæð. Á annarri hæð verða skrif-

Eins og sjá má verða nýju höfuðstöðvarnar allar hinar glæsilegustu. stofur, matsalur og lager að hluta. Veitingaaðstaða á annarri hæð gefur möguleika á margskonar félagsstarfsemi. Á jarðhæð í norðurhluta byggingarinnar verður bílasala

notaðra bíla staðsett. Í byggingunni munu vinna um 75 manns. Stærð lóðarinnar að Krókhálsi 9 er 21.012 fermetrar. Brúttóflatarmál byggingarinnar er um 7,500 fermetrar

Framhlið hinnar nýju og glæsilegu byggingar sem mun hýsa alla starfsemi Bílabúðar Benna.

og rúmmál um 42,500 rúmmetrar. Á lóðinni er gert ráð fyrir 300 bílastæðum.

Fyrirtækið Bílabúð Benna ehf hefur í yfir 30 ár verið þjónustufyrirtæki bílaáhugamannsins. Fyrirtækið var stofnað 1975 og hóf starfsemi í mótorhjólaviðgerðum og fljótlega bættist við verslun og jeppabreytingaverkstæði. Í dag er Bílabúð Benna umboðsaðili nýrra bíla frá Porsche, Chevrolet og SaangYong og rekur þjónustu- og breytingaverkstæði. Verslun Bílabúðar Benna selur vara- og aukahluti í jeppa, fólksbifreiðar og mótorhjól og starfrækir öfluga sérpöntunarþjónustu á varahlutum frá Bandaríkjunum í allar tegundir bíla. Bílabúð Benna er umboðsaðili Toyo hjólbarðaframleiðandans en flytur auk þess inn og selur hjólbarða frá mörgum öðrum framleiðendum, má þar nefna BFGoodrich og Mudder. Umboðsaðilar Bílabúðar Benna eru í Keflavík, Borgarnesi, Akureyri og Egilsstöðum. Bílabúð Benna hefur vaxið mikið síðustu ár og er nú með starfstöðvar á fimm stöðum á Ártúnshöfða, sem verða sameinaðar undir einu þaki í hinu nýja húsi. Forstjóri Bílabúðar Benna er Grafarvogsbúinn góðkunni, Benedikt Eyjólfsson.


21

¡;>C<6G ;NG>G @G6@@6 D< JC<A>C<6

H`kVhh[ aV\ GZn`_Vk `jg Zg bZÂ ¨[^c\Vg [ng^g `gV``V d\ jc\a^c\V# < Â aZ^Â i^a VÂ a¨gV h`kVhh jcY^g ]VcYaZ^Âhaj Ä_{a[VgV# H`kVhh[ aV\ GZn`_Vk `jg Zg Z^cc^\ bZÂ [VhiV ¨[^c\Vi bV ÄVg hZb [ aV\hbZcc ]^iiVhi d\ he^aV h`kVhh# ¡;>C<6IÏB6G/ B{cjY# ¶ b^Âk^`jY# ¶ [ hijY# `a#&+/%% ¶ &,/%% ¡;>C<6G Ï I¡@?6H6A/ Ãg^Â_jY# ¶ [^bbijY# `a#&+/%% ¶ &,/%%


18

GV

Fréttir

Hársnyrtistofa Höfðabakka 1 - S. 587-7900 Við hliðina á Fiskisögu

GV Ritstjórn og auglýsingar 587-9500

Atvinnuhúsnæði óskast til leigu

Áslaug H. Traustadóttir heimilisfræðikennari Rimaskóla tekur við ,,Fjöregginu’’,viðurkenningu Matvælaog næringarfræðafélags Íslands, úr hendi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra. Ljósm: Sesselja María Sveinsdóttir.

