7. tbl. 17. รกrg. 2006 - jรบlรญ
40% afslรกtt-
)[NHCHNร V 5ร OK
55 44444 ร SLENSKA AUGLร SINGASTOFAN/SIA.IS LBI 32665 05/2006
15:18:40
$KHTGKร CUMQร WP )TCHCTXQIK 1RKร QI ร ร ยฑ Hร U
ur af sรณttum pizzum
18.11.2004
410 4000
Dreift รณkeypis รญ รถll hรบs รญ Grafarvogi
ร essar ungu dรถmur skemmtu sรฉr vel รก leikjanรกmskeiรฐi hjรก Gufunesbรฆ. Viรฐ segjum nรกnar frรก nรกmskeiรฐunum sem nรบ eru รญ fullum gangi รก bls. 16.
Bilastjarnan_02_001.ai
ร SLENSKA AUGLร SINGASTOFAN/SIA.IS LBI 27159 01/2005
Grafarvogsblaรฐiรฐ
Eitt nรบmer
Komdu beint til okkar! - og viรฐ tjรณnaskoรฐum รญ hvelli รพรฉr aรฐ kostnaรฐarlausu
I oo jb ย agpbo
q`mfaยนmd
Bรญlastjarnan ehf. ยท Bรฆjarflรถt 10 ยท 112 Reykjavรญk ยท Sรญmi 567 8686
odg ย ]ย \f\pk\
ร `dia\g_\md g`d \ ย ]ย \f\pkph Bm`d ngph\o ย i`odip Gย inphnย fi ย i`odip
410 4000 | landsbanki.is
2
GV
Fréttir
Grafarvogsblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: skrautas@simnet.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Netfang Grafarvogsblaðsins: gv@centrum.is Ritstjórn og auglýsingar: Bíldshöfða 14 - Sími 587-9500 / 698-2844. Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir, Stefán Kristjánsson. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll hús og fyrirtæki í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi og öll fyrirtæki í póstnúmeri 110.
Eitthvað mikið að Knattspyrnulið Fjölnis í Grafarvogi hefur verið að sækja verulega í sig veðrið undanfarin ár. Er nú svo komið að liðið er í toppbaráttu 1. deildar og ef allt gengur upp á liðið að eiga raunhæfa möguleika á sæti í Landsbankadeildinni næsta sumar. Svo virðist sem Grafarvogsbúar hafi litla trú á þessu ágæta liði og engan áhuga á því sem það er að gera á knattspyrnuvellinum. Í síðasta Grafarvogsblaði sagði Ásmundur Arnarsson, þjálfari liðsins, að miðað við aðsókn á heimaleiki Fjölnis mætti halda að í Grafarvogi byggju 200-300 manns. Hver getur verið ástæðan fyrir því að áhorfendastúkan á Fjölnisvellinum er nánast tóm leik eftir leik? Og það þrátt fyrir gott gengi liðsins. Getur verið að Grafarvogur skeri sig algjörlega úr hvað áhuga á knattspyrnu viðkemur og íbúar í hverfinu hafi alls engan áhuga á þessari vinsælu íþrótt? Eitt er víst. Það er einhvers staðar eitthvað að. Ef allt væri með felldu væru 1000-1500 manns á öllum heimaleikjum Fjölnis. Mikil stemning ríkti í hverfinu og íbúar myndu styðja vel við bakið á sínu liði. Þessu er alls ekki þannig farið. Íbúar í Grafarvogi mæta bara alls ekki á völlinn og styðja ekki sitt lið. Virðist þeim alveg standa á sama hvort Fjölnir á knattspyrnulið í 3. deild eða efstu deild. Undarleg staða í 20 þúsund manna hverfi sem þekkt er fyrir mikla samheldni og samstöðu. Forystumenn knattspyrnumála hér í Grafarvogi standa frammi fyrir erfiðu verkefni. Nefnilega að vekja Grafarvogsbúa til lífsins og fá þá til liðs við sig. Lið sem ekki á sterkan heimavöll mun aldrei ná í fremstu röð. Stefán Kristjánsson
gv@centrum.is
Vítavert getuleysi Snemma í vor hóf ég undirbúningsvinnu mína fyrir HM í knattspyrnu. Setti þá strax aukinn kraft í heimilisstörfin og vann jafnt og þétt að því fram að upphafi HM að ganga í augun á minni heittelskuðu. Þessi undirbúningsvinna gerði það öðru fremur að verkum að mér tókst að fá þokkalega grænt ljós á að ég mætti horfa á nær alla leikina á HM. Í byrjun leist mér vel á keppnina en þegar hver leikurinn af öðrum var leiðinlegur fór áhuginn að minnka. Gaf ég þá eftir enda var það aldrei ætlunin að liggja yfir fótbolta sem væri mér ekki að skapi. Sannleikurinn er nefnilega sá að mörg liðin á HM hafa verið að leika mjög lélega knattspyrnu. Allavega framan af. Þar nefni ég lélegt lið Englands og Frakklands en Frakkarnir hafa verið að sækja í sig veðrið. Skemmtilegast hefur hins vegar verið að fylgjast með því hvernig þýska liðið hefur verið að sækja sig með hverjum leik.
Einkum og sér í lagi vegna þess að einhver fótboltaklíka eldri knattspyrnumanna gerði fátt annað fyrir keppnina en að skíta út þjálfara þýska liðsins sem var þeim ekki að skapi. Vona ég í dag að Þjóðverjar verði heimsmeistarar og mér finnst þeir eiga það skilið. Leik eftir leik í 16-liða úrslitunum urðu leikmenn uppvísir
Nóg um fótbolta í bili. Fór út á land í frí í nokkra daga og heyrði í fréttum þegar ég kom aftur til byggða að til stæði að skera niður fé til vegamála á Vestfjörðum vegna þennslu í þjóðfélaginu. Ljótt er ef satt er. Hve lengi er hægt að níðast á þessu blessaða fólki fyrir vestan sem þekkir varla malbik nema af afspurn. Vitað er að vestfirðingar eiga ekki mikinn þátt í þennslunni og er þetta ekki í fyrsta skipti sem þeir vestfirðingar verða fyrir barðinu á niðurskurðarhnífnum hér fyrir sunnan. Er nema von að íbúar á þessu svæði séu reiðir. Enn skal fresta framkvæmdum sem öllum nema þeim sem ráða för finnast eðlilegar og sjálfsagðar. Þolinmæði og langlundargeð vestfirðinga hefur verið ótrúlegt þegar samgöngumál eru annars vegar. Nú er kominn tími til að þetta fólk fái réttlátar úrbætur í vegamálum og það þó fyrr hefði verið. Svarthöfði
Svarthöfði skrifar að því að geta ekki skorað úr vítaspyrnum. Minnir mig að Svisslendingar hafi ekki skorað úr einu einasta víti og á dögunum féllu Englendingar úr keppni eftir hörmulega frammistöðu í vítakeppni. Hvað er þetta með þrautþjálfaða atvinnumenn í knattspyrnu með margar milljónir í laun á klukkutíma? Geta þeir ekki aulast til að setja boltann í netið af stuttu færi með markvörð andstæðinganna einan fyrir framan sig.
