Skip to main content

Grafarvogsbladid 10.tbl 2007

Page 1

10. tbl. 18. árg. 2007 - október

ÍSLENSKA AUGLÝSINGASTOFAN/SIA.IS LBI 27159 01/2005

Grafarvogsblaðið

Eitt númer

410 4000

Dreift ókeypis í öll hús í Grafarvogi

Bifreiðaverkstæði Grafarvogs

Allar almennar bílaviðgerðir Gylfaflöt 24 - 30 • 112 Reykjavík Sími 577 4477

Þjónustuaðili

Gjöf fyrir veiðiFrábær árangur hjá Ásmundi menn

Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis, náði settu marki með 1. deildarlið Fjölnis í sumar. Fjölnir leikur á næstu leiktíð í Landsbankadeild og öll bestu knattspyrnulið landsins munu því leika í Grafarvogi næsta sumar. Árangur Fjölnis í sumar var frábær og að margra mati lék Fjölnisliðið skemmtilegustu knattspyrnuna sem í boði var. Bullandi soknarleikur var í hávegum hafður og ekkert lið í öllum deildum skoraði fleiri mörk en Fjölnir í sumar. Fjölnir kom á óvart í úrslitaleik bikarkeppninnar gegn FH. Allir bjuggust við öruggum sigri FH en Hafnarfjarðarliðið marði sigur eftir framlengdan leik. Sjá nánar í miðopnu.

Nýir tímar fyrir tjónaþola:

Komdu beint til okkar! – og við tjónaskoðum í hvelli þér að kostnaðarlausu! Það s máli kiptir eng hvern u ig bíl þú ert á!

BÍLAMÁLUN OG RÉTTINGAR Bæjarflöt 10 · 112 Reykjavík · Sími 567 8686

Við erum alltaf í leiðinni Landsbankinn leggur áherslu á faglega fjármálaþjónustu fyrir fyrirtæki og einstaklinga í Grafarvogi. Við tökum vel á móti þér í útibúum okkar að Fjallkonuvegi 1 og Höfðabakka 9.

Landsbankinn Banki allra landsmanna

410 4000

landsbanki.is

- Gjöfin fyrir veiði menn sem eiga allt - Glæsileg viðarbox úr léttum mangóviði - Gröfum nafn veiði mannsins á boxið - Laxa- og silunga flugur - Flugur í sérflokki - íslensk hönnun Upplýsingar á Krafla.is og í síma 698-2844


2

GV

Fréttir

Grafarvogsblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: skrautas@simnet.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Netfang Grafarvogsblaðsins: gv@centrum.is Ritstjórn og auglýsingar: Bíldshöfða 14 - Sími 587-9500 / 698-2844. Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir, Stefán Kristjánsson. Prentun: Landsprent ehf.. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll hús og fyrirtæki í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi og öll fyrirtæki í póstnúmeri 110.

Til hamingju Flestir sparksérfræðingar eru sammála um að lið Fjölnis sé það lið sem kom mest á óvart á nýlokinni leiktíð. Fjölnir náði ekki einungis að tryggja sér sæti í efstu deild á meðal bestu knattspyrnuliða landsins næsta sumar heldur velgdu Fjölnismenn sjálfum FHingum verulega undir uggum í úrslitaleik bikarsins. Það sem mörgum fannst ánægjulegast varðandi Fjölnisliðið í sumar var hve liðið lék skemmtilega knattspyrnu. Sannarlega ekki á hverjum degi sem lið hér á landi setja sóknarleik i öndvegi. Það gerði Ásmundur Arnarsson, þjálfari liðsins, og með þessum líka frábæra árangri. Reyndar var mjótt á munum í lokin því lið Vestmannaeyinga var á mikilli siglingu á lokakafla leiktíðarinnar og þegar upp var staðið munaði aðeins einu stigi á Fjölni og ÍBV. Það tók nánast hálft sumarið að koma Grafarvogsbúum á völlinn í einhverjum mæli. Íbúarnir hér hreinlega áttuðu sig ekki á því hve skemmtilegt lið Fjölnis var orðið. Er líða tók á sumarið voru fjölmiðlar farnir að segja reglulega og með áberandi hætti frá skemmtilegum leik liðsins og smátt og smátt fór áhorfendum að fjölga á heimaleikjum Fjölnis. Fjölnir skoraði 61 mark í 22 leikjum í 1. deild, tæp 2,8 mörk að meðaltali í leik. Ekkert lið skoraði fleiri mörk í sumar. Vonandi verður framhald á sóknarleiknum næsta sumar þó vitað sé að róðurinn muni þyngjast. Í bikarkeppninni sýndi lið Fjölnis að það getur staðið sig vel gegn bestu liðunum í Landsbankadeildinni. Sigurinn gegn Fylki í undanúrslitum bikarsins og frammistaðan gegn FH í sjálfum úrslitaleiknum hljóta að vera Fjölnismönnum gott veganesti og mikil hvatning fyrir komandi átök næsta sumar. Kæra sem stuðningsmenn Fjölnis fengu á sig í sumar eftir leik gegn ÍBV í Eyjum kom illa við marga. Voru stuðningsmennirnir sakaðir um og dæmdir af dómstóli KSÍ fyrir slæmt orðbragð í garð eins leikmanna ÍBV. Nú hefur áfrýjunardómstóll sýknað stuðningsmenn Fjölnis af ákærunni. Sannarlega punkturinn yfir iið og góður endapunktur á frábærri knattspyrnuvertíð. Til hamingju Fjölnismenn. Stefán Kristjánsson

gv@centrum.is

Stjórn Listfélags Grafarvogskirkju. Frá vinstri: Aðalsteinn Ingólfsson, Kristín Marja Baldursdóttir, Theódór Blöndal, Einar Már Guðmundsson, Arnþrúður Ösp Karlsdóttir og sr. Vigfús Þór Árnason, sóknarprestur í Grafarvogi. Á myndina vantar Sigmund Erni Rúnarsson, Pálma Gestsson og Guðbjörgu Lind Jónsdóttur. GV-mynd PS

Listfélag Grafarvogskirkju stofnað

Stofnað hefur verið Listfélag Grafarvogskirkju. Félagið mun í framtíðinni standa fyrir ýmsum listviðburðum í kirkjunni. Má þar nefna viðburði tengda tónlist, myndlist, leiklist og ritlist. Valinkunnir Grafarvogsbúar skipa stjórn félagsins en þeir eru þessir: Aðalsteinn Ingólfsson, listfræð-

ingur, Arnþrúður Ösp Karlsdóttir, textilhönnuður, Einar Már Guðmundsson, rithöfundur, Guðbjörg Lind Jónsdóttir, myndlistamaður, Kristín Marja Baldursdóttir, rithöfundur, Pálmi Gestsson, leikari, Sigmundur Ernir Rúnarsson, ritstjóri og Theódór Blöndal, tæknifræðingur. Nefna má hér tvo stóra viðburði

sem framundan eru í kirkjunni. Þann 21. október verður opnuð myndlistarsýning á frægum verkum Magnúsar heitins Kjartanssonar sem mikið hafa verið í fréttum undanfarið og þann 8. nóvember eru stórtónleikar á dagskrá á vegum Lionsklúbbsins Fjörgynjar í Grafarvogi.

Mörg ár í að byrjað verði á framkvæmdum við Sundabraut Ljóst er að framkvæmdir við Sundabraut munu ekki hefjast á næstu árum. Nú síðast kom í ljós að hætt var við að veita fjármagni til verksins á fjárlögum enda ekki ástæða til vegna þess að undirbúningur Sundabrautar virðist allur vefjast fyrir þeim aðilum sem hann annast. Nú síðast, þann 5. október, barst okkur eftirfarandi frétt frá framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar. ,,Skipulagsstofnun fellst á tillögu að matsáætlun 2. áfanga Sundabrautar. Skipulagsstofnun hefur fallist á

tillögu að matsáætlun 2. áfanga Sundabrautar með athugasemdum þann 27. september 2007. Athugasemdir bárust frá lögboðnum umsagnaraðilum, Varmársamtökunum, Náttúruvaktinni og einstaklingum, alls 11 aðilum. Línuhönnun stýrir mati á umhverfisáhrifum fyrir hönd framkvæmdaraðila, Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar. Frummatsskýrsla er í vinnslu og verður henni skilað til Skipulagsstofnunar í vetur. Í tillögu að matsáætlun er fyrirhugaðri framkvæmd, framkvæmdasvæði og áhrifasvæði lýst. Umhverf-

ismatinu er einnig lýst og fjallað um hvaða umhverfisþættir verða skoðaðir og hverjir ekki teknir fyrir. Tilgangur framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur á norðurhluta höfuðborgarsvæðisins, tengja Vesturog Norðurland betur við höfuðborgarsvæðið, auka öryggi í samgöngum, létta umferðarþunga á öðrum vegum, auka hagræði í samgöngum og atvinnustarfsemi og auðvelda þróun höfuðborgarsvæðisins til norðurs og norðausturs.’’ Við vonum að einhverjir lesendur átti sig á um hvað málið snýst.

