Skip to main content

Grafarvogsbladid 2.tbl 2006

Page 1

2. tbl. 17. ĂĄrg. 2006 - febrĂşar

Ă?SLENSKA AUGLĂ?SINGASTOFAN/SIA.IS LBI 27159 01/2005

Grafarvogsblaðið

Eitt nĂşmer

410 4000

Dreift Ăłkeypis Ă­ Ăśll hĂşs Ă­ Grafarvogi

Framtíðaraðstaða FjÜlnis við Dalhús HÊr sÊst teikning af frumhugmyndum fyrir framtíðaraðstÜðu FjÜlnis við Dalhús. Þessar hugmyndir geta orðið að veruleika vegna Þess að frjålsíÞróttadeild fÊlagsins hefur fallist å að flytja aðstÜðu sína í EgilshÜll fåist Þar sambÌrileg aðstaða. Arkitektar å vegum FjÜlnis unnu Þessa teikningu og fleiri í sjålfboðavinnu.

Byggingastyrkir til Ă­ĂžrĂłttafĂŠlaga Ă­ ReykjavĂ­k:

FjÜlnir hefur setið eftir Bilastjarnan_02_001.ai

18.11.2004

Aðstaða hjå UngmennafÊlaginu FjÜlni í Grafarvogi er óviðunandi og dÌmi eru um að deildir innan fÊlagsins geti með engu móti sinnt Þeirri aðsókn sem fyrir hendi er. Eitt dÌmi um Þetta er Fimleikadeild FjÜlnis. � ítarlegri grein í blað15:18:40 inu að Þessu sinni fjallar Guðlaugur Þór Þórðarson, formaður FjÜlnis, um Þå

aðstÜðu sem fÊlagið býr við í dag og Það sem framundan er. BorgaryfirvÜld hafa gefið út að til standi að bÌta aðstÜðuna hjå FjÜlni verulega å nÌstu Þremur årum en engar fjårhÌðir hafa verið nefndar. � umrÌddri grein kemur fram að iðkendafjÜldi íÞróttafÊlaga í Reykjavík er langmestur hjå FjÜlni.

Eru Það svo sem engin ný sannindi. Þegar byggingastyrkir undanfarinna åra eru skoðaðir miðað við fjÜlda iðkenda kemur í ljós að upphÌðin er aðeins 59 Þúsund krónur å hvern iðkanda hjå FjÜlni en um 740 Þúsund å hvern iðkanda hjå Val. Hjå fjórum efstu fÊlÜgunum, Val, Fylki, Fram og Víkingi er hann

frå 500 til 740 milljónir króna. HÊr er um að rÌða byggingastyrki til íÞróttafÊlaga frå årinu 1991 til 2005. Einnig kemur fram að alls fengu KR, Fram, Víkingur og Fylkir 400-500 milljónir króna í byggingastyrki å Þessu tímabili en FjÜlnir aðeins um 150 milljónir króna.

$KHTGKÆCUMQÆWP )TCHCTXQIK 1RKÆ QI ÔÉ Âą HĂŒU

)[NHCHNĂŒV 5ĂƒOK

SjĂĄ nĂĄnar ĂĄ bls. 24 og 25

Komdu beint til okkar! - og við tjónaskoðum í hvelli ÞÊr að kostnaðarlausu Bílastjarnan ehf. ¡ BÌjarflÜt 10 ¡ 112 Reykjavík ¡ Sími 567 8686

Við erum alltaf í leiðinni

I oo jb •agpbo

q`mfašmd odg �]— \f\pk\

Landsbankinn leggur ĂĄherslu ĂĄ faglega fjĂĄrmĂĄlaĂžjĂłnustu fyrir fyrirtĂŚki og einstaklinga Ă­ Grafarvogi.

Ë `dia\g_\md g`d \ �]— \f\pkph Bm`d ngph\o ‚ i`odip G‚inphn’fi ‚ i`odip

Við tÜkum vel å móti ÞÊr í útibúum okkar að Fjallkonuvegi 1 og HÜfðabakka 9.

Landsbankinn Banki allra landsmanna

410 4000

landsbanki.is


2

GV

Fréttir

Grafarvogsblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: skrautas@simnet.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Netfang Grafarvogsblaðsins: gv@centrum.is Ritstjórn og auglýsingar: Bíldshöfða 14 - Sími 587-9500 / 698-2844. Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir, Stefán Kristjánsson. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll hús og fyrirtæki í Grafarvogi. Einnig í Bryggjuhverfi og öll fyrirtæki í póstnúmeri 110.

Sundabrautin Enn er ekkert nýtt að frétta af Sundabraut. Enn er óákveðið hvaða leið verður fyrir valinu og ljóst að nokkur tími mun líða enn þar til ákvörðun liggur fyrir. Komið hefur fram sú hugmynd að láta kjósa um það í næstu borgarstjórnarkosningum sérstaklega hvort fara eigi innri eða ytri leið. Það er auðvitað mjög athyglisverð hugmynd og sjálfsögð leið til að fá fram sjónarmið íbúanna ef fyrir því er einhver áhugi á annað borð. Áður hefur fólki verið gefinn kostur á því að kjósa um hundahald samfara almennum kosningum og víða um landið hefur fólki boðist að kjósa um áfengisútsölur. Hundahald og brennivín eru ekki merkilegir hlutir bornir saman við framkvæmd á borð við Sundabraut. Það er snjöll hugmynd að gefa fólki kost á því að láta skoðun sína í ljós í kosningunum í maí hvað Sundabrautina varðar. Áður en lengra er haldið er rétt að taka fram að ég er ekki hlutlaus í þessari umræðu, búandi yst í Hamrahverfinu. Hitt er augljóst að það er mikið hagsmunamál Grafarvogsbúa í heildina tekið að lega Sundabrautar verði sem lengst frá hverfinu. Borgaryfirvöld hafa lýst því yfir að þau vilji sem mest samráð við íbúana varðandi þetta mál og á það mun reyna á næstu vikum og mánuðum. Nýstofnuð íbúasamtök í Laugardal eru bandamenn okkar íbúasamtaka og eru vissulega með í samráðinu. En sporin hræða. Oft hefur því verið lýst yfir að samráð verði haft við íbúa en reyndin hefur orðið önnur. Við skulum þó ekki gefa okkur að á íbúa verði ekki hlustað í þessu mikla hagsmunamáli þeirra, beggja vegna Kleppsvíkur. Vegagerðin vill fara innri leið. Forsætisráðherra hefur tekið af öll tvímæli og sagt að eyrnamerktir peningar til Sundabrautar séu ekki skilyrtir við innri leið. Íbúarnir vilja ytri leið og ef mér skjátlast ekki borgaryfirvöld líka. Það verður spennandi að sjá hvað gerist. Stefán Kristjánsson

gv@centrum.is

Frá Íbúasamtökum Grafarvogs:

Furðuleg vinnubrögð Umfjöllun um fyrirhugaða líkbrennslu/bálstofu í hverfinu okkar sem þjóna skuli öllu landinu. Þau vöktu furðu mína viðbrögðin sem fram komu eftir grein í síðasta Grafarvogsblaði, sem fjallaði um fyrirhugaða líkbrennslu/bálstofu sem yrði fyrirkomið í Grafarvogi. Blásið var upp að greinin væri gerð til að hræða íbúa og einhver ,,hysteria’’ væri í íbúum hverfisins. Ekki veit ég hvort það var vegna þess að forsvarsmönnum kirkjugarðanna þætti umræðan um að bálstofa yrði staðsett og starfrækt í Grafarvogshverfi óþægileg, en ljóst virtist á öllu að umræðan kæmi íbúum hreinlega ekki við. Menn virtust fara undan í flæmingi og vildu helst ekkert við neitt kannast. Bentu á ótímabæra umræðu. En svo einkennilega vildi til að grenndarkynning hafði farið fram. Við spyrjum þá: Af hverju er búið að teikna bálstofuna og til hvers fór grenndarkynning fram? Ef allt var í plati? Starfsmenn opinberra stofnanna skulu ekki láta sér detta í hug að hefta tjáningarfrelsi íbúa Grafarvogs! Það var eins og mönnum dytti í hug að setja ofan í við okkur íbúa hverfisins fyrir að fjalla um eða hafa skoðun á máli sem okkur er jú skylt. Ég verð að lýsa furðu minni á þessum viðbrögðum manna. Ég hef talið það vera forréttindi okkar hér í hverfinu að eiga málgagn sem Grafarvogsblaðið er og íbúar hafa fullan tjáningarrétt að koma vangaveltum sínum út í umræðuna og þ.a.l. út í hverfið svo allir séu með og upplýstir. Það er einn af þeim lykilþáttum í góðum árangri íbúa og samtaka okkar að taka mál hverfisins upp, ræða þau og standa þannig vörð um rétt og málstað íbúa hverfisins. Allar kynningar og upplýsingar eru jákvæðar, því það sem við þekkjum ekki hræðumst við. Því vil ég koma á framfæri að þeir íbúar sem heyrt hafa ávinning af því að bálstofunni verði fyrirkomið hér í hverfinu og hafa haft samband við okkur, eru ekki að velta sér upp úr hræðslu við dauðann sem slíkan. Það er öllum ljóst að hann er eðlilegur hluti lífsins. Né heldur að verið sé að mála ,,Skrattann’’ á vegginn með að fjalla um fyrirhugaða bálstofu. Reynslan hefur kennt okkur að við verðum að vera vel á varðbergi með framkvæmdir í hverfinu. Við þurfum að koma að málum í upphafi ferilsins en ekki eins og svo oft áður að þau eru kynnt fyrir okkur allt of seint. Þannig að ekkert

verður við neitt ráðið, það höfum við margreynt. Og það skal vera deginum ljósara að við látum okkur varða öll málefni íbúa, af hvaða toga sem þau kunna að vera. Því fagna ég frumkvæði þessarar umræðu sem fram kom í Grafarvogsblaðinu sem sýnir hve nauðsynleg hún var, vegna þess hve illa hún kom við marga. Þegar svo er, þá er virkileg þörf á umræðu og kynningu. Í svörum forsvarsmanna kirkjugarðanna komu fram ákveðnir hlutir sem við hjá Íbúasamtökunum viljum og ætlum að skoða, ekki til að hræða eða valda óhug heldur til að sannfærast og kynna fyrir íbúum ef við komumst að því að jákvæðir þættir þessarar ákvörðunar vegi þyngra á metunum en þeir neikvæðu til framtíðar fyrir hverfið. Grenndarkynningu ábótavant og

Elísabet Gísladóttir, formaður Íbúasamtaka Grafarvogs, skrifar: ótímabær? Fram kom að farið hafi fram grenndarkynning en að sama skapi, að ekki sé búið að taka endanlega ákvörðun. Þar sem við höfum ekki orðið vör við neina grenndarkynningu setjum við spurningarmerki við aðferðir og kynningar og spyrjum hverjum var kynnt málefnið? Við veltum fyrir okkur hvort þetta hafi farið sem bréfsnepill til örfárra íbúa eða birst í einhverri auglýsingu sem hefur farið fram hjá okkur. Við vitum ekki til þess að þetta hafi komið á borð Hverfaráðsins hér. Við skiljum ekki, til hvers fór fram grenndarkynning ef ekkert á að framkvæma. Þó svo að framkvæmdir séu ekki fyrirhugaðar fyrr en eftir 10-20 ár. Grenndarkynningin hefur þá verið mjög ótímabær. Er skynsamlegt að fara yfir bæjarlækinn til að sækja vatnið og stuðla með því að óþarfa umferð í gegnum hverfið? Við spyrjum okkur einnig að öðru atriði. Ef val stendur um að staðsetja bálstofu í miðju gróskumiklu íbúahverfi annars vegar eða í útjaðri borgar hins vegar, sérstaklega þar sem búið er að hanna yndislega fallegan duftkirkjugarð í hlíðum Öskjuhlíðar, þá tel ég persónulega, síðari kostinn skynsamlegri að öllu leiti. Með þeirri tilhögun sjáum við fyrir okkur þá kosti að vera með

starfsemina á staðnum, sleppa við allan akstur upp í Grafarvogshverfið og síðan til baka í þennan garð. Ef um einhverja mengun verður að ræða kemur hún ekki til með að angra íbúa þar sem bálstofan yrði staðsett í Öskjuhlíðinni langt frá íbúabyggð og í næsta nágrenni við helstu sjúkrastofnannir landsins. Allt umhverfi aðstandenda hins látna væri notalegt í yndislegu og rólegu umhverfi. Allt annað en í þeirri hringiðu umferðar og hávaða sem kemur til með að verða í Grafarvogshverfi þegar að Hallsvegur og Sundabrautin verða að veruleika. Því veltum við fyrir okkur hvort að ekki eigi að fara fram opinber umræða um þetta málefni því ef að bálstofan verður reist hér í hverfinu kemur hún til með að hafa heilmikil áhrif á umferðaþunga inn og út úr hverfinu. Hvað okkar hverfi snertir stefnum við á að dregið sé úr óþarfa umferð eins og frekast er kostur. Aðgát skal höfð í nærveru sálar !!!! Varðandi mengun vitum við, að íbúar við núverandi bálstofu og starfsfólk leikskólans Sólborgar höfðu á sínum tíma kvartað undan lykt sem kom frá starfsemi bálstofunnar. Við vitum að forsvarsmenn kirkjugarðanna komu til móts við kvartanir þeirra með því að brenna á nóttunni. Varðandi áhyggjur manna af lykt hér í hverfinu vilja þeir meina að upp yrðu settar öflugar mengunarvarnir. Við þurfum að sannfærast um það. Við erum enn ekki sannfærð. Við teljum óþolandi að þurfa að búa við brunalykt alla daga í komandi framtíð. Einnig teljum við mjög mikilvægt að börnum og viðkvæmu fólki, sem vita af bálstofunni og því sem þar fer fram, verði ekki misboðið af því að finna lyktina. Þessi lykt er mjög sérstök. Í því sambandi viljum við benda á að eitt stærsta ungmennafélag landsins er staðsett í næsta nágrenni við fyrirhugaða bálstofu. Við hjá Íbúasamtökunum komum til með að kynna okkur þessi mál vel og af sanngirni og látum íbúa fylgjast vel með framgangi þess. Elísabet Gísladóttir formaður Íbúasamtaka Grafarvogs.

Fjölskyldumiðuð meðferð að leiðarljósi Í janúar 2005 var opnað Meðferðarteymi barna í Heilsugæslu Grafarvogs. Í kjarnateyminu starfa Erla Björk Sveinbjörnsdóttir iðjuþjálfi, Már V. Magnússon sálfræðingur og Inga María Vilhjálmsdóttir félagsráðgjafi auk þess sem læknir og hjúkrunarfræðingur starfa með teyminu. ,,Tilgangurinn með stofnun teymisins var fyrst og fremst að efla heilsugæsluþjónustu á geð- og félagssviði fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Við vinnum í anda frumþjónustu sem hluti af heilsugæslustöðinni. Starfsemin ber keim af því að megináherslan er lögð á að ná til barnanna sem yngstra með það í huga að fyrirbyggja sem mest slæma þróun mála hjá þeim og fjölskyldum þeirra síðar meir með tilheyrandi vandamálum,’’ segir Inga María. - En fyrir hvern er þjónustan? ,,Þjónustan er ætluð börnum og fjölskyldum þeirra sem búa í Grafarvogi og Bryggjuhverfi. Við vinnum í þverfaglegu samstarfi við lækna og annað starfsfólk á Heilsugæslustöðinni og til að fá

þjónustu teymisins þurfa foreldrar að byrja á að snúa sér til síns heimilislæknis, sem fer þá yfir malin með viðkomandi forráðamönnum og tengir okkur síðan saman ef það er niðurstaðan að það sé heppilegasta lausnin. Viðkomandi getur farið til síns heimilislæknis - hvort sem hann er staðsettur á Heilsugæslunni í Grafarvogi eða annars staðar - og rætt við hann um tilvísun.’’ - Hvernig vinnið þið í teyminu? ,,Þrátt fyrir ólíkar nálganir þá vinnum við með fjölskyldumiðaða meðferð að leiðarljósi, þar sem tengslamyndun og samskipti innan fjölskyldu spila stóran þátt. Við sinnum ráðgjöf, meðferð og eftirfylgd barna og fjölskyldna þeirra. Meðal verkefna teymisins er stuðningur í uppeldishlutverkinu, aðstoð við að vinna úr áföllum t.d. erfiður skilnaður eða óvænt dauðsfall, efling félagsfærni barns og þátttöku í leik. Við vinnum með einstaklingsmeðferð, fjölskyldumeðferð, og hópastarf. Það skal sérstaklega tekið fram að tilvísandi heimilislæknir og

eftir atvikum einnig hjúkrunarfræðingur sem hafa haft með viðkomandi

fjölskyldu að gera eru hluti af meðferðarteyminu þegar þeirra skjól-

stæðingar eiga í hlut,’’ sagði Inga María Vilhjálmsdóttitr.

Kjarnateymið: Erla Björk Sveinbjörnsdóttir, Inga María Vilhjálmsdóttir og Már V. Magnússon.