Heimilisfræðikennari Rimaskóla hlaut Fjöreggið

Á Matvæladaginn þann 16. október 2007 var Fjöregg Matvæla- og næringarfræðafélags Íslands afhent í 15. skiptið. Um er að ræða veglegan verðlaunagrip sem Samtökm iðnaðarins veita fyrir lofsvert framtak á sviði matvælaframleiðslu eða manneldis. Að þessu sinni hlaut Áslaug H. Traustadóttur heimilisfræðikennari í Rimaskóla verðlaunagripinn. Hún tók við Fjöregginu úr hendi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra á ráðstefnu á Grand Hóteli. Með hinni athyglisverðu kokkakeppni sem haldin hefur verið fyrir

nemendur Rimaskóla og einnig meðal allra grunnskóla í Reykjavík að frumkvæði Áslaugar, hefur hún sýnt einstakt frumkvöðlastarf í að auka áhuga ungs fólks á matargerð með nýstárlegum aðferðum. Eins og lesendum Grafarvogsblaðsins er kunnugt hefur kokkakeppnin fengið mikla og verðskuldaða athygli á undanförnum árum. Í mati dómnefndar Fjöreggsins segir að "Áslaug sé kennari með hugsjón sem kveiki áhuga unga fólksins og sái fræjum til framtíðar" www.mni.is. Að mati allra sem til þekkja var Áslaug vel að þessari við-

urkenningu komin. Eftir verðlaunaafhendinguna hefur hún haft í nógu að snúast við að veita viðtöl í útvarp, dagblöð og tímarit. Verkefnið "Kokkakeppni Rimaskóla" fékk Hvatningarverðlaun Menntaráðs árið 2005 og í fyrstu kokkakeppni Reykjavíkur hlutu nemendur Rimaskóla fyrstu verðlaun. Rimaskóli hefur fengið verðlaun og vakið athygli fyrir mörg kennsluverkefni sem hafa þótt fyrirmynd á þróunar- og nýbreytnisviði og er þar Kokkakeppnin eitt besta dæmið.

Okkur vantar 60-90 fermetra verslunar- og/eða skrifstofuhúsnæði Uppl. í síma: 699-1322 / 698-2844

Matvæladagur MNÍ á Grand Hótel 16. október. Sýning á gögnum viðkomandi Kokkakeppni Rimaskóla og Kokkakeppni grunnskóla.


19

GV

Fréttir

Þrír úr Fjölni fengu styrk úr afrekssjóði ÍBR og SPRON:

Sigrún Brá stefnir á Ólympíuleikana í Kína Miðvikudaginn 7. nóvember voru afhentir styrkir úr afrekssjóði ÍBR og Spron. Að þessu sinni voru veittir tímamóta styrkir. Sjö ungmenni fengu 30.000 króna mánaðargreiðslur í eitt ár, Þar af voru þrjú glæsileg ungmenni í Fjölni sem fengu þennan styrk, Sigrún Brá Sverrisdóttir sundkona og frjálsíþróttafólkið Íris Anna og Sveinn Elías. Sigrún Brá er 17 ára og ein efnilegasta sundkona landsins. Hún hefur æft sund frá 10 ára aldri og hefur verið mikill stígandi í hennar árángri frá því hún stakk sér fyrst til sunds í keppni. Aðeins tveimur árum eftir að hún byrjaði að æfa sund setti hún sitt fyrsta Íslandsmet í unglingaflokki. Núna er Sigrún Brá ekki langt frá markmiðum sínum sem hún setti sér þegar hún var 14 ára, nefnilega að komast á Olympíuleikana í Peking í ágúst 2008. Í dag er Sigrún Brá innan við 2% frá lágmörkum í sínum aðalgreinum 200 m og 400 m skriðsundi. Til að ná þessum markmiðum sínum verður hún að setja Íslandsmet í greinunum. Aðeins 15 ára gömul eða árið 2005 setti Sigrún Brá sín fyrstu Íslandsmet í fullorðinsflokki í 400 m skriðsundi og 200 m flugsundi og voru þetta fyrstu tvö Íslandsmetin sem sundmaður í Fjölni eignaðist. Þegar kemur að því að vera góð fyrirmynd annara íþróttamanna er Sigrún Brá góður fulltrúi. Hún hefur mætt 100% á æfingar frá upphafi, það er alveg sama hvað þjálfarinn býður upp á, hún fer af stað í hverja æfingu af jákvæðni og elju. Hún er alltaf til í að liðsinna yngri sundmönnum og segja þeim hversu miklu máli skiptir að mæta vel á æfingar og vera jákvæður, fara snemma að sofa og borða vel. Sigrún Brá er einnig afar góður námsmaður og stefnir á að geta samnýtt sér sundíþróttina og háskólanám erlendis að loknu stúdentsprófi. Sigrún Brá hefur unnið til 12 verðlauna 6 gullverðlaun, 4 silfurverðlaun og 2 bronsverðlaun á þeim tveim Smáþjóðaleikum sem hún hefur farið á (2005-2007). Silfurverðlaun vann Sigrún Brá í 100 m skiðsundi á Norðurlandamóti unglinga og hún varð Norðurlandameistari í 100 m skriðsundi og vann til bronsverðlauna í 200 m skriðsundi árið 2005. Sigrún Brá hefur unnið á 4. tug Íslandsmeistaratitla í unglinga- og fullorðinsflokki. Reykjavíkurmeistaratiltlarnir eru líka taldir í tugum. Eins hefur hún unnið 4 gullverðlaun, 2 silfurverðlaun og 1 bronsverðlaun á alþjóðlegu unglingamóti í Luxemborg. Sigrún Brá hefur keppt á 6 Aldurflokkameistaramótum unglinga