Stórtónleikar í Grafarvogskirkju 8. nóvember Lionsklúbburinn Fjörgyn í Grafarvogi stendur fyrir stórtónleikum í Grafarvogskirkju þann 8. nóvember n.k. kl. 20:00. Meðal flytjenda verða Bragi Bergþórsson, Egill Ólafsson, Hjörleifur Valsson fiðluleikari, hljómsveitin Bardukha, Hörður Torfason, Voces Masculorum, Jónas Þórir píanóleikari, KK og Ellen, Páll Óskar og Monika, Páll Rósinkranz, Raggi Bjarna og Voces Masculorum. Er þetta í fimmta sinn sem tónleikarnir eru haldnir en þeir eru til styrktar Barna- og unglingageðdeild LHS. Hafa þeir stöðugt verið að festa sig í sessi sem hluti af menningarviðburðum á vetrarins. Hafa þeir mælst vel fyrir og segja má að kominn sé stór hópur fastagesta sem koma ár eftir ár. Allir listamennirnir sem fram koma á tónleikunum gefa vinnu sína og eiga þeir miklar þakkir skildar. Margir þessara listamanna hafa verið með frá upphafi og sumir eru að koma í þriðja eða fjórða sinn. Er það frábært hve vel allir hafa tekið beiðni klúbbsins um þátt-

töku og stuðning. Einnig hafa undirtektir gesta verið góðar, oftast hefur verið fullt hús og færri komist að en vildu. ,,Mikilvægt ljós í haustskammdeginu hefur verið framtak og framkvæmd Lionsklúbbsins Fjörgynjar á árlegum styrktartónleikum í Grafarvogskirkju’’. Með þessum orðum þakkaði Ólafur Guðmundsson, yfirlæknir á BUGL, klúbbnum fyrir stuðninginn í gegnum tíðina. Miðaverð á tónleikaveisluna er aðeins kr. 2.500 og rennur allur ágóði til BUGL. Miðar verða seldir á bensínstöðvum í Grafarvogi og nágrenni. Nánar upplýsingar er að finna í veggauglýsingum um borgina. Lionsklúbburinn Fjörgyn þakkar öllum þeim sem koma að tónleikum, bæði gestum og listamönnum, fyrir stuðninginn í þessi fimm ár. Í vændum er góð tónlistarveislu í haustskammdeginu og vissara að tryggja sér miða í tíma. Einar Þórðarson, Lkl. Fjörgyn Margar stórstjörnur munu koma fram á stórtónleikunum í Grafarvogskirkju þann 8. nóvember.


CÅ_jc\VgcVg ]VaYV {[gVb VÂ higZnbV ^cc ÏiVa V g^hdiid = g W_ Âjb k^Â jee { [g{W¨gVg iZ\jcY^g V[ WgV\ÂW¨iij g^hdiid# G^hdiid Zg Z^cc V[ ÄZ``iVg^ g iijb ÏiVaV# G^hidiid \g_ c Zgj hdÂ^c { h ghiV`Vc ]{ii ÄVg hZb ÄVj Zgj a{i^c iV`V h^\ b^hbjcVcY^ WgV\Â d\ hkd \_VgcVc Wdg^c [gVb hZb [dgg iijg# Ï a cjcc^ d``Vg Zgjb k^Â bZÂ ( iZ\jcY^g/ I bViV d\ WVh^a! ) dhiV d\ igj[ jhkZeeV g^hdiid#

ÏiVa V ZmigV k^g\^c IdhXVcV a [jda V ÏiVa V ZmigV k^g\^c ]k iaVj`hda V B_ \ k cYj ZmigV k^g\^c a [jda V! hZb Zg jcc^c g i ah`jb a [jb d\ WgV\ÂW¨ii bZ `gZ^hijb ]k iaVj`# ÃZiiV Zg [g{W¨g da V { e^oojg! hVa i d\ Z^g^ g ii^ ÄVg hZb Ä k^ai [{ bZ^gV ]k iaVj`hWgV\Â#

= g Zgjb k^ bZ VÂgV iZ\jcY V[ a [jda j# Ì ]{ah^ h`jcVg b{ h_{ \g¨cVc IdhXVcV b^ÂV# ÃZhh^ b^Â^ Zg ]¨hiV \¨ÂVbZg`^ hZb da jg { ÏiVa j [{# =Vcc hiVÂ" [Zhi^g V aajb hig c\jhij \¨ÂVhi Âajb hZb ] gVÂ^ hZijg [gVb ]Z[jg kZg^ [gVb[na\i# ÃZiiV Zg YÅgVg^ da V hZb jcc^c Zg g a [jb hZb VaaVg Zgj g¨`iVÂVg IdhXVcV ] gVÂ^cj d\ Zgj \¨Â^c h g d``^# ÃZiiV Zg hkdcV heVg^ da V hZb Ä cdiVg { [ cj g ii^cV ÄZ\Vg \ZgV { Z^ii]kV VakZ\ h ghiV`i#


4

Matgoggurinn

GV

Ofnbökuð tortilla með kjúklingafyllingu - að hætti Ólafar og Aðalbjörns Ólöf Sigurðardóttir og Aðalbjörn Kristjánsson, Fannafold 8, eru matgoggar okkar að þessu sinni og ítarlegar og girnilegar uppskriftir þeirra fara hér á eftir: Sósur með matnum: Avocado í sýrðum rjóma Avocado, saxaður í bita. Saltið hann pínulítið. Hrærið saman við 150 ml. af sýrðum rjóma. Salsa Roja ½ dós tómatar. 3 stk. þurrkaður chilipipar. ¼ tsk. kóríander (eða duft). 1-2 rif hvítlaukur. Vatn eftir þörf. Salt og pipar. Setjið allt í hrærara og hrærið vel saman. Gott að nota með tostadas, nachos, grilluðu kjöti og sem ídýfa. Cuacamole 4 tómatar.

4 acocado, vel mjúkir. Safi af 1 lime. ½ lítlill laukur. 2 hvítlauksgeirar. Smá búnt koríander, fínt saxað. 3 ferskir rauðir chili. Skerið lítinn kross í hvern tómat setið þá í skál og hellið sjóðandi heitu vatni yfir þá, takið upp úr eftir 3 mín, setið þá í kalt vatn, takið skinnið af skerið í tvennt og fræhreinsið og saxið restina í litlabita og takið til hliðar. Skerið avocadoið niður í tvennt og takið steininn úr takið ,,kjötið’’ innan úr og setjið í matvinnsluvél, hrærið þar til orðið að léttu mauki. Setjið þá í skál og kreistið safan úr lime yfir maukið. Saxið laukinn smátt og kremjið hvítlaukinn og blandið við maukið, setið koríander saman við. Fræhreinsið chili og saxið og blandið við ásamt tómötum, hrærið vel. Brauð með matnum Steiktar brauðbollur: 450 gr. hveiti.

Ólöf Sigurðardóttir og Aðalbjörn Kristjánsson ásamt börnum sínum. 1 ½ tsk. lyftiduft. 10 tsk. sykur. 2,5 tsk. salt. 300 ml. mjólk. Olía til steikingar. Hrærið þurrefnunum saman í stóra skál, blandið mjólk saman við og hrærið og hnoðið varlega saman þar til deigið er vel meðhöndlanlegt. Skiptið

deiginu níður í 10 bolta og hnoðið þær í litlar kúlur og fletjið þær svo örlítið. Hitið olíuna á miðlungs hita og setið bollurnar á pönnuna. Lækkið þá hitann á helluni niður í lágan hita, steikið í ca 15 mín. Setjið þær líka á hæðina til að gera kantana fallegri. Takið svo af pönnuni og látið á eldhúsbréf, til að olían leki af. Berið fram strax, eða allaveg heitt. Mmmmmmmmmmmmmm.

GV-mynd PS 2 msk. Olía. Salt eftir smekk. 160 gr. Mozarella ostur. 120 ml. sýrður rjómi. Setjið tómatana, laukinn, hvítlaukinn, kóriander, chiliávextina og kjúklingasoðið í matvinnsluvél og hrærið í mjúka blöndu. Hitið olíu og steikið blönduna í því. Sjóðið við hægan hita í 10 mínútur og saltið eftir smekk. Vætið tortillapönnukökuna í sós-

Hildur og Jóhann eru næstu matgoggar Ólöf Sigurðardóttir og Aðalbjörn Kristjánsson, Fannafold 8, skora á Hildi Ingu Björnsdóttur og Jóhann Kristjánsson, Dalhúsum 107, að koma með girnilegar uppskriftir í næsta blað. Við birtum frá þeim uppskriftir í næsta blaði í nóvember.