Símanúmer GV er 587-9500
Þú færð allt í veiðiferðina hjá okkur Kasthjól frá 1990 kr Fluguhjól frá 4990 kr Nielsen flugu- og kaststangir
Arkóveiði Veiðihöllinni. Krókhálsi 5 G Sími 587 5800 - 893 7654 www.arko.is
m u l l i n r a G sam Lambafiðrildi kryddlegin að hætti Ítala
BBQ hamborgari 120gr úr kjötborði
GOTT Á GRILLIÐ
Fiskigrillpinnar Úr kjötborði
GOTT Á GRILLIÐ
GOTT Á GRILLIÐ
ODDI VOB1640
Mest seldu grillsósurnar í Hagkaupum! Dijon hunangs sósa
Svartir tómatar
GOTT Á GRILLIÐ
Rósapipar sósa
Eggaldin
Hefur þú prófað? Basil & hvítlauks sósa
GOTT Á GRILLIÐ
Steinselju rót
GOTT Á GRILLIÐ
4
Matgoggurinn
GV
Sumarfréttir frá Foldasafni Í sumar stendur Foldasafn fyrir lestrarátaki fyrir 8 - 12 ára börn undir yfirskriftinni Sumarlestur ber ávöxt. Sumarlesturinn gengur þannig fyrir sig að börnin skrá allt sem þau lesa í Pésann sinn og fá límmiða fyrir hverja lesna bók eða blað. Þau fá einnig ,,ávöxt’’ sem þau skila í lukkupott. Úr lukkupottinum verða dregnir út nokkrir vinningshafar í ágúst. Áhuginn á sumarlestrinum er mikill og nú þegar eru yfir hundrað börn skráð. Þjálfaðu hugann - hlauptu á bókasafnið er lestrarátak fyrir fólk á öllum aldri sem einnig stendur yfir í sumar en að því koma öll söfn Borgarbókasafnsins. Það hófst 19. júní og því lýkur á Menningarnótt þann 19. ágúst með uppskeruhátíð í Aðalsafni í Grófarhúsi. Meðal vinninga eru reiðhjól frá Markinu og vöruúttektir frá Intersport. Fyrr í sumar, 12. - 16. júní, stóð yfir Ritsmiðja í Foldasafni. Herdís Egilsdóttir rithöfundur og Erna G. Sigurðardóttir myndlistarkona leiðbeindu 14 börnum við ritsmíðar og myndskreytingar. Fjórtán glæsilegar bækur urðu til og á lokahátíð Ritsmiðjunnar lásu börnin úr verkum sínum fyrir foreldra og aðra gesti. Það er líf og fjör á Foldasafni - líka á sumrin.
Olga B. Gísladóttir og Davíð Gunnarsson ásamt sonum sínum.
GV-mynd PS
Sunnudagsbrunch Olgu og Davíðs - speltbaka með spínati, súrmjólkurpönnukökur og rabarbarapie með ís
Á sunnudögum er gaman að gera sér dagamun og bjóða vinum og ættingjum í brunch. Mátuleg blanda af hollustu og óhollustu er best. Þessar uppskriftir má allar undirbúa kvöldið áður, og baka næsta morgun.
Speltbaka með spínati N.B. Tilvalið að prófa sig áfram með aðrar fyllingar, nota botninn sem grunn og skipta út öðrum hráefnum eftir smekk. Ótrúlega bragðgott og meinhollt. Deig: 250 gr. spelt (helming gróft, helming fínt). 3 tsk. vínsteinslyftiduft. ½ tsk. salt (Maldesan). ½ tsk. oregano. 2 msk. ólífuolía. 125 ml. Heitt vatn. Þurrefnum blandað saman í skál, olíu bætt í, síðan vatni og deigið hnoðað. Deiginu þrýst ofan í bökuform, einnig upp hliðarnar. Gatað
með hnífi eða gaffli, síðan forbakað í 10 mínútur við 200° hita. Fylling: 100 gr. brokkolí skorið niður, léttsoðið, sett ofan í bökuformið. 1 rauðlaukur. 2 hvítlauksrif. Smá fersk steinselja. 200 gr. ferskt spínat.
Borið fram með steiktu beikoni og skrömbluðum eggjum. Einnig gott að hafa ferska niðurskorna ávexti með pönnukökunum.
Rabarbarapie með ís Núna er rabarbarinn í miklum blóma í garðinum og tilvalið að skella í eina böku. Takið eftir: Ef þið hafið ekki aðgang að rabarbara, þá
smátt, dreift ofan á deigið. 50-100 gr. uppáhalds súkkulaðið ykkar (ég set 70%belgískt súkkulaði), dreift ofan á rabarbarana. Restin af deiginu sett í skellum yfir. Bakað við 170° hita í ca. 30-40 mínútur. Borið fram heitt, með vanilluís.
Svalur sumardrykkur Krakkarnir elska þetta, látið þau
Skorið niður og léttsteikt á pönnu í ólífuolíu. Sett ofan á brokkolíið, í bökuformið. Vökvi: 100 gr. kotasæla. 4 egg. 2 dl. matreiðslurjómi. Salt og pipar.
Jón og Gunna næstu matgoggar
Gott að setja smá gráðost í litlum bitum saman við. Vökvanum hellt yfir fyllinguna. Bakan sett í ofn og bökuð við 175° hita í 30-45 mínútur.