GV-mynd PS


4

Matgoggurinn

GV

Ítalskar bollur og Pavloa í eftirréttinn - að hætti Sólveigar og Benedikts

Hjónin Sólveig Sverrisdóttir og Benedikt Þorbjörn Ólafsson, Fannafold 91, eru matgoggar okkar að þessu sinni. Uppskrfitir þeirra fara hér á eftir:

Ítalskar kjötbollur 500 gr. nautahakk. 1 saxaður laukur. 1 stk. egg. brauðmylsna, salt, pipar. Ca. 1 tsk. hvítlauksduft og oregano.

Hjónin Sólveig Sverrisdóttir og Benedikt Þorbjörn Ólafsson ásamt syni sínum.

GV-mynd PS

Öllu blandað saman í skál, brauðmylsna eftir þörfum, notað til að þétta saman og búa til litlar bollur. Steikt á pönnu létt á allar hliðar. Ekki er þörf á olíu á pönnuna. Sósa: 3 dósir niðursoðnir tómatar, 1-2

nota stóra dós af kotasælu og nota einn pakka af rifnum osti. Með þessu er gott að hafa hvítlauksbrauð, hrásalat og rauðvín.

Pavloa í eftirrétt Marengsbotn: 4 stk. eggjahvítur. 250 gr. sykur 1 tsk. edik. ¼ tsk. vanilla. ¼ tsk salt. Eggjahvítur þeyttar, bætt við sykri, ediki, salti og vanillu. Þeytt vel þangað til marengsinn er orðinn stífur, smyrja á bökunarplötu, gott að hafa bökunarpappír undir. Hiti 100° í 2 klst. Slökkva á ofninum og látið kólna í honum, þetta er hægt að gera degi fyrir notkun.

Ástríður og Ólafur næstu matgoggar Sólveig Sveinsdóttir og Benedikt Þorbjörn Ólafsson, Fannafold 91, skora á Ástríði Lindu Ingadóttur og Ólaf Ólafsson, Breiðuvík 45, að koma með uppskriftir í næsta blað. Við birtum frá þeim girnilegar uppskriftir í næsta blaði í mars.

Stelpukvöldið okkar verður 17. mars í Klúbbnum Allar að taka kvöldið frá núna!!

Febrúar tilboð: Álstrípur með 10 % afslætti með klippingu Ný vefsíða opnar 10. febrúar - nýtt og flott pöntunarkerfi Sóley, Helena, Guðrún, Lilja og Helena E Hárgreiðslustofa Helenu - stubbalubbar - Barðarstöðum 1-5 Sími 586 1717 - panta tíma á netinu! www.stubbalubbar.is Opnunartími mán-mið 10-18 fim 10-20 föst 10-19 laugard 10-16

dósir litlar tómatpurré, mixað saman í blandara, kryddað með salti, pipar, hvítlauksdufti, ca ½ lauk smátt skornum, oregano, parsley krydd. Þessu er öllu blandað saman,og bætt út í smá vatni. Þegar búið er að steikja bollurnar eru þær settar í þessa sósu og bollurnar og sósan soðnar saman á lágum hita í ca. 1. klst. Gott er að útbúa þetta snemma, slökkva undir og hita upp aftur. Pasta Pasta soðið og sett í eldfast fat, mixa hreina kotasælu í blandara og setja í skál, rífa ost og setja með kotasælunni og setja líka hluta af sósunni sem kjötbollurnar eru í útí kotasælu og ostinn og hræra þessu saman og setja yfir pastað. Þetta er hitað í ofni í ca 15-20 mínútur við 180°. Ef soðið er 500 gr. af pasta er gott að

Rjómakrem: 1 ½-2 dl. rjómi. 1-2 msk. flórsykur. ¼ tsk. vanilla. Rjóminn þeyttur, blanda rólega saman flórsykrinum og vanillu. Þessu er smurt ofan á marengsinn. Geymt á köldum stað. Rétt áður en eftirrétturinn er borinn fram eru settir ferskir ávextir eftir smekk, t.d. vínber, blá og græn, jarðaber, kiwi, ferskjur, melónur, bláber og fl. allt ávextir sem búið er að saxa niður og setjið nógu mikið af þeim ofan á botninn og að síðustu sigta smá flórsykur yfir ávextina. Þægilegt að vera tilbúin með ávextina niðurskorna og skella á botninn til að flýta fyrir. Þetta er ferskur og léttur réttur. Borið fram með góðu kaffi. Verði ykkur að góðu. Solla og Bessi.

GV - 587-9500

Grafarvogsbúar - hjólbarðaverkstæðið ykkar er að Gylfaflöt 3

Gylfaflöt 3 • sími 567 4468


Hugsum stórt

Framtíðin er björt

Ágætu Grafarvogsbúar. Sem formaður hverfisráðs þakka ég góða samvinnu. Mér hefur hlotnast sú ánægja að vinna með ykkur að framförum. Íbúaþingið sló tóninn fyrir úttekt á umferðaröryggismálum í hverfinu í samstarfi hverfisráðs, íbúa og lögreglu og hefur þegar skilað úrbótum. Ég er stoltur af uppbyggingu í skólum hverfsins. Mötuneytin eru komin, og ég þakka þann áhuga sem foreldrar sýna, enda höfum við samið við

SAMFOK um að byggja upp foreldraráðin með okkur. Nú leggjum við í enn eitt átakið: Á næstu þremur árum verjum við meira en 300 milljónum króna til skólalóða. Þá viljum við færa tómstundir barna framar á daginn og tengja við skólastarf. Í íþróttamálum liggja fyrir áform um frekari uppbyggingu í Grafarvogi því hér er barnafjöldinn hlutfallslega mestur. Ný þjónustu- og menningar-

miðstöð verður í Spönginni, þakka ég gott samstarf við kirkjuna um hana. Gufuneslandið verður frábært íþrótta- og leikjasvæði. Korpúlfarnir eru alltaf með góð áform sem ég styð - ég á mér þann draum að slík félög eldri borgara starfi um alla borg. Eldri borgarar vilja heildstæða heimahjúkrun og -þjónustu, og eiga rétt á því að samfélagið komi betur til móts við þarfir þeirra.

Kjósum borgarstjóra! Kosningaskrifstofa Laugavegi 103 Sími 578-3390 / 824-3390 www.stefanjon.is stefanjon@stefanjon.is Prófkjör fer fram dagana 11. og 12. febrúar. Búið er að opna fyrir utankjörstaðarkosningu á skrifstofu Samfylkingarinnar að Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík. Opið frá kl. 10 –18. Pantið ókeypis akstur á kjörstað núna eða á kjördag í síma 578-3390 eða 824-3390.


Frá Hverfisráði Grafarvogs:

Eftir því sem svokölluðum jaðaríþróttum fjölgar og unnendum þeirra hefur þeirri hugmynd vaxið fiskur um hrygg að gaman væri að gera eins konar jaðaríþróttasvæði á Gufuneslandinu sem hér sést. GV-mynd PS

Gufuneslóðin verði vettvangur fyrir jaðaríþróttir?

Eins og fram hefur komið frá umfjöllun hverfisrráðs liggur fyrir almennt skipulag um að breyta Gufuneslóðinni í útivistar- og leikjasvæði á næstu árum. Eftir því sem svokölluðum jaðaríþróttum fjölgar og unnendum þeirra hefur þeirri hugmynd vaxið fiskur um hrygg að gaman væri að gera eins konar jaðaríþróttasvæði á Gufuneslandinu, ásamt grasvöllum til almennra íþrótta. Þarna yrði þá fjölbreytt æfinga- og skemmtisvæði sem myndaði valkost við Laugardalinn þar sem húsdýra- og grasagarðurinn eru til staðar. Jafn aðlaðandi, en á öðrum forsendum.

Fjölnir kominn á áætlun Á fyrsta fundi hverfisráðs á árinu var fjallað um bréf frá Fjölni þar sem rakinn var ítarlegur óskalisti félagsins um úrbætur í sínum málum. Ráðið ákvað að óska eftir sérstakri umfjöllun með fulltrúum ÍTR á næsta fundi sínum og heimsækja félagið. Það liggur fyrir að ÍTR hefur unnið ítarlega þarfagreiningu fyrir Fjölni og viðurkennt að félagið sé komið í forgangsröð með framkvæmdir. Þess er að vænta að hverfisráð fjalli frekar um málið á næstunni. Í þriggja ára áætlun borgarinnar sem nú er í vinnslu er gert ráð fyrir framkvæmdaáætlun við uppbyggingu á svæðum félagsins. Viðurkennt er að svo barnmörgu hverfi sem Grafarvogurinn er sé íþróttaaðstaða ekki jafn mikil og góð og æskilegt megi teljast, því er

fyrirhugað að ráða bót á því þegar í næstu þriggja ára áætlun. Að sögn Stefáns Jóns Hafstein, formanns borgarráðs og formanns hverfisráðs, sé einkum horft til þriggja félaga í borginni þar sem átkas sé þörf og Fjölnir komi þar efst á blaði ásamt Fylki og ÍR.

Nýjar hugmyndir um unglingaskóla í Grafarvogi Talvert hefur verið rætt um það í norðurhluta Grafarvogs að rétt væri að breyta einum skólanna í hverfinu í unglingaskóla. Hefur Engjaskóli verið nefndur í því samhengi. Þessar raddir hafa komið úr foreldrasamfélaginu og staðfestir Stefán Jón Hafstein, formaður menntaráðs, að þetta hafi verið fært í tal við sig. Ástæðan er einkum sú að fjölbreyttari valmöguleikar bjóðist í stórum unglingaskóla en í grunnskólum þar sem deildir eru litlar, félagslíf sé öflugra og á margan hátt betra að standa að ýmsu sem varðar unglingana sérstaklega. Stefán Jón segir að það sé áhugavert að þessar hugmyndir komi úr foreldrasamfélaginu og séu allrar athygli verðar. Sjálfsagt sé að leyfa umræðunni að þroskast, en þetta geti verið áhugaverður kostur sem vert sé að gefa gaum.

Leikskólar sjá fram á betri tíð Samkvæmt upplýsingum frá menntasviði borgarinnar hefur gengið mun betur að ráða starfs-

Mun betur hefur gengið að ráða starfsfólk til leikskólanna eftir áramót en fyrir. Börn og foreldrar sjá því fram á betri tíð. GV-mynd PS fólk til leikskólana eftir áramót en fyrir. Eins og kunnugt er hamlaði mannekla í leikskólum starfi í nokkrum þeirra í Grafarvogi og kom til þjónustuskerðingar. Með nýjum samningum við láglaunahópa sem borgin gerði fyrir áramót kom líf í ráðningar á ný. Nú eru mun fleiri rými til fyrir börn í leikskólum borgarinnar en fjöldi barna segir til um, en hins vegar

hefur mannekla hamlað því að hægt sé að nýta öll rýmin. Samkvæmt spá frá menntasviði var ætlað að hægt yrði að taka inn 100 ný börn á fyrstu vikum ársins og myndi þá grynnka verulega á biðlistum og hugsanlega losna um pláss hjá dagforeldrum í framhaldi. Námskeið fyrir verðandi dagforeldra hófst í byrjun febrúar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar.

Samið um stækkun golfvallarins Kylfingar í Grafarvogi geta kæst því nú liggja fyrir áform um að setja rúmar 200 milljónir króna á næstu árum í stækkun golfvallarins við Korpúlfsstaði. Völlurinn verður stækkaður úr 18 holum í 27.


... sög›um vi› stöllurnar, Ingibjörg Sólrún, Sigrún Magnúsdóttir og ég flegar vi› vorum búnar a› skrefstika út málin á fyrirhuga›ri sundlaug í Grafarvogi ári› 1996, í móanum sem henni var ætla›ur og einhverjir sög›u of lítinn. Hvort sem fla› var vegna fless a› vi› vorum stuttar til hnésins e›a af hreinni flrjósku flá var flar me› sanna› a› laugin kæmist fyrir flar sem hún er í dag. Engin okkar var hrædd vi› a› skíta út buxnaskálmarnar til a› afla réttra uppl‡singa og byggja ákvar›anatöku á fleim. fietta var andi Reykjavíkurlistans. fietta er andi Samfylkingarinnar í borginni. fiessi sama heilbrig›a skynsemi segir okkur líka a› málefnum sem snerta nærfljónustu í hverfum borgarinnar sé best komi› í návígi vi› íbúana. fijónustumi›stö›varnar eru dæmi um slíkt, en flær byggja einmitt á vel heppnu›um tilraunaverkefnum sem hófust í Grafarvogi og voru borin uppi af íbúunum flar. En hvar í hverfi sem vi› eigum heima skiptir höfu›máli a› búa vi› trygg og sanngjörn lífskjör, gó›a menntun í leik- og grunnskóla og örugga heilbrig›isfljónustu flegar vi› eldumst. Fyrir flví hef ég beitt mér á sí›ustu tólf árum í Reykjavík. Fyrir flví mun ég berjast í framtí›inni.

- me› kjarkinn sem flarf


Fréttir frá Miðgarði:

Vímuefnaneysla meðal nemenda í 9. og 10. bekk í Grafarvogi og á Kjalarnesi

Hera Hallbera Björnsdóttir, frístundaráðgjafi Miðgarði, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness hera.hallbera.bjornsdottir@reykjavik.is

Undanfarin ár hefur mikið og öflugt forvarnastarf verið unnið í Reykjavík og mikill árangur náðst. Í desember síðastliðnum voru kynntar niðurstöður könnunar sem lögð var fyrir nemendur í 9. og 10. bekk grunnskóla í mars 2005 á vegum rannsóknarmiðstöðvarinnar Rannsóknir & greining. Könnunin var lögð fyrir alla nemendur í 9. og 10. bekk sem mættir voru í skólann á fyrirlagningardag og var svarhlutfall í Reykjavík um 76%. Svör fengust frá 522 nemendum í Grafarvogi og 30 á Kjalarnesi. Líkt og undanfarin ár er þróunin jákvæð, þ.e.a.s. hlutfallslega fleiri nemendur reykja ekki, hafa ekki orðið ölvaðir síðastliðna 30 daga og hafa aldrei prófað hass.

Nemendur í 10. bekk í Grafarvogi Árið 2002 sögðust um 82% nemenda í 10. bekk í Grafarvogi ekki reykja og hefur hlutfallið hækkað jafnt og þétt síðan þá og var komið í um 88% árið 2005. Svipaða þróun má sjá þegar hlutfall þeirra sem ekki hafa orðið ölvaðir síðastliðna 30 daga er skoðað. Þannig sögðust um 60% nemenda í 10. bekk í Grafarvogi ekki hafa orðið ölvaðir síðastliðna 30 daga árið 2002 en 76% árið 2005. Það sama má sjá þegar skoðað er hlutfall þeirra sem aldrei hafa notað hass. Árið 2002 sögðust um 81% nemenda í 10. bekk í Grafarvogi aldrei hafa

notað hass en árið 2005 er hlutfallið komið í um 92%.

Nemendur í 9. bekk í Grafarvogi Þegar hlutfall nemenda í 9. bekk í Grafarvogi sem ekki reykja er skoðað kemur svipuð þróun í ljós, þ.e.a.s. árið 2002 sögðust um 88% nemenda í 9. bekk í Grafarvogi ekki reykja.