Sveppir með papriku og chili í forrétt

Þær eru allar með hárlengingu, lita lokka og þykkingu Nýtt: Hárlengingar og þykking á frábæru verði. Vorum að fá extra sítt hár Vönduð vinnubrögð. Notum aðeins hágæða hár frá BALMAIN Paris Skoðið myndir á stubbalubbar.is Hárgreiðslustofa Helenu - stubbalubbar - Barðastöðum 1-5 Sími 586 1717 - panta tíma á netinu! - stubbalubbar.is Opnunartími: mán-fös 10-18, laugard 10-16

450 gr. heilir hvítir sveppir. 4 msk. ólívuolía. 1 laukur, fínt saxaður. 2 hvítlauksgeirar, saxaðir. ½ paprika skorin langsum í sínar þunnar sneiðar. ½ chili fræhreinsaður, skorin í litla bita. Koríander til skreytingar. Þurrkið sveppina með eldhúsbréfi (ekki bleyta), hitið olíu á pönnu setjið allt á pönnuna og steikið í 6-8 mínútur eða þar allt er orðið mjúkt. Saltið að vild og skreytið svo með koríander. Gott að bera brauðið fram með. Enchiladas Rojas - Ofnbökuð tortilla með kjúklingafyllingu og rauðri chilisósu í aðalrétt Fyrir 6 manns: 18 maístortillas. 2 kjúklingabringur (750 gr.) soðnar eða grillaðar og rifnar smátt. 4-5 stk. ferskur chile piparávöxtur. Tómatar í dós, ca. 620 gr. ¼ laukur. 2 hvítlauksrif. 2 greinar korander. 375 ml. kjúklingasoð (má nota kjúklingateninga).

unni og látið á eldfastan disk eða fat. Jafnið nú kjúklingakjötinu á tortillað og vefjið upp. Hellið afganginum af sósunni yfir kökurnar. Stráið ostinum ofan á. Að síðustu er sýrða rjómanum hellt yfir og bakað í ofni þar til osturinn verður gullbrúnn. Það má setja kjöt og grænmeti í stað kjúklings. Ensalada de frutas - Ferskt ávaxtasalat í eftirrétt Bananar. Melóna (kantalúpumelóna). Mangó. Vatnsmelóna. Ananas. Safi úr einni lítilli sítrónu eða lime. Safi úr ½ appelsínu (eða tropí) eða einni mandarínu. 100 gr. sykur en lang best að sleppa. Skerið niður alla ávextina og blandið saman. Blandið saman safanum og sykrinum og hellið yfir ávextina. Kælið áður en borið er fram. En ef þið viljið vera rosalega flott á því má bera þetta fram eins og í Mexíkó og bera þetta fram í hálfum ananas. Rosalega flott og við tölum nú ekki um hollustuna ef sykrinum er sleppt. Verði ykkur að góðu, Ólöf og Hallur


Netið bjargaði okkur!

! s n i s t e n U T NJÓT

Það er orðið mun algengara að fólk sjái um bankaviðskipti sín á netinu. Þessi þjónusta eykur frelsi viðskiptavinarins og gerir honum kleift að ganga frá sínum málum hvar og hvenær sem er. Það var þakklátur viðskiptavinur SPRON sem hringdi í þjónustufulltrúa bankans og lýsti yfir ánægju sinni með þjónustuna. Málum var þannig háttað að hann var staddur í Bandaríkjunum þegar hann fékk óvænt símtal frá konu sinni. Hún var á Heathrowflugvelli á leið að hitta mann sinn og hafði lent í því að Visakortið hennar virkaði ekki og hún var ekki með inneign á reikningi sínum. Maðurinn sagði að heimabankinn væri alger himnasending. Þau áttu bókaða skemmtisiglingu um Kara-bíska hafið daginn eftir og hefði hann ekki notið þjónustu SPRON hefðu þau líklega ekki komist í þá ferð. Það tók hann aðeins tvær mínútur að

SPRONnet

ARGUS 07-0542 42

Nýr hagstæður debetreikningur á netinu

bjarga málunum. Þessi ánægði viðskiptavinur lét það fylgja sögunni að hann væri þakklátur SPRON fyrir að hafa þessa þjónustu svona einfalda því að hann væri ekki mikill tölvumaður. Einnig hrósaði hann bankanum fyrir að hafa þennan reikning líka án krafna um að nýta sér aðra þjónustu bankans.

Nýttu þér netið Kynntu þér málið á spron.is SILFURnet

GULLnet

PLATINUMnet


Fréttir frá Miðgarði:

Grafarvogsdagurinn - 2007 haldinn hátíðlegur í tíunda skipti og heppnaðist mjög vel Grafarvogsdagurinn, hverfishátíð Grafarvogsbúa, var haldinn með glæsibrag í tíunda skipti laugardaginn 8. september sl. Að venju kom mikill fjöldi fólks að undirbúningi hátíðarhaldanna og dagskráin, sem fram fór í og við Hamraskóla, var mjög fjölbreytt þar sem allir gátu fundið eitthvað við sitt hæfi. Grafarvogsdagurinn hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem langstærsta og umfangsmesta hverfishátíðin í Reykjavk og er reyndar fyrirmynd þeirra flestra. Upphaf-

leg markmið dagsins voru að bæta samtakamátt íbúa hverfisins auk þess að skapa hverfisbúum, ungum sem öldnum, tækifæri til að sýna, skemmta eða taka þátt í stórum menningarviðburði og eru þau enn í fullu gildi. Grunnskólaboðhlaupið er heldur betur búið að festa sig í sessi á Grafarvogsdaginn. Í ár tóku 7 af 8 skólum í Grafarvogi þátt í hlaupinu, 20 börn frá hverjum skóla og tóku því 140 börn á aldrinum 6 - 16 ára þátt í hlaupinu. Þriðja árið í röð var það Rimaskóla sem fór

heim með bikarinn. Til hamingju Rimaskóli! Að þessu sinni var dagskráin samfelld frá því kl. 9:00 að morgni alveg fram til kl. 19:00 þegar útitónleikunum lauk. Er það mál manna að það fyrirkomulag hafi komið vel út. Það sem helst setti strik í reikninginn þegar að útitónleikum kom var hin mikla rigning sem endilega þurfti að falla til jarðar á sama tíma. Að skipuleggja menningarhátíð líkt og Grafarvogsdaginn krefst mikillar vinnu og ekki mögulegt

nema margir leggi hönd á plóg. Á undanförnum árum hefur þeim fjölgað sem taka þátt í undirbúningi Grafarvogsdagsins þannig að ábyrgðin dreifist nú á fleiri hendur. Fjöldi stofnana og félaga koma að undirbúningnum ár hvert með mismikilli aðkomu, s.s. Miðgarður, Gufunesbær, Borgarholtsskóli, ungmennafélagið Fjölnir, grunnog leikskólarnir í hverfinu, Grafarvogskirkja, skautafélagið Björninn, íbúasamtökin, skátafélagið Hamar og Íþróttamiðstöðin við Dalhús svo einhverjir sé nefndir.

Hera Hallbera Björnsdóttir, frístundaráðgjafi Miðgarði, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness hera.hallbera.bjornsdottir@reykjavik.is Þá hafa fyrirtæki í hverfinu og næsta nágrenni lagt deginum lið með ýmiskonar framlögum í gegnum tíðina. Grafarvogsbúar, til hamingju með vel heppnaðan Grafarvogsdag árið 2007.

Vímuefnaneysla ungmenna Þetta unga danspar sýndi listir sínar á Grafarvogsdaginn.

Eignaspjöll eru ekki leyfileg! Veggjakrot hefur verið í umræðunni undanfarið enda hefur það verið meira áberandi nú en áður. Kemur þar margt til, t.d. tilkoma internetsins þar sem þeir sem það stunda geta nú skipst á skoðunum og sýnt myndir af verkum sínum, jafnvel í skjóli nafnleyndar. Höfum við lögreglumenn í Grafarvogi sem víðar þurft að koma að málum þar sem eigendur bygginga og jafnvel bifreiða hafa orðið fyrir skemmdarvörgum sem hafa úðað þessar eigur fólks og valdið á þeim spjöllum sem kallað hafa á fjárútlát eigendanna. Gerendurnir hafa verið frá 11 ára og allt að tvítugu. Foreldrum þeirra sem teknir hafa verið, undir 18 ára, hefur verið tilkynnt um málin lögum samkvæmt, og hafa, ótrúlegt en satt, sumir haft vitneskju um athæfi barna sinna sem þeir hafa talið ,,leyfilegt" þar sem um hafi verið að ræða undirgöng, skóla og strætisvagnaskýli í eigu opinberra aðila. Eru jafnvel dæmi um að foreldrar hafi keypt málningu til þessara verka fyrir barnunga syni sína. Það er því rétt að árétta það við foreldra að ,,eignaspjöll" af þessum toga sem öðrum eru ekki leyfileg heldur er um saknæmt athæfi að ræða. Öll mannvirki eru eign einhverra, hvort sem um er að ræða opinbera aðila eða einkaaðila og krefjast viðhalds á kostnað eigendanna. Ætti það að vera hverjum manni ljóst að það er ekki undir nokkrum kringumstæðum leyfilegt að valda öðrum tjóni. Kveðja, Einar Ásbjörnsson, aðalvarðstjóri Ásdís Haraldsdóttir, svæðislögreglumaður