Olga B. Gísladóttur og Davíð Gunnarsson, Bakkastöðum 33, skora á Jón og Gunnu, Bakkastöðum 27, að koma með uppskriftir í næsta blað. Við birtum frá þeim girnilegar uppskriftir í næsta blaði sem kemur út þann 24. ágúst.
Amerískar súrmjólkurpönnukökur Þessar klassísku amerísku. 3 bollar hveiti. 2 ½ tsk lyftiduft. 1 ½ tsk. sykur. 1 tsk. salt. ¾ tsk. matarsódi. 4 bollar súrmjólk. 2 mjög stór egg (pískuð). 3-4 msk. smjör (brætt). Allt hrært saman. Geymt í ísskáp yfir nótt. Steikt á pönnukökupönnu, gott að gera 2 litlar í einu á pönnunni, eða 1 stóra, eftir smekk. Sírópi hellt yfir, hlyns síróp (maple) gott, amerískt, eða Agave lífrænt, hollt...
má nota epli, perur ofl. Deig: 100 gr. spelt. 80 gr. haframjöl. 50 gr. Hnetublanda - söxuð (t.d. salthnetur, pekanhnetur, möndlur, eftir smekk). 150 gr. Sykur (t.d. blanda af strásykri, hrásykri, púðursykri). 150 gr. Smjör (t.d. skipta út c.a. 1/3 fyrir olíu). Allt sett í skál og hnoðað í höndunum. 2/3 af deiginu er þrýst ofan í bökuform. Fylling: Um það bil 5 rabarbarar, skornir
hjálpa til og sulla aðeins í þessu, bara betra... Slump af Ribena sólberjadjús. Sprite zero eða sódavatn. Ávaxtadjús sem til er (t.d. appelsínu, epla, ananas). Niðurskornir ávextir sem til eru (t.d. jarðarber, appelsínur, bananar, melóna, sítróna). Fullt af klökum. Einnig gott að setja frysta ávexti út í (frosin jarðarber úr pokum). Allt sett í stóra karöflu eða könnu. Hrært vel í með sleif. Verði ykkur að góðu - Bon appetit! Olga og Davíð
ARGUS / 06-0334
Vaxtabót og Viðbót
Tveir sterkir! SPRON Vaxtabót – 11,55% vextir* Óverðtryggður sparnaðarreikningur á Netinu sem ber allt að 11,55% vexti.*
SPRON Viðbót – 4,7% vextir* Verðtryggður sparnaðarreikningur á Netinu sem ber allt að 4,7% vexti.*
Þú getur stofnað reikning á spron.is
Upplýsingar í næsta útibúi SPRON í síma 550 1200, í þjónustuveri SPRON í síma 550 1400 eða á spron.is *Samkvæmt gildandi vaxtatöflu SPRON 21. júní 2006
– frelsi í bankaviðskiptum
Frá Hverfisráði Grafarvogs: Nýskipað Hverfisráð Grafarvogs:
Áherslur Hverfisráðs Grafarvogs Á fyrsta fundi nýskipaðs Hverfisráðs Grafarvogs voru áherslur ráðsins 2006-2010 ræddar. Mál reifuð um hvað eigi heima innan ráðsins. Ljóst er að flest það sem er til umfjöllunar hjá borgaryfirvöldum á heima á borði hverfaráðsins s.s. skólamál, íþrótta- og frístundamál, þjónusta við eldri íbúa Grafarvogs, umhverfismál, umferðar- og samgöngumál, fráveitumál, skipulags og framkvæmdamál og fjölþætt samvinna og nýsköpun í hverfinu. Þá er lagt til að stjórn boði einu sinni á ári til viðræðufundar við ungmennaráð Grafarvogs og að málefni Fjölnis fái sérstaka athygli ráðsins. Þá verður heilsdagsskóli og samræming skólastarfs og frístunda að fá verulega athygli. Fimmtudaginn 29. júní var haldinn 30. fundur Hverfisráðs Grafarvogs. Fundurinn var haldinn í Miðgarði og hófst kl. 11:00. Viðstödd voru Ragnar Sær Ragnarsson, Dofri Hermannsson og Halldór Lárusson. Auk þeirra sat fundinn Ingibjörg Sigurþórsdóttir, framkvæmdastjóri Miðgarðs, sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist á fyrsta fundi Rætt um verkaskiptingu í ráðinu og fyrirkomulag funda. Halldór Lárusson kjörinn varaformaður ráðsins. Ákveðið að hafa fundi ráðsins 2. fimmtudag í hverjum mánuði kl. 16:30. Næsti fundur verður þó 24. ágúst nk. Samþykkt að bjóða eftir farandi samtökum að tilnefna fulltrúa til að sitja fundi ráðsins sem áheyrnarfulltrúar. Íbúasamtökum Grafarvogs, foreldraráðum og foreldrafélögum grunnskóla, foreldrafélögum leikskóla og Korpúlfum. Rætt um áherslur Hverfisráðs Grafarvogs til ársins 1010. Samhljómur um að ráðið láti sig varða öll mál er snerta hagsmuni hverfisins og íbúa þess.
Þau skipa Hverfisráð Grafarvogs Ragnar Sær Ragnarsson er formaður. Varamaður hans er Emil Örn Kristjánsson. Halldór Lárusson en varamaður hans er Karl Hreiðarsson. Dofri Hermannsson en varamaður hans er Halla B. Þorkelsson.
Ragnar Sær Ragnarsson ásamt eiginkonu sinni, Unni Ágústu Sigurjónsdóttur hjúkrunarfræðingi og börnum þeirra, Katrínu 15 ára og Gunnar Frey sem er 5 ára.
