3. tbl. 17. ĂĄrg. 2006 - mars
Ă?SLENSKA AUGLĂ?SINGASTOFAN/SIA.IS LBI 27159 01/2005
Grafarvogsblaðið
Eitt nĂşmer
410 4000
Dreift Ăłkeypis Ă Ăśll hĂşs Ă Grafarvogi
$KHTGKÆCUMQÆWP )TCHCTXQIK 1RKÆ QI ÔÉ Âą HĂŒU
SkĂĄtar Ă 18 ĂĄr Ă Grafarvogi Bilastjarnan_02_001.ai
18.11.2004
)[NHCHNĂŒV 5ĂƒOK
NĂ˝verið var haldið upp ĂĄ 18 ĂĄra afmĂŚli skĂĄtastarfs Ă Grafarvogi. Af Ăžessu tilefni segjum við frĂĄ ferð skĂĄta Hamri Ă Grafarvogi og afmĂŚlisvĂśku skĂĄta Ă blaðinu að Ăžessu sinni. Ă myndinni eru góðar vinkonur Ă Hamri en myndin var tekin Ăžegar ÞÌr voru að bĂşa sig undir að fara Ă hĂĄttinn og hvĂla lĂşin bein fyrir ĂĄtĂśk nĂŚsta dags. SjĂĄ nĂĄnar ĂĄ bls. 16.
Ă skĂĄtafĂŠlginu 15:18:40
Komdu beint til okkar! - og við tjĂłnaskoðum Ă hvelli ÞÊr að kostnaðarlausu BĂlastjarnan ehf. ¡ BĂŚjarflĂśt 10 ¡ 112 ReykjavĂk ¡ SĂmi 567 8686
Við erum alltaf à leiðinni
I oo jb •agpbo
q`mfašmd odg �]— \f\pk\
Landsbankinn leggur ĂĄherslu ĂĄ faglega fjĂĄrmĂĄlaĂžjĂłnustu fyrir fyrirtĂŚki og einstaklinga Ă Grafarvogi.
Ë `dia\g_\md g`d \ �]— \f\pkph Bm`d ngph\o ‚ i`odip G‚inphn’fi ‚ i`odip
Við tÜkum vel å móti ÞÊr à útibúum okkar að Fjallkonuvegi 1 og HÜfðabakka 9.
Landsbankinn Banki allra landsmanna
410 4000
landsbanki.is
2
GV
Fréttir
Grafarvogsblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: skrautas@simnet.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Netfang Grafarvogsblaðsins: gv@centrum.is Ritstjórn og auglýsingar: Bíldshöfða 14 - Sími 587-9500 / 698-2844. Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir, Stefán Kristjánsson. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll hús og fyrirtæki í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi og öll fyrirtæki í póstnúmeri 110.
Skrítið samfélag Þetta er skrítið samfélag sem við búum í. Á sama tíma og allir stærstu fjölmiðlarnir eru uppfullir af fréttum af gengi hlutabréfa og áhyggjum manna yfir því hvort þessi eða hin vísitalan lækkar eða hækkar frá degi til dags, berast fréttir af foreldrum á harðahlaupum á milli deilda innan sjúkrahúss með deyjandi barn sitt í fanginu og eldri hjónum, grátandi í sitt hvoru húsnæðinu. Þessi tvö dæmi eru átakanleg í meira lagi og særa siðferðiskennd allra sem á annað borð búa yfir einhverju siðferði. Á NFS hafa málefni eldri borgara verið tekin til umfjöllunar undanfarið. Þar var greint frá eldri hjónum sem eftir áratuga sambúð mega nú lifa við þá staðreynd að þurfa að búa í sitt hvoru lagi. Hafa verið slitin i sundur og eiga, að því er virðist, ekki möguleika á því að fá að eyða ævikvöldinu saman. Ástæðan er skortur á hjúkrunarrými. Gera verður þá kröfu til yfirvalda að úr þessum vanda verið bætt þegar i stað. Og hér þýðir ekki að bjóða eldra fólki og aðstandendum þeirrra upp á lausnir eftir einhver ár eins og stjórnmálamanna er siður. Í þættinum Kompás á NFS nýverið var sagt frá ungu fólki sem lenti í því að ungt og veikt barn þeirra lést í fangi föðurins á harðahlaupum á milli deilda á Landsspítalanum. Þvílík lífsreynsla þessa unga fólks. Ástæðan fyrir þessari skelfilegu uppákomu var skortur á fé til reksturs sérstaks neyðarherbergis á sjúkrahúsinu. Komið hefur fram að það kostar 60-80 milljónir króna árlega að koma þessu herbergi í rekstur. Við montum okkur gjarnan af frábæru heilbrigðiskerfi og á stundum viljum við meina að það sé það besta í heimi. En á meðan svona hlutir viðgangast stendur þetta frábæra kerfi ekki undir nafni. Mörgum brá illilega við þessi tiðindi í Kompási og því verður ekki trúað að það taki marga daga að kippa þessu máli í liðinn. Þessi tvö mál eru ekki einsdæmi. Um 40 eldri hjón búa við það í dag að þurfa að eyða ævikvöldinu i sitt hvoru lagi. Getum við verið þekkt fyrir að fara svona með gamalt fólk? Svarið er auðvitað nei og þessi staða er kolsvartur blettur á skrítnu íslensku samfélgi. Stefán Kristjánsson
gv@centrum.is
Skákmeistarar skólanna voru á öllum aldri og nokkuð jafnt af báðum kynjum.
Ingibjörg Sigurþórsdóttir framkvæmdarstjóri Miðgarðs afhendir A-sveit Rimaskóla glæsilega verðlaunabikara fyrir sigur þeirra á fyrsta skákmóti grunnskóla í Grafarvogi.
Rimaskóli vann fyrsta grunnskólamót Miðgarðs í skák
Miðgarður, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness, stóð nýverið fyrir glæsilegu skákmóti á milli allra grunnskólanna í hverfinu. Þetta var í fyrsta sinn sem mótið er haldið og miðað við góða þátttöku frá skólunum þá verður að sjálfsögðu stefnt að því að gera skákmótið að árlegum viðburði. Teflt var við hinar bestu aðstæður í Egilshöll. Átta skáksveitir tóku þátt í mótinu frá sex skólum. Í hverri sveit voru átta keppendur þannig að mótið var býsna fjölmennt. Mikill áhugi er á skák í grunnskólum Grafarvogs og því kom ekki á óvart að grunnskólamótið yrði bæði skemmtilegt og spennandi. Tefldar voru sjö umferðir og heildarúrslit ekki ljós fyrr en að lokinni síðustu skákinni. Eftir að krakkarnir höfðu lokið taflmennskunni og þegið veitingar frá Vífilfelli þá afhenti Ingibjörg Sigþórsdóttir framkvæmdarstjóri Miðgarðs þremur efstu skáksveitunum verðlaunapeninga og sigursveitinni frá Rimaskóla tvo glæsilega bikara, annan til eignar en hinn til varðveislu í eitt ár. A - sveit Rimaskóla, margfaldir íslandsmeistarar í drengja- og stúlknaflokki, unnu öruggan sigur á mótinu fengu alls 54,5 vinninga af 56 mögulegum. Hnífjafnar
í öðru sæti urðu sveitir Foldaskóla og B sveit Rimaskóla með 36 vinninga. Í næstu sætum komu sveitir Klébergsskóla, Hamraskóla, Borgaskóla og Engjaskóla. Athygli vakti mikil aldursbreidd í hópnum og nokkuð jafnt hlutfall kynjanna í skáksveitunum.
Eins og áður segir var mótið einstaklega glæsilegt og vel heppnað. Hera Hallbera Björnsdóttir, íþrótta- og tómstundafulltrúi Miðgarðs, sá um skipulagningu mótsins og liðsmenn Hróksins aðstoðuðu við framkvæmd.
Efnilegir skákmeistarar: Þau Ingvar Ásbjörnson Rimaskóla og Sigríður Björg Helgadóttir Hamraskóla voru sigursælust á efsta borði skáksveitanna.
Skáksveit Foldaskóla lenti í 2. sæti ásamt efnilegri B- sveit Rimaskóla.
4
Matgoggurinn
GV
Graflax, svartfugl og frost og funi - að hætti Ástríðar Lindu og Ólafs Okkur langar að deila með ykkur algjörum veislumat, en í raun eru þetta mjög einfaldar uppskriftir með rammíslensku hráefni. Núna þegar vorið er á næsta leiti er kjörið að ná sér í svartfugl. Það er hægt með lítilli fyrirhöfn á léttum báti rétt út fyrir bæjarmörkin og með góða byssu við hönd. Auðvitað hafa allir tilskilin leyfi og réttindi upp á vasann. Svartfugli skal gera að eins fljótt og við er komið svo kjötið skemmist ekki því sjófuglar lifa á fiski, krabbadýrum og öðrum smádýrum sjávarins, en slík fæða rotnar hratt eftir að fuglinn er dauður og getur það mengað og eyðilagt kjötið ef ekki er gert að fuglinum fljótlega.