Miðvikudaginn 31. október næstkomandi verða niðurstöður síðustu kannana á vímuefnaneyslu nemenda í 8., 9. og 10. bekk í Grafarvogi og á Kjalarnesi kynntar. Kynningin fer fram í Borgarholtsskóla kl. 17:30. Allir sem áhuga hafa á að kynna sér stöðu mála meðal krakkanna í hverfinu eru velkomnir. Fulltrúi frá rannsóknamiðstöðinni Rannsóknir & greining mætir og kynnir niðurstöðurnar og fá gestir einnig tækifæri til að bera fram spurningar. Gróska, stýrihópur um forvarnir

Gróska er stýrihópur um forvarnar sem vinnur að því að samræma aðgerðir í hverfinu í baráttunni við reykingar, áfengi og fíkniefni. Tilgangur Grósku er að efla ungt fólk í hverfinu til sjálfstæðra og vel ígrundaðra ákvarðana um hvernig það vill verja sínu lífi. Markmiðið er að skapa aðstæður fyrir börn og unglinga svo að þau átti sig betur á möguleikum sínum og hafi frelsi til að velja hvert þau vilja stefna. Ekki er undir nokkrum kringumstæðum leyfilegt að valda öðrum tjóni með veggjakroti.


8

GV

Fréttir

Arnþór F. Guðmundsson: Fæddur 1991 - 1 leikur - 0 stig.

Árni Þór Jónsson: Fæddur 1987 – 34 leikir – 0,2 stig.

Drago Pavlovic: Fæddur 1981 – 0 leikir – 0 stig.

Haukur Pálsson: Fæddur 1992 – 7 leikir – 0 stig.

Helgi Hrafn Þorláksson: Fæddur 1982 – 42 leikir – 1,1 stig.

Hjalti Þór Vilhjálmsson: Fæddur 1983 – 72 leikir – 5,6 stig.

Karlton Mims: Fæddur Kristinn Jónasson: Fæddur 1984 – 85 leikir – 11 stig. 1980 – 0 leikir – 0 stig.

Magnús Pálsson: Fæddur 1985 – 44 leikir – 5,4 stig..

Nemanja sovic – Fæddur 1977 – 65 leikir – 22,7 stig..

Níels Dungal – Fæddur 1983 – 71 leikur – 7,5 stig.

Sindri Már Kárason – Sverrir Kári Karlsson – Fæddur 1989 – 9 leikir – 0,2 Fæddur 1980 – 6 leikir – 0,7 stig. stig.

Tryggvi Pálsson – Fæddur 1986 – 12 leikir – 1,5 stig.

Þorsteinn Pálsson – Fæddur 1987 – 24 leikir – 2,5 stig.

Valur Sigurðsson – Fæddur 1988 - 44 leikir – 1,1 stig.

Alvöru

GÖNGUSKÓR

Stærðir 36-44 verð: 8.790.-

Stærðir 28-35 verð: 7.650.-

Stærðir 36-47 verð: 11.795.-

www.xena.is

SPÖNGINNI S: 587 0740 MJÓDDINNI S: 557 1291 GLÆSIBÆ S: 553 7060 BORGARNESI S: 437 1240

Leikmenn Fjölnis í körfunni 2007/2008

Keppnistímabilið er hafið í körfuboltanum og lið Fjölnis mætt til leiks i efstu deild karla, Iceland Express deildinni. Við birtum hér myndir af leikmannahópi Fjölnis í vetur. Undir myndunum eru upplýsingar um ein-

staka leikmenn, aldur, fjölda leikja í úrvalsdeild og stigaskor viðkomandi leikmanns að meðaltali i leik fyrir það keppnistímabil sem nýlega er hafið. Fjölnir hefur þegar leikið einn leik í Iceland Express deildinni. Okk-

ar menn heimsóttu þá Íslndsmeistara KR vestur í bæ og máttu þola tap, 100-78. Þrátt fyrir þessar lokatölur náði Fjölnisliðið að standa rækilega í Íslandsmeisturunum lengi vel og kom frammistaða Fjölnis nokkuð á óvart ef frá er skilinn lokakafli leiks-

Kolbrún Lilja sýnir 20 málverk Grafarvogsbúinn Kolbrun Lilja sýnir 20 málverk á Geysir Bistro & bar í Aðalstræti. Verkin eru bæði unnin í acryl og olíu. Sýningin hófst 4. október og stendur yfir út mánuðinn. Staðurinn er opinn frá kl.:11-22 á kvöldin. ,,Ég er hálfgerður frumbyggi hér í Grafarvogi, hef búið hér yfir 20 ár og líkar mjög vel. Ég er með vinnustofu heima. Ég vinn líka með vatnslitum. Fólk er velkomið að skoða myndirnar mínar eftir samráði hafi það áhuga á að fá mynd hjá mér,’’ segir

Kolbrún Lilja. Myndlistarmenntun: Útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands, kennaradeild árið 1972. Frjáls myndlistardeild, grafík 5. ár 1975. Skúlpturdeild, Accademia Di Belle Arti Roma, Ítalíu 1982. Kolbrún Lilja starfaði við myndlistarkennslu til ársins 2002. Hún sinnir nú myndsköpun sinni. Netfang: olbrunantons@simnet.is Sími: 587 9989/ 891 9987. Eitt af verkum Kolbrúnar Lilju.

ins þegar KR-ingar náðu þeim mun sem skildi liðin að í lokin. Við hvetjum Grafarvogsbúa til að mæta á leiki Fjölnis í vetur og hvetja liðið rækilega, sérstaklega auðvitað á heimaleikjum liðsins.


BÓNUS BÝÐUR BETUR 7 cjh WÅÂjg a¨\hiV bVik gjkZg { ÏhaVcY^

=Za\Vgi^aWd &-#"'&# d`i WZg 40% HH @DCÏ6@HA:<C6G HKÏC6AJC9>G &)+. @G$@<# )% 6;HAÌIIJG '))- @G$@<#

79 8D@: A><=I ' AIG# ,. @G#

40% @H ;GDH>C HK>Á (.. @G$@<# )% 6;HAÌIIJG '(. @G$@<#

BÓNUS BÝÐUR BETUR 6;<G:>ÁHAJIÏB> BÌCJ9";>BBIJ9# &'#%% I>A &-#(%#


10

GV

Fréttir Umhverfisverkefni unnið í samvinnu OLÍS og Foldaskóla:

Söfnun notaðra

rafhlaðna

Í vor leitaði Olís til kennara og nemenda í Foldaskóla í Grafarvogi um samvinnu við söfnun ónýtra rafhlaðna. Var því mjög vel tekið og hafa krakkarnir heldur betur tekið til hendinni og afhentu Olís 100 kg af ónýtum rafhlöðum á vordegi skólans í byrjun júní.

Foldaskóli er Grænfánaskóli og féll þetta verkefni vel að umhverfisstefnu skólans. Nemendur og starfsmenn skólans tóku virkan þátt í því að safna ónýtum rafhlöðum og forða því að þær lentu í heimilissorpinu og kæmust út í náttúruna. Nemendur í 7. HR gerðu stutta fræðslumynd um rafhlöður og einföldustu leiðina til að koma þeim til í úrvinnslu. Það er mikilvægt að engar rafhlöður endi í heimilissorpinu. Í þeim eru spilliefni sem eru hættuleg bæði heilsu okkar og náttúrunni, komist þau í snertingu við umhverfið. Það

er einfalt mál að losa sig við ónýtar rafhlöður því á bensínstöðvum Olís um allt land er kassi frá Hringrás sem hægt er að setja ónýtar rafhlöður í. Hringrás sér svo um að losa þessa kassa og flokka rafhlöðurnar. Hluti af þeim fer í endurvinnslu, en öðrum er fargað á viðurkenndan hátt. Það kostar ekkert að skila rafhlöðum til úrvinnslu. Því miður er allt of litlu magni af rafhlöðum skilað árlega. Af þeim 161,5 tonnum rafhlaðna sem flutt voru inn til landsins á árinu 2005 var aðeins rúmlega 37 tonnum skilað til úrvinnslu. Þetta eru ekki nema 21% af öllum seldum rafhlöðum hér á landi. Þetta þýðir að hvorki meira né minna en rúm 124 tonn af rafhlöðum, 79%, hafa farið beint í ruslið og því verið urðuð með öðru sorpi. Verum dugleg að fara með ónýtar rafhlöður á næstu Olísstöð og lág-

Nemendur losuðu söfnunarboxin í glæran kassa, sem var komið fyrir ofan á vigt.

marka þannig umhverfis- og heilsuspjöll af völdum rafhlaðna. Olís færir nemendum og kennurum Foldaskóla bestu þakkir fyrir þátttökuna og gott samstarf sem er vonandi bara rétt að byrja.