,,Af mörgu að taka’’ - segir Ragnar Sær Ragnarsson, nýr formaður Hverfisráðs Grafarvogs
Ragnar Sær Ragnarsson er nýr formaður HHverfisráðs Grafarvogs næstu fjögur ár. Ragnar Sær var kjörinn varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins við borgarstjórnarkosningarnar en var áður sveitarstjóri Bláskógabyggðar. - Hverjar eru áherslur nýs formanns um uppbyggingu í Grafarvogi? ,,Það er af mörgu að taka og ekkert undan skilið sem hverfisráðið mun ekki sýna áhuga. Meðal þess sem áhugavert verður að skoða eru gæði þess að reka fyrirtæki og þjónustu í hverfinu sjálfu. Vitund íbúa á þjónustu sem stendur til boða og kynningar á því er mikilvæg. Ég hef áhuga á að efla samstarf Hverfisráðs við fyrirtækin í hverfinu. Þá verður unnið að því af hálfu Miðgarðs að samþætta skólastarf og frístundir grunnskólabarna. Það er nýtt og spennandi verkefni sem ég þekki afar vel. Hugmyndin er m.a. það sem sjálfstæðismenn lögðu áherslu á í kynningu sinni fyrir borgarstjórnarkosningarnar, að minnka skutl og auka gæðastundir. Þá þarf að vinna að því samhliða að íþróttaæfingar barna geti farið fram í hverfinu. Mér eru fjölskyldumálin sérstaklega hugleikin og þar vil ég bæta þjónustu heilsdagsskóla svo og leikskólanna sem ég þekki mjög vel. Þá þarf að efla frístundastarf unglinga, þar með talið þeirra sem eru á framhaldsskólaaldri. Nýtt Hverfisráð ákvað á sínum fyrsta fundi að hafa beint samráð við nemendafélög í hverf-
inu og bjóða fulltrúum þeirra til viðræðna um það sem betur má fara. Þá verður að bæta aðstöðu á útivistarsvæðum fyrir börn og unglinga í borginni. Sérstaklega þarf að fjölga sparkvöllum því það er ótrúlegt hvað einn völlur getur haft lengi ofan af fyrir börnum.’’ - Hvað vilt þú segja um íbúðabyggð í Geldinganesi? ,,Hvað varðar uppbyggingu hér í Grafarvoginum þá verður því tekið fagnandi. Aukin uppbygging hlýtur að þýða bætt þjónusta. Geldinganesið á að verða hluti Grafarvogs hvað varðar þjónustu við íbúa. Miðgarður mun þjónusta þá sem þess þurfa á því svæði. Það er mikilvægt að þeir sem flytja í Geldinganesið upplifi sig sem hluta af núverandi samfélagi. Þá verður Fjölnir sameiginlegt íþróttafélag og uppbygging á Geldinganesi mun flýta fyrir því að aukið fjármagn fáist til þess að halda áfram uppbyggingu íþróttamannvirkja sem er aðkallandi. Við eigum stærsta og einn glæsilegasta framhaldsskóla landsins, Borgarholtsskóla. Nauðsynlegt er að hlúa vel að honum og umhverfi hans. Það þarf að taka ákvörðun fljótlega um stækkun hans eða byggingu á nýjum framhaldsskóla í Geldinganesi. Þá verða byggðir fjölmargir grunn- og leikskólar sem mikilvægt er að vanda til í upphafi.’’ - Hver er þinn áhugi á íþróttastarfi? ,,Grafarvogur er gott og barnvænt hverfi, annars hefði ég ekki
sest þar að sjálfur. Hér er öflugt íþróttafélag þar sem unnið er gott starf af atorkusömu fólki. Við þurfum að styðja mikið betur við félagið en gert hefur verið. Þó að ég sé talsmaður íþrótta og hreyfingar fyrir alla þá skil ég vel þörfina fyrir fyrirmyndir frá afreksfólki. Sjálfur var ég í frjálsum íþróttum og fótbolta til 16 ára aldurs. Ég lék m.a. með leikmönnum úrvalsdeildar í knattspyrnu bæði Víði í Garði og Grindavík. Í framhaldsskóla fór ég í aðra hluti s.s. leiklist, ljósmyndun og félagsstörf. Þá varð aðaláhugamálið bridge þar sem ég varð Íslandsmeistari. Spilamennskan tók of mikinn tíma þannig að ég varð að leggja hana á hilluna. Í Grafarvogi er sundlaug og hér er skíðalyfta, svo eitthvað sé nefnt. Við verðum að hlúa vel að hverfinu okkar og gæta þess að það verði ekki skemmt sem við eigum. Það hefst með því að allir hafi skoðun á málum og láti umhverfi sitt sig einhverju varða.’’ Ragnar Sær er kvæntur Unni Ágústu Sigurjónsdóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau tvö börn: Katrínu 15 ára og Gunnar Frey 5 ára. Unnur Ágústa er að vinna á Eir sem er fyrirmyndar staður og veitir mörgum öldruðum einstaklingum þjónustu. Eir er einnig stærsti einstaki vinnustaður Grafarvogs með um 300 starfsmenn.
Tómstundir barna ,,Íþróttaæfingar barna í Grafarvogi er einn þáttur þeirra verkefna sem finna þarf lausn á en í
dag stunda 40% barna úr Grafarvogi íþróttaæfingar utan hverfisins vegna aðstöðuleysis,’’ segir Ragnar Sær og bætir við: ,,Við Sjálfstæðismenn höfum ákveðið að stórlækka æfingagjöld barna vegna íþrótta - og tómstundastarfs frá næstu áramótum. Undirbúingur vegna þessa er þegar hafinn. Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að sköpuð verði skilyrði á samfelldu skólaog tómstundastarfi. Markmiðið er að börn geti stundað íþrótta- og tómstundastarf sem mest innan daglegs vinnutíma foreldra.’’
Bestu skólarnir Ragnar Sær hefur heimsótt flesta leik- og grunnskóla Grafarvogs og annars staðar í borginni til þess að hlýða á ábendingar og meta þörf fyrir nýjar áherslur. ,,Á leikskólunum hefur komið fram beiðni um aukið leikrými eða fækkun barna í elsta aldurshópnum. Þá hefur mikið álag hvílt á starfsfólki leikskóla vegna undirmönnunar sem þarf að bæta úr. Í grunnskólunum er þörf fyrir aukið fjármagn til þess að sinna nemendum sem þurfa sérkennsluúrræði og stuðning auk þess sem kennslustofur eru of litlar. Víða vantar fjármagn til þess að lagfæra húsnæði eða búnað skóla og vegna viðhalds skólalóða. Það er ætlun okkar að auka lífsgæði fjölskyldna með því að einbeita okkur að úrlausnum í fjölskyldumálum,’’ sagði Ragnar Sær Ragnarsson.