Aðferð. Bringurnar eru steiktar við góðan hita í 4 mínútur hvoru megin og kryddaðar með salti og pipar. Takið þær af pönnunni og haldið heitum. Hellið púrtvíninu á pönnuna og leysið upp steikarskánina. Bætið svo soðinu við ásamt rjómanum og sjóðið í 2 mínútur. Setjið rifsberjahlaupið út í eftir smekk og látið sjóða í 1 mínútu. Kryddið sósuna svo með salti og pipar eftir smekk. Brúnaðar kartöflur og nýtt grænmeti eða Waldorfsalat er mjög gott meðlæti með þessum rétti. Vín. Gott rauðvín með svartfuglinum gæti t.d. verið nýja heimsvínið, Montes Cabernet Sauvignon.
Áslaug Sif og Magnús næstu matgoggar Hjónin Ástríður Linda Ingadóttir og Ólafur Ólafsson og sonurinn Helgi Steinar.
Ástríður Linda Ingadóttir og Ólafur Ólafsson, Breiðuvík 45, skora á Áslaugu Sif Gunnarsdóttur og Magnús Geir Pálsson sem búa í Miðhúsum 16, að koma með uppskriftir í næsta blað. Við birtum frá þeim girnilegar uppskriftir í næsta blaði í apríl.
Gæludýraeigendur!
Í forrétt með svartfuglinum mælum við með graflaxi ásamt tilheyrandi meðlæti og svo ,,frost og funa’’ ís/marengs í eftirrétt.
Sérhæfum okkur í vörum fyrir öll gæludýr Viltu borga minna? Enginn afsláttur en samt besta verðið Minnum á netverslun okkar www.dyralif.is
Í forrétt mælum við með graflaxi með graflaxsósu.
a kl. rka dag i v a l l a gar Opið 11-16 lau g o 8 -1 1 1 daga
Stórhöfða 15 Sími: 567-7477
Graflax Graflax. Graflax sósa. Ristað franskbrauð. Smjör. Vín: Gott er að dreypa á léttu Chardonnay hvítvíni með graflaxinum.
Steiktar svartfuglsbringur Girnilegur aðalréttur. Bringur af 4 svartfuglum. Matarolía. Salt og pipar. Sósa. 4 cl. púrtvín. 1,5 dl. svartfuglssoð (eða villibráðarsoð). 2 dl rjómi. Rifberjahlaup. Salt og pipar.
Grafarvogsbúar - hjólbarðaverkstæðið ykkar er að Gylfaflöt 3
Einfaldur eftirréttur Frost og funi, ís með heitum marengs. Ís: ½ ltr. tilbúinn vanilluís. 2 dl. Blönduð ber (frosin). Marengs. 2 eggjahvítur. 120 gr. flórsykur. Skraut: Fersk ber. Aðferð: Hræra ísinn þar til hann er mjúkur. Blandið þá frosnu berjunum saman við. Skiptið ísnum í litlar eldfastar skálar eða eitt eldfast mót. Setjið í frysti í tvær klst. Útbúið marengsinn rétt áður en rétturinn er borinn fram. Hitið ofninn í 200°c. Stífþeytið eggjahvíturnar. Sigtið flórsykurinn saman við og blandið varlega þar til marengsinn er glansandi stífur. Takið ísinn úr frysti og smyrjið marengsinum ofan á. Setjið mótið/skálarnar inn í heitan ofninn og bakið í fimm mín. þar til marengsinn er ljósbrúnn. Berið fram strax! Verði ykkur að góðu, Ástríður Linda og Ólafur
Gylfaflöt 3 • sími 567 4468
Frá Hverfisráði Grafarvogs:
Hraðaskilti við Foldaskóla
Þú ekur á ??? Slakaðu á og láttu 30 km nægja í nágrenni við Foldaskóla og Torgið við Hverafold.
Frá því umferðaröryggishópur Grafarvogs var stofnaður hefur hópurinn beitt sér fyrir því að bæta öryggi íbúanna í umferðinni. Má þar t.d. nefna að svokölluðum 30 km hverfum hefur verið fjölgað, gönguljós verið sett upp til að greiða fyrir umferð gangandi vegfarenda, lýsing á göngustígum verið bætt svo eitthvað sé nefnt. Nýverið var sett upp svokallað ,,hraðaskilti’’ við Foldaskóla.
Hraðaskilti þetta mælir hraða þeirra bíla sem á ferðinni eru og birtir hraða þeirra á skjá þannig að ökumenn fá ábendingu fari þeir of greitt um svæðið. Skilti sem þetta hafa verið sett upp víðar í borginni, flest í nágrenni skóla. Tilgangur þessara skilta er að draga úr umferðarhraða. Frá árinu 1995 hefur verið unnið eftir umferðaröryggisáætlun Reykjavíkurborgar og samhliða
gerð 30 km/hverfa frá árinu 2003 verið varið um 25 milljónum króna til aðgerða á gönguleiðum skólabarna í samráði við grunnskólana. Í skýrslu sem nýverið kom út um þróun umferðaróhappa á 30 km svæðum kom fram að óhöppum þar sem slys verða á fólki hefur fækkað um 30% og ljóst að þær aðgerðir hafa skilað árangri. Greining á slysum gangandi vegfarenda leiðir í ljós að flest slysin verða í Þingholt-
unum og Skólavörðuholti en næst flest eru óhöppin í Foldahverfi, alls 16. Börn á aldrinum 6-10 ára eru sá aldurshópur sem oftast slasast í hópnum gangandi vegfarendur og því nauðsynlegt að grípa til aðgerða til að fækka slysum enn frekar. Fram kemur í skýrslunni að gripið var til aðgerða vegna alvarlegra slysa gangandi vegfarenda á Fjallkonuvegi árið 2000 og sett þar
miðeyja og hún girt við biðstöð strætó gegnt verslunarmiðstöð og 30 km hverfið látið ná til stærri hluta Fjallkonuvegar, að Hverafold og Frostafold en að þær aðgerðir hafi ekki skilað nógu góðum árangri og ástæða til frekari aðgerða. Skiltið sem sett hefur verið upp við Foldaskóla verður vonandi til þess að draga enn frekar úr umferðarslysum, sérstaklega þegar í hlut eiga gangandi vegfarendur.
Samþætting frístundastarfs og skóla Á undanförnum árum hefur umræða um mikilvægi samverustunda barna/unglinga og foreldra þeirra verið áberandi. Fjöldi rannsókna sem gerðar hafa verið á högum og líðan barna/unglinga benda allar til þess að foreldrar séu besta forvörnin og þá skipta samverustundir barna/unglinga og foreldra þeirra hvað mestu. Þá er ekki nauðsynlegt að gera einhverja stórkostlega hluti saman, það eitt að horfa saman á sjónvarpið hefur mikið forvarnagildi. Stór þáttur í því að gera aukna samveru barna/unglinga og foreldra mögulega er að samþætta frístundastarf og skóla. Þá er horft til þess að frístundastarf barna/unglinga taki við í beinu framhaldi þess að skóla lýkur á daginn þannig að þegar foreldrar þeirra koma heim úr vinnu geti samverustundir fjölskyldunnar tekið við. Nýverið var haldinn fundur þar sem fulltrúar frá Miðgarði auk
fulltrúa frá íþróttafélögum, frístundamiðstöðvum og tónlistarskólum komu saman til að ræða þessi mál. Á fundinum kom greinilega fram að mikill hugur er í fólki um að beita sér fyrir því að samþætta frístundastarf og skóla. Í framhaldi af þeim fundi boðaði Stefán Jón Hafstein, formaður Hverfisráðs Grafarvogs, skólastjóra grunnskólanna á fund með fulltrúum frá Miðgarði. Greinilegt er að allir eru sammála því að mikilvægt er að samþætta frístundastarf barna/unglinga og skóla. Framundan er mikil vinna í því að skoða hvaða leiðir eru færar í því að gera samþættingu frístundastarfs og skóla að veruleika í Grafarvogi. Slíkt er ekki mögulegt nema allir þeir aðilar sem vinna að málefnum barna/unglinga leggist á eitt og vinni saman að því að gera Grafarvog eins fjölskylduvænan stað og mögulegt er.
Egilshöll stækkar um 10 þúsund fermetra.
Aukin aðstaða í Egilshöll Líkt og fram hefur komið í fjölmiðlum að undanförnu hefur verið ákveðið að stækka Egilshöll um 10.000 fermetra. Í nýbyggingunni verður meðal annars fjögurra sala kvikmyndahús sem mun rúma 1.000 manns, 36 brauta keilusalur og þemasýning sem ber nafnið ,,Auga Óðins’’ verður komið fyrir neðanjarðar. ,,Auga Óðins’’ er há-
tæknisýning í formi leikmynda, tölvugrafík og tónlistar þar sem gestir upplifa norræna goðafræði. Sam-Bíóin munu reka kvikmyndahúsið. Fyrsta skóflustungan var tekin fimmtudaginn 9. mars síðastliðinn og er áætlað að öllum framkvæmdum verði lokið fyrir áramót. Lóð Egilshallar verður 94.000 fermetrar eftir stækkun og verður
aðkoma að höllinni bætt með hringtorgi á Víkurvegi og bílastæðum fjölgað í tvö þúsund. Jafnframt er ráðgert að leggja gervigrasvöll norðan hallarinnar. Með tilkomu þessarar auknu aðstöðu í Egilshöll er ljóst að framboð íþrótta- og menningarlífs í hverfinu mun blómstra.
8
GV
Fréttir Minningar skiptinema frá Ástralíu á vegum Rótarýklúbbi Grafarvogs á Íslandi:
,,Líður ekki sá dagur að ég tali ekki um Ísland’’ Soðin svið, ís, snjór, norðurljós og sólríkar nætur. Þetta eru nokkrar af óvenjulegum minningum sem ég mun ætíð geyma með mér. Ég heiti Patrick Witcombe, Patrekur á íslensku. Ég var svo stálheppinn að vera skiptinemi á vegum Rótarýklúbbsins í Grafarvogi árið 2004. Ég mun aldrei gleyma tímanum á Íslandi. Fyrsta morguninn vaknaði ég 4 stundum fyrir sólaruppprás, það var ískalt og napur vetur. Ég var enn þreyttur eftir flugið þegar ég fór í skólann til að hitta trúnaðarmann minn og vin Björn Tryggvason. Þrátt fyrir að flestir myndu sjálfsagt vera kvíðnir og einmana, hef ég aldrei verið jafn spenntur á ævinni. Þegar sólin loks kom upp þennan dag og fegurð og ljómi Íslands birtist, vissi ég að ég hafði valið réttan dvalarstað. Fljótlega komst ég að því að Íslenskt landslag verður aldrei leiðinlegt. Ég býst við að það sé vegna þess hve síbreytilegt veðrið er, það sem fyrir augu ber lítur allt öðru vísi út í öðru veðri. Þrátt fyrir að ég hafi lent í vandræðum vegna of mikils lesturs, þótti mér ákaflega gaman í öllum ferðunum sem fjölskyldurnar fóru með mig um þetta spennandi land. Margar minningar frá Íslandi eru tengdar mat. Þegar ég segi frá dvöl minni í Rótarýklúbbum í Ástralíu og að ég hafi borðað hrútspunga, svið, skötu, hangikjöt o.s.f.v., horfa þeir vantrúaðir á mig. Ég þurfti að ,,prófa allt’’ og hélt mig við þann ásetning, en fékk mér ekki alltaf aftur á diskinn. En ég sakna fisksins, þar sem ég bý er fiskur mjög dýr og ekki alltaf góður. Ég komst aldrei að því hvort Björn Viggósson var að spauga þegar hann sagði mér að kjötið sem ég var nýbúinn að borða væri reykt hrossakjöt. Þegar dvöl minni lauk var ég farinn að kunna vel við íslenskt skopskyn. Ég dvaldi hjá þrem fjölskyldum á Íslandi. Björn Viggósson (pabbi 1) var
fyrsti fósturfaðir minn. Frá dvöl minni þar á ég margar góðar minningar frá alls konar söfnum og tónleikum. Hann fór snemma með mig á sinfoníutónleika, upplifun sem erfitt er að jafna. Björn sýndi mér líka Reykjavík, ég farþegi á mótorhjólinu hans - snaggaralegt, kalt en minnisstætt. Árni Björnsson var frábær bróðir. Við fórum í jeppaferðir á jökla og urðum veðurtepptir í stórhríð. Birna Björnsdóttir fór með mig í heimsóknir á bóndabæi og fleiri ævintýri. Halla (mamma) var einstæð í að kenna mér undirstöðu í Íslensku og leyfði mér að nota eldhúsið til að elda Ástralskan veislumat. Næsta fjölskylda komst líka að því hvílílkur sóði ég er í eldhúsinu og mynduðu þau hveiti sporin mín sem lágu um allt hús. Bjarni Grímsson (pabbi 2) var annar fósturpabbinn. Fjölskyldan gerði allt sem í þeirra valdi stóð til að mér liði sem best. Meira að segja gaf Vilhelm herbergið sitt eftir (fyrirgefðu Vilhelm). Bjarni var frábær og hjálpaði mér að átta mig á öllum aðstæðum. Hann gaf mér mörg kort og alls konar leiðbeiningar til að ég rataði betur um nágrennið og ég fór að kynnast Reykjavík betur. Hann gaf mér miða á frábæra píanótónleika með Sinfoníunni. Bjarni reddaði mér líka bestu hugsanlegu sumarvinnu. Ég vann sem götulistamaður hjá ITR þar sem ég lærði að ganga á stultum og að gleypa eld. Brynja (mamma 2) var frábær fósturmóðir, kenndi mér að elda jólamat og gaf mér marga íslenska þjóðarrétti. Brynja var líka hafsjór af fróðleik og kenndi mér margt um landið og söguna. Aftur var ég svo stálheppinn að hafa jafnaldra á heimilinu. Vilhelm og Atli voru skemmtilegir og gættu mín eins og eldri bræður gera. Atli veit meira um kvikmyndir en flestir leikarar, hann vann líka fullt af bíómiðum í Borgarbíó. Vilhelm og vinir hans voru mér góðir félagar. Fjölskyldan fór með
,,Ég er þakklátur Rótarýklúbbnum í Grafarvogi fyrir að vista mig sem skiptinema þessa 12 mánuði. Ég er þeim afar þakklátur fyrir það sem þeir hafa gert fyrir mig,’’ segir Patrick Witcombe. mig yfir hálendið og á marga áhugaverða og fallega staði um allt land. Þriðji og síðasti fósturfaðirinn var Eiríkur Arnarson (pabbi 3), hann er góður í ballskák og er mjög skemmtilegur. Eiríkur og Gulla (mamma 3) fóru með mig í ýmsar ferðir m.a. á skíði og gáfu mér mikið af tertum og kökum. Óskar og Grétar voru frábærir bræður og kenndu mér að spila á gítar. Þeir eru líka skemmtilegir eins og pabbi þeirra. Dagbjört Helga var dugleg að kenna mér íslensku og var mjög skemmtileg. Þegar mamma kom í heimsókn til Íslands var þessi fjölskylda mjög gestris-
in og dugleg að sinna okkur eins og hinar fjölskyldurnar. Ég gekk í Borgarholtsskóla og kynnist þar mörgum vinum fyrir lífstíð. Ég kom fram í Sjónvarpinu með ,,B’’ á bringunni þegar skólinn keppti í ,,Gettu betur’’. Ég fór oft á skemmtileg skólaböll. Ég reyndi líka að læra dálítið í skólanum, en hafði mest gaman af að syngja í kórnum. Ég var stystur en hafði samt dýbstu röddina. Ég er þakklátur Rótarýklúbbnum í Grafarvogi fyrir að vista mig sem skiptinema þessa 12 mánuði. Ég er þeim afar þakklátur fyrir það sem þeir
hafa gert fyrir mig. Mér var boðið á marga fundi á árinu og ýmsar áhugaverðar uppákomur. Ég kynnist öllu því sem klúbburinn gerir fyrir Grafarvoginn og segi Ástralska Rótaýumdæminu hve góður klúbburinn er. Að lokum vil ég þakka Íslandi og Rótarý fyrir þetta frábæra ár sem þau gáfu mér. Það líður ekki sá dagur að ég tali ekki um Ísland, enda er ég ekki sami maður og sá sem kom til Íslands í janúar 2004. Takk fyrir mig, Patrick Witcombe
Stór tíðindi hjá karatedeild Fjölnis:
Fjölnir eignast meistara í Karate Karatefólk í Fjölni virðist vera í mikilli framför og hefur staðið sig afar vel á mótum í vetur. Sunnudaginn 5. febrúar sl. var haldið karate barnameistaramót í KATA. Þetta er alltaf fjölmennasta karatemót ársins, en þá tóku rúmlega 150 krakkar þátt. Flestir okkar keppendur náðu í verðlaunasæti, og eru sumir orðnir Íslandsmeistarar!
Það tóku 9 félög þátt og lenti karatedeild Fjölnis í 2. sæti í heidarstigakeppninni skammt á eftir sigurvegurum Víkings. Næsta skref til að bæta og styrkja okkar deild verður tekið með því að fá karatemeistara að utan. Míkill heiður var þegar Sensei Steven Morris kom til okkar í nóvember 2005, og kemur hann aftur til landsins frá 23. til 28. mars nk.
Íslandsmeistarar hópkata: Magnús Valur, Kristján Örn og Tryggvi Þór.
GV auglýsingasími 587-9500
H V Í TA H Ú S I Ð / S Í A
FORMÚLAN AÐ VELGENGNI:
1+1= 3 Stundum virðist okkur velgengni byggjast á kraftaverki. Ótrúlegur árangur getur virkað óskiljanlegur, það er eins og eitthvað hafi orðið til úr engu. En þannig er þetta ekki. Varanleg velgengni á sér alltaf skýringar. Á sviði fjármála kallar velgengni á yfirsýn og þekkingu sem gerir skjótar – og réttar – ákvarðanir mögulegar. Samfelldur vöxtur byggir á röð af slíkum ákvörðunum. Útkoman getur verið kraftaverki líkust, en fyrir okkur er hún eðlilegasti hlutur í heimi.
FJÁRHAGSLEG VELGENGNI ÞÍN ER OKKAR VERKEFNI
Íslandsbanki og 7 dótturfyrirtæki og starfsstöðvar heima og erlendis hafa sameinast undir einu nafni – Glitnir. Nýtt nafn og samræmd ásýnd mun auðvelda okkur að skapa fleiri tækifæri fyrir viðskiptavini okkar.
10
GV
Fréttir
Nýjung á sviði endurvinnslu
„Ég losaði mig við 25m3“
- nú má skila pappírsumbúðum ásamt fernum í grenndargáma á höfuðborgarsvæðinu Pappírsumbúðir falla til í miklu magni á heimilum flestra. Þetta eru umbúðir utan af morgunkorni, ýmsum skyndiréttum, kexi, þvottefni og óteljandi öðrum vörum. Slíkar umbúðir eru fljótar að fylla hjá okkur ruslaföturnar enda oft plássfrekar. Hingað til hefur ekki borgað sig fyrir SORPU að safna slíkum umbúðum til endurvinnslu en með tilkomu úrvinnslugjalds sem lagt var á þessar umbúðir um síðustu áramót opnast nýir möguleikar. Í ruslatunnum íbúa höfuðborgarsvæðisins leynast yfir 3.000 tonn af pappírsumbúðum á ári hverju, sem nú er loksins hægt að endurvinna. Það má draga töluvert úr því magni úrgangs sem endar á urðunarstaðnum í Álfsnesi með því að flokka þessar umbúðir og skila til endurvinnslu. Hvernig á að flokka? Það má flokka allar pappírsumbúðir í einn flokk og skila t.d. fernum, morgunkornspökkum og öðrum slíkum umbúðum úr pappír eða kartoni í einn og sama gáminn. Hráefnið þarf hins vegar að vera ómengað af öðrum efnum til þess að hægt sé að endurvinna það og þess vegna er mikilvægt að fjarlægja allar matarleifar og plastumbúðir sem kunna að vera inni í pappírsumbúðum. Fernur er æskilegt að skola til að forðast lyktarmengun og brjóta svo allar umbúðir saman svo
VOLVO S40
þær taki minna pláss. Þeim er svo skilað í grenndargáma á höfuðborgarsvæðinu sem eru merktir PAPPÍRSUMBÚÐIR. Umbúðunum er einnig hægt að skila á allar endurvinnslustöðvar SORPU. Upplýsingar um staðsetningu grenndargáma og endurvinnslustöðva eru á heimasíðu SORPU, www.sorpa.is. Hvernig er efnið endurunnið? Pappírsumbúðir eru baggaðar í móttökustöð SORPU í Gufunesi og fluttar til Svíþjóðar til endurvinnslu. Fyrirtækið Fiskeby sérhæfir sig í framleiðslu kartons og nýtir til þess pappírsumbúðir og fernur. Á undanförnum árum hefur fyrirtækið endurunnið fernur frá SORPU en nú bætast aðrar pappírsumbúðir í hópinn. Fiskeby sendir kartonið til viðskiptavina víðsvegar um heiminn, þar á meðal á Íslandi, og eru t.d. búnar til nýjar pappírsumbúðir úr því. Hver hefur umsjón með grenndargámum á höfuðborgarsvæðinu? Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu ákvarða hvert fyrir sig, fjölda gáma og staðsetningu þeirra. Grenndargámar eru staðsettir á þeim svæðum þar sem reynslan hefur sýnt að þeir nýtast best en gámar hafa verið fjarlægðir af þeim stöðum þar sem nýting var léleg. Þannig eru hagkvæmni og árangur látin haldast í hendur.
VOLVO V50
VOLVO S60
Eftir
Fyrir
Nú skilarðu pappírsumbúðum með í fernugáminn Nú getur þú minnkað magnið af sorpi sem fer í sorptunnuna með því að skila umbúðum úr pappír og kartoni ásamt fernum í grenndargám. Fjarlægðu plast og matarleifar úr umbúðunum, skolaðu fernur, brjóttu allt saman. Skilaðu umbúðum og fernum í sérstakan gám en dagblöðum og tímaritum í annan, annað hvort grenndargám eða á endurvinnslustöð. Ef þú flokkar endurvinnanlegan úrgang, leggur þú þitt af mörkum til þess að draga úr áhrifum neyslusamfélagsins á umhverfið. allir að geta sætt sig við stærðina á urnar eru hinsvegar af staðlaðri SORPA tók við umsjón með grenndlúgum gámanna. Þeir sem eru með stærð og mega ekki vera stærri sökum argámum á öllu höfuðborgasvæðinu 1. meira magn geta þó ávallt nýtt sér slysamars 2006 og tekur við því efni sem í endurvinnslustöðvarnar en þar eru í þá safnast til flestum tilfellum stærri lúgur á gámendurum fyrir dagblöð, tímarit og pappírsvinnslu. Um umbúðir. losun og Margt smátt gerir eitt stórt! flutning efnisEf þú flokkar endurvinnanlegan ins í móttökuúrgang, leggur þú þitt af mörkum til stöð SORPU þess að draga úr áhrifum neyslusamsér Íslenska félagsins á umhverfið. Þitt framlag gámafélagið skiptir máli. hættu. Í ehf. en fyrirtækið bauð lægsta verðið í Nánari upplýsingar um flokkun og einhverjverkið í útboði á síðasta ári. endurvinnslu finnur þú á um tilfellum hafa börn troðið sér inn í Eru lúgurnar of litlar? www.sorpa.is. gáma sem voru með stærri lúgur og Sumir hafa kvartað yfir því að lúgGyða S. Björnsdóttir, kynningarerlendis hafa hlotist af því alvarleg ur á gámum séu of litlar og betra væri og fræðslufulltrúi SORPU slys. Með öryggi barnanna í huga ættu að koma meiru í einu í gámana. Lúg-
VOLVO V70
Gyða S. Björnsdóttir, kynningar- og fræðslufulltrúi SORPU, skrifar:
VOLVO S80
VOLVO XC70 AWD
Betri skil – betra umhverfi
PAPPAKÚRINN 2006
„Ég var orðinn þreyttur á yfirfullum tunnum og ákvað því að slá til og prófa pappakúrinn. Nú horfi ég bjartari augum til framtíðarinnar.” Þorkell Björnsson, 32 ára
Kynntu þér staðsetningu grenndargáma og allt um flokkun og skil á heimasíðu Sorpu www.sorpa.is eða í síma 660-2230
VOLVO XC90 AWD
Öll erum við einstök, hvert og eitt okkar. Enginn á sinn líkan. Fyrir okkur ert þú miðja alheimsins. Þegar þú ert annars vegar er takmark okkar bara eitt: að uppfylla óskir þínar og þarfir á þann hátt að þú lítir á Brimborg sem öruggan stað til að vera á. Við erum með þér alla leið!
Veldu Volvo S40. Falleg stærðfræði.
EuroNCAP öryggisstofnunin verðlaunaði Volvo S40 með bestu einkunn (5 stjörnur), sama gerði US NCAP. Breska bílablaðið Auto Express mat Volvo S40 sem besta bílinn í sínum flokki lúxusbíla; betri en BMW 3 series og Jaguar X-type. Volvo S40 er besti kosturinn að mati bandaríska vegaöryggiseftirlitsins (IIHS) og sænska tryggingafélagið Folksam verðlaunaði Volvo S40 fyrir að vera með bestu hálsReynsluaktu draumabíl bílablaðamanns Morgunblaðsins: Volvo hefur nefnilega tekist það sem margir hafa áður reynt og bakhnykksvörnina. Öryggi er lúxus. Veldu Volvo! Komdu í Brimborg. Spurðu söluráðgjafa Volvo á Íslandi um og flestir án árangurs; að smíða gæðabíl án þess að slá verð og gæði. Við gerum þér gott tilboð um staðgreiðsluverð nokkuð af kröfunum en um leið að stilla verðinu i hóf. fyrir gamla bílinn. Komdu í Brimborg. Skoðaðu fallegt dæmi um áratuga umhyggju Volvo fyrir öryggi fjölskyldunnar. Öryggi er lúxus. Veldu Volvo.
Verkfræðileg snilld einkennir Volvo S40 Berðu saman verð og gæði. Berðu saman staðalbúnað Volvo S40 við staðalbúnað í öðrum lúxusbílum. Þú finnur WHIPS bakhnykksvörn, SIPS hliðarárekstrarvarnarkerfi og spólvörn með stöðugleikastýringu í Volvo S40. Einnig ABS hemlakerfi með EBD hemlajöfnun, 4 loftpúða auk hliðarloftpúða, tölvustýrða loftkælingu með hitastýringu, hágæða hljómflutningstæki með 8 hátölurum, rafdrifnar rúður, upp- Finndu fegurðina sem býr í gæðum einfaldleikans. hituð sæti, 16" álfelgur og margt fleira. Sjö hátæknivélar Skoðaðu nýtt stjórnborðið sem ekki átti að vera standa þér til boða. Bensín eða dísil. Komdu í Brimborg. hægt að framleiða.
GCI ALMANNATENGSL - GREY COMMUNICATIONS INTERNATIONAL
Volvo S40 er hátækni. Gott dæmi um fallega stærðfræði og verkfræðilega snilld. Fullur af orku. Búinn fádæma aksturseiginleikum. Þú finnur ekki fyrir hreyfingu Volvo S40 á jöfnum hraða. Aðeins fyrir veginum. Afstætt lögmál. Þú sérð umhverfið líða framhjá; hefur kannski á tilfinningunni að bíllinn sé kyrr og jörðin á hreyfingu. Draumabíll.
Volvo S40 bensín. Verð frá 2.395.000 kr.* Volvo S40 dísil. Verð frá 2.765.000 kr.* * Brimborg og Volvo áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara og að auki er kaupverð háð gengi. Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Brimborgar.
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | www.volvo.is
12
GV
Fréttir Frá Íbúasamtökum Grafarvogs:
Hvers er vænst af íbúalýðræði og samráði við borgaryfirvöld?
Svava Sigríður Getsdóttir sýnir fallegar myndir sínar í Foldasafni.
Svava sýnir í Foldasafni Þessa dagana sýnir Svava Sigríður Gestsdóttir vatnslitamyndir í átthagahorni Foldasafns. Svava Sigríður stundaði nám í Myndlistaskólanum í Ásmundarsal og við Bergerholtz listaskóla í Danmörku. Hún hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum. Svava Sigríður býr og starfar í Grafarvoginum. Borgarbókasafnið býður upp á fleira en bækur því í safndeildinni í Tryggvagötu er Artótek www.artotek.is Þar er hægt að leigja listaverk til lengri og skemmri tíma.
Hugmyndin um að íbúar Reykjavíkuborgar hafi eitthvað að segja um sitt nánasta umhverfi, gefur von um blómlegt líf í nýtískulegri borg. Ennfremur í hverfi þar sem lífsgæði íbúa eru höfð í hávegum. Við íbúar, höfum í gegnum árin oft ekki skilið vinnubrögð borgaryfirvalda í hinu svokallaða samráðsferli. Nýjasta dæmið er hið svokallaða Gullengismál. Í grein íbúa við Gullengi sem birtist í Mbl. í síðustu viku, er rakin barátta íbúanna við yfirvöld um skipulag á lóðinni, sem nú virðist algerlega tapað. Samkvæmt deiliskipulagi átti að byggja bensínstöð og bílastæði á umræddri lóð. Því skipulagi var breitt í íbúabyggð. Í tilfellum sem þessum, vilja íbúar að upphaflega heildarmyndin raskist sem minnst. Hafi deiliskipulag gert ráð fyrir engum eða fáum lágreistum húsum telja íbúar það eðlilegt að það haldist. En í stað kemur fjöldi of hárra fjölbýlishúsa í stað lágreistrar byggðar eins og íbúar óskuðu. Í greininni segir ,,að íbúar telji að skipulagsyfirvöld ættu ekki að hafa sama vald og um óskipulagt land væri að ræða’’. Íbúar bentu yfirvöldum á að húsin væru of há og umfangsmikil og ekki í stíl við aðrar byggingar á svæðinu. Þó svo að teikningar húsanna hafi aðeins breyst í ferlinu þá er umfangið það sama og kynnt var í upphafi. Viðhorf flestra íbúa er því, að þeir hefðu frekar kosið bensínstöð en fjölbýlishúsin. Flestir hefðu þó helst kosið einbýlis eða raðhús, en skortur hefur verið á slíkum lóðum í borginni. Telja íbúar að borgaryfirvöld hefðu ekki þurft að fórna miklu til að góð sátt hefði náðst í þessu máli. Íbúum var kynntur sá úrskurður að borgaryfirvöld ætluðu ekki að fara að óskum þeirra. Var bent á, að íbúar gætu sent kæru til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, sem þeir og gerðu. Svar við kæru þeirra drógst vegna vanafgreiðslu Reykjavíkurborgar.
Án þess að málið hefði fengið umfjöllun, birtust vinnuvélar og hófu að grafa á lóðinni. Í ljós kom að Reykjavíkurborg var búin að samþykkja byggingarnar þrátt fyrir að ekki hafði farið fram afgreiðsla á kæru íbúanna. Íbúum er gert að fara eftir öllu, í skipulagsferlisfrumskógi yfirvalda, en svo virðist sem yfirvöldin geti ákveðið að blása sjálf á allar reglur og fara sínu fram, hvað sem tautar. Þetta er eitt af þeim sorglegu dæmum í samskiptum íbúa og borgaryfirvalda í skipulagsmálum. Íbúar sætta sig ekki við að svona sé komið fram við þá sem leggja fram fjármuni og tíma til að fara að reglum í ferlinu. Við hjá íbúasamtökunum höfum gagnrýnt þessi vinnubrögð og höfum lagt til að íbúar séu með í virku samráði frá upphafi fyrirhugaðra skipulagsbreytinga. Fyrsti fundur í samráðshóps vegna Sundabrautar: Við fögnum nýjum vinnubrögðum og væntum mikils. Á meðan að íbúar Gullengis stóðu í stappi við yfirvöld, var kallað til samráðsfundnar um lagningu 1. áfanga Sundabrautar. Í þessum hópi eru tveir fulltrúar frá íbúasamtökum Grafarvogs og Laugardals, fulltrúi frá Skipulaginu, Vegagerðinni, Framkvæmdasviði borgarinnar og fulltrúar stjórnvalda. Fer Dagur B. Eggertsson fyrir hópnum. Fyrsti fundur hefur verið haldinn og lofar hann mjög góðu um framhaldið. Við erum mjög bjartsýn á að vel takist að vinna með yfirvöldum í ,,samráði’’ í þessu mikilvæga máli sem Sundabrautin er. Ljóst er að tilkoma Sundabrautar kemur til með að hafa geysilega mikil áhrif á allt hverfið okkar og breytir mynd þess á margan hátt. Markmið okkar er að lágmarka neikvæð áhrif hennar og hámarka þau jákvæðu. Þær felast m.a. í eftirfarandi:
Hallsvegurinn: Hallsvegur verði alls ekki tengdur uppá Vesturlandsveg, heldur verði hann tveggja akreina vegur sem tengir aðeins hverfi innan Grafarvogs. Svæðið austan Víkurvegar þar sem fyrirhugað vegarstæði Hallsvegar er, verði nýtt fyrir lága íbúðabyggð. Hallsvegur verði ekki framlengdur til vesturs að Sundabraut. Framlenging Fossaleynis upp á Vesturlandsveg: Í stað þess að Hallsvegur verði
Elísabet Gísladóttir, formaður Íbúasamtaka Grafarvogs, skrifar: tengdur Vesturlandsvegi, verði Fossaleynir framlengdur til austurs og hann tengdur við fyrirhugað hringtorg hjá BYKO lóðinni. Með því telja menn að dregið gæti verulega úr óviðkomandi gegnumakstri um hverfið.
Magnús Jónasson, í stjórn Íbúasamtaka Grafarvogs, skrifar: Utanaðkomandi umferð sem nú eykst hratt vegna vaxandi starfsemi Egilshallar, væri beint til hallarinnar um nýjan veg og umferð þar með létt af Víkurvegi. Mikilli umferð yrði beint frá íbúðahverfinu og með því dregið úr umferðaþunga. Skoðaðir verði betur kostir þess að setja Sundabraut í göng: Sundabraut komi upp við núverandi Áburðaverksmiðjusvæði og þar yrði ein umferðaslaufa í stað
tveggja eins langt frá íbúabyggð og hægt er. Önnur mál sem m.a. eru ofarlega á dagskrá ÍG. Flutningur Björgunar: Fyrirhugaður flutningur Björgunar yfir í Gufunes kemur ekki til greina. Íbúar í Bryggjuhverfi kvarta stöðugt undan óæskilegum áhrifum nálægðar við starfsemina sem er bæði heilsuspillandi og sóðaleg. Sú tillaga að færa starfssemina frá einni íbúabyggð í aðra, kemur því ekki til mála, enda stefnum við að friðun strandlengjunnar við Gufunes. Friðum fjörurnar: Nú er svo komið að nánast allar fjörur Reykjavíkur, frá Seltjarnarnesi til Gufuneshöfða, eru horfnar undir grjótfyllingar. Þetta eru ein mestu umhverfisspjöll á Íslandi. Mikilvægt er því að friða einu strandlengjuna sem eftir er í Reykjavík, frá Gufuneshöfða upp á Kjalarnes. Mikið fugla- og dýralíf þrífst í fjörunum og íbúar njóta þar útivistar. Ný uppfylling vestur úr Gufunesi, myndi enn auka á rof á suðurströnd Viðeyjar og er að öllu óþörf, þar sem nægt byggingarland er í Geldinganesi, Álfsnesi og Gunnunesi. Elísabet Gísladóttir form ÍG, situr í samráðshópi um Sundabraut Magnús Jónasson, í stjórn ÍG, situr í samráðshópi um Sundabraut
Abba með nýtt listmunagallerí í Grafarholti
Listamaðurinn Abba í Gallerí sínu við Kirkjustétt í Grafarholti.
GV-myndir PS
Nýlega opnaði listamaðurinn Abba listmunagallerí í Grafarholti, Gallerí Grafarholt, sem staðsett er í verslunarkjarnanum við Kirkjustétt. Í Galleríi Grafarholti býður Abba upp á úrvals leirlist, myndlist og glerlist. Listakonan Abba verður þar einnig með leirvinnustofu sína. Opið er virka daga kl. 13-18 og laugardaga kl. 13-16. Óhætt er að hvetja Grafarvogsbúa og aðra til að kíkja við hjá listakonunni því þar er að sjá marga mjög fallega hluti.
Gallerí Grafarholt er til húsa í verslunarkjarnanum við Kirkjustétt 2-6.
Jeppadekk Grafarvogsbúar - hjólbarðaverkstæðið ykkar er að Gylfaflöt 3
Gylfaflöt 3 • sími 567 4468
13
GV
Fréttir
Rimaskóli og Víkurskóli fengu hvatningarverðlaun menntaráðs Hvatningarverðlaun menntaráðs Reykjavíkur voru afhent í fjórða sinn við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur þann 19. febrúar í tengslum við sýninguna "Skóli á nýrri öld". Það eru grunnskólar borgarinnar sem eru tilnefndir til verðlaunanna og eiga þau að vera til þeirra skóla sem eru fyrirmynd annarra á þróunar-og nýbreytnisviði. Tveir grunnskólar í Grafarvogi, Rimaskóli og Víkurskóli, voru á meðal þeirra átta grunnskóla borgarinnar sem fengu viðurkenninguna. Það vekur athygli að skólarnir fengu þessa viðurkenningu líka í fyrra og eru þar með framúrskarandi í þróunarstarfi annað árið í röð. Víkurskóli fékk hvatningarverðlaun fyrir verkefnið Tónsköpun. Í skólanum er mjög öflug tónlistarkennsla í umsjón Gunnars Benediktssonar tónmenntakennara. Allir nemendur í 1. - 8. bekk læra að semja tónlist sem þeir flytja fyrir samnemendur, kennara og foreldra. Verkefnin í tónlistinni eru oftar en ekki samþætt öðrum námsgreinum. Markmiðið er að virkja sköpunargáfu nemenda og að þeir tjái sig með tónlist og öðlist færni í að spila á hljóð-
færi og nota tónlistarforrit. Það voru þau Árný Inga Pálsdóttir skólastjóri og Gunnar Ben sem tóku við viðurkenningarskjalinu fyrir hönd Víkurskóla Rimaskóli fékk hvatningarverðlaun fyrir verkefnið Vísindadagur sem Grafarvogsblaðið greindi frá fyrr í vetur þegar vísindadagurinn var haldinn í fyrsta skipti í október 2005. Markmiðið með vísindadegi er að allir nemendur, kennarar og starfsfólk skólans upplifi vísindi á jákvæðan og skemmtilegan hátt. Þær Jónína Ómarsdóttir og Þórhalla Arnardóttir líffræðikennarar skólans útbjuggu gagnabanka með verkefnum og tilraunum fyrir alla árganga skólans. Leiðbeiningar og nákvæmar lýsingar fylgdu með til að gera framkvæmdina auðvelda og skemmtilega á allan hátt. Við val á verkefnum og tilraunum Vísindadagsins var stuðst við þrepamarkmið námskrár. Það voru þau Helgi Árnason skólastjóri, Jónína Ómarsdóttir og Þórhalla Arnardóttir sem tóku við viðurkenningu Rimaskóla úr hendi Stefáns Jóns Hafstein formanns menntaráðs.
Þórahalla Arnardóttir og Jónína ómarsdóttir kennarar við Rimaskóla hafa tekið þátt í viðamiklu evrópsku þróunarverkefni varðandi nýjar kennsluaðferðir í raungreinum. Vísindadagur Rimaskóla er afrakstur þeirrar vinnu.
Nemendur 1. bekkjar í Víkurskóla syngja frumsamið lag og texta í ráðhúsinu.
Árný Inga Pálsdóttir skólastjóri Víkurskóla og Gunnari Ben tónmenntakennari í Víkurskóla með Viðurkenningarskjalið.
Við afhendingu hvatningarverðlauna til Rimaskóla. Stefán Jón Hafstein formaður menntaráðs Reykjavíkur ásamt Helga Árnasyni skólastjóra og kennurunum Þórhöllu og Jónínu.
Fermingargjafir í miklu úrvali Jón Sigmundsson skartgripaverslun Laugavegi 5 Sími: 551-3383
Spönginni 29 Sími: 577-1660
14
GV
Fréttir
Kynning á leikskólunum í Grafarvogi Leikskólarnir í Grafarvogi og Kjalarnesi verða með opið hús í mars, apríl og maí. Þá gefst fólki tækifæri til að skoða leikskólana og kynna sér starfsemi og menningu þeirra. Leikskólarnir starfa allir samkvæmt lögum um leikskóla en hver þeirra hefur mismunandi áherslur. Það getur því verið áhugavert að kynna sér mismunandi leiðir leikskólanna. Vonandi sjáum við sem flesta. Leikskólarnir verða opnir sem hér segir: 25. mars.Leikskólinn Laufskálar Kl. 11:00 13:00. Leikskólinn er 10 ára. 1. apríl. Leikskólinn Fífuborg kl. 10:00 - 12:00. Leikskólinn Brekkuborg kl: 10:00 - 12:00. Leikskólinn Hulduheimar kl. 10:00 - 12:00. Leikskólinn Hamrar kl. 10:00 - 12:00. 6. apríl.Leikskólinn Funaborg kl. 15:00 - 17:30. Leikskólinn Foldaborg kl. 16:00 - 18:00. 8. apríl.Leikskólinn Sjónarhóll kl. 10:00 12:00. 29. apríl. Leikskólinn Engjaborg kl. 10:00 12:00. Leikskólinn Berg Kjalarnesi kl. 10:00 - 12:00. 4. maí. Leikskólinn Klettaborg kl. 15:00 17:00. 6. maí. Leikskólinn Lyngheimar kl. 10:00 12:00. Leikskólinn Foldakot kl. 10:00 - 12:00. 13. maí. Leikskólinn Bakki kl. 10:00 - 12:00.
Þorsteinn Lárusson með starfsmönnum sínum í vestunum góðu sem þeir fá sem kaupa dekkjagang af hinum glæsilegu GENERAL dekkjum á meðan birgðir endast. GV-mynd PS
Hjólbarðaverkstæðið með GENERAL
Gúmmísteypa Þ. Lárusson ehf - Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs hefur gerst sölu- og dreifingaraðili fyrir GENERAL fólksbíla- og jeppadekk á Íslandi. ,,Við munum vera með GENERAL dekk til sölu strax í vor, og erum við þegar með á lager flestar stærðir bæði í fólksbíla- og einnig jeppadekkjum
upp í 33" dekk. 35" dekkin koma þegar fer að líða á árið,’’ sagði Þorsteinn Lárusson, eigandi Hjólbarðaverkstæðis Grafarvogs, í samtali við Grafarvogsblaðið. ,,Í fólksbíladekkjum bjóðum við upp á GENERAL XP2000 EURO, í jeppadekkjum verða GENERAL GRABBER AT2 í boði
sem er nýtt munstur, gott jeppamustur, sem er borað fyrir nagla, GENERAL AMERITRAC TR sem er fínna og hentar vel fyrir malbik og malarvegi og GENERAL XP2000 WINTER, fínskorið jeppadekk sem hentar vel fyrir minni 4X4 bíla,’’ sagði Þorsteinn ennfremur. Og væntanlegir viðskiptavinir
Hjólbarðaverkstæðis Grafarvogs við Gylfaflöt eiga von á glaðningi. Í tilefni af því að Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs hefur hafið dreifingu á GENERAL dekkjum, mun fyrirtækið bjóða vesti merkt GENERAL TIRE með hverjum gangi af GENERAL dekkjum sem seldir verða á meðan birgðir endast.
Kæru viðskiptavinir! Munið að panta tímanlega fyrir páskana
Starfsfólk Höfuðlausna
Hársnyrtistofan Höfuðlausnir Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is Opið: Mán 08.00-18.00 - þri - fim 09.00-18.00 fös 08:00-18:00 og lau frá 10:00-14:00
Smurstöð Grafarvogsbúar - hjólbarðaverkstæðið ykkar er að Gylfaflöt 3
Pöntunarsími: 567-6330
Gylfaflöt 3 • sími 567 4468
15
GV
Fréttir
Glæsilegur árangur nemenda í Borgaskóla í Nema hvað?:
Fróð glæsimenni og söngstjarna Spurningakeppni grunnskólanna Nema hvað? var haldin í janúar og febrúar. Í undankeppninni þar sem keppt er um titilinn Hverfismeistarar Grafarvogs vann lið frá Borgaskóla. Liðið, sem er skipað Helga Sævarssyni, Reyni Hans Reynissyni og Stefáni Þórssyni sýndi í allri keppninni talsverða yfirburði og vann keppinauta sína með nokkrum mun. Þeir héldu síðan áfram í fjögurra liða úrslitin sem útvarpað var í þætti Unga fólksins á Rás 2. Dregið var um keppendur og kepptu þeir fyrst á móti Hólabrekkuskóla á Markúsartorginu. Þann slag
unnu þeir 25-19 og þá var úrslitakvöldið á móti Réttarholtsskóla sem vann Hlíðaskóla kvöldið áður. Stór hópur áhorfenda kom í Útvarpshúsið á úrslitakvöldið. Bæði liðin mættu greinilega vel undirbúin og stefndi í hörkukeppni. Sú varð líka raunin því úrslit voru ekki endanlega ljós fyrr en á lokasprettinum. Úrslit urðu Réttarholtsskóla í hag og Borgaskóli því í öðru sæti. Spyrlar og stigaverðir keppninnar höfðu sérstaklega á orði hve lið Borgaskóla væri flott í tauinu og kæmi vel fyrir. Það voru því verðugir fulltrúar
Grafarvogs sem hrepptu annað sætið í Nema hvað? grunnskólanna 2006. En Borgaskóli á fleiri fulltrúa því Elín Eyþórsdóttir vann hverfiskeppni Grafarvogs í söngvakeppni grunnskólanna með blúslaginu Wait on the water. Hún mun síðan keppa fyrir hönd Grafarvogs í söngvakeppni Samfés. Elín er af kunnri tónlistarfjölskyldu, semur sjálf lög, spilar á gítar og syngur. Hún er í tónlistarnámi og hyggur á frekari nám í alhliða tónlist og söng. Glæsilegur fulltrúi okkar í söngvakeppninni.
Elín Eyþórsdóttir, dóttir Ellenar Kristjánsdóttur og Eyþórs Gunnarssonar, vann hverfiskeppni Grafarvogs í söngvakeppni grunnskólanna.
Lið Borgaskóla sem hafnði í öðru sæti í Nema hvað? var skipað þeim Helga Sævarssyni, Reyni Hans Reynissyni og Stefáni Þórssyni. Vakti snyrtimennska þeirra og frmmistaða mikla athygli.
16
GV
Fréttir
Táslur. Skátaflokkur ársins.
Skátastarf í Grafarvogi 18 ára
22. febrúar síðastliðinn héldu skátar um allan heim upp á afmæli stofnanda skátahreyfingarinnar, Baden Powell. Þennan dag eru fjölmörg skátafélög á Íslandi stofnuð og má nefna að skátafélagið Kópar hélt uppá 60 ára afmæli. Skátastarf í Grafarvogi er nú 18 ára og var afmælisfagnaður í skátaheimilinu af því tilefni.
Kvöldvaka með söng- og skemmtiatriðum að hætti skáta var að venju fjörug en 100 skátar og foreldrar létu heyra í sér. Veittar voru viðurkenningar fyrir góð störf á síðasta ári og hlaut Andri Hrafn Arnarson viðurkenningu sem besti ylfingurinn, Blængur Blængsson sem besti skátinn, Helga Kristín Ólafsdóttir sem besti skátaforinginn og Púkar hlutu
Mikið fjör var á afmælisfagnaðinum í skátaheimilinu. viðurkenningu sem besti skátaflokkurinn í Hamri þetta árið. Tækniskátar sem starfa sjálfstætt óháð skátafélögum hafa haft aðstöðu í Hamarsheimilinu þökkuðu fyrir
samstarfið síðustu ár og gáfu Hamri 10 handstöðvar með fylgibúnaði sem eiga eflaust eftir að nýtast vel í ferðum og dagskrá félagsins. Kakó og afmæliskaka frá Sand-
holtsbakarí var í boði fyrir gesti að söngnum loknum en kvöldið heppnaðist ágætlega.
Félagsferð Hamars eina blauta helgi í febrúar Fjör hjá Inkunum.
Hátt í 70 skátar og ylfingar héldu í félagasferð Hamars í skíðaskála ÍR í Hamrahlíð 3.-5. febrúar síðastliðinn. Þetta var fyrsta ferð hjá skátum í Grafarvogi í skálann en lítið var um skíðamenn á svæðinu enda enginn snjór og framkvæmdir við Hellisheiðarvirkjun í hámarki. Hellirigning var yfir helgina og blotnuðu allir eitthvað en kom þó ekki að sök því þekkt er að skátar láta það nú ekki á sig fá. Skátarnir fóru í póstaleiki sem fram fór í brekkum og nágrenni skálans. Eldri hópur skátanna fór í Hikeferð í þoku og blautu veðri meðan þau yngri voru í smiðjuverkefnum innanhúss þar sem meðal annars voru sett saman trémódel, föndrað í leður og fleira. Bæði skátar og dróttskátar komu að undirbúningi og framkæmd dagskrár og sáu skátar úr Inkasveit m.a. um póstaleik. Á laugardagskvöldinu var haldin heljarinnar kvöldvaka þar sem skátar sungu og settu fram skemmtilega leikþætti. Rétt fyrir háttinn var svo boðið upp á kakó og kex að hætti skáta. Ferðin tókst vel og fóru krakkarnir ánægðir en svolítið þreyttir heim á sunnudegi.
Smiðjuverkefni.
Mér finnst rigningin góð.
Gott að komast inn úr rigningunni.
Morgunmatnum gerð góð skil.
Mikið fjör var á kvöldvökunni.
17
Fréttir
GV
Nýliðar Fjölnis öruggir Íslandsmeistarar í 3. deild
Íslandsmóti félagsliða í skák lauk í 1.-4. deild helgina 3.-4. mars. Skákdeild Fjölnis sem tók þátt í mótinu í annað skipti vann 3. deild Íslandsmótsins örugglega og heldur því áfram að hoppa upp um deildir, eina á ári, og teflir í 2. deild á komandi keppnistímabili. Skákdeild Fjölnis hefur frá upphafi starfs haft það að takmarki að komast í fremstu röð skákfélaga á Íslandi. Hin sterka skáksveit félagsins hefur nánast auðveldlega hoppað upp um deildir á tveimur síðustu Íslandsmótum. Í fararbroddi fara öflugir skákmeistarar, innlendir og erlendir, en í bakvarðastöðunum eru efnilegir unglinga- og barnaskólameistarar sem með góðum árangri Fjölnis á Íslandsmóti fá brátt tækifæri til að tefla í deild hinna sterkustu. B sveit Fjölnis skipuðu krakkar og unglingar á aldrinum 11-13 ára og vakti góð frammistaða þeirra allt mótið verðuga athygli. Í þessu efnilega liði eru Hörður Aron, Sverir Ásbjörnsson, Júlía Rós, Júlía Guðmundsdóttir og
Gunnlaugur Skarphéðinsson úr Rimaskóla, Sigríður Björg úr Hamraskóla og síðast en ekki síst Dagur Andri Friðgeirsson, nýbakaður Íslandsmeistari barna, nemandi í Seljaskóla. Að sögn Helga Árnasonar formanns skákdeildar Fjölnis verður það mjög spennandi verkefni að tefla í 2. deild Íslandsmóts skákfélaga á næsta keppnistímabili. Stefnt er að því að styrkja skáksveitina, afla fjármagns til að mæta kostnaði við þátttöku og ekki síst að gefa okkar efnilegustu börnum og unglingum tækifæri á að tefla í hópi þeirra bestu. Skákáhugi meðal grunnskólabarna í Grafarvogi er mikill og í samstarfi við Miðgarð stendur skákdeildin fyrir Miðgarðsmótinu í skák þann 10. mars sem er skákmót á milli grunnskóla í Grafarvogi og á Kjalarnesi. Helgi vildi koma á framfæri þökkum til framkvæmdarstjóra og aðalstjórnar Fjölnis fyrir góðan stuðning og Skákfélagsins Hróksins fyrir mikilvægt samstarf.
Skákdrottningin Regina Pokorna frá Slóvakíu tefldi á 1. borði fyrir Fjölni og vann allar sínar skákir í 3. deild. Auk þess að vera fyrirliði sveitarinnar er hún mikill Íslandsvinur og hefur heimsótt flesta grunnskóla landsins á vegum Hróksins og Fjölnis.
Íslandsmeistarar Fjölnis í 3. deild taka við veglegum bikar í lokahófi Skáksambandsins. F.v. Faruk Tairi, Regina Pokorna fyrirliði, Rogvi Rasmussen, Lárus Ari Knútsson og Helgi Árnason formaður skákdeildar. Á myndina vantar Tómas Björnsson, Vigni Bjarnason og hinn efnilega Ingvar Ásbjörnsson núverandi skákmeistara Rimaskóla.
Hin stórefnilega B sveit Fjölnis. f.h. Hörður A. Hauksson, Sverrir Ásbjörnsson, Sigríður Björg Helgadóttir, Dagur Andri Friðgeirsson, Júlía Rós Hafþórsdóttir og Gunnlaugur Skarphéðinsson. Í baksýn má m.a. sjá Henrik Daníelsen stórmeistara sem hefur verið aðalkennari Fjölnis á laugardagsæfingum í vetur.
Ekki missa af þessu Árgangur 2006 af tímaritinu Sumarhúsið og garðurinn á aðeins kr. 3.550.Fimm blöð á ári. Greitt með VISA/MASTERCARD. Áskriftin gildir í eitt ár og endurnýjast þá sjálfkrafa sé henni ekki sagt upp fyrir þann tíma.
Einstakt áskriftartilboð Nýir áskrifendur fá að gjöf bókina Garðurinn allt árið, að andvirði kr. 2.450. Allir áskrifendur fá aðgöngumiða 2 fyrir 1 á sýninguna Sumar 2006 í Laugardalshöll 21.-23. apríl.
Væntanlegar bækur á árinu
Hægt er að gerast áskrifandi á vefnum okkar www.rit.is eða með því að hringja í síma 586 8005.
2 VIÐ RÆKTUM
Lauftré á Íslandi
Handhægur leiðarvísir fyrir garðeigendur og ræktendur
Bókaflokkurinn Við ræktum býðst einnig í áskrift. Fyrsta bókin kostar kr. 1.990.- og þær næstu kr 2.900.Verð í verslunum: Garðurinn allt árið kr. 2.450, Lauftré á Íslandi kr. 3.400, Víðir og víðinytjar kr. 3.400.Miðað við að greitt sé með VISA/MASTERCARD.
Ritstjóri Auður I. Ottesen
Sumarhúsið og garðurinn ehf. Síðumúla 15, 108 Reykjavík Sími 586 8003 • www.rit.is
Hringdu núna! – Áskriftarsími 586 8005
18
GV
Fréttir
Guðmundur Guðmundsson í Arkó, þaulvanur veiðimaður og þar eru veiðimenn í góðum höndum.
GV-mynd PS
Guðmundur tekinn við Arkó
Guðmundur Guðmundsson hefur tekið við rekstri veiðibúðarinnar Arkóveiði sem er til húsa að Krókhálsi 5g. Guðmundur, sem er fæddur í Reykjavík en ættaður af suðurnesjum, ólst upp á Blönduósi, en fluttist til Reykjavíkur 1996. Hann er öllum hnútum kunnugur þegar stangaveiði er annars vegar og þeir veiðimenn sem þurfa að kaupa sér veiðivörur eru því í góðum höndum hjá Guðmundi í Arkó. ,,Mér gafst tækifæri á að fara að vinna við áhugamálið og hóf störf hjá Arkóveiði 1. apríl 2005 og keypti síðan helmingshlut 1. desember 2005 og tók við rekstrinum,’’ segir Guðmundur og er ánægður með viðtökurnar. Hann segir Árbæinga og Grafarvogsbúa vera ánægða með að hafa veiðiverslunina í sínu hverfi og verður mikið var við veiðimenn úr þessum hverfum. ,,Rekstur búðarinnar hefur gengið mjög vel og er mikill aukning í sölu á milli ára hjá okkur. Við erum með Nielsen vörurnar sem eru hannaðar fyrir Íslenskar aðstæður og eftir ábendingar frá veiðiáhugafólki. Við munum á þessu ári auka úrvalið í stöngum, vöðlum, flugum o.fl. Við ætlum okkur að styðja
við bakið á Íslendingum sem hafa áhuga á að koma sínum vörum á framfæri, verðum t.d. með mikið úrval af flugum Kristjáns Gíslasonar og Gylfa Kristjánssonar frá krafla.is sem og flugur eftir Þór Nielsen, Kristján Jónsson, Björgvin Guðmundsson, Pál Ágúst o.fl. Eins ætlum við að gefa ungum áhugasömum hnýturum tækifæri á að selja flugur eftir þá. Við ætlum að auka úrvalið í vöðlum og verðum m.a. með sérstakar vöðlur fyrir unglinga og konur. Við ætlum að koma með nýungar í stað þess að vera að fara inn á svið sem aðrir hafa verið með. Ætlum við t.d. ekki að fara út í það að vera með mikið úrval í hnýtingarefnum, frekar að vera með það nauðsynlegasta og kannski eitthvað sérhæft. Hins vegar verðum við með mikið úrval af væsum og áhöldum. Eins erum við að fara að taka inn mjög vandaðan og góðan útivistarfatnað og skó fyrir fjalla- og útivistarfólk. Við deilum húsnæði með Sportbúð Títan og hefur það samstarf komið mjög vel út enda frábærir náungar sem reka þá verslun og í haust ákváðum við að skíra húsið sem við erum í Veiðihöllina,’’ sagði Guðmundur. Og það er
margt fleir á döfinni hjá Arkóveiði. ,,Í haust ákvað ég að stofna fluguveiðiskóla og þar sem ég vil vanda vel til verka í því sem öðru sem ég tek mér fyrir hendur fékk ég Pálma Gunnarsson til liðs við mig og mun hann hafa yfirumsjón með kennslunni. Markmið skólans er að kenna fólki að veiða. Það er ekki nóg að kunna að kasta flugunni fallega, það þarf líka að læra hinar ýmsu veiðiaðferðir. Það eru reyndar endalaus fræði en gott að fá grunninn. Eins munum við fara yfir búnað, umhirðu, hvernig sleppa skal fiski og margt fleira sem gott er að vita. Við ákváðum að vera með eitt til tvö námskeið í sumar en þrátt fyrir að við höfum ekkert auglýst skólann í fjölmiðlum er ásóknin slík að námskeiðin eru orðin fjögur og við munum bæta einu til tveimur við. Aðsóknin er langt umfram væntingar, svo það er ekkert annað að gera en að bæta við námskeiðum. Við ætlum að vera með þennan skóla áfram næstu árin svo þeir sem ekki komast í sumar þurfa ekki að örvænta, en í sumar kennum við í Vatnsdalsá, Reykjadalsá og Breiðdalsá,’’ sagði Guðmundur Guðmundsson.
Dýralíf.is er flutt að Stórhöfða 15 Egilshöllinni Sími: 594-9630 www.orkuverid.is Alhliða líkamsrækt og sjúkraþjálfun
Nýja verslunin hjá Dýraríkinu við Stórhöfða er glæsileg. Á minni myndinni eru japönsku Koi fiskarnir.
Verslunin Dyralif.is hefur flutt starfsemi sína í stærra og betra húsnæði að Stórhöfða 15 við Gullinbrú. Samhliða flutningunum var vöruúrval verslunarinnar aukið stórlega. Helsta nýbreitnin hjá Dýralíf.is eru japanskir Koi fiskar til að hafa í útitjörnum ásamt öllu til tjarnargerðar. Fiskarnir eru mjög skrautlegir og fallegir og sjón er sögu ríkri. Eigendur Dýralífs.is eru Edda Hlín Hallsdóttir og Finnbogi Gústafsson.
G rafarvogsbúar hjólbarðaverkstæðið ykkar er að
Gylfaflöt 3 Gylfaflöt 3 • sími 567 4468