Starfsmenn óskast í skemmilegt og gefandi starf

Þessir drengir í Foldaskóla voru ánægðir með árangurinn.

Frístundaklúbburinn í Grafarvogi leitar eftir jákvæðu, duglegu og áhugasömu fólki til að vinna með börnum og unglingum með fötlun. Um er að ræða 20-50% störf eftir hádegi, en starfshlutfall og vinnutími getur verið sveigjanlegur. Starfið veitar mjög góða reynslu fyrir fólk sem hefur áhuga á samskiptum, uppeldi, sálfræði og skapandi starfi - og vill vinna í skemmtilegu starfsumhverfi. Menntunar og/eða hæfniskröfur: - Uppeldis- eða listmenntun æskileg og/eða góð reynsla af starfi með börnum. - Áhugi á starfi með börnum - Hæfni í samskiptum - Sjálfstæð og ábyrg vinnubrögð Nánari upplýsingar hjá frístundamiðstöðinni Gufunesbæ, Þóra Melsted þora.melsted@reykjavik.is eða Ásdís Sigurjónsdóttir asdissig@itr.is Sími: 695-5189 Laun eru skv. Kjarasamningi Reykjavíkurborgar við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar

Stoltur nemandi í Foldaskóla með einn söfnunarbaukinn.

Gríðarlegt magn rafhlaðna safnaðist eins og sjá má.


Gjöf sem gleður Fislétt og falleg flugubox úr Mangóviði fyrir vandláta veiðimenn Tilvalin jólagjöf fyrir veiðimenn sem eiga allt Vinsæl gjöf fyrirtækja til einstaklinga Gröfum nöfn veiðimanna eða lógó fyrirtækja á boxin Mismunandi úrval af hágæða flugum í boxunum fyrir laxveiði- og silungsveiðimenn

Kíktu á Krafla.is - Gjöfular, fallegar og sterkar flugur - Íslensk hönnun

íslensk fluguveiði Skrautás ehf. Sími: 587-9500


13

12

Fréttir

Frábært sumar

GV

GV

Tími þinn er dýrmætur

Þú færð vetrardekkin hjá okkur á Max1

- sæti í Landsbankadeild að ári og góð frammistaða í úrslitaleik bikarsins gegn FH

Fjölnir var þið lið í íslenskri knattspyrnu sem kom mest á óvart í sumar. Liðið tryggði sér sæti í Landsbankadeild á næsta ári með 2-0 sigri gegn Þór í lokaleiknum í 1. deild og stóð sig frábærlega í bikarkeppninni. Fjölnir komst alla leið í úrslitaleikinn á Laugardalsvelli gegn FH og hefði með smá heppni getað hampað bikarnum í leikslok. Segja má að fimm ára markmið

hafi náðst er Fjölnir hafði tryggt sér þátttökurétt næsta sumar á meðal bestu liða landsins. Að þessu hefur verið unnið markvisst innan félagsins undanfarin ár. Fjölnisliðið var á allra vörum í sumar. Liðið lék mjög skemmtilega knattspyrnu og sannkallaðan sóknarleik í öllum leikjum. Liðið skoraði enda 61 mark í leikjunum 22 í 1. deild sem er einstakur árangur. Grindavík og Þróttur fylgja

Fjölni í Landsbankadeildina en Fjölnir skoraði 14 mörkum meira en Þróttur og Grindavík. Það var stórkostlegur árangur að komast alla leið í úrslitaleik bikarkeppninnar gegn FH. Eftir að FHingar ákváðu að lánsmenn þeirra hjá Fjölni mættu ekki leika úrslitaleikinn voru flestir á því að FH myndi vinna stóran sigur en annað kom á daginn. FH marði sigur eftir

Fréttir

framlengdan leik. Það segir sína sögu um styrkleika Fjölnisliðsins í dag að þar á bæ voru menn svekktir að ná ekki að landa sigri gegn FH. Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis, hefur náð undraverðum árangri með liðið og þar er greinilega einn snjallasti þjálfari landsins á ferð. Þá hafa allir sem að liðinu komu í sumar unnið frábært starf og uppskorið í samræmi við sáninguna.

Engar tímapantanir

Max1 Bílavaktin sérhæfir sig í hraðþjónustu við allar gerðir bíla. Við bjóðum hraðþjónustu sem er sniðin að þörfum hins tímabundna bíleiganda. Við erum eldsnöggir á Max-einum. Þú kemur þegar þér hentar og á meðan á þjónustu stendur færð þú þér rjúkandi kaffibolla og kíkir í blöð og tímarit. Bíllinn þinn er í hröðum og öruggum höndum hjá okkur.

Max-einn dregur nafn sitt af því að við ljúkum allri þjónustu við bílinn þinn innan klukkustundar frá því þjónusta hefst. Max-einn skiptir um bremsur, dempara, olíu, rafgeyma, perur, rúðuvökva og dekk og býður einnig ný dekk frá Nokian og Pirelli. Við förgum notuðum dekkjum, rafgeymum, síum, olíu og öðrum spilliefnum samkvæmt ströngustu umhverfiskröfum.

Hjólbarðaþjónusta

Smurþjónusta

Rafgeymaþjónusta

Leiðist þér að bíða á dekkjaverkstæðum? Láttu okkur skella dekkjunum undir bílinn. Við bjóðum þér vandaða hjólbarða á hagstæðu verði frá Nokian og Pirelli.

Er komið að smurningu? Við skiptum um olíu og síur eins og hendi sé veifað.

Þarftu að skipta um rafgeymi? Við gerum það fyrir þig í hvelli og losum þig við þann gamla.

Demparaþjónusta

Bremsuþjónusta

Önnur þjónusta

Eru dempararnir lélegir? Eru bremsuklossarnir búnir? Endurnýjum dempara og gorma í Endurnýjum bremsuklossa og flestum gerðum bifreiða. bremsudiska í flestum bifreiðum. REYKJAVÍK - MAX1 BÍLAVAKTIN: Bíldshöfða 8. Símar 515 7097 og 515 7098. Bíldshöfða 5a. Símar 515 7095 og 515 7096. Jafnaseli 6. Sími 587 4700.

Forðastu óþægindi. Komdu með bílinn til okkar. Skoðaðu: www.max1.is

Grafarvogsbúar fjölmenntu á úrslitaleik Fjölnis og FH á Laugardalsvelli og vöktu mikla athygli ekki síður en liðið fyrir vaska framgöngu. GV-mynd PS

Knattspyrnudeild Fjölnis fékk 500 þúsund frá Visa fyrir annað sætið í bikarkeppninni.

Hagkaup í Spönginni tók þátt í að skapa stemningu fyrir bikarúrslitaleikinn en daginn fyrir leikinn klæddust allir starfsmenn Hagkaupa Fjölnisbúningi og á myndinni eru þrír þeirra. Þá voru Fjölnisfánar áberandi um alla verslun Hagkaupa í Spöng. GV-mynd PS

OPIÐ: Virka daga frá kl. 8-18. Laugardaga frá 9-13.

Við skiptum líka um þurrkublöð, perur og setjum rúðuvökva á bílinn. Fagmannleg vinnubrögð á örskotsstundu.

Teigt og togað fyrir átökin í framlengingunni. Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis, fyrir miðri mynd.

Höfum opnað glæsilega bílasölu í Grafarvogi Rúmgóður sýningarsalur. Mikil sala. Vantar allar gerðir bifreiða á skrá

Fjölnismenn fagna marki sínu á sinn hátt gegn FH í úrslitaleiknum í bikarnum gegn FH.

GV-mynd PS

Í heiðursstúkunni. Jón Karl Ólafsson, varaformaður Fjölnis, lengst til vinstri, þá kona hans, Valfríður Möller. Fyrir miðri mynd er Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrverandi formaður Fjölnis og nú heilbrigðisráðherra, Brynhildur Sigursteinsdóttir og eiginmaður hennar, Snorri Hjaltason, heiðursforseti Fjölnis.