8
GV
Fréttir
Landnámsmaður Grafarvogs:
Ketill ,,gufa’’ Örlygsson og fréttir af fleiri fræknum
Þarft þú að losna við köngulær?
Þó að gróðrarskúrir sumarsins séu að margra mati allsráðandi í sumarveðrinu er landinn farinn eða að týnast hver af öðrum í frí. Þetta verður oft þess valdandi að verkefni sem verið er að vinna, eiga það til ,,að leggjast í dvala’’. Við höfum ekki heyrt mikið í nýjum stjórnendum borgarinnar né heldur fulltrúum í hinu nýja Hverfisráði Grafarvogs, en gerum þó ráð fyrir að með haustinu fari að spyrjast til tíðinda í hverfismálum og hvernig verði skipað í nýtt samráð um Sundabraut. Þó ekki hafi verið fundað í samráðshópnum sjálfum frá því fyrir kosningar, þá var fagmönnum fengið það verkefni að endurreikna hönnun Sundabrautar með það í huga að leggja hana í göng, þar sem tekið væri tillit til óska íbúa, báðum megin Elliðavogs. Og að réttar umferðatölur og komandi skipulag væri tekið með í reikninginn. Við, fulltrúar íbúa Grafarvogs, fórum fram á að fá að sjá hvernig umferðaspár litu út, með afnámi tengingar Hallsvegar við Vesturlandsveg. Til þess að fá það sannreynt, að það myndi draga verulega úr þeim umferðaþunga sem ekki á neitt annað erindi en að aka í gegnum hverfið, út á Sundabrautina, til að komast niður í bæ. Í þessum vinnuhópi er fulltrúi sem íbúasamtökin völdu sér, Bjarni Gunnarsson verkfræðingur, sem var einn þeirra sem gagnrýndu þá ákvörðun að gangaleiðinni væri hent út af borðum, án þess að fullnaðarskoðun á henni hefði farið fram. Við gerum ráð fyrir að fljótlega fari að heyrast frá niðurstöðum vinnuhópsins.
ingu fyrir vel unnin störf. Það hefur sýnt sig hve áhugi fólks er mikill á sögunni hér, á fjölda þeirra sem árlega hafa tekið þátt í sögugöngunni á Grafarvogsdaginn. Við vildum að þessi styrkur skilaði sér til hverfisins aftur með því að leggja andvirði styrksins í undirbúning að hönnun þessa verkefnis. Íbúasamtökin fengu til liðs við sig Rótaryklúbb Grafarvogs til að vinna að undirbúningi og frumþróun hugmyndarinnar til að koma henni í farveg til kynningar fyrir borgina. Hluta undirbúningsvinnunnar er lokið, þó svo eftirlit verði haft, en eins og áður sagði samþykkti Stefán Jón hana og áframsendi hugmyndina til Umhverfissviðs borgarinnar sem hefur nú komið til liðs við okkur, veitt verkinu brautargengi og útnefnt hönnuð. Hugmyndin er að setja upp svokölluð móðurskilti á jarðarmerkjum hinna fimm gömlu jarða innan hverfisins, skrá sögu jarðanna, sem eru sérstæðar og ólíkar, örnefni, ljósmyndir teikningar o.fl. Jarðirnar eru Gufunes, Keldur, Korpúlfsstaðir, Eiði og Gröf.
Elísabet Gísladóttir, formaður Íbúasamtaka Grafarvogs, skrifar:
,,Menningarsöguskilti’’ sett upp í Grafarvogi Á vordögum var samþykkt af þáverandi formanni Hverfisráðs, Stefáni Jóni Hafstein, tillaga Íbúasamtaka- og Rótarýklúbbs Grafarvogs, að sett yrðu upp svokölluð menningarsöguskilti. Hugmyndin er að varðveita hina miklu sögu hverfisins allt frá landnámi, til fróðleiks og skemmtunar fyrir gesti og gangandi. Þessi hugmynd kom upp eftir að Íbúasamtökin fengu ,,Máttarstólpann’’ 300.000.- kr. styrk sem viðurkenn-
Auk þess að setja nánari fróðleik á netið sem væri öllum aðgengilegt sem vildu fræðast enn frekar, eða nýta þetta sem kennslugöng í skólunum. Það má geta þess að við Grafarvogsbúar eigum okkar eigin landnámsmann, Ketil ,,gufu’’ Örlygsson, sem getið er í Landnámu, bæði í Hauksbók og Styrmisbók. Ketill nam land í Gufunesi en ekki virðist sambúðin hafa verið góð við þá Ingólfsmenn í Reykjavík því þeim virtist, að með þessu landnámi, yrði full þéttbýlt í Reykjavík. Okkar maður sá því, að sér væri ekki vel vært hér og flutti því seinna í Borgarfjörðinn. Ein elsta kirkja landsins var sett í Gufunesi fyrir árið 1180, helguð Maríu Guðsmóður og var hún tengd klaustrinu í Viðey. Mikil starfsemi var tengd henni m.a. spítalinn í Gufunesi sem var
starfandi í fjölda ára. Kirkjan var aflögð 1886 og gripir hennar fluttir til Mosfells, þ.a.m. altarið sem við höfum stundum fengið lánað, til afnota við útiguðþjónustur á Grafarvogsdaginn. Margir merkir menn hafa búið hér og sögur eru til af hressilegum deilum vegna jarða hér í hverfinu sem m.a. er getið um í Sturlungu. Hér var stunduð akurrækt og mikil útgerð enda fiskimið gjöful. Og þess er getið að í Grafarvogi hafi eitt árið veiðst um 1100 laxar, engar ýkjur það.
Hvergi er vorkvöldið fegurra en í Grafarvogi Hingað til lands kom í byrjun fyrri aldar, einn fyrsti ferðabókahöfundurinn. Hann skrifaði um að hvergi hefði hann orðið var við slíka fegurð sem hér á þessu svæði. Þegar horft væri út á fjörðinn og við blasti hvernig fjöllin spegluðust í hafinu í kvöldsólargeislunum. Þaðan sem horft væri yfir torfbæina frá þeim stað er hinir fyrstu tollarar fylgdust með skipaferðum til landsins, en tollgæslan var í verkahring ábúenda þessara jarða.