Fram til til ársins 2004 jókst það hlutfall eða allt upp í um 98%. Árið 2005 snýst staðan hins vegar við meðal nemenda í 9. bekk í Grafarvogi en það ár sögðust um 86% nemenda ekki reykja. Svipað er uppi á teningnum þegar hlutfall nemenda í 9. bekk í Grafarvogi sem ekki hafa orðið ölvaðir síðastliðna 30 daga er skoðað. Milli áranna 2002 og 2003 stendur hlutfallið nánast í stað en þau ár sögðust um 85-87% nemenda í 9. bekk í Grafarvogi ekki hafa orðið ölvaðir síðastliðna 30 daga. Árið 2004 hækkaði það hlutfall í um 91% en lækkar hins vegar nokkuð árið 2005 eða í um 80%. Þá hefur þeim

aði nokkuð milli áranna 2002 og 2003 eða úr 92% árið 2002 í 80% árið 2003 en hefur verið óbreytt síðan þá. Þá lækkaði hlutfall nemenda í 9. og 10. bekk á Kjalarnesi sem ekki höfðu orðið ölvaðir síðastliðna 30 daga milli áranna 2002 og 2004 eða úr 83% árið 2002 í 36% árið 2004. Árið 2005 hækkaði hlutfall þeirra nemenda í 9. og 10. bekk á Kjalarnesi sem sögðust ekki hafa orðið ölvaðir síðastliðna 30 daga í um 70%. Hins vegar hefur hlutfall nemenda í 9. og 10. bekk á Kjalarnesi sem aldrei hafa notað hass lækkað þónokkuð milli áranna 2002 og 2005. Þannig sögðust um 92% nem-

eru góð tíðindi en betur má ef duga skal og ættu þessar niðurstöður að vera hvatning fyrir alla þá aðila sem vinna með börn og unglinga um að gera betur, svo ekki sé nú talað um foreldrana. Fjöldi rannsókna hafa verið framkvæmdar til að reyna að varpa ljósi á hvernig sporna megi gegn ýmiskonar frávikshegðun barna og unglinga, svo sem vímu-

fólst einkum í því að samverustundirnar voru ekki svo ýkja margar en þeim mun meira gert þegar fjölskyldn var saman, er ekki að skila sama árangri, a.m.k. hvað forvarnir varðar. Hefðbundnar og jafnvel innihaldslitlar samverustundir skila meiru en foreldrar halda. Einfaldir hlutir líkt og að horfa saman á sjónvarpið

Áhersla er á að forvarnir hefjist strax í barnæsku, séu heildstæðar, víðtækar og sameini krafta og störf borgarstarfsmanna. Stefnan er byggð á traustum rannsóknum um árangur og mat á forvarnastarfi og hefur mælanleg markmið. Leiðarljós stefnunnar er að skapa öllum börnum og ungmennum uppeldisaðstæður og umhverfi sem efli sjálfs-

nemendum í 9. bekk í Grafarvogi sem prófað hafa hass fækkað. Árið 2002 sögðust um 90% nemenda í 9. bekk í Grafarvogi aldrei hafa notað hass en árið 2005 á slíkt við um 94%.

enda í 9. og 10. bekk á Kjalarnesi árið 2002 aldrei hafa notað hass en árið 2005 hafði það hlutfall lækkað í um 65%. Það sem stendur upp úr þegar þessar niðustöður eru skoðaðar er hversu hátt hlutfall nemenda í 9. og 10. bekk í Grafarvogi og á Kjalarnesi lætur tóbak, áfengi og hass eiga sig. Þetta

efnaneyslu, ofbeldi og afbrotum, og er samhljómur með flestum þessum rannsóknum. Þessar rannsóknir benda eindregið til þess að foreldrar séu besta forvörnin og þar vega samverustundir fjölskyldunnar hvað mestu. Gæðatíminn svokallaði, sem margir foreldrar hafa í gegnum tíðina skýlt sér á bakvið og

vega mun þyngra en "gæðatíminn" þegar forvarnir almennt eru skoðaðar. Í þessu samhengi er vert að benda á megin innihald forvarnastefnu Reykjavíkurborgar sem nýverið var kynnt. Stefnan tekur til allra barna og ungmenna frá fæðingu til tvítugs, foreldra og allra sem að málefnum þeirra og uppeldi koma.

traust þeirra og sjálfsmynd, einkennist af samkennd og búi yfir viðeigandi stuðningsúrræðum þegar þörf krefur. Heildstæð forvarnastefna er mjög mikilvæg í baráttunni við vímuefnavanda og frávikshegðun og hvetur Miðgarður foreldra og aðra til að kynna sér inntak hennar á vefsíðunni www.midgardur.is

Nemendur í 9. og 10. bekk á Kjalarnesi Hlutfall nemenda í 9. og 10. bekk á Kjalarnesi sem ekki reykja lækk-


10

GV

Fréttir

Herrakvöld Fjölnis Vel á þriðja hundrað hressir karlar úr Grafarvogi stormuðu á Herrakvöld Fjölnis sem fram fór á bóndadaginn að venju. Eggert Skúlason var veislustjóri en ræðumaður kvöldsins var Vilhjálmur Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn. Jóhannes Kristjánsson eftirherma fór með gamanmál og sló í gegn að venju. Hér á síðunni fylgja nokkrar myndir frá Herrakvöldinu og hver veit nema þær verði fleiri í næsta blaði.

Háborðið. Hér má meðal annars þekkja Snorra Hjaltason, heiðursformann Fjölnis, Vilhjálm Vilhjálmsson og Helga Árnason, skólastjóra Rimaskóla.

Þessir herramenn skemmtu sér vel.

GV-myndir PS

Skæringur í Smíðabæ tilhægri með góðum félaga.

Og þessir líka. Fræknir Fjölnisfeðgar. Ólafur Páll, Snorri Hjaltason og Sigursteinn.

Birgir Gunnlaugsson, varaformaður Fjölnis, ræðir við góða félaga.

Björn Ingi Hrafnsson ræðir málin við áhugasama herramenn í Fjölni.

Gerum grunnskólann meira spennandi

Nú gefst öllum Reykvíkingum kostur á að taka þátt í opnu prófkjöri Samfylkingarinnar og raða upp á lista því fólki sem þeir vilja sjá standa vörð um hagsmuni sína á næsta kjörtímabili. Ég hef verið varaborgarfulltrúi undanfarin tvö kjörtímabil, ég hef meðal annars komið að uppbyggingu í bæði grunn og leikskólamálum. Ég var t.d. á þessu kjörtímabili formaður starfshóps sem mótaði stefnu um gjaldfrjálsan leikskóla fyrir fimm ára börn, sem verið er að hrinda í framkvæmd. Ég er þeirrar skoðunar að Samfylkingin eigi að vinna á grunni þess sem við höfum verið að gera innan Reykjavíkurlistans. Reykvíkingar ákváðu ekki sjálfir að þeir treystu ekki Reykjavíkur-

listanum fyrir stjórn borgarinnar, þeir voru ekki spurðir. Það voru félagar okkar í Reykjavíkurlistanum sem ákváðu að slíta sig frá þessu samstarfi. Ég tel að við í Samfylkingunni verðum að bjóða Reykvíkingum skýran valkost við Sjálfstæðisflokkinn í vor. Byggja á þeim góða grunni sem Reykjavíkurlistinn hefur lagt og halda áfram uppbyggingu á mannvænu samfélagi í Reykjavík. Þó margt hafi áunnist eru úrlausnarefnin enn mörg. Menn eru sammála um sum þeirra t.d. nauðsyn þess að að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskólavistar. En það eru ekki allir sammála um hvernig það skuli gert, oddviti framsóknarmanna í komandi kosningum vill til dæmis taka upp heimgreiðslur til for-

eldra. Ég tel að heimgreiðslur séu ekki sú lausn sem foreldrar og atvinnulífið þurfi á að halda. Ég er einnig efins um að það leysi þennan vanda að efla dagmæðrakerfið. Það er ekki nægt öryggi í dagmæðrakerfinu hvorki fyrir foreldra eða börn. Því met ég stöðuna þannig að uppbyggingu í leikskólamálum verði ekki lokið fyrr en við tryggjum öllum börnum vistun á leikskóla við lok fæðingarorlofs. Það að taka börn inn á leikskóla við lok fæðingarorlofs er líka rökrétt framhald af því

sem við höfum ver-

Sigrún Elsa Smáradóttir, þátttakandi í prófkjöri Samfylkingarinnar, skrifar: ið að vinna að. Við þufum að leita leiða til að gera grunnskólann að meira spennandi vinnustað fyrir bæði starfsfólk og nemendur. Auka þar sveigjanleika og fjölbreytni og virkja í enn ríkari mæli sköpunargleði og þró-

unarstarf. Ef þetta kallar á breytingar á því hvernig kjarasamningar kennara eru uppbygðir þá eigum við ekki að skorast undan þeirri vinnu. Ef með þarf verðum við að taka upp sjálfstæðar samningaviðræður við kennarasambandið og freista þess að losa kennara úr viðjum flókinna samninga sem bæði halda aftur af framþróun í skólastarfi og starfsgleði kennara. Ég þarf þinn stuðning í 2. – 4. sæti, til að tryggja að þessi og fleiri áherslumál verði höfð að leiðarljósi í stefnu Samfylkingarinnar á næsta kjörtímabili. Sigrún Elsa Smáradóttir er varaborgarfulltrúi og sækist eftir 2.-4. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar


12

Fréttir Gefið blóð Rauði Kross Íslands gaf Blóðbankanum fullkominn blóðsöfnunarbíl árið 2002. Blóðsöfnun hefur farið fram í honum tvo daga í viku og er safnað mestmegnis í Reykjavík og nágrannabyggðum. Nú stendur til að fjölga ferðum í þrjár á viku og vera alltaf þriðja fimmtudag í mánuði við Húsgagnahöllina Bíldshöfða 20, klukkan 13-17. Starfsfólk Blóðbankans vonast til að Grafarvogsbúar , Árbæingar og þeir sem vinna á á Bíldshöfðanum geti komið og gefið blóð á þessum dögum. Blóðbankinn þarf dag hvern á um 70 blóðgjöfum að halda til að anna þörf heilbrigðisstofnanna um allt land. Brettum upp ermar og gefum blóð. Nánari upplýsingar um Blóðbankann og ferðir bílsins má sjá á www.blodbankinn.is

Lyklar töpuðust Eftir Herrakvöld Fjölnis föstudaginn 20 janúar tapaði einn gestanna lyklum. Þetta er brúnt lyklaveski sem í eru um 8 lyklar af ýmsum gerðum þar með einn stór óvenjulegur lykill. GV vill koma því á framfæri að ef einhver hefur fundið þetta lyklaveski þá er hhinn smi beðinn um að skila því annað hvort til Lögreglunnar í Grafarvogi eða í Sundlaugina í Grafarvog.

Passið trén Í Grafarvogi er víða gróskumikið og Framkvæmdasvið borgarinnar mun á næstunni beita sér fyrir því að gróður sem vex út fyrir lóðamörk verði snyrtur. Lóðareigendur og umráðamenn lóða eru hvattir til að snyrta gróður á lóðum sínum sem liggja að götum, gangstéttum og stígum svo hann hindri ekki umferð utan lóðamarka. Með vísan til ákvæða í byggingareglugerð Reykjavíkur nr. 441/1998 (greinar 68.4 og 68.5) geta borgaryfirvöld látið fjarlægja slíkan gróður á kostnað lóðareigenda. Lóðareigendur hafa tíma til loka mars að sinna þessu verkefni.

GV

Athugasemd frá Kirkjugörðunum Í síðasta tölublaði GV birtist (væntanlega ritstjórnargrein) undir nafninu ,,Líkbrennslan í Grafarvoginn’’. Ég harma að ekki skuli hafa verið leitað til undirritaðs við öflun heimilda, þar er einungis sagt: ,,Samkvæmt heimildum GV’’. Þessar heimildir sem GV hefur fengið eru rangar í stærstu dráttum og virðist greinin skrifuð til að valda íbúum hugarangri og kvíða. Það kom undirrituðum mjög á óvart að GV skyldi birta þessa grein án þess að afla heimilda hjá KGRP um jafn viðkvæm mál. Þess er nú óskað að GV birti leiðréttingu á þessari grein enda mun ekki vera farið fram á annað en staðreyndarvillur verði leiðréttar: 1. Það er ekki búið að taka ákvörðun um ,,að flytja alla líkbrennslu á landinu úr Fossvogi í Grafarvog’’. Gerð hefur verið áætlun um að sú bálstofa sem í framtíðinni leysir bálstofuna í Fossvogi af hólmi verði byggð á Hallsholti og tengist þjónustubyggingum sem þar eiga að rísa. Þessi áform hafa verið rædd í stjórn Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma (KGRP) og mun framtíðin

skera úr um hvort svo verði. Hönnun þjónustubygginga gerir ráð fyrir þessu og hefur árabilið 2015-20 verið nefnt sem viðmiðun. Ef þessi ákvörðun yrði tekin, yrði bálstofan með fullkomnum hreinsibúnaði sem tryggði að spilliefni færu ekki út í andrúmsloftið. Umhverfissvið Reykjavíkur og KGRP hafa undanfarin ár verðið í nánu sambandi um nauðsyn fyrirbyggjandi ráðstafana varðandi mengun og Iðntæknistofnun hefur einnig komið þar að. Þess skal getið að einnig kemur til greina að byggja nýja bálstofu í tengslum við þjónustubyggingar í Fossvogi, þannig að staðarval er ekki ákveðið. 2. Áður en KGRP fengu lóðina undir þjónustubyggingar á Hallsholti fór fram grenndarkynning af hálfu skipulagssviðs Reykjavíkurborgar á þeirri starfsemi sem þar ætti að fara fram og allri hugsanlegri starfsemi sem þar gæti orðið í framtíðinni, þar með talin bálstofa. Engar athugasemdir voru gerðar af hálfu íbúanna eða annarra aðila. 3. Ekki verður séð hvaða ,,ónæði vegna líkbrennslunnar’’ gæti hugsanlega orðið ef bálstofa verður

byggð á Hallsholti. Bálstofan yrði að verulegum hluta niðurgrafin í holtið og engin hljóðmengun kæmi frá henni og loftmengun yrði engin þar sem öllum hugsanlegum spilliefnum yrði safnað saman og þeim fargað á öðrum stað samkvæmt lögum og reglum. Þessi starfsemi er mjög víða í nágrannalöndum okkar og ávallt inni í borgum og í nágrenni við íbúðabyggð. Ég hef ekki heyrt af mótmælum íbúa vegna þessarar starfsemi enda eru allar nýjar bálstofur með fullkominn hreinsibúnað sem samþykktur er af viðkomandi umhverfisyfirvöldum. 4. Fjarlægð frá fyrirhugaðri bálstofu á Hallsholti að næstu íbúðabyggð er meiri í Gufuneskirkjugarði en í Fossvogi. Fjarlægð (loftlína) frá bálstofu í Fossvogi að næstu íbúðabyggð er 103 m (Suðurhlíð) og 91 m í barnaheimilið Sólborg við Vesturhlíð. Fjarlægðin (loftlína) frá fyrirhugaðri bálstofu á Hallsholti er 160 m í næstu íbúðabyggð (sunnan Gagnvegar). Tekið skal fram að góð sátt er milli barnaheimilisins og KGRP eftir að vinnutími starfs-

manna í bálstofu var færður fram til kl. 06:00. 5. Skv. áætluðum hámarksfjölda bálfara næstu 20 árin (2025) verður mjög auðvelt að brenna yfir nóttina en það er í raun engin þörf á því við þær aðstæður sem verða tryggðar í nýrri bálstofu á Hallsholti, þ.e.a.s. ef hún verður byggð þar. 6. Mjög mikil kynning hefur farið fram af hálfu KGRP varðandi þjónustubyggingar á Hallsholti. Efnt var til samkeppni um hönnun bygginga og í þeirri keppni tóku 16 arkitektar þátt. Sýning var haldin í Perlunni í margar vikur á síðasta vori og var hún marg oft auglýst í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu. Á þessari sýningu kom fram hvaða starfsemi væri fyrirhuguð í téðum þjónustubyggingum og auk þess fjallaði Morgunblaðið um málið í sérstakri grein (3. febr. 2005). Til ábendingar fyrir þann sem skrifaði greinina vil ég að öðru leyti segja þetta. Orðið bálstofa notuð yfir húsnæðið þar sem líkbrennslan fer fram og það er talað um fjölda bálfara, fremur en fjölda líkbrennsla. Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri.

Undarleg vinnubrögð forstjórans Það er varla eyðandi tíma né plássi í að svara þessari grein Þórsteins Ragnarssonar. Þórsteinn hafði samband við GV strax eftir útkomu blaðsins í janúar og var honum strax tjáð að athugasemdir hans yrðu birtar í næsta blaði. Hann lét það ekki nægja heldur sendi athugasemdir sínar á alla fjölmiðla þrátt fyrir að þeir hefðu aldrei fjallað um málið. Inntur eftir ástæðu þess sagði hann að formaður Íbúasamtaka Grafarvogs væri búinn að panta viðtöl í öllum fjölmiðlum og þá væri eins gott að þeir hefðu svar hans í höndunum. Heimildir GV voru afar traustar og fréttin rétt að nánast öllu leyti. Gæti verið að skakkaði 60 metrum á fjarlægðinni frá brennslunni að íbúabyggð. Ef að forstjóranum líður betur get ég vel beðið hann afsökunar á þessu smáræði.

Eftir að hafa reynt mikla mótstöðu í Grafarvogi við fyrirhugaða líkbrennslu í hverfinu er farið undan í flæmingi og rætt um 2015 eða 2020. Og að ekkert hafi verið ákveðið í málinu. Ég veit betur. Eða er farið með mál í grenndarkynningu og arkitektar látnir teikna byggingar ef ekki er ætlunin að af framkvæmdum verði? Er það með þessum hætti sem á að fara með peninga almennings? Eitt er alveg á hreinu Þórsteinn. Það verður aldrei samþykkt í Grafarvogi að planta niður líkbrennslu í miðju hverfinu. Og þá gildir einu hvort hún verður ofan jarðar eða neðan, og metranum nær eða fjær íbúabyggð í Grafarvogi en í Fossvogi. Einnig skalt þú vita það Þórsteinn að íbúar í Grafarvogi, Íbúasamtök Grafarvogs, Hverfisráð Grafarvogs

og aðrir aðilar hér í hverfinu kæra sig ekki um kynningu á mikilvægum málum er varða hverfið á einhverjum sýningum í Perlunni, Morgunblaðinu eða Fréttablaðinu. Nær hefði verið fyrir þig Þórsteinn að kynna málið fyrir Hverfisráði Grafarvogs, Íbúasamtökunum og svo auðvitað í Grafarvogsblaðinu sem er mun meira lesið í Grafarvogi en Fréttablaðið og Morgunblaðið og er vinsælasti fjölmiðillinn í hverfinu. Formaður Hverfisráðs Grafarvogs hefur staðfest í samtölum við mig að hann hafi aldrei heyrt á það minnst að til stæði að færa líkbrennsluna úr Fossvogi í Grafarvog og ráðið aldrei fengið erindi um slíkt. Forstjórinn segir í grein sinni: ,,...og virðist greinin skrifuð til að valda íbúum hugarangri og kvíða.’’ Þetta er alvarleg aðdróttun og al-

veg í þínum stíl. Þetta sérstaka mál kann að verða tekið upp á öðrum vettvangi. Það eina sem veldur íbúum hér í Grafarvogi hugarangri og kvíða varðandi þetta mál um þessar mundir er framganga þín og þess fyrirtækis sem þú veitir forstöðu. Þér kann að falla það illa að hafa mistekist að lauma líkbrennslu inn í miðja íbúabyggðina í Grafarvogi. Þar eð þú skilur ekki annars auðskilin atriði í blaðamennsku skal ég upplýsa að daglega fjalla fjölmiðlar um mál án þess að leita eftir skoðunum allra er mál varðar. NFS fréttastofan fjallaði um málið. Birti þína hlið á málinu og mynd af forsíðu Grafarvogsblaðsins. Var tekið viðtal við mig? Komst mín hlið á málinu að á NFS? Hef ekki heyrt frá þeim enn. -ritstj.