Gylfaflöt 5 - S: 567-2700 - www.arnarbilar.is


14

GV

Fréttir Metþátttaka í SPRON skólamóti Fjölnis í handknattleik:

400 börn á SPRON móti

SPRON skólamótið í handbolta var haldið í annað sinn sunnudaginn 23. september sl. og var þátttakan mjög góð og mótið afar skemmtilegt og velheppnað í alla staði. Alls voru 46 lið skráð til leiks, sem þýðir að um 400 börn á aldrinum 6 til 16 ára tóku þátt að þessu sinni. Þau voru frá sjö skólum í Grafarvogi; Borgaskóla, Engjaskóla, Foldaskóla, Hamraskóla, Húsaskóla, Rimaskóla og Víkurskóla. SPRON styrkti mótið myndarlega og gaf öllum verðlaunapening fyrir þátttöku, SPRON tösku og vatnsbrúsa. Þá voru veittir bikarar fyrir sigur í hverjum flokki og farandbikar fyrir samanlagðan árangur. Gleðin skein úr öllum andlitum og var tekist vel á í öllum leikjum. Mesta spennan var í úrslitaleik í 7.-8. bekk drengja á milli Húsaskóla og Víkurskóla sem endaði með sigri Víkurskóla í framlengdum leik. Víkurskóli vann einnig farandbikarinn í annað sinn og skólinn tók með sér fjóra af tíu bikurum sem veittir voru fyrir sigur í hverjum flokki. Víkurskóli vann sigur í 1. og 2. bekk drengja og stúlkna, 3. og 4. bekk stúlkna og 7. og 8. bekk drengja. Borgaskóli vann í 3. og 4. bekk drengja og 5. og 6. bekk drengja, Foldaskóli vann í 7. og 8. bekk stúlkna og 9. og 10. bekk stúlkna og Rimaskóli vann í 5. og 6. bekk

stúlkna og 9. og 10. bekk drengja. Gaman var að sjá alla foreldra og aðra áhorfendur sem mættu til að hvetja liðin sín og íþróttakennarar frá nokkrum skólum mættu til að styðja við og hvetja krakkana sína. Þá voru þjálfarar handknattleiksdeildar á staðnum til að leiðbeina krökkunum og 2. flokkur drengja ásamt nokkrum þjálfurunum deildarinnar sáu um dómgæslu, tímavörslu og þess háttar. Þá stóð 5. flokkur kvenna myndarlega að kaffisölu. Hafliði H. Sigurdórsson var mótsstjóri og hélt utan um dagskrá og niðurstöður leikja og aðrir stjórnarmeðlimir handknattleiksdeildar aðstoðuðu starfsmenn SPRON við verðlaunaafhendingu og þar sem þörf var á. Var það starf allt unnið í sjálfboðavinnu og þökkum við ungmennum okkar sem mættu kl. 8:00 á sunnudagsmorgni til að raða stólum og undirbúa mótið og voru síðan með okkur allan daginn til að allt gengi upp kærlega fyrir samvinnuna. Það er stórkostlegt þegar hægt er að vinna hlutina á þennan hátt þannig að allir hafi gaman af. Íþróttakennarar skólanna og aðstandendur krakkanna voru duglegir að mæta og hvetja lið sín til dáða og var stanslaus straumur af fólki í Íþróttamiðstöðinni í Dalhúsum þennan dag og hafði folk á orði að svona ætti að nota íþróttahúsin.

Víkurskóli vann í samanlögðum stigafjölda og tók farandbikarinn sem þeir unnu á mótinu í janúar aftur með sér heim. Handknattleiksdeild vill gera skólamótið að árlegum viðburði og efla með því móti barna- og unglingastarf í hverfinu. Vonumst til að sjá enn fleiri á Skólamóti handknattleiksdeildar Fjölnis árið 2008! Og svo viljum við auðvitað hvetja fleiri til að koma og æfa með okkur. Það er pláss fyrir alla á öllum aldri, það er aldrei of seint að byrja og til að undirstrika það má nefna að nokkrar mömmur eru byrjaðar að æfa handbolta hjá Fjölni! Þökkum við SPRON fyrir stuðninginn og öllum sem komu að mótinu á einn eða annan hátt kærlega fyrir ánægjulegan dag í Dalhúsum! Vonum að þetta verði árlegur viðburður í Grafarvogi þar sem tekist er á í skemmtilegum leik og aðalatriðið er að vera með og hafa gaman af. F.h. Handkn.deildar Fjölnis Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, formaður

Þessir ungu krakkar voru sumir að keppa í handbolta í fyrsta sinn á ævinni og stóðu sig framúrskarandi vel.

Þessar ungu stúlkur úr Foldaskóla unnu sigur í flokki 7.-8. bekkjar og sögðust tvær þeirra aldrei hafa komið við handbolta áður.

Frábær árangur hjá 6. flokki Strákarnir í 6. flokki stóðu sig frábærlega á Reykjavíkurmótinu í handknattleik.

Laugardaginn 29. september var leikið til úrslita á Reykjavíkurmótinu. Helgina áður höfðu strákarnir spilað í Víkingsheimilinu og lentu öll lið Fjölnis, A-, B- og C-lið í 1.sæti í sínum riðlum. Þá varð ljóst að þeir myndu allir spila um 1.sætið í Laugardalshöllinni. Mikil spenna var yfir hópnum, flestir mættu vel fyrir sinn leik og höfðu þeir þá tíma til að styðja hin liðin okkar. C-liðið byrjaði fyrsta leik og var hann á móti Fram. Allir stóðu þeir sig frábærlega strákarnir og unnu sigur sem var þó tæpur. Framarar sóttu stíft á lokasprettinum, en strákarnir héldu ró sinni og unnu verðskuldað. Í þessum leik mátti sjá augljós merki um framfarir, allir lögðu þeir sig 100% fram og baráttan var til fyrirmyndar. B-liðið átti svo leik númer 2 og hann var einnig á mót Fram. B-liðið samanstendur af eldri og yngri árs iðkendum og náðu þeir nokkuð vel saman. Strákarnir höfðu yfirhöndina allan leikinn og unnu öruggan sigur. Gaman var að sjá Alex í markinu sem varði hvert skotið á fætur öðru og einnig leikkerfi okkar nr. 1 sem heppnaðist ótrúlega vel. A-liðið studdi þá vel og það hefur skilað sér til strákanna sem spiluðu af leikgleði og skemmtu sér frábærlega.

A-liðið spilaði svo seinasta leikinn og var hann enn og aftur á móti Fram. Þeir mættu vel stemmdir og hungraðir í sigur eftir að C- og B-liðin höfðu hreppt 1. sætið. Fyrstu mínútur leiksins voru jafnar, en Fram strákarnir höfðu alltaf yfirhöndina og mátti sjá smá stress á okkar leikmönnum. Ætli það hafi ekki verið bara spenningur, spila um 1.sætið í A-liðum og það í Laugardalshöllinni. Framarar höfðu góða forystu í hálfleik og mátttu þeir þakka vinstri skyttu sinni sem var nær óstöðvandi. A-liðið var ekki á því að gefast upp og mætti af miklum krafti til leiks og spiluðu kerfin vel og sýndu flottan leik. Þegar staðan var 9-7 fyrir Fram náðu strákarnir okkar að skora flott mark og minnka muninn í eitt mark. Því miður var tíminn ekki nógu mikill og Framarar róuðu sína síðustu sókn og leiktímanum lauk. Lokastaða 9-8 fyrir Fram, en Aliðið á hrós skilið fyrir að sýna baráttu og vilja til að vinna leikinn. Að lokum viljum við þjálfararnir þakka strákunum fyrir frábærar tvær helgar og voru greinileg framfaramerki hjá öllum liðum. Allir gerðu strákarnir sitt besta og meira en það! Arnór Ásgeirsson og Matthías Leifsson, þjálfarar 6. flokks.


Óh`jb `cViihengcj[ a`^ ;_ ac^h d\ hijÂc^c\hb ccjb i^a ]Vb^c\_j bZÂ [g{W¨gVc {gVc\jg { kZaa^cjb hjbVg

BÓNUS BÝÐUR BETUR

BÓNUS BÝÐUR BETUR 6;<G:>ÁHAJIÏB> BÌCJ9";>BBIJ9# &'#%% I>A &-#(%#


16

GV

Fréttir Félagsmiðstöðvarnar í Grafarvogi:

Starfið komið í fullan gang Frábær mæting hefur verið í félagsmiðstöðvarnar núna í haust og er greinilegt að beðið hefur verið með óþreyju eftir því að starfið fari af stað. Unglingaráðin hafa verið dugleg við að skipuleggja starf fyrir 10-12 ára börnin og þátttaka í því starfi hefur verið alveg frábær. Það

hefur einnig verið algjör sprenging í haust í þátttöku í félagsmiðstöðvastarfinu fyrir 8. - 10. bekk. Ýmislegt skemmtilegt hefur verið brallað í félagsmiðstöðvunum og sem dæmi má nefna kaffihúsakvöld sem haldið var í félagsmiðstöðinni Sigyn. Bakarameistarinn styrkti

Þessir prúðu herramenn biðu efir matnum áður en farið var í lazertag.