Landslag væri lítils virði, ef það héti ekki neitt Þó svo allt utanumhald verði áfram í höndum Íbúasamtakanna og Rótaryklúbbsins þá verður leitað til fagmanna og annarra fróðra manna til að gera verkefnið sem glæsilegast og aðgengilegast fyrir sem flesta. Árni Tryggvason hefur verið ráðinn hönnuður verksins og til að koma upplýsingum á aðgengilegt tölvutækt form. Hann hefur hannað svipuð skilti fyrir borgina bæði í Elliðaárdalnum, Nauthólsvík og nú síðast í Heiðmörk. Við eigum því von á því að fljótlega getum við gengið okkur til ánægju og heilsubótar hér í Grafarvogshverfinu auk þess að fræðast um söguna og heitin og örnefnin í umhverfinu okkar. Við óskum öllum Grafarvogsbúum gleðilegs og endurnærandi sumars. Elísabet Gísladóttir
GV auglýsingar - 587-9500
10
GV
Fréttir
Yfirlitsmynd frá sýningunni.
GV-myndir Guðmundur Arnar
Fimleikasýning
Vorsýning fimleikadeildar Fjölnis var haldin í Dalhúsum 31.maí. Allir iðkendur deildarinnar tóku þátt en þeir eru um 300 talsins, stelpur og strákar á aldrinum 5-15 ára. Sýningin var fjölbreytt en þar spreyttu sig byrjendur sem lengra komnir og flott að sjá hversu mikil breidd er í fimleikunum. Allir stóðu sig með prýði og voru glæsilegir í sínum búningum og ánægjan skein úr andlitum iðkenda sem áhorfenda. Allir fengu viðurkenningu að lokum og þökkum við styrktaraðilum fyrir sinn hlut. Áhorfendur troðfylltu íþróttahúsið og klöppuðu iðkendum og þjálfurum deildarinnar lof í lófa í lok sýningarinnar. Gífurlegar framfarir hafa orðið hjá deildinni og voru keppendur frá Fjölni að standa sig með prýði á félagsmótum og mótum á vegum Fimleikasambands Íslands. Menn líta björtum augum fram á veginn í fimleikadeildinni en þó er ljóst að taka verður til hendinni varðandi húsakost deildarinnar sem er orðinn alltof þröngur. Grípa verður til viðeigandi ráðstafanna hið allra fyrsta.
Nýtt í Gullnesti:
Glæsilegur hópur fimleikafólks í Fjölni. Áhuginn er gríðarlegur en ðstaðan því miður ákaflegaa döpur.
Drengirnir gefa stúlkunum ekkert eftir í fimleikunum.
Gómsætur jarðaberjaís úr vél Grillið í Grafarvogi - Gylfaflöt 1-3 - 567-7974
Mýslurnr sýndu flott atriði.
12
GV
Stangaveiði Nýjustu og fallegustu flugurnar fást á www.Krafla.is
Tveir stórir á Kröflutúpur í Heljarþröm - og fyrstu flugulaxar sumarsins við Iðu tóku rauðu Kröfluna Veiðimenn sem voru á ferð á þriðja svæðinu í Stóru Laxá á dögunum lentu í skemmtilegu ævintýri. Veiði á þessu gullfallega svæði er jafnan róleg en alltaf er möguleiki á að hitta á sprækan göngufisk á þessum tíma sumars og það var einmitt það sem gerðist hjá þeim félögum. Þegar þeir mættu í hús voru 4 laxar komnir á land frá opnun. Síðari part fyrri veiðidagsins urðu þeir varir við fisk í Sveinskeri en enginn náðist á land. Morguninn eftir hófu þeir félagar veiðar í hinum magnaða veiðistað Heljarþröm eða Heljarþrem eins og margir vilja kalla hann. Eftir skamma stund var appelsínugul Kröflutúpa þrifin með mikl-
um látum og upp hóst mikill bardagi. Nokkuð var erfitt um vik við löndun en eftir um 15 mínúutur var viðureignin við 10 punda nýgenginn hæng afstaðin með sigri þeirra félaga. Eftir að hafa áttað sig á þessum viðburði fór hinn veiðimaðurinn með rauða Kröflutúpu og byrjaði efst. Nokkrum mínútum síðar var rauða Kröflutúpan tekin og fljótlega kom í ljós að þar var stærri fiskur á ferðinni. Leikurinn barst neðarlega í hylinn. Fljótlega kom í ljós að fiskurinn sem veiðimðurinn var að þreyta var ekki einn á ferð. Honum fylgdi annar fiskur og stökk sá og djöflaðist nokkrum sinnum í nágrenni við laxinn sem barðist fyrir lífi sínu. Á
land náðist 12 punda hængur og veiðimenn vægast sagt sáttir. Hafði hængurinn, sem var lúsugur, magagleypt rauðu Kröfluna.
Tveir fyrstu flugulaxarnir austur við Iðu á Kröfluna Fyrir nokkrum dögum veiddust tveir fyrstu flugulaxar sumarsins austur við Iðu í Biskupstungum. Báðir tóku þeir rauða Kröflu. Veiðimenn í hollinu sáu lax stökkva á svæðinu og settu þeir í fjóra laxa en náðu tveimur. Verður þetta að teljast óvenjumikið líf miðað við árstíma en þetta var í lok júní. Við höfum frétt víða af góðri veiði á flugurnar frá Krafla.is Ljóst er að Guðjón Gunnar Ögmundsson og laxarnir vænu sem hann og veiðifélagi hans fengu á Kröflurnar í Heljarþröm. þeir sem reyna flugurnar veiða jafnan vel á þær enda um að ræða afburðaflugur og úrvalið er hvergi meira hér á landi en á Krafla.is þegar íslenskar flugur og íslensk hönn-
Stóra Laxá og umhverfi hennar er stórfenglegt veiisvæði og varla nokkurs staðar á landinu er fegurra um að litast. Veiðimður kastar flugu á veiðistaðinn Þórunnarauga á þriðja svæðinu.
un er annars vegar. Á Krafla.is er einnig landsins mesta úrval af íslenskum silungaflugum sem eru í allra fremstu röð. Sjá nánar á Krafla.is
Fyrsti flugulax sumarsins á Iðu með rauðu Kröfluna í kjaftinum.