(Íslandsmeistaramót) og hefur orðið 5 sinnum stigahæst í sínum flokkum aðeins í fyrsta skiptið sem það tókst ekki. Eins og sjá má hér að framan er frammistaða þessarar frábæru sundkonu þegar orðin afar glæsileg. Glæsilegur ferill þrátt fyrir ungan aldur

þessarar efnilegu sundkonu og biðjum við ykkur lesendur góðir að fylgjast vel með hvernig henni gengur að ná markmiði sínu sem er Ólympíuleikarnir í Kína á næsta ári og styðja vel við bakið á henni. Stjórn sunddeildar Fjölnis.

Sigrún Brá Sverrisdóttir sunddrottning er einn mesti afreksmaðurinn í íþróttum innan Fjölnis um þessar mundir.

GV Ritstjórn og auglýsingar

GRAFARVOGSLAUG

587-9500

w w w.itr.is it is ı sími 411 50 0 0

I ER LAUGIN Í ÞÍNU HVERF

AFGREIÐSLUTÍMI LAUGAR Virka daga frá kl. 6:30 – 22:30 Helgar kl. 8:00 – 20:30


20

GV

Fréttir

Stelpurnar á Hársnyrtistofunni Brúskur. Frá vinstri: Svava Björk Gunnarsdóttir, Katrín Hildur Sigurðardóttir, Jónína Þórunn Þorvaldsdóttir, Gerður Guðrún Sævarsdóttir, Svava Margrét Blöndal Ásgeirsdóttir og Bryndís Björk Guðjónsdóttir. GV-mynd PS

Mjódd – Kringlan- Spöng 15.nóv.-15.des. eða á meðan birgðir endast

50% afsláttur af Eukanuba tegundafóðri. Opið í Spöng Mán. – fimmtud. 10-18 Föstudaga 10-19 Laugardaga 10-16

Brúskur skiptir um eigendur

Nýir eigendur hafa tekið við rekstri hársnyrtistofunnar Brúskur við Höfðabakkka 1. Þær Jónína Þórunn Þorvaldsdóttir og Svava Margrét Blöndal Ásgeirsdóttir tóku við sem eigendur af Bryndísi Björk Guðjónsdóttur í september. Bryndís vinnur áfram á Brúski

þrjá daga í viku en auk hennar og eigendanna vinna þær Gerður Guðrún Sævarsdóttir, Katrín Hildur Sigurðardóttir (er að koma úr barneignarfríi) og Svava Björk Gunnarsdóttir nemi hjá Brúsk. Opnunartími hjá Brúski er mánudaga-fimmtudaga 8.00-, föstudaga 8.00-19.00 og laugardaga 10-14.

Jólalýsing á höfuðborgarsvæðinu 2007:

85 þúsund perur loga Um 85 þúsund perur loga í jólaskreytingum sem Orkuveita Reykjavíkur leggur til um jól og áramót hverju sinni. Vonast er til að allar skreytingar verði komnar upp í fyrstu vikunni í desember. Í Reykjavík eru skreytt 38 grenitré, 8 í Kópavogi, 6 í Garðabæ, 6 á Seltjarnarnesi, 6 í Mosfellsbæ og 3 við Reykjavíkurhöfn. Við Landsspítalann eru 3 tré. Auk þessa eru settar upp um 250 skreytingareiningar sem eru þverbönd af ýmsu tagi, toppskraut á stólpum, halastjörnur og jólabjöllur. 125 þverbönd hafa verið sett upp á Seltjarnarnesi, 30 í Garðabæ, 16 í Mosfellssveit og 35 í Kópavogi. Á helstu verslunargötum við á og við

Laugarveg hafa verið sett upp 45 þverbönd og 60 stólpaskraut. Þá má geta þess, að ljósin á Óslóartrénu eru venjulega um 600, en um 8000 ljós loga þegar á trjánum sem fyrir eru á Austurvelli. Ljósaseríur við Ingólfstorg, Vonarstræti, á Laugavegi, Kirkjutorgi, Fríkirkjuvegi, Sóleyjargötu og á Austurvelli eru látnar loga vel fram í janúar. Ómögulegt er að segja, hversu margar perur brotna eða verða fyrir skemmdum á þessum tíma, en á hverjum morgni fram til jóla fer körfubíll um og kannað er ástand allra skreytinga. Lögð er áhersla á að öll ljós logi á öllum skreytingum um jól og áramót.

GV auglýsingar og ritstjórn: 587-9500


21

GV

Fréttir

Fjármálakvöld fyrir alla Landsbankinn kynnir „Fimmtudagskvöld eru fjármálakvöld“, röð fjármálanámskeiða fyrir almenning. Á námskeiðunum fjalla sérfræðingar bankans um þætti sem lúta að fjármálum heimilanna, fjárfestingartækifærum og lífeyrismálum. Fjármálafræðslan er öllum opin og án endurgjalds.

Samsýning á Korpúlfsstöðum

1. nóv. 8. nóv. 15. nóv.

Aðalbanki Árbær Egilsstaðir

Hvar liggja fjárfestingartækifærin? Fjármál heimilisins frá A til Ö Fjármál heimilisins frá A til Ö

22. nóv. 29. nóv.

Grafarholt Akureyri

Lífeyrismál frá A til Ö Hvar liggja fjárfestingartækifærin?

í næstu viku

22. nóvember, Grafarholtsútibú Á fjármálakvöldinu mun Tómas N. Möller, forstöðumaður Verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Landsbankans, fjalla um þau atriði sem skipta máli varðandi lífeyrismál okkar, hvernig við getum fengið sem mest út úr lífeyrissparnaði, hvaða atriði skipta máli við ávöxtun hans og hvernig við getum nýtt okkur lífeyrisréttindi okkar og sparnað. Þar færðu m.a. svör við eftirfarandi spurningum: • Hvað skiptir máli við ávöxtun lífeyrissparnaðar? • Er lífeyrissparnaður minn tvískattlagður? • Hvernig virkar lífeyrissparnaður?

ÍSLENSKA SIA.IS LBI 39910 11.2007

Efni námskeiðsins er sniðið að þörfum þeirra sem eru u.þ.b. á aldrinum 18-50 ára.

Kýrnar réðu ríkjum á Korpúlfsstöðum ,,í den’’.

Skráning hafin á landsbanki.is Skráning á fjármálakvöld fer fram á landsbanki.is eða í Ráðgjafa- og þjónustuveri í síma 410 4000. Nánari upplýsingar um námskeiðin eru á landsbanki.is

NÓVEMBER

Námskeiðin hefjast kl. 20:00 á eftirfarandi stöðum:

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, mun opna samsýningu listamanna á Korpúlfsstöðum þann 1. desember í stóra salnum í miðju hússins klukkan 13:00. Listamenn og hönnuðir að Korpúlfsstöðum hafa myndað með sér félagsskap og kalla sig Korp Art. Hópurinn mun hafa opið hús fyrsta laugardag hvers mánaðar í vetur þar sem fólki gefst kostur á að skoða vinnustofur og verk í vinnslu. Opna húsið í byrjun desember verður veglegra en oft, því fyrirhuguð er fyrrnefnd sýning flestra þeirra listamanna sem hafa vinnustofur að Korpúlfsstöðum. Opið verður bæði laugardag og sunnudag milli klukkan 13:00 og 17:00. Ýmsar uppákomur eru fyrirhugaðar eins og að fólki mun standa til boða upplestur rithöfunda úr nýútkomnum verkum (sem síðar verða auglýstir) í kaffisal inn af portinu (í suðurhluta). Á Korpúlfsstöðum eru starfandi hátt í 40 listamenn og hönnuðir. Margvísleg starfsemi á sér stað innan þessa gamla kúabús. Reykjavíkurborg er eins og kunnugt er eigandi Korpúlfsstaða og njóta listamenn þess að vera undir þeim verndarvæng. Vilji ráðamanna borgarinnar er að gera veg hússins sem mestan á sviði menningar og lista. Listamennirnir sjá sig knúna til að launa fyrir sig með því að halda húsinu lifandi á þennan hátt, svo allir geti fylgst með hvað þar fer fram.


22

GV

Fréttir

Jól í skókassa

Mörg frístundaheimili í Grafarvogi og Kjalarnesi tóku þátt í verkefninu Jól í skókassa annað árið í röð. Verkefnið er á vegum KFUM og KFUK og felst í því að setja dót í skókassa og senda út til bágstaddra barna í Úkraínu. Innihald pakkanna var fjölbreytt s.s. bílar, dúkkur og alls kyns leikföng, föndurvörur, fatnaður o.fl.. Tveir starfsmenn Gufunesbæjar uppáklæddir sem englar fóru ásamt heillastjörnu á milli

frístundaheimila og söfnuðu pökkunum saman. Vakti það mikla lukku barnanna á frístundaheimilunum sem voru dugleg að hjálpa til við að koma öllum gjöfunum af stað til bágstöddu barnanna sem munu fá þær í hendur í byrjun janúar. Með þátttöku í verkefnum á borð við Jól í skókassa verða börnin okkar meðvitaðri um stöðu barna víða í heiminum og læra að það skiptir máli að leggja þeim lið.

Krakkar á frístundaheimilunum í Grafarvogi tóku þátt í verkefninu Jól í skókassa annað árið í röð og söfnuðu jólagjöfum fyrir bágstödd börn í Úkraínu. Á myndunum leynir sér ekki ánægjan og áhuginn á svip krakkanna sem létu svo sannarlega gott af sér leiða þegar jólin eru á næsta leyti.

Jólatilboðin komin!

Hársnyrtistofan Höfuðlausnir Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is Opið: Mán 08.00-18.00 - þri - fim 09.00-18.00 fös 08:00-18:00

Pöntunarsími: 567-6330


Grafarvogsblaðið 11. tbl. 18. árg.

2007 - nóvember

Dreift ókeypis í öll hús í Grafarvogi

70% íbúa í Grafarvogi lesa Grafarvogsblaðið Mest lesni fjölmiðillinn í Grafarvogi Jólablað okkar kemur út 6. desember

587-9500


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Grafarvogsbladid 11.tbl 2007 by Skrautás Ehf. - Issuu