Lazertagið sló í gegn.

kvöldið rausnarlega með sætindum og brauði og félagsmiðstöðin bauð upp á heitt kakó. Góð mæting var hjá unglingunum og var hvert borð þétt setið. Róleg og góð stemmning var í unglingahópnum þetta kvöld þrátt fyrir fjölmennið. Í lok september stóð félagsmiðstöðin Engyn fyrir 9. og 10. bekkjakvöldum. Unglingarnir fengu sjálfir

að velja hvað gert yrði á þessum árgangakvöldum og vildu krakkarnir helst skella sér í einhverja ferð. Úr varð að farið var út að borða og eftir matinn var farið í Lazertag. Lazertagið sló þvílíkt í gegn og er hiklaust hægt að mæla með því ef einhvern langar að komast í hasar. Mikil ánægja var með ferðirnar. Margt spennandi er framundan í

dagskránni og nú fer senn að líða að hinum árlegu Grafarvogsleikum félagsmiðstöðvanna en þar keppa þær sín á milli í bæði óhefðbundnum og hefðbundnum greinum sem hafa verið síbreytilegar á milli ára. Það hefur verið gríðarleg stemmning á leikunum undanfarin ár og ekki líkur á að þar verði breyting á í ár. Allir bíða spenntir!

Starfsdagur frístundaheimila Gufunesbæjar:

Starfsfólkið mikilvægt Starfsdagur frístundaheimilanna í Grafarvogi og á Kjalarnesi var haldinn í Félagsgarði í Kjós laugardaginn 29. september s.l. Starfsfólk notaði þann dag til að fræðast um samskipti og fjölgreindir. Hugo L. Þórisson sálfræðingur hélt skemmtilegt erindi þar sem hann fjallaði um hversu mikilvægu Mikil einbeiting í lazertag.

Og enn meira lazertag.

Starfsfólk í stuði.

Hópvinna á strfsdeginum.

hlutverki starfsfólk frístundaheimila gegnir í samskiptum sínum við börnin. Einnig var fyrirlestur um fjölgreindarkenningu Howards Gardners og kynning á áhugasviðskönnun sem lögð verður fyrir öll börn frístundaheimilanna á næstunni. Könnunin byggir á hugmyndum Gardners um átta greindir eða ólík

hæfileikasvið mannsins. Tilgangur hennar er að skima áhuga barnanna og meta í framhaldi af því hvort starfið á frístundaheimilunum kemur nægilega vel til móts við hæfileika og áhuga barnanna. Almenn ánægja var með daginn og heilmikill lærdómur átti sér stað sem nýtist starfsfólki í starfinu á frístundaheimilunum.


18

GV

Fréttir

Langur dagur í Hvergilandi Mánudaginn 1. október var langur dagur í Hvergilandi, en Hvergiland er frístundaheimili sem stendur við Borgaskóla í Grafarvogi. Börnin og starfsfólk ákvað í tilefni dagsins að bregða undir sig betri fætinum og fara í bæjarferð. Tekinn var strætisvagn niður á Lækjartorg og þaðan gengið um Aðalstræti og farið á landnámssýninguna. Konan þar sýndi gestunum úr Grafarvogi hvernig var spáð í völur í gamla daga, hvernig torfbæir voru byggðir og margt fleira skemmtilegt. Eftir sýninguna var svo haldið upp Laugaveginn í kleinur og heitt kakó á Kaffi Sólon. Þar voru móttökur mjög góðar og gott að komast inn í hlýjuna. Á leiðinni heim var kíkt á Tjörnina. Allir skemmtu sér konunglega og börnin voru alveg frábær í ferðinni.

Við Tjörnina.

Á Kaffi Sólon. Kleinurnar komnar á sinn stað og beðið eftir kakói.

Áhugasamir krakkar á landnámssýningu.

Strákarnir voru ekki síður áhugasamir en stelpurnar.

Gleðin við völd í Frístundaklúbbi Gufunesbæjar Frístundaklúbburinn er fyrir 10 16 ára börn og unglinga með fötlun sem sækja almenna grunnskóla og eru búsett í Grafarvogi. Frístundaklúbburinn hóf starfsemi sína 28.september s.l. og er með aðsetur í skátaheimilinu við Logafold á meðan verið er að standsetja framtíðarhúsnæði í Eg-

ilshöllinni. Í frístundaklúbbnum er lögð áhersla á heimilislegt umhverfi þar sem allir geta notið sín. Dagurinn í frístundaklúbbnum hefst á því að allir setjast niður saman og borða í ró og næði þar sem gefast tækifæri til að spjalla

um heima og geima. Eftir hressinguna er farið af stað í dagskrá dagsins sem er ýmist frjáls leikur, atburðir sem eru fyrir fram ákveðnir, bæjarferðir o.fl. Starfsmenn og þátttakendur í frístundaklúbbunum skipuleggja dagskrána saman og er gleðin ávallt við völd.

Það er alltaf stutt í gleðina í Frístundaklúbbnum.

Fjölmenn haustferð reykvískra sjálfstæðismanna í Reykholt

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Geir H. Haarde voru með í för í árlegri haustferð sjálfstæðismanna.

Mikið fjölmenni var í árlegri haustferð reykvískra sjálfstæðismanna sem farin var í Reykholt sunnudaginn 7. október sl. í einstakri veðurblíðu. Sr. Geir Waage tók á móti hópnum og fræddi þá um sögu staðarins eins og honum er einum lagið. Þá var auk þess Snorrastofa skoðuð og merkar fornminjar staðarins. Ánægjulegt er að sjá hversu vel heppnuð uppbygging staðarins er og hve fornleifarannsóknum miðar vel. Með í för voru Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson fyrrv. borgarstjóri og Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins sem ávarpaði hópinn í Reykholti. Hverfafélögin m.a. í Grafarvogi, Grafarholti og Árbæ áttu veg og vanda að öllum undirbúningi ferðarinnar. Á heimleiðinni var komið við í Andakílsárvirkjun og stöðvarhúsið þar skoðað og síðan keyrt sem leið lá um Dragann og Hvalfjörðinn til Reykjavíkur. Útsýnið og haustlitirnir voru óviðjafnanlegir í kvöldsólinni og margir höfðu á orði að þeir hefðu sjaldan séð fjörðinn jafn spegilsléttan og fallegan.


Frábært tilboð í GULLNESTI

Líter af ís og sósa á

440,Gildir frá 18. - 25. október

Grillið í Grafarvogi - Gylfaflöt 1 - Sími: 567-7974


20

Fótaaðgerðafræðingur hefur hafið störf Fréttir

GV

Hjá Snyrtistofunni Mist

Allir velkomnir

Spönginni S: 577-1577 Örn Jónsson, lengst til vinstri, ásamt þeim Óla Erni Jónssyni og Þórði G. Þórðarsyni, fyrir framan bílasöluna við Gylfaflöt í Grafarvogi. GV-myndir PS

Arnarbílar fyrsta bílasalan sem opnar í Grafarvogshverfi:

,,Ánægðir með að vera fyrstir í Grafarvoginn’’ LR Henning það er málið vellíðan og ekkert hungur Uppl. í síma 663-2743 eða á póstfanginu meyjan@isl.is Helga Magnúsdóttir veitir stuðning og ráðgjöf

,,Ég hef verið viðloðandi sölu á bifreiðum og bílabransann i tvo áratugi og tel mig því vita nokkuð vel hvað það er sem viðskiptavinurinn sækist eftir. Við hjá Arnarbílum kappkostum við að veita afbragðsþjónustu og það hafa Grafarvogsbúar kunnað að meta,’’ segir Örn Jónsson, löggiltur bílasali, sem rekur bílasöluna Arnarbílar ásamt þeim Óla Erni Jónssyni og Þórði G. Þorsteinssyni en bílasalan er staðsett við Gylfaflöt í hjarta Grafarvogshverfis. Um er að ræða fyrstu bílasöluna í Grafarvogi. Auk þess að selja notaða bíla selja þeir hjá Arnarbílum mótorhjól, hjólhýsi og hluti sem tengjast þessum tækjum. ,,Við opnuðum hér í Grafarvogi þann 17. maí sl. Ég átti von á því að þetta færi frekar rólega af stað en raunin hefur orðið önnur. Það hefur verið mjög mikið að gera og alveg ljóst að það vantaði bílasölu í Grafarvoginn. Við leggjum áherslu á að leita að rétta bílnum fyrir okkar viðskiptavini. Óskir þeirra eru auðvitað misjafnar en mest sala hefur verið í sumar í smábílum sem eyða litlu eldsneyti. Segja má að hinn hefðbundni viðskiptavinur sé að leita að eins eða tveggja ára gömlum bíl, lítið eknum og á góðu verði,’’ segir Örn og bætir við að mjög mikil sala sé gjarnan í smærri bílunum og þeir stoppi yfirleitt mjög stutt við hjá þeim félögum. ,,Það hefur verið mjög mikil sala hjá okkur í sumar og nú er svo komið að okkur vantar allar tegundir bila á skrá. Við viljum því skora á þá

Margir glæsivagnar eru til sölu hjá Arnarbílum við Gylfaflöt.