Vötn og veiði er allt í senn, tímarit, fréttaveita og veiðibók. Gamli og nýi tíminn þræddir saman. Ritstjóri er Guðmundur Guðjónsson einn sá reyndasti í stangaveiðimálefnum, með rúmlega 26 ára reynslu sem stangaveiðisérfræðingur Morgunblaðsins og ritstjóri Íslensku stangaveiðiárbókarinnar frá upphafi hennar árið 1988.
votnogveidi.is FRÍTT VEFRIT UM STANGAVEIÐI
Ungur Grafarvogsbúi í veggjaklifri.
Vinsældir veggjaklifurs aukast verulega
Vinsældir veggjaklifurs í Gufunesbæ aukast frá sumri til sumars. Gufunesbær hefur undanfarin ár bætt aðstöðu sína til allskyns útivistar, og samfara því höfum við endurbætt klifurleiðir í hlöðunni og tekið í notkun nýja klifurleið í
turninum okkar. Og að sjálfsögðu verður áfram hægt að klifra utan á turninum þegar viðrar. Veggjaklifur hefur orðið sífellt vinsælla undanfarin sumur og heimskækja okkur að meðaltali tveir til þrír hópar á hverjum degi í sumar.
Verslun fluguveiðimanna er á www.Krafla.is
Landsins mesta úrval af íslenskum gæðaflugum Vorum að bæta við mörgum nýjum flugum
Kröflurnar í öllum litum sem keilutúpur í fyrsta sinn á Íslandi
Krafla orange
Krafla rauð
Krafla svört
Krafla gul
Iða
Skröggur
Gríma rauð
Elsa
Fjölbreytt úrval af íslenskum laxaflugum - tvíkrækjur/þríkrækjur - Flugur með reynslu
Beykir
Mýsla
Krókurinn
SilungaKrafla rauð
SilungaKrafla svört
SilungaKrafla Orange
,,Landsliðið’’ þegar íslenskar silungflugur eru annars vegar Besta vörnin í netverslun í dag Framleiðandi Skrautás ehf - Bíldshöfða 14 - Sími: 587-9500 / 698-2844
Beygla
14
GV
Fréttir
Sumarhátíð í Korpukoti Sumarhátíð var haldin í leikskólanum Korpukoti um miðjan júnímánuð. Börnin á leikskólanum, foreldrar og starfsfólk, skemmtu sér konunglega og
margt var í boði. Grillaðar voru pylsur fyrir börnin og boðið upp á vinsæl leiktæki, þar með talinn hinn ómissandi hoppukastla.
Og svo tóku allir lagið og í stuttu máli sagt skemmtu allir sér konunglega eins og lög gera ráð fyrir.
Fjöldi manns mætti á sumarhátíð Korpukots og margt skemmtilegt var í boði.
Þessi ungi Grafarvogsbúi skemmti sér vel.
Kæru viðskiptavinir!
Í júlí og ágúst verður lokað á laugardögum með von um góðar útileguhelgar! En við erum kátar og hressar hina fimm daga vikunnar og kynnum til starfa tvo nýja starfskrafta þær Maríu og Stínu.
Hársnyrtistofan Höfuðlausnir Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is Opið: Mán 08.00-18.00 - þri - fim 09.00-18.00 fös 08:00-18:00
Pöntunarsími: 567-6330
stofan - 4100
Sumarnámskeið ÍTR Leikvellir ÍTR Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn Brúðubíllinn Sundlaugar ÍTR Ylströndin Bátaleiga í Nauthólsvík
Frábært sumar með ÍTR! ÍTR býður upp á fjölbreytta og skemmtilega afþreyingu
fyrir alla fjölskylduna í sumar Sumarnámskeið frístundamiðstöðva ÍTR - Komdu út að leika. Frábær sumarnámskeið fyrir hressa krakka Leikvellir ÍTR - Viltu vera memm? Leikvellir fyrir 2-5 ára verða opnir á 6 stöðum í sumar. Fjölskyldu - og húsdýragarðurinn - Sannkölluð perla í Laugardalnum. Garðurinn verður opinn alla daga vikunnar í sumar frá kl. 10-18 Brúðubíllinn - Verður á ferð og flugi um alla borg í sumar. Frábær skemmtun fyrir yngstu fjölskyldumeðlimina Sundlaugar ÍTR - Á að kíkja í pottinn? Fara í smá gufu eða taka sundsprett? ÍTR rekur 7 sundlaugar í Reykjavík og þar geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi Ylströndin - Á ekki að reyna að taka smá lit í sumar? Ylströndin er opin frá 15.maí til 15. september kl. 10-20 Láttu sjá þig! Bátaleiga í Nauhólsvík - Langar þig í siglingu? Leigan er opin í allt sumar miðvikud. og fimmtud. frá kl. 15-19. Hægt að leigja árabáta, kajaka og kanóa. Út um borg og bý - óvænt stefnumót við listagyðjuna Götuleikhús Hins Hússins og Skapandi sumarhópar skjóta upp kollinum í sumar og gleðja gesti og gangandi. Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur – www.itr.is – sími: 411-5000
16
GV
Fréttir
Sundið er hollt og skemmtilegt.
Þessar dömur skemmtu sér vel.
„Hvað er með Ásum?“
Orka í iðrum jarðar!
Ísland í augum innflytjenda
Ævintýraferð í goðheima fyrir alla fjölskylduna. Goðastyttur Hallsteins Sigurðssonar við texta Árna Björnssonar, þjóðháttafræðings. Laxárstöðvar í Aðaldal
Heimsækið gestastofuna í Kröflu, sjáið myndir frá Kröflueldum. Kynnist jarðvarma og orkuvinnslu. Kröflustöð í Mývatnssveit
Hvaða sýn hafa innflytjendur á land og þjóð? Listsýning nokkurra innflytjenda. Skemmtidagskrá margar helgar í sumar. Ljósafossstöð við Sog
Líf og fjör í Grafarvogi
Leikjanámskeið Gufunesbæjar eru þessa dagana í fullum gangi út um allan Grafarvog. Boðið eru upp á aldursskipt og þematengd námskeið fyrir börn og er nóg að gera fyrir alla. Í vikubyrjun er gefin út fjölbreytt dagskrá sem hæfir hverjum aldursflokki sem inniheldur m.a. sundferðir, gönguferðir, dekkjadaga, siglingar, föndur, leiki og sprell og svona mætti lengi telja. Góð þátttaka hefur verið á öll námskeiðin og börn og starfsmenn verið ánægð með útkomuna. Upplýsingar varðandi námskeiðin er hægt að nálgast á heimasíðu Gufunesbæjar www.gufunesbær.is Í sumar hefur einnig verið starfræktur leikvöllur við Fróðengi fyrir börn á aldrinum tveggja til sex ára. Aðbúnaður við völlinn er mjög góður þar sem börnin geta leikið sér í öruggu umhverfi. Nánari upplýsingar um starfsemina er hægt að fá í síma: 586 1500. Leikvöllurinn verður opinn til 18. ágúst eins og sumarnámskeiðin.
qqqqqqqqqqqqqqqq qqqqqqqqqqqqqqqq q q q q q qTilvalið q q að qlíta qinn qqqqqq qqqqqqqqqqqqqqqq
Sumarið er okkar tími!
MIXA
•
f ít
•
6 032 9
Hjólreiðkappar með hjálmana.
Kynnist Kárahnjúkavirkjun!
List og saga
Með krafta í kögglum!
Upplýsingar um Kárahnjúkaframkvæmdirnar ásamt ferðamennsku og útivist norðan Vatnajökuls. Góður viðkomustaður áður en haldið er upp á Fljótsdalsheiði. Végarður í Fljótsdal
„Andlit Þjórsdæla – mannlíf fyrr og nú“. Málverkasýning Hlífars Snæbjörnssonar. Athyglisverð sölusýning á landslagsmálverkum. Sultartangastöð ofan Þjórsárdals
Sýning á myndum Halldórs Péturssonar listmálara við Grettissögu. Kynnið ykkur orkumannvirki sem kemur á óvart. Blöndustöð, Húnaþingi
Hressar dömur.
Spennandi sumar framundan hjá Landsvirkjun Sýningarnar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar. Nánari upplýsingar um opnunartíma á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000. Nestinu gerð góð skil.
18
GV
Fréttir
Þau kepptu á NM í fjölþraut: Fremst: Helga Margrét Þorsteinsdóttir og Brynja Finnsdóttir. Efst frá vinstri: Einar Daði Lárusson, Sveinn Elías Elíasson og Freyr Ólafsson, þjálfari.
Sveinn Elías með Lars Vikan Rise frá Noregi.
Opnum kl. 11.45 - oftast fyr en aldrei seinna Lokum kl. 21 - stundum seinna en aldrei fyr
Sveinn setti Norðurlandamet Helgina 17. - 18. júní tók Sveinn Elías Elíasson, ásamt 3 öðrum keppendum frá Íslandi þátt í Norðurlandameistaramóti ungmenna í fjölþraut. Hann náði þeim frábæra árangri að sigra sinn aldursflokk og verða Norðurlandameistari í tugþraut 17 ára og yngri. Sveinn Elías hlaut 6986 stig og sett nýtt Íslandsmet í drengjaflokki 17-18 ára (með drengjaáhöldum). Gamla metið átti Sigurður Karlsson, UMSS, 6843 stig, sett í Hafnarfirði 1998. Sveinn bætti metið um 143 stig. Einar Daði Lárusson, ÍR varð 3. í sama aldursflokki og hin 15 ára gamla, Helga Margét Þorsteinsdóttir, USVH varð önnur í sjöþraut, 17 ára og yngri stúlkna. Brynja Finnsdóttir, Aftureldingu varð 10. í sama aldursflokki. Með þeim í ferðina fór Freyr Ólafsson, annar þjálfara Fjölnis, í 15 ára og eldri hópnum. Árangur Sveins Elíasar í greinunum var eftirfarandi. 110 m grind, 15,32 sek (5), 811 stig, kringla 38,10 m (3), 626 stig, stöng 3,70 m (6), 535 stig, spjót 51,87 m (3), 616 stig, 300 m 35,13 (1), 874 stig (ísl.met), 100 m 11,13 (1), 832 stig, langstökk 6,53 m (3) 704 stig, kúla 12,96 m (4), 665 stig, hástökk 1,74 m (6), 577 stig og 1000 m 2:51,87 (3), 746 stig. Frábær árangur hjá Sveini Elíasi þrátt fyrir meiðsli á hné, sem eru að gera honum hástökk og langstökk erfitt. Hann var því nokkuð frá sínu besta í hástökki og langstökki í þessari þraut, þannig að hann á töluvert inni. Hann hefur verið að bæta sig mikið í tæknigreinunum s.s. grindarhlaupi og stangarstökki og hann horfir björtum augum til framtíðarinnar. Það verður spennandi að fylgjast með Sveini Elíasi í sumar, en hann mun næstu vikurnar leggja aðaláherslu á hlaupin og reyna að fá sig góðan af hnémeiðslunum sem hafa verið að hrjá hann undanfarið. Sömu helgi kepptu einnig tvær stúlkur frá Fjölni í Evrópubikarkeppni Landsliða í Slóvakíu. Arndís Ýr Hafþórsdóttir, keppti í 1500 m. hlaupi. Hún stóð sig mjög vel og var að bæta árangur sinn utanhúss í greininni. Stefanía Hákonardóttir keppti í 400 m hlaupi. Varð í 5. sæti og bætti einnig árangur sinn í greininni. Hún tók einnig þátt í 4x400 m boðhlaupi og hljóp sveitin á mjög góðum tíma. Helgina 23. júní - 25. júní tóku svo 14 ára og yngri þátt í Gogga Galvaska. Þau urðu þar í 4. sæti í heildarstigakeppninni. Ásdís Guttormsdóttir vann besta afrek Fjölniskrakkanna og sigraði í spjótkasti 13 -14 ára telpna. Alls kepptu 13 krakkar frá Fjölni á mótinu. Helgina 7. - 9. júlí, munu síðan Sveinn Elías og Stefanía keppa á Gautaborgarleikunum, sem fara fram á Ullevi-leikvanginum í Gautaborg í Svíþjóð. Fréttir frá því móti verða settar inn á nýju heimasíðu Fjölnis um leið og þær berast. f.h. Frjálsíþróttadeildar Fjölnis Guðlaug Baldvinsdóttir.