Veislusalurinn í Egilshöll

Þegar góða veislu gjöra skal ... Veislusalurinn í Egilshöll er tilvalinn staður til að halda upp á afmæli, brúðkaup eða fermingu. Salurinn tekur um 120 manns í sæti og kemur með snyrtilegum borðbúnaði eða eins og óskað er eftir. Nánari upplýsingar og pantanir í síma 824 6391. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið anna@egilsholl.is

Brúðkaup - Fermingar - Afmæli Munið að panta ! tímanlega 1 S. 824 639


14

15

GV

Fréttir

GV

Fréttir

Stefán Jón Hafstein gengur með borgarstjórann í hjartanu!

Góð kynni af

Grafarvogi Stefán Jón Hafstein formaður hverfisráðs Grafarvogs segist hafa lært margt af því að starfa í hverfinu. Athafnasamir og kröftugir íbúar séu lifandi sönnun þess að með því að færa áhrif út til fólksins sé hlutum vel komið fyrir. Að því vill Stefán Jón stuðla í ríkari mæli. Mikið er framundan í Grafarvogi. ,,Reynslan af því að vinna í Grafarvogi er mjög góð. Þetta er einstakt hverfi vegna þess hve fjölbreytt litrófið er. Menn tala um Grafarvog sem barnahverfi, og það er rétt, en hér eru líka Korpúlfar sem eru skínandi dæmi um þann félagsauð sem ég vil efla í öllum hverfum borgarinnar. Þau biðja aldrei um neitt fyrir sig, bara um möguleika til að gera samfélaginu til góða. Ég á mér þann draum að í hverju hverfi starfi félag eldri borgara eins og Korpúlfar, að alls staðar séu öflug íbúasamtök eins og hér, og þjónustumiðstöðvar um alla borg vinni með félögum eins og gert er hér í Grafarvogi gegnum Miðgarð. Skrítið að íhaldið skuli vera á móti þjónustumiðstöðvum í hverfum, þegar við höfum svona fádæma góða reynslu af Miðgarði.’’ - Hvað ber hæst í Grafarvogi? ,,Ég minnist íbúaþingsins sem varð til þess að við fórum skipulega í umferðaröryggismálin sem nú þegar hafa leitt af sér umbætur á mörgum stöðum. Það vinnulag er nú fyrir-

mynd fyrir önnur hverfi. Þá hefur tekist að koma þjónustumiðstöð í Spöng á áætlun, en verklok verða á næsta kjörtímabili. Mér finnst samstarfið við kirkjuna og fleiri hafa verið gott. Við lögðum drög að því að Gufunesið yrði skilgreint sem útivistar- og jaðaríþróttasvæði og nú er unnið samkvæmt þeirri áætlun. Ég held að þarna verði skemmtilegur valkostur við húsdýragarðinn í Laugardal, líklega meira um sport og kraft, en líka náðugir staðir á milli. Korpúlfsstaðir eru komnir inn og Korpúlfarnir líka inn þar! Ég styð starf þeirra heilshugar og held að Korpúlfsstaðir verði litrík miðstöð. Skólauppbygging hefur verið mikil og ég hef stutt og lagt áherslu á foreldrasamfélagið í samstarfi við skólana. Við gerðum þjónustusamning við SAMFOK um að stýra því verki. Við kláruðum mötuneytin og nú er komið að skólalóðum, við setjum 330 milljónir í skólalóðir á næstu þremur árum. Og nú er komið að því að Fjölnir fái innspýtingu. Fyrir liggur greinargóð úttekt á þörf Fjölnis og á þriggja ára áætlun borgarinnar er fyrirhugað að setja nokkur hundruð milljónir í nýja miðstöð. Grafarvogur á það skilið, hér er mikið af börnum en aðstaðan að meðaltali ekki jafn góð og í grónari hverfum. Það er því mikið framundan. Ég held að þekking mín á Grafarvogi verði gott veganesti í stól borgarstjóra.’’

- Hverjar telurðu sigurlíkur þínar vera í prófkjörinu? ,,Ég held að félagslega sinnað fólk skynji að þetta verður erfiður slagur í vor sem þarf að takast á við af mikilli festu. Við Vilhjálmur Vilhjálmsson erum ákaflega ólíkir stjórnmálamenn, ég hef ekkert slæmt um hann að segja, en tel hann af gamla skólanum. Ég boða ný stjórnmál og er ekkert feiminn við að tala um hugsjónir, manngildi, tilfinningar og sameiginlega reynslu þeirra sem byggja þessa borg. Ég finn að fólk þekkir mig af áralöngu starfi í opinberu lífi, veit hvar það hefur mig, og trúnaður ríkir um þá grundvallarstefnu að manngildi sé ofar öðru. Borgin er okkar allra, við eigum að tryggja jöfn tækifæri fyrir alla. Það er því mjög mikilvægt að stilla upp sigursælum lista í vor undir öflugri forystu sem hefur breiða skírskotun, bæði innan flokksins og út fyrir flokkinn. Annars er tómt mál að tala um að Samfylkingin vinni sigur í vor.’’ - Hvar staðseturðu þig innan Samfylkingarinnar? ,,Ég sagði í blaðaviðtali að ef við lítum á Samfylkinguna sem líkama þá stæði ég í hjarta Samfylkingarinnar. Ég var í undirbúningsnefnd fyrir stofnun Samfylkingarinnar, hún var fyrsti stjórnmálaflokkur sem ég gekk í og ég gerði það á stofnfundinum og var síðan kosinn formaður fram-

,,Samstarfið við Korpúlfana hefur verið skemmtilegt,’’ segir Stefán Jón, hér með Ingva Hjörleifssyni og Ingibjörgu í Miðgarði þegar húsnæði Korpúlfanna var formlega opnað á Korpúlfsstöðum.

,,Og nú er komið að því að Fjölnir fái innspýtingu. Fyrir liggur greinargóð úttekt á þörf Fjölnis og á þriggja ára áætlun borgarinnar er fyrirhugað að setja nokkur hundruð milljónir í nýja miðstöð. Grafarvogur á það skilið, hér er mikið af börnum en aðstaðan að meðaltali ekki jafn góð og í grónari hverfum,’’ segir Stefán Jón Hafstein.

kvæmdastjórnar. Það var draumur okkar að stofna flokk til þess að fólk eins og Björk Vilhelmsdóttir, Dagur B. Eggertsson og þúsundir annarra gengju til liðs við okkur. Sá draumur hefur ræst. Ég er mjög stoltur af því að hafa tekið þátt í þessu frá upphafi. Einhver sagði að ég væri með borgarstjórann í maganum, það er rangt, ég er með borgarstjórann í hjartanu. Ég er frjálslyndur jafnaðarmaður, ég hef mjög mikinn áhuga á atvinnulífi og sköpun góðra starfa. Menntun og skólamálin eru mér kærust, þau eru kjarninn í efnahagsstefnu nútímans. Við viljum búa til þjóðfélag sem býður upp á jöfn tækifæri og þar er menntunin lykilatriði. Þá er mér annt um umhverfið og náttúruna, eins og menn vita. Ég er með þessar þrjár stoðir í minni pólitísku sýn: menntunin, frjótt atvinnulíf og umhverfið.’’ - Hvað aðgreinir þig frá Degi og Steinunni sem sækjast eftir 1. sæti sem þú skipar í dag? ,,Ég hef unnið með þeim báðum og hvet alla til að kjósa þau í eitt af efstu sætunum, þó ég biðji sjálfur um efsta sætið sem er það sæti sem ég sit í núna. En ég hef lagt meiri áherslu á að tengja stjórnmálin í borginni við hugsun okkar jafnaðarmanna í landsmálunum. Ég hef unnið mikið við að byggja flokkinn upp og gera þennan draum um sterkan jafnaðarmannaflokk að veruleika ásamt öðru góðu fólki. Þann bakgrunn hafa Dagur og Steinunn ekki. Dagur var náttúrlega ekki með og Steinunn í mun minna mæli en ég. Starf mitt og annarra náði blóma á síðasta landsfundi. Það var stórkostlegur fundur og ég gekk stoltur út úr Egilshöll. Ég tel að borgarstjóri þurfi að hafa mjög víða skírskotun, sterka rót í félagslegu starfi, og hugmyndafræðilega sýn. Og tala nú ekki um að vera þrautreyndur í eldlínu stjórnmálanna þar sem á reynir, t.d. í sjónvarpi og víðar. Þegar kem-

ur til þess að Reykvíkingar kjósa borgarstjóra í vor tel ég mig hafa trúverðugleika gagnvart almenningi sem er nauðsynlegur fyrir oddvita Samfylkingarinnar í þessari miklu baráttu sem framundan er. Það er skrítið að segja þetta um sjálfan sig, en vissulega skiptir persónufylgi máli. Ég finn að fólk metur framgöngu mína í fjölmiðlum, það skilur hvað ég er að tala um, fólk vill einlægni og að maður sé samkvæmur sjálfum sér. Fólk veit hvar það hefur mig og veit að ég hleyp ekki eftir hverju sem er. Lykill að sigri í vor er breið skírskotun til borgarbúa.’’ - Hvers vegna er stefnt að gjaldfrjálsum leikskóla á næsta kjörtímabili. Er það ekki dýrt fyrir borgina? ,,Þetta kostar rúmlega milljarð en ég held að það sé þess virði. Þetta er mikil lífskjarabót fyrir ungt barnafólk sem ég held að sé sá hópur í dag sem eigi oft fjárhagslega erfitt uppdráttar. Þetta er a.m.k. 200 þúsund króna kjarabót á ári og gagnast mjög vel. Leikskólinn er fyrsta skólastigið, og við viljum að hann sé stéttlaus eins og grunnskólinn. En það er mjög mikilvægt að samtímis því að við innleiðum gjaldfrjálsan leikskóla verði innviðir leikskólans styrktir. Við viljum gjaldfrjálsan og góðan leikskóla. Góður leikskóli er í mínum huga ekki kosningamál heldur undirstöðuþáttur í samfélaginu. Þáttur í því er að borga fólkinu vel sem sér um umönnun barna okkar. Annars liðast allt í sundur fyrir augunum á okkur eins og gerðist í haust.’’ - Hvað mótar stjórnmálaskoðanir Stefáns Jóns? ,,Manngildi. Þegar félagar mínir í menntaskóla voru uppfullir af kommúnisma talaði ég um húmanisma, eða manngildishugsjón. Svo kom hin hörmungin, frjálshyggjan. Þá var ég fréttaritari og námsmaður í Bretlandi - þegar Thatcher tók við. Ég var náms-

maður í háskóla í Bandaríkjunum þegar Reagan stjórnaði. Þessi tvö gerðu mig endanlega að frjálslyndum jafnaðarmanni með manngildishugsjón. Hörð hægrimennska grefur undan samfélaginu. Hjá mér kemur maðurinn fyrst og markaðurinn á eftir. Núna rekur ríkisstjórnin ójafnaðastefnu sem stuðlar að sundrungu samfélagsins. Fyrstu teiknin voru í haust þegar lágu launin í þessu allsnægtarþjóðfélagi voru orðin óbærileg. Við getum ekki látið lítinn hóp missa fótanna á þann hátt að hann geti ekki verið fullgildur þátttakandi í samfélaginu. Þá verður keðjuverkun sem stuðlar að því að samfélagið liðast í sundur.’’ - Þú hefur reynslu af því að vera við nám austan hafs og vestan, varst lengi í útvarpi og sjónvarpi, hefur ferðast til ótal landa og verið sendifulltrúi Rauða krossins í Afríku, en snýst ekki borgarstjórastarfið um gangstéttir og rusl? ,,Ég fékk dýrmæta reynslu og þekkingu á samfélaginu og stjórnmálum í fjölmiðlum. Hún nýtist mér vel í starfi í dag vegna þess að í raun og veru snúast fjölmiðlastörfin og stjórnmálin um mannleg samskipti. Eftir því sem maður fær meiri reynslu því dýpra innsæi fær maður. Ég held að innsæi og mannleg samskipti séu eiginleikar sem maður reynir að tileinka sér. Borgarstjóri þarf að laða fólk til samstarfs en líka vera maður til að segja nei þegar það á við. Forystumenn í stjórnmálum verða að hafa skilning á því að aðalatriðið er að öllum líði vel og séu öruggir saman í samfélagi. Hagvöxtur er er ekki tilgangur lífsins þótt góður sé. Tilgangur lífsins er að okkur líði öllum vel, séum örugg saman og að einstaklingar fái jöfn tækifæri til að blómstra. Stjórnmálamenn spyrja alltof sjaldan um tilgang þess sem við erum að gera. Hvert er hið æðra markmið með því sem við erum

að gera? Ég er orðinn lífsreyndur eins og spurningin ber með sér. Það er ekki nauðsynlegt fyrir næsta borgarstjóra í Reykjavík að hafa sofið á moldargólfi í fjallaþorpi í Eþíópíu, en það hjálpar. Alveg eins og það er reynsla sem ekki hverfur að hafa staðið í þorpi í Írak sem sprengjur höfðu sent á steinaldarstig og fólkið með. Alveg eins og það byggir upp og styrkir að hafa staðið við fótskör drengs sem var limlestur í Sómalíu eða lítillar stúlku sem missti fót í skæruliðaárás í Nigaragúa. Allt hjálpar, öll reynsla, líka sú að hafa fylgst með stjórnmálum austan hafs og vestan sem fréttaritari og hér heima sem gagnrýninn spyrill í fjölmiðlum áratugum saman. Og svo þakka ég fyrir þá reynslu að hafa verið fulltrúi Reykvíkinga í borgarstjórn í forystu fyrir málaflokkum sem kosta litla 22 milljarða króna árlega. Vegna alls þessa veit ég að stjórnmál snúast um mannleg samskipti og mannleg samskipti snúast um traust.’’ - Kvíðir þú úrslitum í prófkjöri? ,,Nei, hvernig sem fer. Ég hef fengið að reyna svo ótrúlega margt. Ég hef fengið að njóta mín. Ég er óendanlega þakklátur fyrir hvað ég hef fengið að lifa skemmtilegu lífi. Mér finnst stundum eins og guðirnir hafi gefið mér verðlaun - sem er þetta líf. Ég er mjög hamingjusamur og mjög þakklátur. Ég hef lifað góðu lífi. Það fyllir mann miklum friði. Ég hef kappkostað að búa mig undir ferð sem ég vissi aldrei hvort ég færi. Það er nú í höndum fólksins. En ég er reiðubúinn - og þakka fyrir það tækifæri sem ég hef fengið til þess að bjóða mig fram og þakka fyrir dóm fólksins, hver sem hann verður. Ég vil vera samkvæmur sjálfum mér: Stjórnmál snúast um traust, og ég treysti því að fólkið kjósi með hjartanu, og kjósi rétt.’’ Hugsum stórt! Hjónin Stefán Jón og Guðrún Kristín Sigurðardóttir saman þegar boltinn fór að rúlla!


16

GV

Fréttir Dagur B. Eggertsson, læknir og borgarfulltrúi:

Grafarvogsbúar - til sigurs vor! Kæru Grafarvogsbúar! Ég sækist eftir stuðningi ykkar til forystu í prófkjöri Samfylkingarinnar sem fram fer 11. og 12. febrúar næst komandi. Kosið verður á fimm stöðum í borginni, þar á meðal Vélamiðstöðinni, Gylfaflöt, í Grafarvogi. Ástæða er til að hvetja Grafarvogsbúa til að nýta tækifærið til að hafa áhrif. Hin nýja Reykjavík er að mótast; kraftmikil og spennandi. Brýn verkefni bíða úrlausnar. Uppbygging blómlegra íbúahverfa, metnaðarfull þjónusta og fjárfesting í menntun barna og lífsgæðum borgarbúa verður að halda áfram óhindruð á komandi árum. Ég leita eftir ykkar umboði til að vinna áfram að þeim verkum.

nokkurs konar fyrirmyndarhverfi. Í stað stóryrða og hryllingsfrétta sem voru daglegt brauð fyrir nokkrum árum er forvarnarstefnan Gróska í Grafarvogi orðin fyrirmynd að forvarnarstefnu fyrir alla borgina. Árangurinn í Grafarvogi held ég þó að sé jafnframt því að þakka að hvergi er nánara samstarf við hverfislöggæsluna, sem fylgist vel með. Það er hægt að deila endalaust um skipulag lögreglunnar en það sem skiptir öllu máli er að borgararnir séu öruggir og unnið sé markvisst gegn innbrotum og skemmdarfýsn. Til þess þurfum við öfluga og sýnilega hverfislögreglu.

Forvarnir og fjölskylduþjónusta

Stórframkvæmdir og byggt yfir Miðgarð

Við höfum séð mikinn árangur hér í Grafarvogi sem hefur verið

Sundabrautin er stærsta úrlausnarefnis sem að Grafarvogi

snýr á næstu mánuðuðum og Það skiptir máli hverjir misserum. Að undirbúningi að stjórna lagningu hennar þarf að vinna í Aukin þjónusta og framsamstarfi þannig að sem best sátt kvæmdnáist um niðurstöðuna. Sundairnar í braut er þó engan veginn eina framkvæmdin sem fyrirhuguð er. Það er að Dagur B. Eggertsson, læknir koma bíó við Egog borgarfultrúi, skrifar: ilshöll og gervigrasvöllur sem á eftir að verða lyftistöng fyrir hið Grafarmerkilega starf sem er unnið hjá vogi endFjölni. Umtalsverðir fjármunir urspegla að á síðustu árum hafa eru á þriggja ára áætlun til að Reykvíkingar upplifað eitt mesta byggja upp í þágu barna í Grafarframfaraskeið í sögu borgarinnar. vogi. Golfvöllurinn er einnig að Atvinnulíf og íþróttir, menntun stækka og við höfum ákveðið að og menning hafa blómstrað sem byggja yfir Miðgarð þar sem aldrei fyrr. Við höfum tekið þátt í bókasafnið og kirkjustarfið fær að skapa nýja Reykjavík; borg jafnframt rými til að vaxa og sem er kraftmikil, skemmtileg og dafna. spennandi. Borgin okkar er full af

tækifærum og þannig á hún að vera. Leiðarljós okkar á næstu árum er að tryggja íbúum örugg hverfi, heilbrigð uppeldisskilyrði og öfluga þjónustu við fjölskyldur. Heilsuefling, hreyfing og forvarnir eru forgangsmál í nýju Reykjavík og íbúar eiga að geta gert kröfu um sýnilega löggæslu í öllum hverfum. Aldraðrir eiga það skilið að við lyftum Grettistaki í þeirra þágu, heilsugæsluna þarf að efla Ég skora á alla Grafarvogsbúa að leggja leið sína á Gylfaflötina um næstu helgi og stilla upp sigurliði á lista Samfylkingarinnar fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Höfundur er í framboði til 1. sætis í prófkjöri Samfylkingarinnar www.dagur.is

Grafarvogur á mikla möguleika Grafarvogshverfið býður upp á mikla möguleika. Hverfið er víðfeðmt og fjölbreytt, því þar eru þétt hverfi og góð útivistarsvæði á víxl. Hin fjölbreytta og samþætta þjónusta sem veitt hefur verið í Miðgarði hefur verið öðrum hverfum að ýmsu leyti fyrirmynd. Íþróttaaðstaðan hefur farið batnandi í hverfinu og gerir Fjölni kleift að stunda öflugt starf í fjölmörgum íþróttagreinum. Það sem einna brýnast er að bæta úr eru samgöngumál. Þar skiptir fyrirhuguð Sundabraut miklu máli og ég tel að það þurfi að vanda vel til allrar staðsetningar þar. Vitaskuld skiptir kostnaðurinn við vegagerðina máli, en ég er þó sammála því að best sé fyrir borgarbúa að hafa tenginguna yfir sundin utarlega. Prófkjörsmálin Ég veit að Grafarvogsbúar telja það þurfi að taka til hendinni á ýmsum stöðum. Það verður gert hér eftir sem hingað til. Mig langar að nota tækifærið hér til að greina frá nokkrum áherslumálum sem ég held á lofti í þessari prófkjörsbaráttu. Fyrst vil ég nefna að ég hef á þessu kjörtímabili verið varaborgarfulltrúi og átt sæti í nokkrum nefndum, þar á meðal velferðarráði og umhverfisráði, jafnréttisnefnd, í stjórn hjúkrunarheimilis (Skógarbæ) og var formaður Innkaupastofnunar og Vélamiðstöðvar. Ég er hagfræðingur og stjórnmálafræðingur að mennt og starfa í Seðlabanka Íslands, ásamt því að sinna stundakennslu í Háskóla Íslands. Skólaborgin Reykjavík Reykjavíkurborg þjónustar íbúana á margvíslegan hátt, en útgjöldin eru ríflega 40 milljarðar króna á ári. Um helmingur fer í skólamálin, og er það vel, enda er með því lagður góður grunnur að lífi unga fólksins. Ég tel að það sé mikilvægt að hlúa vel að hverfisskólunum, sem eru oft mikilvægustu menningarstofnanir í hverju hverfi. Það þarf að tryggja góða fjölbreytni í starfinu þannig að hægt sé að koma sem mest til móts við þarfir hvers og eins nemenda. Þá tel ég að það verði að skoða vel hvort ekki beri að niðurgreiða meir en nú er skólamatinn. Ennfremur verður forgangsverkefni á næstu árum að endurbæta skólalóðir. Við þurfum sífellt að huga að þróun námsins, t.d. með því að vera með góðan tölvubúnað, en við megum ekki gleyma því að fá börnin til að hreyfa sig. Leikskólastarfið þarf ennfremur að

þróa og efla, en það hefur verið athyglisvert að fræðast um tilraunastarf sem unnið hefur verið í leikskólum í samastarfi við Kennaraháskóla Íslands. Það sýnir að það er margt hægt að gera með börnum strax í leikskóla. Börnin eru framtíðin Í félagsmálum er einna brýnast að bæta stöðu þeirra barna sem búa við erfiðastar aðstæður. Það er gert með ýmsu móti á Velferðarsviði borgarinnar, en betur má ef duga skal. Það er einkum mikilvægt að tryggja að Barnaverndin geti unnið vel og skipulega að þeim erfiðu málum sem hún sinnir. Hún hefur fengið til þess aukinn styrk og ég hef trú á að með því að færa þjónustuna nær íbúunum, m.a. með stofnun þjónustumiðstöðva í hverfum, verði hægt Stefán Jóhann Stefánsson, að varaborgarfulltrúi Samefla þessa fylkingarinnar, skrifar: þjónustu. Ég vil auka jafnræði meðal barnanna í borginni. Liður í því er að draga sem mest úr þeim gjöldum sem foreldrar þurfa að greiða fyrir ýmsa tómstundaiðkun barnanna. Við vitum að gjöldin geta verið hindrun, en mér finnst að við eigum að klára sem fyrst þá vinnu sem hafin er við að meta hvernig hægt verði að koma á ókeypis íþrótta- og listiðkun barna upp að vissum aldri. Virðum aldraða Málefni aldraðra þarf að taka fastari tökum. Margt hefur verið gert, en það er líka ýmislegt óklárað. Einna brýnast er að ljúka sem fyrst að byggja nýtt hjúkrunarheimili með 110 hjúkrunarrýmum þannig að hægt verði að bjóða þeim rými sem eru í brýnni þörf fyrir slíkt. Jafnframt þarf að halda áfram samþættingu heimahjúkrunar og heimaþjónustu þannig að aldraðir geti haft val um að búa lengur heima. Þá þarf í samstarfi við ríkisvaldið að fara heildstætt yfir málefni aldraðra. Við þurfum að

sýna öldruðum meiri virðingu en tilhneiging hefur verið til á síðustu áratugum. Jafnrétti Jafnréttismál eru mikilvægur málaflokkur sem vinna þarf vel í. Það hefur ýmislegt áunnist í jafnréttisbaráttu kvenna á umliðnum áratugum, en samt er enn langt í land með að jafnrétti náist. Einna brýnast er að vinna einarðlega að því áfram að útrýma þeim kynbundna launamun sem enn er til staðar. Þá þarf að láta jafnréttisumræðuna í ríkari mæli ná til fleiri hópa. Við þurfum að bæta stöðu fatlaðra, samkynhneigðra og nýbúa. Þar þurfum að vinna að því að samþykkja sérstaka mannréttindastefnu sem unnið er að. Það þarf að tryggja fötluðum sama aðgengi og öðrum að lífsins gæðum, það þarf að styrkja stöðu samkynhneigðra og koma í veg fyrir aðgreiningu nýbúa. Eitt mikilvægasta tækið til þess að koma í veg fyrir aðgreiningu nýbúa er að efla íslenskukennslu á meðal þeirra, einkum fullorðinna nýbúa - og það þarf að fá fyrirtæki og stofnanir til liðs við okkur í þeim efnum. Nýtum vel land, umhverfi og fé Skipulagsmál og umhverfismál eru stór og mikilvægur málaflokkur. Það þarf að tryggja fjölbreytta uppbyggingu sem þjónar borgarbúunum sem best. Það er brýnt að nýta borgarlandið vel, en nú fer um helmingur þess undir umferðarmannvirki og aðliggjandi svæði. Við þurfum auðvitað að komast leiðar okkar á greiðan hátt, en þegar svona er komið verðum við aðeins að staldra við. Það þarf að þétta byggðina betur og breyta aðeins umferðarmynstrinu. Svifryk frá umferðinni er að verða vandamál og við því þarf að bregðast. Það er af mörgu að taka þegar ræða þarf um þá fjölbreyttu þjónustu sem borgin á að sinna. Það verður þó ætíð að hugsa til framtíðar í þessum efnum. Við þurfum ekki aðeins að byggja upp góðan grunn fyrir framtíðarkynslóðir með góðu skólastarfi, félagsstarfi, skynsamlegri nýtingu lands og umhverfis, heldur þurfum við ætíð að gæta að því að fara vel með það fé sem okkur er trúað fyrir og hér eftir sem hingað til að vera framsýn í þeim efnum. Stefán Jóhann Stefánsson, varaborgarfulltrúi, býður sig fram í 3. sæti hjá Samfylkingunni í Reykjavík

GV auglýsingasími 587-9500

Jeppadekk Grafarvogsbúar - hjólbarðaverkstæðið ykkar er að Gylfaflöt 3

Gylfaflöt 3 • sími 567 4468


GCI ALMANNATENGSL - GREY COMMUNICATIONS INTERNATIONAL

Frábær Frábær tilbo› tilbo› íí tilefni tilefni n‡rra n‡rra heimkynna heimkynna Citroën. Citroën. Bíldshöf›a Bíldshöf›a 8. 8. Komdu Komdu íí kaffi. kaffi. Sjá›u Sjá›u Citroën Citroën íí n‡ju n‡ju ljósi. ljósi.

FRANSKT TILBO‹

1.720.000 kr.

Vertu í öruggu formi.Veldu C4. Ber›u saman ver›, gæ›i og græjur. Dæmi um sta›albúna› í C4:

Veldu a›eins fla› besta - sjá›u Citroën C4 - ö›ruvísi hönnun sem á sér enga fyrirmynd a›ra en hef›ir og hugmyndir Frakka um form og gæ›i. Sko›a›u búna› C4, kynntu flér eiginleika hans notagildi› og flú sér› a› miki› af flví gó›a er best. Komdu í Brimborg. Veldu Citroën C4, franskan muna›. Sífellt fleiri Íslendingar kaupa Citroën. Í ljósi fless eykur Brimborg gæ›a fljónustu Citroën enn frekar: Citroën er kominn í bjartari og glæsilegri s‡ningarsal hinum megin götunnar. Einnig byggjum vi› n‡tt fljónustuverkstæ›i og n‡jan lager varahluta. Komdu í Brimborg, Bíldshöf›a 8 í dag. Sko›a›u Citroën í n‡ju ljósi.

• ESP stö›ugleikast‡ring • ASR spólvörn • Hra›astillir • Stillanlegur hra›atakmarkari • Fjarst‡ring helstu stjórnrofa í st‡ri • Stafrænt mælabor› me› birtuskynjun • Loftkæling me› mó›uvörn • fiokuljós í framstu›ara • 6 Öryggispú›ar • Upphitanleg framsæti • Geislaspilari me› fjarst‡ringu í st‡ri

• 6 Hátalarar • Aksturstölva • Útihitamælir • Ilmgjafahólf • Fjölstillanlegt bílstjórasæti • ABS hemlakerfi • EBD hemlajöfnun • EBA ney›arhemlunarbúna›ur • Rafdrifnir útispeglar • Velti- og a›dráttarst‡ri • Fjarst‡r› samlæsing

Citroën C4 SALOON dúxa›i örugglega á prófi hjá árekstraröryggis- Miki› meira er betra. Sko›a›u aukabúna› C4 t.d.: • Xenon beygjuljós • Le›urinnrétting stofnuninni EuroNCAP. Í sínum flokki fékk Citroën C4 SALOON • Bluetooth flrá›laus símabúna›ur • Skygg›ar rú›ur hæstu einkunn. Sjá›u C4 SALOON. Veldu fallegt og kraftmiki› • Bakkskynjari • Sérstyrkt öryggisgler form og öryggi fyrir fjölskylduna. Veldu Citroën C4 SALOON. • Minibar/kælir • Dráttarkrókur • Glerflak • Fjöldiska geislaspilari

Sko›a›u Citroën í n‡jum og glæsilegum s‡ningarsal. Bíldshöf›a 8.

Citroën flytur í n‡tt húsnæ›i

Komdu í Brimborg. Upplif›u franska hönnun. Sjá›u Citroën – ekta franskan muna›. Vi› sta›grei›um gamla bílinn veljir flú bíl frá Brimborg. Sífellt fleiri Íslendingar velja Citroën. Sérstök hönnun, framúrskarandi tækni og mikil eftirspurn á endursölumarka›i tryggja gæ›i og hagkvæmni Citroën. Sko›a›u súlumyndina hér til vinstri og flú sér› a› fleiri og fleiri Íslendingar velja Citroën.

fiú veltir fyrir flér hvernig best er a› losna vi› gamla bílinn. Brimborg kaupir hann af flér sta›greitt** veljir flú bíl frá Brimborg. fiú fær› peninginn beint í vasann - e›a grei›ir upp láni› á gamla bílnum. fiú losnar vi› allt umstang vi› a› selja og minnkar flinn kostna›. Komdu og sko›a›u Citroën í dag. Komdu í Brimborg - sko›a›u n‡ja hönnun og kynntu flér hvernig flú getur fengi› flér Citroën.

Í tilefni n‡rra heimkynna Citroën, Bíldshöf›a 8, b‡›ur SP fjármögnun vi›skiptavinum Brimborgar enn betri kjör á n‡jum Citroën. N‡ttu flér tilbo›in á Citroën í dag. Veldu bílasamning og a›eins 10 prósent útborgun.

Brimborg Reykjavík: Bíldshöf›a 8, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 |

www.citroen.is

*Brimborg og Citroën áskilja sér rétt til a› breyta ver›i og búna›i án fyrirvara og a› auki er kaupver› há› gengi. Lán er bílasamningur me› 10% útborgun og mána›arlegum grei›slum í 84 mánu›i og eru há›ar breytingum á vöxtum og gengi erlendra mynta 50% isk / 50% erl.myntkarfa. Leiga er rekstrarleiga og er mi›u› vi› mána›arlegar grei›slur í 39 mánu›i sem eru há›ar gengi erlendra mynta og vöxtum fleirra. Smur- og fljónustueftirlit samkvæmt ferli framlei›anda og Brimborgar er innifali› í leigugrei›slu og allt a› 20.000 km akstur á ári. Aukabúna›ur á mynd: álfelgur og bakkskynjari. **Sta›greitt 45 dögum eftir afhendingu n‡ja bílsins. Nánari uppl‡singar veita sölurá›gjafar Brimborgar.


18

GV

Fréttir

Sundabraut í ytri leið og fullt tillit verði tekið til sjónarmiða íbúa Það var gaman að vera á opnum fundi Framkvæmdaráðs Reykjavíkur þann 17. nóvember s.l. og fylgjast með kröftugum málflutningi íbúasamtakanna beggja megin við Elliðaárvoginn þegar þeir mótmæltu fyrirætlunum stjórnvalda um að leggja Sundabrautina í innri leið. Þetta hafa stjórnvöld ætlað sér nokkuð lengi og hafa þar með skellt skollaeyrum við vel rökstuddum ábendingum fólksins beggja meginn vogsins, um margt neikvætt, sem yrði fylgifiskur þeirrar ákvörðunar, eins og t.d. óviðundndi umferðahávaði, aukinn gegnum akstur í gegnum íbúabyggð og meiri aukning á umferð á hinni umferðaþungu Miklubraut, en ef Sundabrautinn yrði lögð í ytri leið. En það gætu verið gætu verið bjartari tímar framundan, m.a. vegna þess hve mikill þungi var í mörgum fundarmönnum á fyrrnefndum fundi Framkvæmdaráðsins. En einn velheppnaður fundur er ekki nóg. Íbúarnir beggja meginn vogsins verða að nota öll tæki-

færi til þess að auka líkurnar á því að fallist verði á málflutning þeirra um að Sundabraut verði lögð í ytri leið. Ein ágæt aðferð til þess er að skipta sér af stefnumótun stjórnmálaflokkanna í borgarmálunum og gefst m.a. tækifæri til þess helgina 11.-12. febrúar n.k., þegar Samfylkingin heldur opið prófkjör til að skera úr um uppröðun flokksins á framboðslista vegna borgarstjórnarkosningana í maí n.k. Ég sem skrifa þessa grein var á títtnefndum fundi framkæmdaráðsins og fórum við tveir stjórnarmenn í Samtökum um betri byggð upp í ræðustólinn og studdum sjónarmið íbúanna og hlutum fyrir dynjandi lófaklapp. Ég hef nú ákveðið að bjóða mig fram í fyrrnefndu prófkjöri og stefni á 4.-5. sæti listans. Ég er verkfræðingur og hef unnið hjá Framkvæmdasviði borgarinnar frá 1968, lengst af við umferðaröryggismál. Ég hef starfað mikið að félagsmálum, þ.á.m. borgarpólitík. Ég hef verið stjórnar-

maður í Samtökum um betri byggð frá upphafi, 1999.

Helstu stefnumál mín

fækki um 25% á næstu 5 árum og yrði borgin þá komin í hóp bestu borga í heiminum á þessum sviði. 3. Byggðasamlag um

1. Flugvöllinn burt 2010. Þar rísi þétt og blönduð miðborgarbyggð. Þetta er stærsta Gunnar Hjörtur Gunnarshagsmunamál borgarbúa, a.m.k. son, verkfræðingur, 200 milljarða kr skrifar: virði fyrir þjóðarbúið. Hvern mánuð sem það dregst að fjarlægja flugstofnbrautvöllinn tapar þjóðarbúið 1 milljarði arkerfið kr vegna vaxta af bundnu fé. Þessi verði aðgerð myndi efla mjög miðborgina stofnað á höfuðborgarsvæðinu í því og minnka akstursþörfina með tilskyni að bæta verulega ástand þess. heyrandi peningasparnaði, tímaRíkið gefi þennan málaflokk frá sér sparnaði, fækkun umferðaslysa og en útvegi a.m.k. 100% meira fé til minnkandi mengun. hans á svæðinu en verið hefur. 2. 4. Árangursríku starfi við fækkun Sundabraut verði lögð í ytri leið umferðarslysa verði haldið áfram. (leið 1). Borgin hefur staðið sig miklu betur 5. en ríkið í þessum málum síðan RÍþróttastarfið verði eflt ekki síst í listinn tók við. Umferðarslysum þágu barna. Æfinga- og iðkenda-

gjöld barna í íþróttafélögum verði niðurgreidd sem og gjöld vegna annarrar tómstundaiðkunar barna. 6. Bætta öldrunarþjónustu fyrir þá sem kjósa að búa heima, t.d. með samþættingu heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónusu. Fleiri hjúkrunarrými fyrir aldraða. 7. Betra strætisvagnakerfi. Gönguleiðir verði styttar með þéttriðnara kerfi, jafnframt verði þær gerðar öruggari þar sem farið er yfir miklar umferðagötur. Ég skora á ykkur kjósendur að fjölmenna í prófkjörið 11.-12. febrúar og kjósa mig í 4. eða 5. sæti listans. Ég mun beita mér af alefli fyrir ykkar mikla hagsmunamáli, Sundabraut í ytri leið en þið ákveðið með atkvæði ykkar hversu mikið pólítískt afl ég kem til með að hafa. Gunnar H. Gunnarsson er verkfræðingur og býður sig fram í 4.-5. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar

Kæru viðskiptavinir! Allan febrúar bjóðum við lita-strípu-permanent við-

skiptavinum upp á Parafin handarmeðferð sem er frábært fyrir hendurnar á þessum árstíma.

Hársnyrtistofan Höfuðlausnir

Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is Opið: Mán 08.00-18.00 - þri - fim 09.00-18.00 fös 08:00-18:00 og lau frá 10:00-14:00

Smurstöð Grafarvogsbúar - hjólbarðaverkstæðið ykkar er að Gylfaflöt 3

Pöntunarsími: 567-6330

Gylfaflöt 3 • sími 567 4468


19

GV

Fréttir

Olís-Gullinbrúarmótið í fimleikum: Anna Júlía, Linda, Stella Þóra, Margrét Ásta, Hrönn Kristín, Birgitta Svava, Katrín Mirra, Katrín Fjóla og Vilborg Edda sem allar náðu góðum árangri á fimleikamótinu. Á myndina vantar Örnu Björg.

Miklar framfarir í fimleikum í Fjölni

Fimleikadeild Fjölnis hélt á dögunum Olís-Gullinbrúarmótið, en þar kepptu stúlkur frá Fjölni og Fylki í 6., 5. og 4. þrepi íslenska fimleikastigans. Einnig kepptu piltar frá Fjölni og Gerplu í 4. þrepi. Keppendur kepptu í aldurshópum og var mótið tvískipt, keppendur voru á aldrinum 7-13 ára. Mótið gekk vel í alla staði og stóðu keppendur sig með prýði.

,,Við erum verulegar ánægðar með árangur okkar fólks og það er alveg greinilegt að margir eru að sýna miklar framfarir. Í öllum þrepum voru eru töluverðar bætingar og það er ekki annað hægt en að líta björtum augum fram á veginn. Okkar fólk leggur mikla rækt við æfingar og uppskeran er í samræmi við það. Á næstunni munu nokkrir keppendur

frá Fjölni taka þátt í mótum á vegum Fimleikasambandsins og það verður spennandi að sjá hvernig okkar fólk kemur frá þeim mótum,’’ sagði Guðrún Sveinbjörnsdóttir, yfirþjálfari í fimleikum hjá Fjölni, í samtali við Grafarvogsblaðið. Þess má geta að strákar kepptu í 4. þrepi í fyrsta sinn á Olís-Gullbrúarmótinu og stóðu sig með stakri prýði.

Strákarnir kepptu í 4. þrepi og stóðu sig mjög vel.

Sigurvegarar í einstökum flokkum urðu eftirtaldir. Í 6. þrepi 8 ára sigraði Alexandra Bjarkardóttir, Fjölni, með 32,15 stig. Arndís Hafþórsdóttir, Fylki, sigraði í 6. þrepi 7 ára með 32,55 stig. Stefanía Eydís Björnsdóttir, Fjölni, sigraði í 6. þrepi 9 ára með 32,30 stig. Í 5. þrepi 10 ára sigraði Sara Kristín Þorleifsdóttir, Fjölni, með 34,30 stig.

Í 5. þrepi 8-9 ára sigraði Vilborg Edda Kristjánsdóttir, Fjölni, með 34,80 stig. Dagmar Ýr Þorgeirsdóttir, Fjölni, sigraði í 5. þrepi 10-11 og 12 ára með 34,60 stig. Viktoría Pétursdóttir, Fylki, sigraði í 4. þrepi með 33,05 stig. Í 4. þrepi pilta sigraði Árni Steinn Viggósson úr Gerplu með 43,90 stig.

Verður Grafarvogur í Góðum Málum? - forvarnarvinna, einkennaleit og heilsuefling við Heilsugæslustöðina í Grafarvogi fyrir íbúa í hverfinu á aldrinum 25-45 ára Þrátt fyrir stöðugt aukna þekkingu á meðferð hinna ýmsu sjúkdóma nú á dögum eru allir enn sammála um að betra sé heilt en gróið. Þeir faraldrar sem helst eru að hrjá okkur vesturlandabúa og um leið aðaldánarorsakir seinustu ár eru mjög tengdir neikvæðum umhverfis og lífstílsbreytingum og nefni ég sem dæmi offitu með meðfylgjandi sykursýki fullorðinna, hækkun á blóðfitum (cholesterol) og blóðþrýstingi með meðfylgjandi skemmdum í kransæðum og aukinni hættu á heilablóðfalli. Þetta veldur miklu heilsutapi og kostnaði fyrir viðkomandi einstaklinga og er um leið ákaflega kostnaðarsamt fyrir allt samfélagið. Jafnframt eru menn sammála um að aukin streita með meðfylgjandi kvíða, svefntruflunum og andlegri vanlíðan er ein af algengustu faröldrum 21. aldarinnar. Ýmislegt er þó sem betur fer með þrotlausu starfi að ávinnast einnig og má þar fremst nefna minnkandi reykingar í samfélaginu og svo almennt aukin áhugi á heilsurækt og lífstílsbreytingum. Margir ræða um nauðsyn almennrar heilsuvakningar og eflingar en núna ætlum við á Heilsugæslustöðinni í Grafarvogi að reyna að koma orðum í athafnir. Almenn umræða og ýmsar aðgerðir og vísindagreinar benda til þess að það geti verið skynsamlegt að koma til móts við fólk á aldrinum 25-45 ára þar sem margir af ofangreindum

sjúkdómum fara að gefa viss merki að þeir séu í námd og með því að fara yfir heilsufar og lífsstílsmunstur gera nokkrar einfaldar mælingar og skoðun og fá svo viðbrögð á það hvort einhver aðvörunarljós eru byrjuð að blikka og fá þá ráðleggingar um framhald svo sem lífstílsbreytingar eða hvort að allt sé í þessu fína. Á heilsugæslustöðinni í Grafarvogi hafa starfsmenn nú í 2 1/2 ár rætt með sér hvernig þeir gætu best komið til móts við þennan hóp sem almennt kemur frekar lítið til Heilsugæslu nema vegna skammtíma sýkinga enda á hraustasta aldri. Læknar stöðvarinnar hafa hins vegar oft fengið ýmsar spurningar frá þessum aldurshóp til dæmis hvort hægt sé að koma í 40 þús. kílómetra tékkið (40 ára) og svo framvegis þannig að áhugi þessa aldurshóps virðist vera til staðar á að halda í heilsuna og það sé fylgst reglulega með henni ekki síður en bílunum. Fjöldi fólks á þessum aldri vill reyndar einnig heilsutryggja sig hjá Tryggingafélögum. Allt ofangreint og svo framlag vísra manna hefur svo litið dagsins ljós í spurningalista sem samin hefur verið sérstaklega til að reyna að koma auga á áhættuþætti um lífstílssjúkdómana svokölluðu. Við erum sum byrjuð að nota þessa spurningalista þegar fólk kemur hér á stöðina sem mögulega er að fá þessa sjúkdóma. Það skal sérstaklega tekið fram að svör skjólstæðinga við þess-

um listum verða sjálfkrafa hluti af sjúkraskrá viðkomandi þegar þau eru afhent hér á stöðinni. Það sem við lögðum áherslu á að hér væri ekki um eitthvað átak að ræða heldur yrði þetta að vera hluti af daglegri starfsemi stöðvarinnar til framtíðar með viðeigandi breytingum og lagfæringum eftir þörfum og bættri þekkingu svipað og mæðraeftirlit og barnaskoðanir. Eftir umtalsverða skoðun og samráð ákváðum við að bjóða fólki á aldrinum 25-45 ára að koma hér að morgni, svara fyrst spurningalista, fara í ákveðnar gagnreyndar rannsóknir og mælingar og mæta svo aftur hjá sínum heimilislækni nokkrum dögum seinna þar sem er svo farið yfir niðurstöður með viðkomandi og þá fá flestir ,,fulla skoðun’’, aðrir einhverjar ábendingar og ráðleggingar og einstaka þurfa hugsanlega frekari rannsóknir og vonandi örfáir einhverja beina meðferð. Sýnt hefur verið fram á að með breytingum á hegðun og lífstíl má snúa ofan af og jafnvel koma í veg fyri suma af ofangreindum sjúkdómum og nefni ég sérstaklega sykursýki fullorðinna þar til. Við höfum því ákveðið það fyrirkomulag að bjóða öllum þeim sem eru með lögheimili í Grafarvogi og verða 25, 30, 35, 40 eða 45 ára á hverju ári að koma í svona skoðum með sérstökum boðsbréfum frá stöðinni. Um 1500 manns ná þessum aldursáföngum á þessu ári og verða um 30 manns

Atli Árnason. send bréf í hverri viku. Mikilvægt er að þeir sem fá bréfin og vilja þiggja þetta tilboð hafi sem fyrst samband við Heilsugæslustöðina í síma 5857600 og ekki seinna en 3 vikum eftir að bréfið berst til að dreifing á aðsókn vegna þessa sé sem jöfnust. Móttökuritarar stöðvarinnar munu svo gefa tíma í báðar komur í samvinnu við fyrirspyrjendur. Á næsta ári fá svo þeir sem eiga þessa afmælisáfanga þá samskonar tilboð og svo koll af kolli. Þegar þessi grein er skrifuð hafa þegar verið send út 90 bréf.

Þess ber að geta að í aðdraganda þessarar vinnu höfum við m.a. átt samráð við ýmis félagasamtök m.a. Grafarvogssamtökin, Miðgarð, kirkjuna, Fjölni og fleiri með það að markmiði að reyna að auka á framboð fyrir venjulega íbúa hverfisins í almennri hreyfi og heilsueflingu og ekki má gleyma hinni andlegu heilsurækt. Ekki er komin nein föst niðurstaða í þau mál. Jafnframt ætlum við okkur einnig samstarf við aðila eins og Lýðheilsustöð. Það er spennandi framtíðarverkefni og ef tekst að finna langtímastyrktaraðila til að koma til móts við ýmsan kostnað svo sem leiðbeinenda- og útgáfukostnað þá erum við sannfærð um að almenn heilsuefling til langtíma samfara almennri heilsuvakningu með okkar skoðunartilboði mun til lengri tíma geta breytt almennu heilsufari hér í Grafarvogi hjá miðaldra fólki. Við viljum því hvetja þá Grafarvogsbúa sem nú fá þetta tilboð til að nýta sér það sem fyrst. Starfsfólki heilsugæslustöðvarinnar finnst mjög spennandi að geta boðið upp á þennan möguleika og nú er það ykkar Grafarvogsbúa að sýna okkur með svörun ykkar hvort við séum á réttri leið með þessa hugsun og vinnu. Þá verður henni haldið áfram. Atli Árnason, yfirlæknir Heilsugæslunnar í Grafarvogi


20

Kjósum Gunnar Hjört Gunnarsson í 4.-5. sætið

Fréttir

GV

í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík

Helstu baráttumál Gunnars eru: 1. Flugvöllinn burt 2010 2. Sundabraut í ytri leið 3. Strætisvagnakerfið verði bætt

70% Grafarvogsbúa lesa alltaf Gafarvogsblaðið Auglýsingarnar skila árangri Auglýsingasímar: 587-9500 / 698-2844

Dagur Andri Friðgeirsson og Hrund Hauksdóttir sem bæði tefla fyrir skákdeild Fjölnis, Íslandsmeistarar í flokki barna 2006.

Íslandsmót barna 10 ára og yngri í skák:

Fjölniskrakkar unnu báða titlana Íslandsmót barna 10 ára og yngri í skák fór nýlega fram og mættu ríflega 100 krakkar úr öllum landshlutum til leiks. Þetta er fjölmennasta Íslandsmót sem haldið hefur verið í skák og sýnir hvað íþróttin er vinsæl meðal skólabarna. Skákdeild Fjölnis sendi efnilega skákkrakka til keppni og náðu þau öll góðum árangri. Það ánægjulega gerðist að Fjölniskrakkar unnu Íslandsmeistaratitlana bæði í drengja- og stúlknaflokki. Dagur Andri Friðgeirsson Fjölni varð ótvíræður sigurvegari mótsins og lagði alla andstæðinga sína mjög örugglega að velli. Dagur Andri er yngstur á lista þeirra sem hafa unnið sér inn íslensk skákstig og vakið verðuga athygli fyrir skáksnilli og yfirvegaða framkomu. Þrátt fyrir að vera aðeins 10 ára gamall þá er hann kominn með 1435 skákstig og teflir fyrir Íslands hönd á Norðurlandamótinu í skólaskák í Finnlandi í febrúar. Hann hefur teflt fyrir Fjölni í 4. deild Íslandsmótsins og staðið sig einstaklega vel. Í stúlknaflokki vann Hrund Hauksdóttir Fjölni öruggan sigur. Hún er líkt og Dagur Andri þegar orðin mikil afreksmanneskja við skákborðið og teflir með hinni sigursælu stúlknasveit Rimaskóla í skák. Hrund er aðeins 9 ára gömul og hef-

Hrund Hauksdóttir hefur verið sigursæl á skákmótum í sínum aldursflokki og með stúlknasveit Rimaskóla.

ur æft skák í tæp þrjú ár. Þessi glæsilegi árangur Dags Andra og Hrundar er enn ein skrautfjöður í blómlegu skáklífi Fjölnis síðustu tvö ár. Skákdeild Fjölnis, nýliðar í 3. deild, er nokkuð örugg með að vinna deildina á Íslandsmóti félagsliða sem lýkur í mars. Fjölnisliðið í skák stekkur upp um tvær deildir á tveimur árum.

Virðingarleysi borgaryfirvalda Það er því afskaplega undarlegt að á sama tíma og skákin blómstrar í Grafarvogi þá skuli Reykjavíkurborg sýna skákdeild Fjölnis algjört virðingarleysi við úthlutun rekstarstyrkja fyrir árið 2006. Á sama tíma og hin skákfélögin tvö í borginni fengu úthlutað 1800 þúsund krónum í rekstarstyrk fékk skákdeild Fjölnis 350 þúsund sem dugir skammt ef skákdeildin ætlar að fylgja eftir þeim góða og metnaðarfulla árangri sem þegar hefur unnist. Reykjavíkurborg veitti skákdeild Fjölnis engan rekstrarstyrk í fyrra þar sem deildin sótti ekki nógu tímanlega um enda nýbúið að stofna deildina formlega á þeim tíma. Það er ýmislegt hægt að gera fyrir hugsjónina eina en ekki til lengri tíma ef skilningur yfirvalda á kraftmiklu skákstarfi í Grafarvogi er lítill sem enginn.

Ósigrandi. Dagur Andri Friðgeirsson einn efnilegasti skákmaður Íslands og sá yngsti með skákstig.


MISLITIR SOKKAR ร FA FRร TT DAGANA 9-14 FEBRร AR Mรฆttu รญ mislitum sokkum dagana 9-14 febrรบar og รพรบ fรฆrรฐ aรฐ รฆfa รพรฉr aรฐ kostnaรฐarlausu!

Alhliรฐa lรญkamsrรฆkt og sjรบkraรพjรกlfun Egilshรถllinni Simi: 594 9630

www.orkuverid.is 2 fyrir 1 af mรกnaรฐarkortum รญ febrรบar

W W W S I G R U N E L S A I S iN ]PS ]PUUH m NY\UUP รดLZZ ZLT ]Pรณ Oย M\T NLY[

ยณG HEF MIKLA REYNSLU AF BORGARMร LUM ยณG ร Sย TI ร MENNTARร ยกI OG ER VARAFORMAยกUR STJร RNAR /RKUVEITU 2EYKJAVร KUR FORMAยกUR SAMSTARFSNEFNDAR UM Lร GREGLUMร LEFNI OG FORMAยกUR HVERlSRร ยกS (Lร ยกA ยณG GEGNDI FORMENNSKU STARFSHร PS SEM Mร TAยกI STEFNU UM GJALDFRJร LSAN LEIKSKร LA lMM ร RA BARNA SVO Fร TT EITT Sร NEFNT

ยณG HEF TVISVAR TEKIยก ยคร TT ร KOSNINGASIGRI 2EYKJAVร KURLISTANS GEGN 3Jร LFSTย ยกIS mOKKNUM 6Iยก EIGUM Aยก SETJA MARKIยก ร SIGUR ย Aยก ER RAUNHย FT OG 2EYKVร KINGAR EIGA SKILIยก Aยก 3AMFYLKINGIN TAKI UPP Fร NANN ยคAR SEM Fร LAGAR OKKAR ร 2EYKJAVร KURLISTANUM Vร RPUยกU HONUM FRร Sร R

ยญ Nย STA KJร RTร MABILI VERยกUR Aยก BRร A BILIยก MILLI Fย ยกINGARORLOFS OG LEIKSKร LAVISTAR OG LAGA GRUNNSKร LANN ENN FREKAR Aยก BREYTTUM Tร MUM 6Iยก EIGUM Aยก STANDA Vร Rยก UM /RKUVEITU 2EYKJAVร KUR OG AUKA ยคAR Vย GI UMHVERlSVย NNA ร HERSLNA VIยก ร KVARยกANATร KU

iN ]PS ]PUUH :QmSMZ[ยครณPZร VRRPUU x ]VY

iN ]PS ]PUUH Hรณ LUU IL[YP 9L`RQH]xR

ยณG ยคARF STUยกNING ยคINN ร

Zยค[P ร OPNU PRร FKJร RI 3AMFYLKINGARINNAR

FEBRร AR

3)'2ร . %,3! 3-ยญ2!$ยผ44)2 3-ยญ2!$ยผ44)2 3IGRร N %LSA ER ร RA ร SAMBร ยก MEยก 6ILHJร LMI 'OยกA &RIยกRIKSSYNI OG ร ยคRJร Bร RN Dย TUR ร ร ยกRU OG Tร LFTA ALDURSร RI OG FJร RTร N ร RA SON (ร N ER ER MATVย LAFRย ยก INGUR OG HEFUR MEISTARAGRร ยกU ร VIยกSKIPTASTJร RNUN -"! (ร N HEFUR STARFAยก SEM MARKAยกSSTJร RI HJร EINKAREKNU FYRIRTย KI SL Tร U ร R


22

GV

Fréttir

Stikaði fyrir sundlauginni - viðtal við Steinunni Valdísi Óskarsdóttur borgarstjóra Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri hefur staðið í ströngu síðustu vikur. Umræður um launamál starfsfólks sveitarfélaganna ber þar vitaskuld hæst en einnig yfirvofandi málsókn Reykjavíkurborgar gegn olíufélögunum. Síðast en ekki síst stendur hún í prófkjörsbaráttu til borgarstjóraefnis Samfylkingarinnar fyrir kosningarnar í vor. Það hefur heyrst að valdamikið fólk í störfum hjá ríkinu hugsi Steinunni Valdísi þegjandi þörfina eftir að hún hafnaði því að þiggja laun samkvæmt úrskurði Kjaradóms því hún hafi með því ýtt af stað þeirri skriðu sem síðan varð til þess að Alþingi felldi dóminn úr gildi.

,,Auðvitað verðum við sem stöndum í stafni að hafa kjark til að fylgja sannfæringu okkar,’’ segir borgarstjórinn. Það á hvorttveggja við um hæstu launin en miklu frekar hækkun til þeirra lægst launuðu.’’ - Þessi ráðstöfun að hækka lægstu laun hefur verið vægast sagt umdeild. Mun þetta ganga upp? ,,Þegar undirbúningur kjarasamninga hófst í haust, var á meðal þeirra markmiða sem ég lagði fyrir mína samninganefnd að hækka laun lægst launuðu hópanna, þeirra sem vinna á leikskólunum, í félagslegri heimaþjónustu,

Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri opnaði nýja viðbyggingu við leikskólann Hálsakot. Með stækkun leikskólans og breytingum á eldra húsnæði verður til ný deild sem rúmar vel á þriðja tug 3-6 ára barna, auk sérkennsluherbergis. Þá fær starfsfólk í Hálsakoti til muna betri vinnuaðstöðu. Við opnunina sungu leikskólabörn og borgarstjóri,

inni í skólunum og annarsstaðar. Hins vegar að reyna að hækka launin til útrýmingar kynbundnum launamun. Frá þessu greindi ég í viðtali í Morgunblaðinu 24. október, á Kvennafrídaginn. Ég setti líka fram það markmið að það þyrfti að hækka laun kvennastétta almennt og þar tiltók ég laun leikskólakennara. Þróun mála síðustu vikur á því ekki að koma neinum á óvart. Það er vitaskuld ekki átakalaust að hækka lægstu launin sérstaklega. Það telja víst flestir að þeir séu á of lágum launum, en ég tel að um það þurfi að nást þjóðarsátt, að hækka beri laun segjum undir 150 þúsundum og þeirra sem hugsa um börnin okkar og mennta þau. Það er þjóðarnauðsyn.’’ - En það hefur verið gagnrýnt að þetta sé ekki mögulegt. Að með þessu sé verið að ýta undir óðaverðbólgu. ,,Það segir nú kannski meira um sýn þeirra, sem slíku halda fram, á þjóðfélagið en nokkuð annað að halda slíku fram. Það sér hver maður að hækkun launa úr kannski 120 þúsundum í 150 þúsund á mánuði hleypir ekki af stað einhverri óðaverðbógu. Það eru allt aðrir hlutir í þessu samfélagi sem það gera. Það er launaskrið hjá öðrum hópum sem skiptir meira máli í því samhengi.’’ - Þjónustumiðstöðvar hafa verið áberandi í umræðunni síðustu mánuði og misseri. Hvers vegna var ráðist í það verkefni? ,,Grafarvogsbúar þekkja best ástæður þess að ráðist var í stofnun þjónustumiðstöðva um alla borgina. Hér var gerð tilraun með stofnun Miðgarðs fyrir um átta árum síðan og hún hefur tekist ákaflega vel. Það eru allir sammála um það. Af einhverjum ástæðum hafa minnihlutaflokkarnir í borgarstjórn haft efasemdir um að aðrir borgarbúar ættu að njóta sömu afbragðsþjónustunnar og Grafarvogsbúar. Ég tel að Miðgarður sé ein helsta ástæðan fyrir því að svo gott samstarf hefur tekist milli borgaryfirvalda og íbúa og íbúasamtakanna hér í Grafarvogi. Í ýmsum verkefnum sem við höfum sameignlega verið að fást við í þessu samfélagi, allt frá útivistartíma barna og uppbyggingar skóla til snúinna skipulagsmála, hefur Miðgarður verið þungamiðja þessa farsæla samstarfs. Auðvitað viljum við nota reynsluna af tilrauninni hér til að efla samstarf innan annarra hverfa.’’

- Hver eru helstu viðfangsefnin framundan í samskiptum við íbúana hér? ,,Stærsta hagsmunamálið er vitaskuld ákvörðun um legu Sundabrautarinnar. Nú er loksins komið fé frá ríkinu til að ráðast í þessa miklu samgöngubót, en miklu skiptir að vel takist til um hönnun þessa mikla mannvirkis. Það er ákaflega ögrandi verkefni sem ekki verður verður leyst svo vel fari nema í sem bestri sátt við íbúa. En ögrunin felst ekki hvað síst í því að finna lendingu sem tekur tillit til vaxandi bílaeignar, aukinna krafna um greiðar samgöngur en ekki síður til vaxandi krafna um bætt umhverfi og sjónarmiða þeirra íbúa sem búa í grennd við væntanleg mannvirki. Að sætta þessi sjónarmið er ómögulegt nema með mikilli og virkri þátttöku íbúa og það samráð við íbúa hér í Grafarvogi og handan Elliðavogsins stendur nú yfir. Annað mál sem ég veit að brennur á íbúum og hefur gert lengi er staðsetning húss við Langarima fyrir framan Miðgarð. Þar hefur verið rekin sjoppa og þar átti að vera strætóstöð. Margir hafa bent á að þarna hafi orðið skipulagsslys og ég er þessa dagana að vinna í því að borgin hreinlega kaupi skúrinn til niðurrifs. Reksturinn þar hefur ekki gengið og er nú lag að láta hendur standa fram úr ermum og koma húsinu burt.’’

Mengunarskiltið á Árbæjarsafn - Finnurðu fyrir vaxandi áhuga á umhverfismálunum? ,,Svo sannarlega geri ég það. Ágætt dæmi um það er hreinsun strandlengjunnar. Þar gekk Reykjavíkurborg á undan með góðu fordæmi fyrir rúmum áratug og setti af stað metnaðarfulla áætlun að hreinsa allar strendur af skólpi á 10 árum. Þetta kostaði gríðarlega fjármuni, trúlega viðlíka mikið og Sundabrautin mun kosta. Það voru harðar deilur um tekjuöflunina, holræsagjaldið, en eftir því sem verkinu hefur miðað hefur það verið lækkað tvisvar, alls um þriðjung. Nú er verkinu lokið og nú vildu allir Lilju kveðið hafa, enda hafa borgaryfirvöld fengið óspart lof, ekki síst hér úr Grafarvoginum fyrir framsýni sína í þessum efnum. Mér þótti einkar vænt um það, þegar ég tók í notkun síðustu stóru dælustöðina hér í Grafarvoginum 16. júní í fyrra, að afhenda borgarminjaverði viðvörunarskilti um mengun í fjörunni.

Hún er horfin, ekki bara hér heldur úr öllum fjörum borgarinnar.’’ - Hver eru helstu verkefnin framundan í hverfinu? ,,Stærsta einstaka verkefnið sem ráðist verður í á næstu árum er Menningarmiðstöðin í Spönginni. Það verk hefur verið ákaflega vel undirbúið í samstarfi borgarstofnana, kirkjunnar og lögreglunnar, svo dæmi séu tekin. Á þessu ári er fé varið til lokaundirbúnings og hönnunar og á næstu árum hafa verið eyrnamerktir fjármunir til framkvæmda. Ég tel að með nýju miðstöðinni verði skapaðar forsendur fyrir því að Grafarvogurinn verði áfram í forystu innan borgarinnar í hverfabundnu samstarfi fjölmragra aðila. Þá má nefna að við erum að klára nýja Korpuskólann og viðbygging við Rimaskólann stendur líka fyrir dyrum. Þá er í þriggja ára áætlun gert ráð fyrir fjármagni til íþróttamannvirkja fyrir Fjölni. Annars rifjast það upp fyrir mér, talandi um íþróttamannvirki í Grafarvogi, þegar ég var formaður ÍTR og sérfræðingar borgarinnar héldu því fram statt og stöðugt að sundlaug kæmist ekki fyrir á íþróttasvæðinu við Dalhús. Þá fórum við Ingibjörg Sólrún, sem þá var borgarstjóri, með teikningarnar á staðinn og við bókstaflega stikuðum fyrir lauginni. Eins og Grafarvogsbúar vita komst laugin alveg fyrir, en stundum virðist þurfa að taka á málum með þessum hætti til að klára þau.’’


23

GV

Samfylkingin er sameiningaraflið Steinunn Valdís er sextándi borgarstjóri Reykjavíkur. Upphaf stjórnmálaþáttöku hennar má rekja til stúdentapólitíkur en hún var fyrsti formaður Röskvu í Stúdentaráði Háskóla Íslands árið 1991-1992 eftir sögulegar kosningar. Eftir útskrift hóf hún þáttöku í starfi Kvennalistans, meðal annars var hún fulltrúi Kvennalistans í viðræðunefnd um sameiginlegt framboð vinstri flokkana til borgarstjórnar. ,,Það leiddi til þess að ég fór í framboð 1994 og síðan hef ég verið starfandi í þágu borgarbúa samfleytt,’’ segir Steinunn. ,,Það var mjög rökrétt og yfirveguð ákvörðun hjá Reykjavíkurlistaflokkunum að bjóða fram sameiginlega fyrir tólf árum. Það var hreinlega enginn annar möguleiki á að sigra Sjálfstæðisflokkinn heldur en að bjóða fram saman. Þó mér sjálfri finnist ekki langt síðan, þá eru margir sem muna ekki hvernig hlutirnir voru hér fyrir 1994. Þeir sem eru að kjósa í fyrsta skipti í sveitarstjórnarkosningum í vor, voru sex til tíu ára þá. Þá var staðan sú að Sjálfstæðisflokkurinn hafði stýrt borginni nær samfleytt í sextíu ár. Leikskólarnir í borginni voru þá bara fyrir fáa útvalda og það var kvenfjandsamlegt umhverfi sem blasti við fjölskyldum. Við settum fram kröfu um breytingar árið 1994 sem borgarbúar tóku hressilega undir. Góður sigur vannst og svo aftur 1998 og enn á ný 2002. Nú er landslagið breytt. Ekki bara með því að Reykjavíkurlistinn býður ekki fram í vor, heldur ekki síður að staða Reykjavíkurlistaflokkanna

Fréttir

hefur gerbreyst. Samfylkingin er orðinn trúverðugur og raunverulegur valkostur ein og sér. Við sáum það í síðustu þingkosningum að þegar við bjóðum gott fólk til forystu þá getum við fengið meira fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn. Listinn með Össuri og Ingibjörgu Sólrúnu fékk meira fylgi en Davíð Oddsson og hans listi. Það er ákaflega öflugt lið sem tekur þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar og því ekkert því til fyrirstöðu að sá árangur verði endurtekinn í vor.’’

um í vor hvert framhaldið verður. Ég vil halda áfram á markaðri braut en Sjálfstæðisflokkurinn ekki.’’ - Á borgin að taka aukinn þátt í heilbrigðisþjónustunni? ,,Tvímælalaust. Ég hef raunar forgangsraðað því þannig að fyrst ættum við að taka við heilbrigðisþjónustu við aldraða. Staðreyndin er að ríkið veitir öldruðum minni þjónustu hjúkrunarheimila á höfuðborgarsvæðinu en annarsstaðar á land-

inu. Á móti hefur Reykjavíkurborg eflt mjög heimaþjónustu sem að sama skapi er betri hér en í öðrum sveitarfélögum. Biðlistar aldraðra eftir hjúkrunarrýmum í borginni eru hinsvegar með þeim hætti að ekki verður við unað og ég sé satt að segja ekki aðra lausn en að við gerum þetta sjálf.’’ - En kostar þetta ekki stórfé? ,,Auðvitað þyrftu að nást samningar um flutning málaflokksins og

tekjustofna með við ríkisvaldið, en við höfum séð t.a.m. í grunnskólunum að það gerðist ekkert meðan ríkið sá um málaflokkinn. Það virtist ónæmt fyrir breyttum þörfum fólks hvað varðar einsetningu skólanna, þróun skólastarfsins, skólamáltíðirnar og frístundastarf að loknum skóladegi. Í öllum þessum breytingum hefur Reykjavíkurborg verið í fararbroddi og við viljum einnig vera það í þjónustu við aldraða.’’

Þrettándu mánaðarlaunin - Eru það helst málefni leikskólans sem Reykjavíkurlistans verður minnst fyrir? ,,Já, hugsanlega. Leikskólaganga er ekki lengur forréttindamál. Hún er almenn. Þess vegna höfum við nú lagt upp í það að gera leikskólann gjaldfrjálsan. Það er búið að tala um gjaldfrjálsan leikskóla fjálglega á hátíðarstundum, en við framkvæmum. Miðað við gjaldið áður en lagt var upp í þennan leiðangur spara foreldrar fimm ára barns 128.370 króna útgjöld á ári miðað við átta og hálfs tíma vistun á dag, sem er algengasti dvalartíminn. Af þessum peningum þarf ekki að borga skatt þannig að ráðstöfunartekjur foreldris með algengar tekjur eru að aukast um þrettánda mánuðinn. Ávinningur foreldra yngri barnanna nemur 57 þúsund krónum á ári, miðað við sama dvalartíma á leikskólanum. Hefðu leikskólagjöldin á þessu tímabili þróast með svipuðum hætti og áður, í takti við vísitölu, er ábatinn enn meiri eða 85 til 156 þúsund krónur á ári. Það ræðst svo í kosningun-

Steinunn Valdís Óskarsdóttir ræsir dælustöðina í Gufunesi. Hreinsun strandlengjunnar var gríðarlega stórt verkefni, tók um áratug og kostaði álíka fjárhæð og framkvæmdir við Sundabraut.


24

Fréttir

GV

Arkitektar á vegum Fjölnis hafa í sjálfboðaliðavinnu teiknað upp frumhugmyndir af glæsilegri aðstöðu við Dalhús. Þar er gert ráð fyrir íþóttahjarta í Grafarvogi. Á einum stað er gert ráð fyrir sundlaug, handboltahúsi, sérhönnuðu körfuboltahúsi, félagsaðstöðu Fjölnis, aðalleikvangi knattspyrnudeildar Fjölnis með stúkuaðstöðu sem einnig myndi nýtast til annara hluta. Auðvelt er að koma fyrir aðstöðu fyrir ÍTR á þessu svæði og myndi starfsemi Fjölnis og ÍTR styrkja hvor aðra og samlegðaráhrifin augljós. Ástæðan fyrir því að þetta er hægt er vegna þess að frjálsíþróttadeildin er tilbúin að flytja aðstöðu sína yfir í Egilshöll að því gefnu að þar fáist sambærilegt aðstaða og við Dalhúsin.


25

GV

Fréttir

Af hverju er komið að Fjölni?

- Guðlaugur Þór Þórðarson, formaður Fjölnis, skrifar um aðstöðuleysi Fjölnis sem bitnar á svo til öllum deildum félagsins Fjölnir er fjölmennasta íþróttafélag landsins. Sérstaða félagsins felst meða annars í því að í félaginu eru mjög margar deildir, eða 11 talsins, og veitir félagið því mjög fjölbreytta þjónustu. Iðkendur eru 2707 talsins, 200 koma frá öðrum hverfum en Grafarvogi. Í hverfinu okkar eru 2412 fjölskyldur sem eiga börn fædd á árunum 1989-1999. Aðstöðuleysi hrjáir flestar deildir Fjölnis. Til marks um það má nefna að 40% af æfingatímum knattspyrnudeildar á veturna fara fram á íþróttasvæði vina okkar í Fylki. Langur biðlisti er hjá fimleikadeild eða um 100 börn og ekki hægt að taka þau inn vegna aðstöðuleysis. Slegist er um hvern tíma í íþróttahúsinu Dalhúsum og einnig er hver einasti tími nýttur á sumrin á grassvæði Fjölnis. Fleiri svipuð dæmi mætti tína til úr nær öllum deildum félagsins. Að gefnu tilefni skal hér áréttað að vandi félagsins felst fyrst og fremst í aðstöðuleysinu, en margt gott hefur verið gert fyrir félagið af hálfu borgaryfirvalda og þjónustan sem ÍTR veitir er alla jafna til algerrar fyrirmyndar. Áherslur Fjölnis Forystumenn Fjölnis hafa talað máli félagsins við borgaryfirvöld. Við teljum mikilvægt að þjónusta félagsins verði á þrem stöðum í hverfinu, Dalhúsum, Gufunessvæðinu, Spönginni, við og í Egilshöll. Ástæðan fyrir því er, að hverfið er stórt og til að sinna þörfum íbúa, og þá sérstaklega barna og ungmenna, verður að byggja upp aðstöðu við skólana og á svæðum sem eru í göngufæri fyrir sem flest börn. Markmiðið er að börn og ungmenni stundi íþróttir en þær eru í mikilli samkeppni um tíma þeirra við aðrar tómstundaiðjur, t.d. tónmenntaeða dansnám. Staðsetning skiptir máli í því sambandi, því styttra sem er í aðstöðuna því líklegri eru börnin til að taka þátt. Ástæðan fyrir því að við leggjum áherslu á að taka frá svæði strax er, að eftir tiltölulega skamman tíma verður hverfið fullbyggt og þá er ekki hægt að koma við fleiri svæðum. Við þekkjum þetta vandamál úr öðrum hverfum borgarinnar, t.d. í vesturbænum þar sem að verið er að tala um uppfyllingar fyrir KR þar sem að ekki er að finna nein svæði í hverfinu fyrir íþróttaaðstöðu. Grafarvogshverfi er enn í uppbyggingu og hugmyndir eru uppi um íbúðabyggð við Gufunes, Geldinganes og jafnvel við Keldur. Það er því alveg ljóst að ekki veitir af fleiri íþróttamannvirkjum. Til að auðvelda fjármögnun hefur stjórn Fjölnis lýst yfir vilja sínum til að gefa eftir svæði á Gylfaflöt sem að Markús Örn Antonsson borgarstjóri gaf félaginu fyrirheit um á sínum tíma. Einnig hefur stjórn félagsins lýst því yfir að það er tilbúið til að selja hluta af húsnæðinu sem félagið er búið að teikna við Dalhús undir aðra starfsemi sem gæti átt samleið með íþróttasvæðinu. Félagið hefur rekið mjög aðhaldssama stefnu í fjármálum og eru nær allar deildir félagsins reknar réttu megin við núllið. Skuldir hafa verið greiddar töluvert niður og er félagið nær því skuldlaust þegar þetta er skrifað. Það er ekki sársaukalaust að reka aðhaldssama stefnu í fjármálum en vandi félaga sem eru í fjárhagsörðugleikum er þekktur og vitað er að skuldir íþróttafélaganna í Reykjavík eru um 800 milljónir. Fjölnir, fjöl-

mennasta félag borgarinnar, á innan við 1% af þeim skuldum. Íþróttahjarta Grafarvogs í Dalhúsum Arkitektar á vegum Fjölnis hafa í sjálfboðaliðavinnu teiknað upp frumhugmyndir að glæsilegri aðstöðu við Dalhús. Þar er gert ráð fyrir íþóttahjarta í Grafarvogi. Á einum stað er gert ráð fyrir sundlaug, handboltahúsi, sérhönnuðu körfuboltahúsi, félagsaðstöðu Fjölnis og aðalleikvangi knattspyrnudeildar Fjölnis með stúkuaðstöðu, sem einnig myndu nýtast til annara hluta. Einnig er hæglega hægt að koma fyrir fimleikahúsi og aðstöðu fyrir bardagaíþróttir ef vilji er fyrir hendi. Auðvelt er að koma fyrir aðstöðu fyrir ÍTR á þessu svæði og myndi starfsemi Fjölnis og ÍTR styrkja hvort annað og samlegðaráhrifin augljós. Ástæðan fyrir því að þetta er hægt er vegna þess að frjálsíþróttadeildin er tilbúin að flytja aðstöðu sína yfir í Egilshöll að því gefnu að þar fáist sambærilegt aðstaða og við Dalhús. Þegar þetta er orðið að veruleika erum við með íþróttaðstöðu sem á sér enga hliðstæðu hér á landi. Sannkallaða fjölskylduparadís þar sem færi fram mjög fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarfsemi. Að auki má nefna að gert hefur verið ráð fyrir opnu útivistarsvæði fyrir botni Grafarvogs og upp að íþróttasvæðinu. Slíkt svæði myndi verða lyftistöng fyrir hverfið og bæta það enn frekar. Gufunessvæðið Undirritaður flutti tillögu um fjölnota svæði við Gufunesbæinn undir lok síðasta kjörtímabils. Þar er m.a. gert ráð fyrir íþróttaaðstöðu fyrir Fjölni. Tveim gervigrasvöllum, tennis- og körfuknattleiksvöllum ásamt ýmissi annari starfsemi sem nýtast mun hverfinu. Á þriggja ára áætlun er því gert ráð fyrir gervigrasvöllum á Gufunesi og munum við setjast niður með borgaryfirvöldum við fyrsta tækifæri til að koma því máli í gagnið sem fyrst. Það þarf að taka tillit til Hallsvegar en íbúar í Hamrahverfi hafa komið fram með sterk rök fyrir því að hugmyndir um legu hans gangi ekki upp. Sjálfsagt er að verða við því að mínu áliti og myndi svæðið undir íþrótta- og útivistarsvæði ekki versna við það. Egilshöll Stofnun Egilshallar var án nokkurs vafa mikil lyftistöng fyrir íþróttalíf í borginni og hverfið. Mjög mikilvægt er að verkaskipting á milli Egilshallar og íþróttafélaganna sé skýr. Hagsmunir fara mjög vel saman og hafa Fjölnismenn átt gott samstarf við Egilshallarmenn og hlakka til að eiga samstarf við þá í framtíðinni. Það ber að hafa í huga að svæðið í kringum Egilshöllina er eina svæðið á þessum stað í hverfinu sem mögulegt er að koma fyrir íþróttasvæði fyrir þennan hluta hverfisins. Nú standa yfir viðræður á milli Nýsis, borgarinnar og Fjönis þar sem að þeir fyrstnefndu hafa haft áhuga á að fá þá velli sem að félagið hefur til umráða undir bílastæði í kjölfar þess að glæsilegt kvikmyndahús verður byggt við Egilshöllina. Það þýðir að Fjölnir verður að fá sambærilega aðstöðu og er eini möguleikinn á því svæðið norð-vestan megin við höllina. Þar er fyrir æfingavöllur fyrir Goflklúbb Reykjavíkur sem hefur eins og kunnugt er starfsemi á svæðinu. Starfsemi klúbbsins er til fyrirmyndar og er mikið af ungum Grafarvogsbúum sem eru að hasla

sér völl í golfíþróttinni á þeirra vegum. Það liggur alveg fyrir að æfingavöllur er golfklúbbnum nauðsyn en möguleiki gæti opnast á að byggja hann upp annarsstaðar ef GR fengi stækkun á svæðinu og gæti þar af leiðandi stækkað völlinn upp í 27 holur. Formaður GR hefur lýst því yfir að hann vilji skoða með opnum huga að gefa örlítið eftir af landi klúbbsins fyrir Fjölni af því gefnu að sambærileg aðstaða fengist fyrir félagsmenn GR. Það segir okkur að í GR eru heiðursmenn og konur og er ég þess sannfærður að í framtíðinni finnum við lausn sem allir geti sæst á. Spöngin

Við Spöngina er lóð fyrir íþróttahús, kennslu- og æfingasundlaug. Til stendur að byggja á svæðinu þjónustumiðstöð og áþreifanleg vöntun er á íþróttahúsi fyrir Borgarholtsskóla. Miklir möguleikar eru á samnýtingu fyrir þessa þjónustu á þessu svæði. Bjart framundan Það virðist sem að þverpólitísk samstaða hafi náðst um uppbyggingu aðstöðu fyrir félagið. Eins og sjá má á þeim tölum sem birtast með þessari grein þá eru kröfur okkar um bætta aðstöðu byggðar á mjög sanngjörnum kröfum. Ég held að allir sanngjarnir menn átti sig á að það er komið að Fjölni. Í þriggja ára áætlun Reykja-

víkurborgar sem nú liggur fyrir til samþykktar er gert ráð fyrir gervigrasvelli við Gufunes og byggingu íþróttamiðstöðvarinnar í Dalhúsum. Forystumenn Fjölnis munu skunda á fund forystumanna ÍTR um leið og tækifæri gefst til og hefjast handa við framkvæmdir í kjölfarið. Einnig munum við halda áfram samningaviðræðum við eigendur Egilshallar og forystumenn GR um aðstöðu við Egilshöll. Ekkert nema það besta hentar Fjölni og við munum vinna að því takmarki að félagið okkar verði með þeim bestu á öllum sviðum sem allra fyrst. Grafarvogsbúar eiga það skilið.


26

GV

Fréttir

Brimborg flytur í nýtt húsnæði í Bíldshöfða ,,Brimborg keypti húsnæðið við Bíldshöfða og fékk endanlega afhent 1. okt. 2005. Þá var hafist handa við hönnun og endurgerð húsnæðisins. Húsnæðið hafði ekki hlotið viðhald að ráði svo árum skipti og því var mikið verk fyrir höndum. Einnig hafði aldrei verið gengið frá lóð og bílastæðum,’’ segir Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri Brimborgar sem hefur nú opnað glæsilega sýningasali við Bíldshöfða 8 en fyrirtækið er með höfuðstöðvarnar í Bíldshöfða 6. ,,Reynsla starfsmanna Brimborgar við rekstur bílaumboðs nýttist gríðarlega vel við endursmíði húsnæðisins og var náið samráð haft

við alla þá starfsmenn sem koma til með að vinna á nýja staðnum. Þess má geta að aðeins tók rúma 3 mánuði að flytja Mazda í nýjan sýningarsal, eftir 4 mánuði var Citroën kominn inn og í lok febrúar verður verkstæði tilbúið og þá eru aðeins liðnir 5 mánuðir frá því framkvæmdir hófust. Því má segja að bílaumboð með tvö stór vörumerki hafi verið opnað á aðeins 5 mánuðum og er það líklega heimsmet,’’ segir Egill. Um ástæður þess að Brimborg keypti nýja húsnæðið segir Egill: ,,Meginástæður voru tvær. Í fyrsta lagi var Brimborg að taka við umboði Mazda hér á landi. Mazda

er mjög öflugt vörumerki og því var strax lagt upp með að byggja glæsilega aðstöðu fyrir Mazda, þ.e. sýningarsal, verkstæði og varahluti. Önnur ástæðan er gríðarlegur vöxtur Brimborgar undanfarin ár. Það hefur gert það að verkum að fyrirtækið hefur sprengt núverandi húsnæði utan af sér en þangað var flutt árið 1999 eða fyrir 7 árum. Þar hafa verið til húsa Ford, Volvo og Citroën. Mikill vöxtur í Citroën kallaði á stærri sýningarsal fyrir það vörumerki. Því var ákveðið að byggja sýningarsal í nýja húsnæðinu fyrir það merki og að auki verkstæði og varahluti. Það þýðir að Citroën flytur af Bíldshöfða 6 og um leið rýmk-

ar um Ford og Volvo og auðvitað atvinnutækin frá Volvo líka.’’

Mikil sala í Mazda og Citroën Fyrir viðskiptavini okkar hefur þetta gjörbreytingu í för með sér. Aukið úrval verður í boði þegar Mazda bætist við og einnig batnar þjónusta við kaup á nýjum Citroën bílum því nýi salurinn er mun stærri og betri. Þjónusta batnar til muna því afköst verkstæða Brimborgar aukast um 50% við þessa breytingu. Fjöldi bilastæða eykst til muna því með þessari breytingu og viðbót á Bíldshöfða 2a þá hafa bæst 200 bílastæði við hjá Brimborg á nokkrum mánuðum. Mikil aukning hefur orðið í sölunni frá því við

opnuðum og á fyrsta mánuði hafa selst yfir 80 Mazda bílar og 40 Citroën bílar eða yfir 120 bílar. Það er langt umfram áætlanir og því ljóst að viðskiptavinir okkar taka breytingunum vel.’’

Fjöldi nýrra bíla á leiðinni ,,Á næstunni munum við halda áfram að bæta þjónustu og koma okkur betur fyrir í nýju húsnæði. Fjöldi nýrra bíla verður kynntur á árinu. Þar má nefna Volvo C70 sportbílin, Citroën C1 smábílinn sem smíðaður er í samvinnu við Toyota, Ford Focus ST sportbílinn og Ford Sportrack pallbíl. Einnig kemur Mazda 2 til landsins í vor,’’ segir Egill Jóhannsson.

Stelpukvöld í Klúbbnum Stelpukvöld verður haldið aftur á Klúbbnum, laugardaginn 17. mars, vegna góðrar þátttöku í fyrra og eru það Hárgreiðslustofa Helenu og Klúbburinn við Gullinbrú sem standa að kvöldinu. Dagskráin hefst kl 21.00 en opnað verður fyrir matargesti kl 19.00 og ganga þeir þá fyrir með borð.

Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri Brimborgar, fyrir utan nýja húsnæðið í Bíldshöfða. Þar verða glæsilegir sýningarsalir fyrir Mazda og Citroën. GV-mynd PS

Egilshöllinni Sími: 594-9630 www.orkuverid.is Alhliða líkamsrækt og sjúkraþjálfun

G rafarvogsbúar hjólbarðaverkstæðið ykkar er að

Gylfaflöt 3 Gylfaflöt 3 • sími 567 4468


ENNEMM / SÍA

9,40% KB banki b‡›ur úrval sparireikninga me› frábærum vöxtum. Veldu reikning sem flér hentar eftir upphæ› innstæ›u og lengd binditíma.

MARKA‹SREIKNINGUR KOSTABÓK

Vextir

Hentar

– stigvaxandi eftir upphæ› innstæ›u

Allt a› 9,40%

Fyrir háar fjárhæ›ir og skamman binditíma

Allt a› 9,40%

Fyrir lágar fjárhæ›ir

– stigvaxandi eftir binditíma innstæ›u

Komdu vi› í næsta útibúi KB banka, kíktu á kbbanki.is e›a hringdu í 444 7000 og vi› finnum gó›a sparna›arlei› fyrir flig.

www.kbbanki.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Grafarvogsbladid 2.tbl 2006 by Skrautás Ehf. - Issuu