Hjá Arnarbílum er jafnan mikið úrval af fallegum mótorhjólum. bíleigendur sem eru í söluhugleiðingum að setja bílinn á skrá hjá okkur. Það er mjög mikil sala hér innan Grafarvogsins og við erum mjög ánægðir með að geta, fyrstir bílasala, boðið Grafarvogsbúum upp á bílasölu og toppþjónustu í þeirra hverfi,’’ sagði Örn Jónsson.

Hægt er að skoða bíla sem eru til sölu hjá Arnarbílum á heimasíðu fyrirtækisins: www.arnarbílar.is Þar eru nokkur hundruð bíla á skrá og hægt að notast við leitarvel sem er mjög þægileg og einnig skoða myndir af flestum bílum sem til sölu eru hjá Arnarbílum.

GV auglýsingar og ritstjórn: 587-9500


21

Fréttir

GV

Hópaþjálfun í Veggsport

Um þessar mundir eru skemmtileg Hópaþjálfun í gangi í Veggsport undir leiðsögn Siggu Dóru, einkaþjálfara. Um er að ræða fjölbreytta þjálfun þar sem heilsa og mataræði er tekið fyrir. Hópurinn vinnur saman eftir sameiginlegu æfingakerfi sem er þó sniðið að hverjum og einum svo að hver einstaklingur fái að njóta sín. Sigga Dóra hefur verið með þessa

¡;>C<6G ;NG>G @G6@@6 D< JC<A>C<6

Hópaþjálfun undanfarin ár og notið mikilla vinsælda. Margir hafa verið hjá henni frá byrjun enda alltaf líf og fjör í tímunum. Núna eru hóparnir að undirbúa sig fyrir Jólagleði Veggsports sem haldin verður í byrjun desember, bæði með æfingum og að undirbúa skemmtiatriði þar sem þeir gera grín að sjálfum sér og öðrum.

H`kVhh[ aV\ GZn`_Vk `jg Zg bZÂ ¨[^c\Vg [ng^g `gV``V d\ jc\a^c\V# < Â aZ^Â i^a VÂ a¨gV h`kVhh jcY^g ]VcYaZ^Âhaj Ä_{a[VgV# H`kVhh[ aV\ GZn`_Vk `jg Zg Z^cc^\ bZÂ [VhiV ¨[^c\Vi bV ÄVg hZb [ aV\hbZcc ]^iiVhi d\ he^aV h`kVhh# ¡;>C<6IÏB6G/ B{cjY# ¶ b^Âk^`jY# ¶ [ hijY# `a#&+/%% ¶ &,/%% ¡;>C<6G Ï I¡@?6H6A/ Ãg^Â_jY# ¶ [^bbijY# `a#&+/%% ¶ &,/%%

Sigga Dóra ásamt einum hópnum.

Grafarvogskirkja Söngur fyrir börn og unglinga Viltu taka þátt í líflegu söngstarfi? Hafir þú áhuga á að syngja þá er hér frábært tækifæri þar sem allir fá þjálfun í söng, túlkun og framkomu.

GV

Ritstjórn og auglýsingar 587-9500

H C C 6 B

:G

Um er að ræða þrjá kóra starfandi í Grafarvogskirkju. Krakkakór, fyrir börn á aldrinum 6 - 8 ára æfir á mánudögum kl. 17:00 - 18:00. Uppl. hjá Gróu Hreinsdóttur píanóleikara og kórstjóra í síma 699 1886 og á netfangi groahreins@gmail.com Barnakór, fyrir 9 - 11 ára og æfir á þriðjudögum kl. 17:30 - 18:30 Unglingakór, fyrir 12 ára og uppúr æfir á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 16:30 - 18:00. Uppl. fyrir barna- og unglingakór hjá Svövu K. Ingólfsdóttur söngkonu og kórstjóra í síma 867 7882 og á netfangi svavaki@simnet.is

G J @ ;>H

> C C : G < Ì C J C Ï Ã Ï C > Á Ö ;>H@7

B:<>C = [ÂVWV``V


22

GV

Fréttir

Endurreisn hverfisráðanna Síðustu atburðir í borgarpólitíkinni boða nýja og betri tíð fyrir Hverfisráð Grafarvogs. Í tíð R listans var hverfisráðum komið á og þeim fengið fjármagn til samfélagslegra verkefna í hverfum borgarinnar. Ástæðan var það sjónarmið að hverfisráðin þekki betur hvað brennur á fólki í hverfum borgarinnar en önnum kafinn borgarstjóri. Þessu var fráfarandi meirihluti ósammála. Hann svipti hverfisráðin öllum fjárráðum og síðan þá hafa allir sem vilja fá stuðning við samfélagsleg verkefni í hverfum borgarinnar þurft að ganga bónarveg til borgarstjóra. Rætt var um að leggja hverfisráðin niður. Nú þegar nýr meirihluti hefur tekið við verða hverfisráðin endurreist, þeim aftur fengið fjármagn til samfélagslegra verkefna og tengslin við íbúa borgarinnar efld á ný.

Það er afar mikilvægt að íbúar eigi greiðan aðgang að fulltrúum borgaryfirvalda sem þekkja vel til viðkomandi hverfis og hafa skyldum að gegna gagnvart því. Þetta samband íbúa og yfirvalda á að vera auðvelt að rækta í litlu samfélagi eins og okkar. Um þetta má nefna tvö nýleg og ánægjuleg dæmi. Fyrir skömmu barst borgarfulltrúum bréf frá föður í Grafarvoginum. Hann lýsti þeirri miklu hættu sem börnum stafar af hraðakstri við Laufengi og Gullengi en kvöldið áður hafði legið við stórslysi þegar þar var ekið á hjólandi barn. Barnið sakaði sem betur fer ekki en eins og faðirinn benti á í bréfi sínu er aðeins tímaspursmál hvenær eitthvað slíkt gerist. Fyrir hönd Samfylkingarinnar var bréfinu svarað um hæl af Degi B Eggertssyni með þeim skilaboðum að málið yrði tekið

upp í Hverfisráði Grafarvogs strax á næsta fundi. Á þeim fundi, sem haldinn var skömmu síðar, lagði undirritaður til að beina þeim tilmælum til Framkvæmdaráðs að gera hið fyrsta nauðsynlegar ráðstafanir til að auka umferðaröryggi barna við Laufengi og Gullengi. Einnig var bent á að bæta þyrfti umferðaröryggi barna við Fannafold. Tillagan var samþykkt samhljóða og bréf sent Framkvæmdaráði. Á næsta fundi Framkvæmdaráðs var erindi Hverfisráðs Grafarvogs tekið fyrir og einróma samþykkt að fara að þeim óskum sem þar voru settar fram. Ég vænti þess að það verði gert hið fyrsta. Síðara dæmið snýst um lýsingu göngustígsins við voginn innst í

Grafarvogi. Félagar í Skokkhópi Fjölnis bentu undirrituðum á að við þessa fallegu göngu- og hlaupaleið vantar sárlega lýsingu sem veldur því að eftir að skyggja fer forðast fólk að vera þar á ferli. Á fyrrnefndum fundi

Dofri Hermannsson, 1. varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar og fulltrúi í Hverfisráði Grafarvogs, skrifar: Hverfisráðs Grafarvogs lá því beint við að leggja einnig fram tilmæli til Framkvæmdaráðs um að koma þarna upp viðeigandi lýsingu á þessari. Sú tillaga var, líkt og hin fyrri, samþykkt einróma í Hverfisráði Grafarvogs og bréf sent til Framkvæmdaráðs um málið.

Framkvæmdaráð mun hafa tekið þessum tilmælum vel og þess skammt að bíða að kveikt verði á perunni. Bæði dæmin sýna að Hverfisráðið er mikilvæg tenging við borgaryfirvöld, tenging sem hægt er að gera enn áhrifaríkari með því að veita ráðinu fyrri styrk. Ef til vill sýnir þetta líka að við búum ekki bara í alþjóðlegri heimsborg heldur ekki síður í vinalegu þorpi þar sem boðleiðir eru stuttar og fólk getur haft áhrif á umhverfi sitt. Dofri Hermannsson 1. varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar og fulltrúi í Hverfisráði Grafarvogs. Netfang: dofri.hermannsson@reykjavik.is

ausnir a us Hárgreining ársnyrtistofan á stofuna g þiggja gu RASTASE erð og vörur einingu. r vandamál:

er boðið upp á: Kérastase vörum

Hársnyrtistofan Höfuðlausnir Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is Opið: Mán 08.00-18.00 - þri - fim 09.00-18.00 fös 08:00-18:00

Pöntunarsími: 567-6330


Himinn og haf / SÍA - 9071260

Til hamingju strákar! Olís óskar meistaraflokki Fjölnis í knattspyrnu karla til hamingju með hreint frábæran árangur í sumar. Liðið leikur í efstu deild að ári og fór alla leið í úrslitin í bikarnum. Þetta eru hetjur að okkar skapi!

Olís – Við höldum með þér


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook